Morgunblaðið - 22.04.2003, Blaðsíða 16
LISTIR
16 ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Norðurlandaráð veitir í ár Náttúru- og umhverfisverðlaunin
í níunda sinn. Þau nema 350.000 danskra króna og eru veitt
einkareknu eða opinberu fyrirtæki, hópi manna eða
einstaklingi sem sýnt hefur sérstaka framtakssemi á sviði
náttúru- og umhverfisverndar.
Þema ársins 2003.
Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs árið
2003 skulu veitt ungmenni, einu eða fleiri, eða
ungmennasamtökum sem hafa unnið að umhverfis-
málum og átt þátt í að auka vitund barna, unglinga
og fullorðinna um málefni á umhverfissviði.
Öllum er heimilt að tilnefna hugsanlega verðlaunahafa.
Rökstyðja ber tilnefninguna og láta fylgja lýsingu á
viðkomandi verkefni og upplýsingar um hver hefur staðið
eða stendur að því. Verkefnið verður að vera vel unnið og
skipta máli í víðara samhengi í einu eða fleiri ríkjum
Norðurlanda. Tilnefningum skulu gerð skil á mest tveimur
blaðsíðum í A4-stærð.
Dómnefnd velur verðlaunahafa en í henni sitja fulltrúar
Norðurlandanna fimm og sjálfsstjórnarsvæðanna Færeyja,
Grænlands og Álandseyja.
Tilnefningin skal send á sérstöku eyðublaði sem á að hafa
borist skrifstofu Norðurlandaráðs í pósti í síðasta lagi
föstudaginn 30. maí kl. 12.00. Eyðublaðið má nálgast á
heimasíðu ráðsins, www.norden.org, eða á skrifstofu dönsku
landsdeildarinnar:
Nordisk Råd
Den Danske Delegation Christiansborg
DK-1240 København K
Sími +45 3337 5958 Fax +45 3337 5964
Náttúru-
og umhverfisverðlaun
Norðurlandaráðs
2003
38 FÉLAGAR í Richard Wagner-
félaginu hérlendis voru á dögunum
staddir í París, en á pálmasunnu-
dag sá hópurinn uppfærslu á einni
af óperum Wagners, Parsifal, í
Bastilluóperunni. Í tveimur af aðal-
hlutverkum óperunnar voru ís-
lenskir bassasöngvarar, Kristinn
Sigmundsson í hlutverki Gurne-
manz, sem er eitt burðarhlutverka
óperunnar, og Guðjón Óskarsson í
hlutverki Titurel. Í öðrum hlut-
verkum voru Clifton Forbis í hlut-
verki Parsifals, Katarina Dalayman
sem Kundry, Williard White sem
Klingsor og Albet Dohmen sem
Amfortas. Hljómsveitarstjóri var
James Conlon.
Að sögn formanns félagsins,
Selmu Guðmundsdóttur, var sýn-
ingin stórkostleg upplifun. „Upp-
færslan var mjög falleg og trúverð-
ug, og allir voru mjög sáttir við
hana. En það sem stendur upp úr er
hve vel Guðjón Óskarsson og Krist-
inn Sigmundsson stóðu sig, en
Kristinn var í mjög stóru hlutverki.
