Morgunblaðið - 17.04.2003, Síða 54
FÓLK Í FRÉTTUM
54 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÁSTRALSKA leikstýran Gillian
Armstrong er ein af stóru alþjóð-
legu stjörnum landa sinna, sem og
hin heillandi leikkona Cate Blanch-
ett. Það er því spennandi að sjá
þessar hæfileikamanneskjur vinna
saman í kvikmynd, líkt og reyndin
er með Charlotte Gray, en útkoman
veldur þó vonbrigðum í samanburði
við meistarstykkið Oscar and
Lucinda, sem Armstrong leikstýrði
og Blanchett lék eitt aðalhlutverk-
anna í.
Charlotte Gray er kvikmyndaað-
lögun á vinsælli skáldsögu eftir Seb-
astian Faulks og lýsir þjónustu að-
alsöguhetjunnar, Charlotte, við
andspyrnuhreyfingu Frakka í
heimsstyrjöldinni síðari. Blanchett
fer vel með hlutverk hinnar huguðu
Charlotte sem heldur til hins her-
tekna Frakklands með það að leið-
arljósi að finna unnusta sinn en end-
ar með því að finna sjálfa sig.
Þetta er vandvirknislega gerð
kvikmynd en gölluð og liggur vand-
inn fyrst og fremst í söguframvind-
unni, sem virðist á köflum ráðast af
mótsagnakenndum forsendum. Far-
ið er hratt yfir sögu og ekki nægur
tími gefinn í að móta persónur og
samband þeirra á milli, þannig að
hvatir að baki gjörðum þeirra virð-
ast oft tilviljunarkenndar og óljósar.
Engu að síður býr myndin yfir
áhugaverðum víddum, ekki síst
hvað varðar þá mynd sem dregin er
upp af stríðinu. Það er skoðað út frá
sjónarhóli fárra einstaklinga, og lýs-
ir vanmætti þeirra fremur en hetju-
dáðum andspænis þeirri grimmd og
sviksemi sem er allsráðandi. Þannig
verður Charlotte vitni að ömurleg-
um örlögum nokkurra meðlima and-
spyrnuhreyfingarinnar en þau
verða fórnarlömb valdatafls sem
teygir anga sína út fyrir raðir nas-
ista. Ofbeldið gegn gyðingum er
einnig áberandi þáttur í sögunni og
er sá vanmáttur sem Charlotte upp-
lifir andspænis því sterkur þáttur í
kvikmyndinni.
Hinir áhugaverðari fletir mynd-
arinnar, sem vindur fram í fögrum
og frábærlega teknum myndskeið-
um, víkja þó fyrir heildargöllunum,
sem liggja e.t.v. í gallaðri aðlögun á
skáldsögunni yfir í tveggja klukku-
tíma langt kvikmyndahandrit.
Cate Blanchett fer með hlutverk Charlotte Gray.
Vanmáttug
andspyrna
KVIKMYNDIR
Háskólabíó
Leikstjórn: Gillian Armstrong. Handrit:
Jeremy Brock. Byggt á skáldsögu Seb-
astian Faulks. Kvikmyndataka: Dion
Beebe. Aðalhlutverk: Cate Blanchett,
Billy Cudrup, Michael Chambon, Rupert
Penry-Jones. Lengd: 121 mín. Bretland,
Ástralía, Þýskaland. Warner Brothers,
2001.
CHARLOTTE GRAY Heiða Jóhannsdóttir
Stóra svið
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
Forsýning fi 24/4 kl 20 - Kr. 1.000
FRUMSÝNING su 27/4 - UPPSELT
Mi 30/4 kl 20 - UPPSELT
Fi 1/5 kl 20 - 1.maí tilboð kr. 1.800
Fö 2/5 klL 20, Lau 10/5 kl 20
PÚNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht
Lau 26/4 kl 20, Su 4/5 kl 20, Su 11/5 kl 20
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
Fö 25/4 kl 20, Lau 3/5 kl 20, Fö 9/5 kl 20
ATH: Sýningum lýkur í vor
DÚNDURFRÉTTIR - TÓNLEIKAR
Dark side of the Moon
Mi 23/4 kl 20,
Mi 23/4 kl 22:30
Nýja svið
Þriðja hæðin
Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga.
Fax 568 0383 - midasala@borgarleikhus.is
Miðasala 568 8000
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Lau 3/5 kl 20
Su 11/5 kl 20
Takmarkaður sýningarfjöldi
Litla svið
RÓMEÓ OG JÚLÍA
e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT
Fö 25/4 kl 20, Lau 27/4 kl 20,
Fö 2/5 kl 11 - UPPSELT, Fö 2/5 kl 20
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN
í samstarfi við SJÓNLEIKHÚSIÐ
Leikrit með söngvum - og ís á eftir!
