Morgunblaðið - 17.04.2003, Síða 24

Morgunblaðið - 17.04.2003, Síða 24
24 C FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN SÚ ákvörðun að ráðast í Kára- hnjúkavirkjun og byggingu stórs ál- vers á Austurlandi mun tvímælalaust hafa geysimikil áhrif á hagvöxt, efna- hag og lífskjör þjóðarinnar. Um þess- ar framkvæmdir hafa verið og eru enn hatrammar deilur. Það sanna mótmælastöður og óteljandi blaða- greinar. Þetta er vissulega skiljan- legt, því allar framkvæmdir stórar og smáar breyta náttúru landsins. Það er eftirsjá í gróðurreitum á hálend- inu og fallegum hamraveggjum. En ég segi eins og presturinn; „Fólkið er alltaf mesta skrautið.“ Enginn stjórnmálaflokkur ber meiri ábyrgð á þessum framkvæmd- um en Framsóknarflokkurinn. Iðn- aðarráðherra, Valgerður Sverris- dóttir, hefur að sjálfsögðu verið þar í fararbroddi og tekist með dugnaði og þrautseigju að koma þessu máli í höfn á skömmum tíma. Auðvitað hafa fjölmargir lagt þarna hönd á plóginn. Í áróðursherferð andstæðinganna stóð m.a. „Allir tapa á Kárahnjúka- virkjun!“ Samkvæmt skoðanakönnunum á fylgi stjórnmálaflokka virðast kjós- endur óánægðir með störf ráðherra Framsóknarflokksins og vilja ekki að flokkurinn taki þátt í næstu ríkis- stjórn. Örlagaríkasta verk flokksins á þessu kjörtímabili er áreiðanlega Kárahnjúkavirkjun og álver á Reyð- arfirði. Mér virðist kjósendur ganga í lið með andstæðingum fram- kvæmdanna og ætla að refsa Fram- sóknarflokknum eftirminnilega fyrir forgöngu hans í þessu máli. Sjálfsagt er margt sem flokkurinn hefur staðið fyrir á tveimur síðustu kjörtímabilum sem hefur verið um- deilt. Ég nefni t.d. sameiningu Land- spítala og Borgarspítala. Það mætti mikilli andstöðu m.a. margra í sam- starfsflokknum og hjá starfsfólki í heilbrigðisgeiranum. Kjósendur vilja sennilega hafa tvö hátæknisjúkra- hús, hlið við hlið, í bullandi sam- keppni um dýrustu og fullkomnustu lækningatæki og færustu sérfræð- inga. Sennilega líkar fólki illa að landbúnaðarráðherra skyldi ekki leyfa innflutning á norskum fóstur- vísum til að stækka og kynbæta ís- lenskar kýr. Mörg önnur umdeild verk ráðherra flokksins væri hægt að nefna. Ég trúi ekki að kjósendur séu að mótmæla Barnaspítala Hringsins, lengingu fæðingarorlofs, feðraorlofi, að fólk geti fengið 90% lán til íbúða- kaupa o.fl. o.fl. sem flokkurinn hefur haft forgöngu um og komið í höfn. Nei, ég held að það séu hinar stór- kostlegu virkjunarframkvæmdir fyr- ir austan sem kjósendur eru fyrst og fremst að mótmæla og hefna sín á Framsóknarflokknum. Ég vil líka bæta við stækkun Norðuráls í Hval- firði og úrskurð setts umhverfisráð- herra, Jóns Kristjánssonar, um Norðlingaölduveitu, sem formaður VG sagði að væri sérlega framsókn- arlegur og ég er því alveg sammála. En frá sjónarhóli Steingríms J. þá gat hann varla valið sterkara orð til að lýsa vanþóknun sinni á úrskurð- inum. Hafa ber í huga að ekki hefði verið hægt að ráðast í þessar miklu virkj- unar- og álversframkvæmdir ef Ís- lendingar hefðu ekki fengið sér- ákvæði, svonefnt íslenskt ákvæði, frá Kyoto-bókuninni. Þar tókst Siv um- hverfisráðherra, með aðstoð sér- fræðinga sinna og