Fólkið í hópunum okkar var á öllum
aldri, meðal annars þrjár stelpur
innan við tólf ára. Okkur þótti mik-
ið afrek hjá þeim að fara með, því
sýningin á Parsifal er rúmir fjórir
tímar,“ sagði Selma í samtali við
Morgunblaðið. „Sveinn Einarsson
var á sýningunni og sagði við þetta
tækifæri að þetta væri ein af stóru
stundunum í íslenskri óperusögu,
að sjá tvo Íslendinga syngja í sömu
sýningu í einni merkustu óperu
heims, sem Bastilluóperan óneit-
anlega er.“
Hópurinn kom til Parísar föstu-
daginn 11. apríl og hélt beint af
flugvellinum heim til Sigríðar
Snævarr, íslenska sendiherrans í
París, til fundar við hana og aðra
Íslendinga. Á sunnudagsmorguninn
leiddi Sveinn Einarsson gönguferð
á sjaldséðari ferðamannastaði
borgarinnar, á meðan hluti hópsins
fór að gröf Frédéric Chopin. Eftir
sýninguna, sem var eftirmiðdags-
sýning á pálmasunnudegi, hélt hóp-
urinn svo út að borða ásamt Kristni
og Guðjóni. „Við borðuðum á mjög
skemmtilegum veitingastað sem er
staðsettur í lestarstöðinni Gare de
Lyon og nefnist Bláa lestin. Á
mánudagskvöld sáum við svo upp-
færslu á óperunni Evgení Ónegin
eftir Tsjækovskí.“
Þetta er í fyrsta sinn sem Rich-
ard Wagner-félagið heldur utan til
að sjá uppfærslu á Parsifal, en und-
anfarin ár hefur félagið staðið fyrir
myndbandssýningum á óperunni
hér á landi á páskum. „En í haust
benti ungur maður í félaginu, Júl-
íus Eyjólfsson, mér á að tveir Ís-
lendingar yrðu á sviðinu í Bastillu-
óperunni um páskana og ég tók þá
strax af skarið og pantaði miða í
október. Þá voru reyndar margir
sem spáðu því að þetta myndi aldrei
verða stór hópur, en það fór nú á
annan veg,“ sagði Selma að síðustu.
Richard Wagner-félagið á Íslandi stóð fyrir fjölmennri ferð á Parsifal í Bastilluóperunni í París
„Stórkostleg upplifun“
Hópurinn sem hélt til Parísar með Richard Wagner-félaginu ásamt ís-
lensku söngvurunum, sem fram komu, að lokinni sýningunni i Bastilluóper-
unni. Kristinn Sigmundsson og Guðjón Óskarsson eru lengst til hægri.
Þrír áhorfendur undir tólf ára sáu Parsifal. Hér eru Selma Lára Árnadótt-
ir, Birta Reynisdóttir og María Reynisdóttir ásamt Kristni Sigmundssyni.
Frá sviðinu í Bastilluóperunni frægu í París, þar sem Parsifal eftir Richard Wagner var fluttur á pálmasunnudag.
DR. Pétur Pétursson, prófessor í
praktískri guðfræði við HÍ, heldur
fyrirlestur í Seltjarnarneskirkju á
morgun kl. 17 um upprisu og end-
urkomu Krists í myndlist Leifs
Breiðfjörð.
Tilefnið er opnun myndlistarsýn-
ingar Leifs í kirkjunni á kirkju-
listahátíð Seltjarnarneskirkju.
Á MORGUN
ÞAÐ eru ekki margir kirkjukórar
sem geta státað af því á 50 ára afmæli
sínu að hafa haft aðeins þrjá fast-
ráðna söngstjóra. Sá fyrsti var Helgi
Þorláksson sem leiddi kórinn í tæp
tíu ár af miklum metnaði sem
snemma kom fram í söng kórsins.
Um það leyti sem starfsemin fluttist í
safnaðarheimilið við Sólheima tók
ungur maður, Máni Sigurjónsson,
sem var að koma heim frá kirkjutón-
listarnámi við Tónlistarháskólann í
Hamborg, við kórnum. Það var mikill
fengur fyrir kórinn að fá Mána til
starfa og leið kórsins hélt áfram upp
á við og farið var að takast á við að-
eins erfiðari verkefni og nýjungar,
auk þess sem Máni var mikill org-
elleikari. Þegar Máni sagði starfi sínu
lausu snemma árs 1964 benti Róbert
A. Ottósson söngmálastjóri söfnuðin-
um á einn nemanda sinn, Jón Stef-
ánsson. Jón sýndi þá strax að þar var
efnilegur nemandi á ferðinni og var
hann síðan fastráðinn og hefur gegnt
starfinu síðan með námshléum og
þarf ekki að rekja þann feril hér.
