Morgunblaðið - 17.04.2003, Qupperneq 16
16 C FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞAKA er lítil borg í norðurhluta NewYork-ríkis með um 30.000 íbúa en um60.000 þegar nemendur Cornell-há-skóla og Ithaca College bætast við.Þangað sækir fólk frá öllum heims-
álfum til náms og starfa og hér búa ýmsir
sem hafa valið það að búa í því andrúmslofti
frjálslyndis sem borgin býður uppá. Óneit-
anlega eru spurningar um framtíðarmögu-
leika jarðarbúa knýjandi enda verða slíkar
spurningar nálægar þar sem fólk úr ýmsum
heimshornum er samankomið.
Einnig er áhugavert að skoða hvað er ver-
ið að vinna í myndlist á slíkum stað.
Óvenju margir myndlistarmenn hafa sest
að á svæðinu þótt það sé ekki í miklum
tengslum við hinn valdamikla listaheim New
York-borgar. Viðmiðanir geta verið margar
og í Íþöku er viss fjarlægð á þá viðmiðun og
það verðmætamat sem ríkir á Manhattan
þótt fylgst sé með því helsta sem er að ger-
ast og hægt sé að skreppa til að sjá sýn-
ingar.
Cornell-háskóli sem ríki í ríkinu
Umhverfi Íþöku er hið fegursta þar sem
borgin er á svæði Fingravatnanna (Finger
Lakes). Borgin situr á og við hæðir sem ár
og fossar falla um og ekki vantar gróskuna.
Uppi í hárri brekku er svo háskólahverfið
sem ríki í ríkinu. Þar er fjölbreytt menning-
arstarfsemi á boðstólum fyrir alla, fyrir-
lestrar, bíó, leikhús, tónleikasalir og lista-
safn.
Listasafnið Herbert F Johnson Museum
of Art er með sýningar á nútímalist og einn-
ig list frá liðnum öldum og kvikmyndahús
Cornell er með metnaðarfullt val á kvik-
myndum. Oft er eitthvert þema í kvik-
myndahúsinu og undanfarið hafa áleitnar
spurningar um stríð, frið og mannréttindi
verið áberandi í efnisvali auk kvikmynda um
fjarlæg og framandi menningarsvæði.
Umræða um sögu blökkumanna í banda-
ríkjunum eða „American Black History“
hefur einnig verið ofarlega á baugi og var
t.d. febrúarmánuður helgaður henni. Sú um-
ræða tengist oft umræðunni um þá stefnu
sem nú ógnar í heimsmálum og umræðan
um rasisma er hluti af því sem er mikið rætt
hjá friðarsinnum og andstæðingum stríðsins
við Írak. Bandaríkjamenn af afrískum upp-
runa eru framarlega í baráttu gegn stefnu
núverandi ríkisstjórnar og öll umræða um
kynþáttahyggju og afleiðingar hennar er
mjög heit.
Verk tileinkuð frjálsri Palestínu á sýningu
listasafns Cornell
Listasafnið Herbert F Johnson Museum
of Art hefur lagt áherslu á sýningar á nú-
tímalist frá mismunandi stöðum í heiminum
ásamt sýningum á bandarískri myndlist og
list frá liðnum öldum. Þar var síðastliðinn
vetur sýning á nýjum verkum eftir Rachid
Koraichi sem er frá Alsír. Hann er flótta-
maður og býr utan heimalandsins vegna of-
sókna ofsatrúarmanna þar. Hann á djúpar
rætur í hinum arabíska menningarheimi og
hefur frá barnsaldri verið heillaður af heimi
bóka og leturgerðarlistar. Á sýningunni
voru stórar innsetningar, letur og abstrakt-
teikning í ýmis efni. Þar má nefna Stíg rós-
anna, The Path of Roses, þar sem unnið var
með stórar hvít/ bláar keramikskálar,
gullbróderuð teppi og kallígrafísk form í
málm og fjallar að vissu leyti um leitina að
frumspekilegu sambandi fegurðar og hins
guðdómlega. Þótt letrið sem er bakgrunnur
myndgerðarinnar sé framandi fyrir margan
áhorfandann og ekki skiljanlegt sem letur
þá skilar sér vel hið fagurfræðilega gildi
línu og forma í kröftugri teikningu og
öruggri pensilskrift listamannsins. Þar tekst
í myndlistinni að miðla andblæ ljóðrænu og
fegurðarþrár. Kraftmiklar stórar svart-
hvítar ætingar fylltu einn salinn. Þær byggj-
ast á ljóðum eftir palestínska skáldið og
baráttumanninn Mahmoud Darwish og eru
tileinkaðar baráttu fyrir frjálsri Palestínu.