íslensku samn- inganefndarinnar, að sannfæra umhverfisráðherra annarra þjóða um að framleiðsla áls hér á landi með endurnýjanlegri orku væri frá hnatt- rænu sjónarmiði umhverfisvænt. Að lokum: Hver er aðalástæða þess að flestir eru sammála um að hagvöxtur muni aukast og skilyrði skapist til að bæta lífskjör almennings, ekki aðeins á Austurlandi, heldur líka hér á höf- uðborgarsvæðinu? Ég fullyrði að það sem skiptir sköpum er Kárahnjúkavirkjun. Lokaniðurstaða verður því: Allir græða á Kárahnjúkavirkjun. Ég, öld- ungur á grafarbakka, bið kjósendur að ganga ekki hugsunarlaust að kjör- borðinu. Lítið í kringum ykkur, horf- ið fram á veginn, hugsið um framtíð barnanna. Veljið til forystu þá stjórn- málamenn, sem hafa sýnt í verki að þeir standi fast í lappir í ólgusjó þjóð- málanna. Eftir Þorstein Ólafsson „Veljið til for- ystu þá stjórn- málamenn, sem hafa sýnt í verki að þeir standi fast í lappir í ólgusjó þjóðmálanna.“ Höfundur er fyrrverandi kennari. Hvers vegna lofa allir stjórnmálaflokk- ar kjarabótum? TALSMAÐUR Samfylkingarinn- ar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, vitn- aði í Borgarnesi á þriðjudaginn til gamalla orða minna, um það vopna- búr sem ég teldi Davíð Oddsson for- sætisráðherra búa yfir og sem nýttist honum í stjórnmálabaráttu. Ingibjörg hefur áður borið þetta orðalag mitt í tal, og virðist af einhverjum ástæðum telja í því feng fyrir málstað sinn. Áhugamönnum um stjórnmál eru nokkur vonbrigði að Ingibjörg gefi málefnunum ekki meiri gaum í kosn- ingabaráttunni. Þeir sem hafa fylgst með umræðuþáttum stjórnmálafor- ingjanna undanfarið hafa tekið eftir hve illa hún er heima í ýmsum mik- ilvægum atriðum sem snerta fólkið í landinu. Í þætti Stöðvar 2 kom í ljós að hún þekkir ekki muninn á skatt- leysismörkum og persónuafslætti og í Sjónvarpinu kom á daginn að hún hef- ur enga tilfinningu fyrir þeim pen- ingalegu upphæðum sem varið er til menntamála á Íslandi. Það verður að virða Ingibjörgu það til vorkunnar að staðreyndirnar um þessi málefni eru framboði hennar síst til framdráttar. Fyrirfram hefði maður þó ætlað að stjórnmálamaður sem hygðist gera sig gildandi í landsmálunum sem sér- stakur umræðustjórnmálamaður, mundi taka frá pláss í vopnabúri sínu fyrir slíka grundvallarþekkingu. Eru málefnin bitlaust vopn? Vopnabúr Ingibjargar er hins veg- ar þeim mun ríkulegar búið af per- sónulegum árásarvopnum, gróusög- um og rætni. Hún virðist ekki geta á heilli sér tekið þegar forsætisráð- herra er annars vegar. Hún telur greinilega happadrýgra að níða af honum skóinn persónulega, en að ræða málefnin. Og af einhverjum ástæðum virðist hún ekki mega stíga fæti í þann prýðisbæ, Borgarnes, án þess að grípa grímulaust til þessarar ógeðfelldu vopnagerðar. Í fyrrnefndu vopnabúri Davíðs Oddssonar er hins vegar eitt sem nýt- ist honum betur en flest annað. Hann telur orð dýr. Hann mundi til dæmis ekki segja Reykvíkingum að hann ætlaði að lækka skuldir borgarinnar, en margfalda þær svo á nýjum kenni- tölum. Hann mundi ekki ítrekað segj- ast ætla ekki í þingframboð, en fara svo í rakleiðis í slíkt framboð. Hann mundi ekki segjast ætla að lækka álögur á Reykvíkinga, en snarhækka svo skatta á þá. Og hann mun seint út- skýra vanefndir með eftirfarandi setningu: „Þekkir þú einhver dæmi þess að þeir sem eru að bjóða sig fram til kosninga lofi skattahækkunum?