Morgunblaðið - 24.04.2003, Síða 30
SUÐURNES
30 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
„MÉR finnst aðdáunarvert hvernig bæjarfélagið hefur
tekið á þeim lestrarvanda sem próf hafa sýnt að sé til
staðar hér. Það er gert á mjög jákvæðan hátt og ég trúi
að árangurinn verði góður,“ sagði Tómas Ingi Olrich,
menntamálaráðherra í ávarpi sínu við setningu verk-
efnisins Lestrarmenning í Reykjanesbæ í gær.
Verkefninu Lestrarmenning í Reykjanesbæ var form-
lega ýtt úr vör í gær, á degi bókarinnar, með þeim hætti
að leikskólabörnum voru færðar bókagjafir við athöfn í
sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum.
„Róðurinn er hins vegar eftir“ eins og Eiríkur Her-
mannsson fræðslustjóri benti á í setningarræðu verk-
efnisins „og margir þurfa að leggjast á árarnar. Hér er
um þriggja ára verkefni að ræða þar sem samfélagið
allt leggst á eitt um að efla lestrarfærni og málskiln-
ing,“ sagði Eiríkur.
Sigurður Svavarsson, formaður Félags íslenskra
bókaútgefenda, sagði í ávarpi sínu að þetta verkefni
hefði lengi verið á óskalista rithöfunda og bókaútgef-
enda, en félagið hefur stutt það dyggilega, ásamt Sam-
tökum rithöfunda.
„Það er okkur mikill heiður að fá að koma að þessu
verkefni og ég vona að það eigi eftir að vera öðrum bæj-
arfélögum til eftirbreytni. Styrkur verkefnisins felst í
því hversu margir koma að því og hversu víða þræð-
irnir liggja. Það hefur stundum verið sagt að Reykja-
nesbær sé bítlabær og boltabær. Nú hefur enn eitt b-ið
bæst við, bókabær,“ sagði Sigurður.
Í tilefni dagsins flutti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
rithöfundur Lestrarhestaromsu sem vakti mikla kátínu
gesta, en romsan var framlag Rithöfundasambandsins
til setningarathafnarinnar. Í romsunni komu meðal
annars fram óskir um að á hverjum degi fæddist lestr-
arhestur.
Verkefninu Lestrarmenning í Reykjanesbæ ýtt úr vör
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Það komu fram í romsu Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar óskir um að á hverjum degi fæðist lestrarhestur. Hér af-
hendir hann ungum börnum úr leikskólanum Vesturbergi bókagjöf, sem kætir sannarlega ungan lestrarhest.
Óskir um að á hverjum degi
ársins fæðist lestrarhestur
Reykjanesbær
VEGAGERÐIN hefur samið við
verktakana, sem vinna við fyrsta
áfanga tvöföldunar Reykjanesbraut-
ar sunnan Hafnarfjarðar, um að
lengja kaflann um 3,5 kílómetra í
áttina til Njarðvíkur. Núverandi
verktakar annast því tvöföldun
brautarinnar hálfa leiðina frá
Hvassahrauni til Njarðvíkur.
Jónas Snæbjörnsson, umdæmis-
stjóri Vegagerðarinnar á Reykja-
nesi, segir að komið hafi í ljós að
jarðefni við gatnamót Vogaafleggj-
ara, sem Vegagerðin hafi haft hug á
að nota við síðari áfanga tvöföld-
unarinnar, hafi reynst verra en bú-
ist var við. Því sé talið hagstæðara
að nýta námuna við Kúagerði meira
en fyrir þann áfanga sem nú er unn-
ið að. Verktakarnir hafa bent á það
frá upphafi að hagkvæmt gæti verið
að aka þessu efni á sinn stað, áður
en umferð væri hleypt á nýja veg-
inn, og sóst eftir að lengja kaflann
sinn.
Jónas segir að það hafi reynst
hagkvæmt fyrir báða aðila að lengja
þann kafla sem unnið væri að í þess-
um áfanga um 3,5 kílómetra á
Strandarheiði og hafi fengist leyfi til
að semja við verktakana um það.
Tvöfalt hálfa leiðina
Kaflinn sem jarðvinnuverktak-
arnir Háfell ehf., Jarðvélar sf. og
byggingaverktakinn Eykt ehf. vinna
á grundvelli tilboðs þeirra er því
11,5 kílómetrar að lengd í stað rúm-
lega 8 kílómetra sem áður var samið
um. Á viðbótinni eru ekki nein
gatnamót. Þegar vegurinn kemst í
notkun verður Reykjanesbrautin
tvöföld frá bæjarmörkum Hafnar-
fjarðar og langleiðina að Vogaaf-
leggjara en það er um það bil helm-
ingur af leiðinni til Njarðvíkur.
Upphaflegt tilboð fyrirtækjanna
hljóðaði upp á rúmar 600 milljónir
en með þeim viðbótarsamningi sem
gerður hefur verið hækkar fjárhæð-
in um 137 milljónir, að sögn Jón-
asar. Ákvæði eru í samningnum um
að greiðslur miðist við fjárveitingar
samkvæmt vegaáætlun á árunum
2003 til 2005.
Verktakarnir áttu að skila verk-
inu 1. nóvember 2004 en þeir fá
þann frest framlengdan um mánuð.