Í tilefni af afmælinu fékk kórinn
tónskáldið Hildigunni Rúnarsdóttur
til að semja messu fyrir kórinn og
skyldi hún helguð minningu Guð-
brands Þorlákssonar biskups sem er
eins og alþjóð veit einn af frumkvöðl-
um lútherska sálmasöngsins á Ís-
landi og sá sem kom röð og reglu á
kirkjusönginn eftir siðaskiptin. Hildi-
gunnur skilaði frá sér fullri konsert-
messu fyrir kór, hljómsveit og ein-
söngvara. Hildigunnur er alin upp í
vönduðum kórsöng og fer það ekkert
á milli mála í verkum hennar. Þekk-
ing hennar og innsæi á textanum eru
auðsæ. Tónlistin í öllum sínum fjöl-
breytileika undirstrikar og dregur
fram innihaldið svo varla verður bet-
ur gert. Þar má finna innileg ávörp og
bænaráköll, blíðu og angurværð,
einnig lofsöngva sem dansa af gleði í
rytmískum takti. Virðuleika eins og
t.d. í upphafi Gloriu og Credo sem og
í upphafi og niðurlagi Sanctus með
sínu dansandi Hósíanna. Nístandi
pínu Jesú í trúarjátningunni og síðan
angurværðina í dauðanum, mjúkt
millispil sem endar í dansandi gleði
upprisunnar þar sem alt og kór til-
kynna undrið með miklum fögnuði.
Allir messuliðirnir nema Agnus Dei
enda á miklum lofsöng sem Hildi-
gunnur undirstrikar afar vel. Loka-
kaflinn um Guðs lambið sem burt ber
heimsins syndir er á hinn bóginn all-
ur blíður og tilfinningaríkur, bæði í
hljóðfæraleik og söng, og eftir að kór-
inn hefur beðið Guðs lambið um að
„gefa okkur frið“ deyr tónlistin út í
eilífðina. Flest tónskáld sem skrifa
konsertmessur af þess-
ari stærð hafa glögg skil
á milli þátta í hverjum
messulið, en Hildigunn-
ur tengir þá saman með
hljóðfæraleik sem túlkar
það sem á undan er
gengið og leiðir inn í það
sem koma skal á mjög
smekklegan hátt. Þetta
gerir heildarboðskap
hvers messuliðar sterk-
ari og gefur allri mess-
unni einstaklega góðan
heildarsvip.
Hlutur einsöngvar-
anna er ekki stór en inn-
slag þeirra er mjög í
samræmi við innihald
textans. Hlutverk kórsins er mikið og
fjölbreytt. Hljómsveitin gegnir miklu
hlutverki og mæðir mikið á blásara-
deildinni. Hildigunnur var hér að
skapa sitt fyrsta stóra verk fyrir
hljómsveit, kór og einsöngvara og
hefur tekist sérlega vel upp. Verkið í
heild er mjög áhrifamikið og stór-
glæsilegt. Allur flutningur kórs,
hljómsveitar og einsöngvara var
mjög góður og öruggur undir styrkri
stjórn Jóns Stefánssonar og var flytj-
endum og tónskáldinu þakkað með
miklu og löngu lófataki við lok flutn-
ingsins.
Glæsileg minning Guð-
brands Þorlákssonar
TÓNLIST
Langholtskirkja
Kór Langholtskirkju. Kammersveit Lang-
holtskirkju. Ólöf Kolbrún Harðardóttir,
sópran, Marta Hrafnsdóttir, alt, Björn I.
Jónsson, tenór, og Eiríkur Hreinn Helga-
son, bassi. Frumflutt Messa í minningu
Guðbrands Þorlákssonar, biskups, eftir
Hildigunni Rúnarsdóttur. Föstudagurinn
18. apríl 2003 kl. 17.
KÓRSÖNGUR
Hildigunnur
Rúnarsdóttir
Jón
Stefánsson
Jón Ólafur Sigurðsson