Lau 26/4 kl 14
KVETCH eftir Steven Berkoff
í samstarfi við Á SENUNNI
Fi 24/4 kl 20, Lau 3/5 kl 20
ATH: Síðustu sýningar
15:15 TÓNLEIKAR - BERGMÁL FINNLANDS
Ferðalög - Poulenc-hópurinn, Lau 26/4 kl 15:15
GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt
Su 11/5 kl 20
Su 18/5 kl 20
Örfáar sýningar vegna fjölda áskorana
SUMARÆVINTÝRI e. Shakespeare og
leikhópinn
Mi 23/4 kl 20, Lau 26/4 kl 20, Su 27/4 kl 20
MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS
VÆRI HATTUR
eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne
Fö 25/4 kl 20, Fi 1/5 kl 20
„Salurinn lá í hlátri allan tímann enda textinn
stórsnjall og drepfyndinn.“
Kolbrún Bergþórsdóttir DV
fim 17/4 SJALLINN AKUREYRI UPPSELT
Iau 19/4 SJALLINN AKUREYRI UPPSELT
lau 19/4 Þrjár systur; frumsýning í Nasa
föst 25/4 Örfá sæti
lau 26/4 Nokkur sæti
mið 30/4 Sellófon 1. árs Nokkur sæti
föst 2/5 Nokkur sæti
lau 3/5 Nokkur sæti
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
sími 575 7700. Gerðubergi 3-5, 111 Rvík
Þetta vil ég sjá!
Ingibjörg Sólrún velur verk á sýninguna.
Ríkarður Long Ingibergsson sýnir
tréskurð í Félagsstarfi Gerðubergs.
Leiðsögn um sýningu Ríkarðs um helgar.
Ath. síðasta sýningarhelgi.
Tónleikar með Gunnari Kvaran
og Elísabetu Waage sumardaginn fyrsta.
www.gerduberg.is
Minjasafn Orkuveitunnar í Elliðaárdal
(gegnt gömlu rafstöðinni) Minjasafn
Orkuveitunnar í Elliðaárdal
(gegnt gömlu rafstöðinni).
Lokað páskadag.
Sumardagurinn fyrsti, opið 13-18.
BORGARSKJALASAFN REYKJAVÍKUR
www.rvk.is/borgarskjalasafn
Sími 563 1770
Saga Reykjavíkur er varðveitt á
Borgarskjalasafni.
Lesstofa og afgreiðsla
opin alla virka daga kl. 10-16.
sími 563 1717
Upplýsingar um afgreiðslutíma
í síma 552 7545 og á heimasíðu
www.borgarbokasafn.is
BORGARBÓKASAFN 80 ÁRA
Afmælishátíð í Grófarhúsi
á sumardaginn fyrsta.
Minjasafn Reykjavíkur
Árbæjarsafn - Viðey
www.arbaejarsafn.is. Sími 577 1111
Safnhús Árbæjarsafns eru lokuð en
boðið er upp á leiðsögn alla
mán., mið. og fös. kl. 13.
Tekið á móti hópum eftir samkomulagi.
Upplýsingar í síma 577 1111.
Upplýsingar um leiðsögn
í Viðey í síma 568 0535.
OPIÐ ALLA PÁSKANA
www.listasafnreykjavikur.is
sími 590 1200
HAFNARHÚS 10-17
Sovésk veggspjöld, Penetration, Erró.
Leiðsögn annan í páskum kl. 15.00.
KJARVALSSTAÐIR 10-17
Helgi Þorgils, Mobiler, Kjarval.
Leiðsögn annan í páskum kl. 15.00.
ÁSMUNDARSAFN 13-16
Eygló Harðardóttir, Ásmundur Sveinsson.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
www.ljosmyndasafnreykjavikur.is
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
er lokað yfir páskana.
Gleðilega páska!
Laugard. 26. apríl kl. 14 Örfá sæti
Sunnud. 27. apríl kl. 14 Örfá sæti
Laugard. 3. maí kl. 14
Sunnud. 4. maí kl. 14
Frumflutningur
Guðbrandsmessa
eftir Hildigunni Rúnarsdóttur
í Langholtskirkju
föstudaginn langa
kl. 17:00 og sunnudaginn
27. apríl kl. 20.00
Flytjendur:
Kór Langholtskirkju
Kammersveit Langholtskirkju
Ólöf Kolbrún Harðard., sópran
Marta Hrafnsdóttir, alt
Björn Jónsson, tenór
Eiríkur Hreinn Helgason, bassi
Stjórnandi: Jón Stefánsson
Pantanir í síma 520 1300 og
klang@kirkjan.is
Miðasala í Langholtskirkju
og við innganginn.