“ Um vopnabúr – og vöntun þar í Eftir Orra Hauksson „Það er leitt að Ingibjörg skuli beita persónulegri rætni í kosn- ingabaráttunni...“ Höfundur er verkfræðingur og MBA og fyrrverandi aðstoðarmaður forsætisráðherra. VONARSTJARNA Samfylk- ingarinnar í kosningunum í maí er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Hún hóf kosningabaráttuna í Borgar- nesi stuttu eftir áramótin með ræðu. Ræðan sú vakti athygli fyrir árásir á Davíð Oddsson forsætis- ráðherra. Það mátti þá helst skilja á vonarstjörnunni, að hér á landi ríkti stjórnarfar alræðis, sem ein- kenndist af því, að forsætisráð- herrann misbeitti valdi sínu gegn þjóðinni. Meðal annars sagði hún að hann misnotaði lögregluna til að ná sér niðri á meintum pólitísk- um andstæðingum. Þessi ræða var skrítin. Helst vegna þess, að forsætisráðherrann hefur í stjórnartíð sinni staðið fyr- ir stórstígum breytingum á Íslandi í þá átt að minnka stjórntök stjórnmálamanna á mannlífinu í landinu. Hann hefur beitt sér fyrir réttarbótum í því efni og umfangs- mikilli einkavæðingu ríkisfyrir- tækja, sem hafa sama markmið. Ræðan var líka slæm að því leyti, að nýir tónar voru slegnir í kosningabaráttu. Hún var með öllu ómálefnaleg. Í henni birtust bara dylgjur og hálfkveðnar vísur. Svo var að sjá, sem ræðan helg- aðist af því yfirvegaða ráði, að ekki væri auðvelt að heyja kosninga- baráttu við núverandi stjórnar- flokka á grundvelli málefna, svo vel sem þeir standa í þeim. Þess vegna yrði að draga kosningabar- áttuna niður á það stig sem ræðan bar vott um. Það mátti merkja, að ræðan væri hönnunarverk manna sem hafa atvinnu af því að segja stjórnmálamönnum, hvernig þeir eigi að haga sér í stjórnmálabar- áttu. Þetta eru menn sem selja mönnum þekkingu sína á því, hvernig helst megi selja sig al- menningi. Jafnvel þó að málefna- staðan sé ekki burðug. Eftir að eftirköst þessarar ómerkilegu ræðu voru gengin yfir, mátti greina, að kosningabaráttan væri að færast yfir á málefnalegri nótur. Menn voru teknir að ræða um skattamál, almenn efnahags- og atvinnumál, utanríkismál, menntamál, heilbrigðismál og fleira, sem hefðbundið er og sjálf- sagt að fjallað sé um í kosninga- baráttu. Nú varð vonarstjarnan undir. Í ljós kom að hún er ekki vel til þess fallin að fjalla um slík mál. Hún varð ber af því að segja eitt í dag og annað á morgun. Hún virt- ist ekki ráða við hugtök og alls ekki við tölur. Hún fór rangt með staðreyndir. Við svo búið gat ekki staðið. Snillibragðarefirnir sem hanna kosningabaráttu Samfylkingar- innar sáu þetta og gáfu vonar- stjörnunni ný ráð. Hún skyldi drífa sig aftur ofaní forarpyttinn. Vel bar í veiði því vonarstjarnan átti að halda nýja ræðu í Borgar- nesi. Og hún brást þeim ekki, held- ur jók frekar í leðjukastið. Eða eins og Steingrímur Sigfússon orðaði svo hnyttilega þá fjölgaði hjá henni smælingjunum. Í hóp feðganna frá Baugi, Jóns af Suð- urnesjum og annarra