Hippaborgin
Íþaka er vissulega ekki dæmigerð fyrir
bandaríska smáborg og er stundum kölluð
hippaborg en er kannski núna dæmigerð að
mörgu leyti fyrir þann hluta bandarísks
samfélags sem leitar að skynsamlegri lífsstíl
en þeim sem hellist yfir í nútímamenningu
okkar.
Í Íþöku er kaupfélags-heilsubúðin Græna
stjarnan (GreenStar Cooperative Market)
sem hefur um 3.700 meðlimi en 30% varn-
ings er selt til annarra en meðlima. Þar er
hægt að fræðast um allt mögulegt, skoða
framandi afurðir frá öllum heimshornum
með áhugaverðum upplýsingum. Þar eru
söl, heil og mulin til að bragðbæta salat,
morgunkorn úr framandi korntegundum
ásamt auðvitað tei, kaffi og fleiru sem selt
er beint til að styðja framleiðslu í einhverju
þróunarlandinu. Þar er líka upplýsingaefni,
blöð, tímarit og námskeið í hollum eða um-
hverfisvænum og ábyrgum lífsháttum. Þar
verslar mikið af fólki sem leitast eftir að
finna skynsamlegan lífsstíl.
Þarna er hægt að setjast niður og lesa eða
fá sér eitthvað verulega hollt að borða. Jafn-
vel leikhorn fyrir börnin en það er líka í
stóru bókabúðunum sem hafa komið upp á
síðustu árum enda eru þær með vinsælli
stöðum hjá litlu krökkunum sem draga
gjarnan foreldrana eða ömmu í bókabúðina
því barnadeildirnar eru svo skemmtilegar.
Vissulega getur oft kaldur veturinn dreg-
ið úr samskiptum og ástundun þess sem er í
boði en rækilega lifnar yfir með hækkandi
sól og hitastigi.
Tengsl við fjarlægan menningarheim
Á svæðinu eru óvenju margir listamenn
og með mismunandi bakgrunn.
Einn þeirra sem kemur frá Japan er
Kumi Korf. Hún kom til Íþöku nýútskrif-
aður arkitekt frá Tókýó. Í byrjun vann hún
við hönnun bygginga en færðist síðan meir
og meir í frjálsa myndlist. Bækur hennar
(n.k. listbækur) eru handunnar og oft með
skrifuðum ljóðum en stundum eingöngu
myndverkum. Vinna með pappír er henni
mjög hugleikin. Í bókum hennar og graf-
íkmyndum kemur sterkt fram hin ríka hefð
Japana í vinnu með pappír og hin lifandi
form japanska letursins. Myndskrift hennar
er oft eins og línurnar í náttúrunni umhverf-
is. Viss einfaldleiki sem þó er alls ekki ein-
faldur. Hún segist hugsa verkin og þá sér-
staklega bækurnar svipað og hún væri að
hanna byggingu. Minna bækur hennar
óneitanlega á aldagamla hefð Japana í því
að láta útfærslu allra smáatriða smella sam-
an í heild sem leiðir hugann að einhvers
konar upphöfnu samræmi.
Verk um þrælahald og ofbeldi
John Lyon Paul er myndlistarmaður í ná-
grenni Íþöku. Hann er með vinnustofu í
sveitinni í hinum skógi vöxnu hæðum. Þar
vinnur hann í öll möguleg efni, málverk og
skúlptúra. Hann er einn þeirra sem löngum
hafa unnið að baráttu fyrir friði og gegn
hernaðarstefnu og ofbeldi. Hann hefur unn-
ið stór verkefni í skúlptúr sem eru talandi
táknræn um slíkt efni þótt flest verka hans
séu alveg abstrakt.
Á vinnustofunni er nú í smíðum stórt verk
úr tré og járni sem hann hefur unnið að síð-
astliðin 2–3 ár og er einskonar minnisvarði
og tákn gegn ofbeldi. Fyrirhugað er að
verkið verði sýnt um Bandaríkin þver og
endilöng til stuðnings baráttu gegn hern-
aðarhyggju og ofbeldi. Verkið heitir „Many
thousands gone“ og er það úr söng manns,
fyrrverandi þræls, eftir lok bandaríska
borgarastríðsins. Þessi söngur er þekktur
undir nafninu „ekki fleiri uppboð á mér“.