kaupahéðna voru þeir nú komnir sjálfir bisk- upinn og forsetinn. Ég veit ekki hvers Borgnesingar eiga að gjalda. Jón Steinar Gunnlaugsson Hvers eiga Borgnesingar að gjalda? ÞAÐ vakti athygli mína að nú fyrir skömmu birti Fréttablaðið grein um langömmu mína, Bríeti Bjarnhéðinsdóttur. Og þótti mér það góðra gjalda vert. Það mikla og óeigingjarna starf sem hún vann í þágu jafnréttis kynjanna er vissulega umfjöllunar virði og bar- áttumálin síður en svo úrelt á okk- ar dögum, því miður. Greinarhöf- undur byggir greinina að mestu leyti á viðtali við Erlu Huldu Hall- dórsdóttur sem er titluð sagnfræð- ingur og sérfræðingur á Rann- sóknarstofu í kvennafræðum. Ýmislegt ágætt er haft eftir Erlu en undrun mína vakti eftirfarandi: ,,Hún var baráttukona af lífi og sál og þó Björg Þorláksdóttir sé í miklum metum hjá mér er Bríet líklega sú sem ég held hvað mest upp á en það voru ofsalega margar konur sem létu til sín taka um aldamótin án þess að þær hafi fengið skrifaðar um sig ævisögur eins og margir minna merkilegir karlar.“ Á sömu opnu er síðan haft eftir systur minni Laufeyju Sig- urðardóttur að það eina sem hún viti um þessa langömmu sína hafi hún úr munni móðurömmu okkar Guðrúnar Pálsdóttur, sem hafi sagt henni að Bríet tengdamóðir hennar hafi reynst henni afskap- lega vel. Ennfremur harmar Lauf- ey að formóður hennar Bríeti hafi hvorki enst aldur né heilsa til að rita ævisögu sína. Nú kann að vera að hvorki greinarhöfundur, Erla Hulda Halldórsdóttir, né systir mín Laufey viti að árið 1988 kom út hjá forlaginu Svart á hvítu, bók sem heitir Strá í hreiðrið. Bók um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur. En fyrir áhugasama má geta þess að bók þessa skrifaði móðir okkar Lauf- eyjar, Bríet Héðinsdóttir, og er hún eins og titillinn gefur til kynna ævisaga formóður okkar. Eftir því sem ég best veit er þetta eina bók- in sem um hana hefur verið skrif- uð og í henni að finna einhverja ít- arlegustu heimild um kvenskörunginn Bríeti Bjarnhéð- insdóttur sem birst hefur á prenti. Í bókinni Strá í hreiðrið er ekki einungis rakin hennar pólitíska baráttusaga, heldur kynnist les- andinn einnig manneskjunni B.B. ákaflega vel af bréfaskriftum hennar við börn sín tvö, Héðin Valdimarsson og Laufeyju Valdi- marsdóttur. Þess ber að geta að bókin Strá í hreiðrið hefur um all- langt skeið verið notuð sem kennslubók við Háskóla Íslands, enda drjúg heimild um sögu kvennabaráttu á Íslandi, en er löngu uppseld. Við greinarhöfund og systur mína Laufeyju vil ég að lokum segja að víst er málverk Gunn- laugs Blöndals af frú B.B. sem birtist með umræddri grein og prýðir reyndar einnig kápu bók- arinnar Strá í hreiðrið gott, en bókin er ekki síðri. Bríet Bjarnhéðinsdóttir Eftir Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur Höfundur er leikkona. „ …er þetta eina bókin sem um hana hefur verið skrifuð og í henni að finna ein- hverja ítarlegustu heim- ild um kvenskörunginn Bríeti Bjarnhéðins- dóttur sem birst hefur á prenti.“ Morgunblaðið/Árni Torfason Málverk Gunnlaugs Blöndal af frú Bríeti Bjarnhéðinsdóttur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.