Trédrumbar þrír standa þétt saman og eru
sem tákn fyrir fjölskylduna eða manneskjur
og örlög þeirra. Lífrænt efni reyrt í járn-
gjarðir og járnkrókar og hlekkir minna á
harkalegan raunveruleika ýmiskonar ofbeld-
is og pyntinga. Umhverfis í ytri hring eru
„vitnin“, einnig úr tré með járngjörðum og
hlekkjum.
„Megi hinn kreppti hnefi ofbeldis verða að
opinni hendi miskunnar“ er boðskapurinn
sem listamaðurinn vill koma á framfæri með
verkinu. Naglar hafa verið reknir í verkið af
gestum til minningar um vissa atburði, per-
sónur eða hópa sem hafa liðið eða eru nú í
hættu vegna ofbeldis og verður því haldið
áfram þar sem verkið verður sýnt.
Málverk gegn stríði
Victoria Romanoff er listakona sem býr í
Íþöku. Hún var lítil stúlka í Þýskalandi á ár-
um seinni heimsstyrjaldar og lifði af
sprengjuregn í Hamborg og nágrenni þar
sem hún hraktist milli staða í stöðugum ótta
vegna loftárása. Hún var nýlega með sýn-
ingu í galleríi í Íþöku þar sem voru sýnd
málverk unnin útfrá þessum minningum.
Málverkin voru tileinkuð andstöðu við stríð
og ekki síst til að andmæla stríðinu við Írak
sem þá var í uppsiglingu.
Borgir gegn stríði – Íþökubúar samhuga
Ekki er óeðlilegt að andstaða við stríð sé
hlutfallslega mikil í samfélagi eins og Íþöku.
Fjölmargar borgir og héruð og flestar þær
sem við þekkjum hvað best til eru í hópi
þeirra sem hafa sent frá sér yfirlýsingu
gegn stríði við Írak. Í þessum hópi þar sem
voru 162 borgir og héruð þegar stríðið hófst
eru til dæmis Baltimore, Boston, Houston,
San Francisco, Chicago og New York City.
Yfirlýsingin sem var samþykkt af meirihluta
borgarstjórnar viðkomandi borgar er mis-
róttæk. Sumstaðar var hún bundin við að
andmæla stríðinu, væri það ekki háð með
samþykki Sameinuðu þjóðanna en annars
staðar var ályktunin alfarið gegn stríðinu
við Írak. Í Íþöku var hún samþykkt af öllum
borgarstjórnarfulltrúunum 10 og yfirlýsing
þeirra mjög eindregin. Hægt er að kynna
sér yfirlýsinguna nánar á netslóðinni:
www.citiesforpeace.org.
Nú í vetur hafa víða blasað við skilti í
gluggum og fyrir utan hús með boskap eins
og „ekki sprengja fyrir mig“, „ekki í mínu
nafni“, „ekki stríð við Írak“ eða „friður á
jörð“.
Mikill munur er á viðhorfi og allri um-
ræðu meðal Íþökubúa og þeirri stemningu
og stíl sem virðist ráða á stóru sjónvarps-
stöðvunum í allri umræðu um stríðið í Írak
eins og auðvitað um margt fleira. Það er
ekki hægt að lýsa mannlífinu í Íþöku núna
án þess að segja frá þessari sterku andstöðu
við stríðsrekstur sem þar ríkir. Einnig er
gott og gagnlegt að fá að kynnast því hvern-
ig fólk frá mismunandi menningarheimum
getur lifað saman í sátt og sýnir á marg-
víslegan hátt einlægan áhuga fyrir því að
bæta heiminn og leitar leiða til þess.
Herbert F. Johnson, listasafn Cornell-háskólans,
og verkið Remembrance eftir David Stromeyer.
Í friðsælli götu í Íþöku stendur skilti, eitt af
mörgum þar í vetur, þar sem Íraksstríðinu er
mótmælt með áletruninni Ekkert stríð gegn Írak.
John Lyon Paul vinnur við verk gegn ofbeldi og stríði.
Borgin Íþaka í norðurhluta New York-ríkis ber sterkan svip af al-
þjóðlegu listalífi og öflugri umræðu um þjóðfélagsmál. Það er
því ekki hægt að lýsa mannlífinu í borginni þessa dagana án þess
að lýsa þeirri sterku andstöðu sem þar ríkir gegn stríðsrekstri
Bandaríkjamanna. Jóhanna Bogadóttir var við störf í borginni.
Ljósmyndir/Jóhanna Bogadóttir
Hinn alsírski Rachid Koraichi við vinnu, en verk
hans sækja í hinn arabíska menningarheim.
Mannlíf og list gegn stríði
Höfundur er myndlistarmaður.