Jónas segir að verkið sé á áætlun,
frekar á undan ef eitthvað er, og
segir hann að verktakarnir stefni
enn að því að ljúka því tveimur mán-
uðum á undan áætlun til að vinna
sér inn flýtifé sem samningarnir
kveða á um.
Ekki hafa verið teknar ákvarð-
anir um tvöföldun seinni helmings
Reykjanesbrautarinnar. Jónas segir
að búast megi við að það verði dýr-
ari framkvæmd vegna gatnamót-
anna við Vogaafleggjara og Grinda-
víkurveg og tengingar við byggðina
í Njarðvík. Ákvarðanir um fram-
haldið verði væntanlega teknar við
endurskoðun vegaáætlunar eftir tvö
ár.
Tvöfaldi kafl-
inn lengdur um
3,5 kílómetra
Reykjanesbær
„MARKMIÐIÐ með frístundahelgi
er að kynna bæjarbúum það starf
sem þeir eiga kost á að stunda í frí-
stundum sínum. Í Reykjanesbæ er
mjög öflugt tómstunda-, íþrótta- og
menningarstarf og með þessum
hætti viljum við gera það starf
sýnilegra,“ sagði Jón Marinó Sig-
urðsson verkefnisstjóri í samtali
við Morgunblaðið.
Á morgun verður frístundahelgi
í Reykjanesbæ formlega hleypt af
stokkunum með því að sameinast
verður í skrúðgarðinum í Keflavík
kl. 14 þar sem hengdar verða upp
um 1.300 friðarmyndir eftir grunn-
skólabörn í bænum. „Ég er búin að
kaupa snúrur sem ég ætla að
strengja hér þvers og kruss í
skrúðgarðinum og hengja á þær
með þvottaklemmum myndir eftir
þau grunnskólabörn sem kusu að
taka þátt í helginni með þessum
hætti,“ sagði Jón Marinó en frí-
stundahelgin er fyrsta verkefni
hans sem nýráðins verkefnisstjóra
hjá Reykjanesbæ.
Listaskóli barnanna
Jón Marinó var ráðinn í stöðu
verkefnisstjóra í síðasta mánuði en
markmiðið með ráðningunni er að
efla starfsemi menninga-, íþrótta-
og tómstundasviðs. Um tíma-
bundna ráðningu er að ræða fram
að Ljósanótt í byrjun september
en Jón Marinó segist vona að hann
fái að vinna við þetta áfram, þar
sem draumur sé að vinna starf sem
er skemmtilegt. Auk frístunda-
helgarinnar hefur Jón Marinó ver-
ið með í undirbúningi skólabók, þar
sem þrír skólar í Reykjanesbæ
sameinast um gerð hennar. „Þetta
verkefni hefur ekki síður verið
skemmtilegt en frístundahelgin.
Njarðvíkurskóli, Heiðarskóli og
Holtaskóli hafa í sameiningu unnið
þessa bók og stefnt er að útgáfu
hennar í byrjun maí. Þetta verk-
efni hefur gengið mjög vel og ég
held að krakkarnir eigi eftir að
hafa gaman af því að glugga í bók-
ina eftir því sem árin líða. Slík er
reynslan af skólabókum.“
Jón Marinó hefur mikla reynslu
af því að vinna með börnum og
unglingum, sérstaklega í gegnum
leiklistar- og tónlistarstarf og það
verkefni sem bíður Jóns Marinós
nú er að skipuleggja listaskóla
barna sem starfræktur verður í
bænum í sumar, sem mótvægi við
öll þau íþróttanámskeið sem í boði
eru. „Það hafa ekki öll börn áhuga
á íþróttum og nauðsynlegt að koma
til móts við þau. Í listaskólanum
verður boðið upp á ýmiss konar
list, s.s. leiklist, myndlist og tónlist.
Við munum m.a. nota náttúruna til
að hjálpa okkur við að koma hug-
myndum okkar í framkvæmd.“
– En upp á hvað ætlarðu að
bjóða um helgina?
„Í raun er það ekki ég sem er að
bjóða upp á þetta heldur þeir bæj-
arbúar sem kjósa að sýna sam-
borgurum sínum hvað þeir hafa
fyrir stafni í frístundum sínum og
ég vil nota þetta tækifæri til að
þakka þeim fyrir þátttökuna. Ég
held einungis utan um verkefnið.“
Meðal fjölmargra dagskrárliða
má nefna pílukeppni á Glóðinni, at-
skák í Kjarna og keppni á sama
stað milli íslenska landsliðsins í
brids og bridsspilara í Reykja-
nesbæ. Ýmsum listgreinum sem
stundaðar eru í bænum verða gerð
skil og tómstundaiðja verður
kynnt.
„Ég hvet bæjarbúa til að kynna
sér dagskrána sem dreift verður í
dag og utanbæjarmenn hvet ég að
sjálfsögðu til að fjölmenna í bæinn.
Hótelin og veitingastaðirnir eru
með ýmis tilboð í gangi,“ sagði Jón
Marinó að lokum.
Fyrsta frístundahelgin sett í skrúðgarðinum við Tjarnargötu á morgun
1.300 friðar-
myndir á
þvottasnúrum
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Jón Marinó Sigurðsson, verkefnisstjóri hjá Reykjanesbæ, við skrúðgarðinn í
Keflavík þar sem setningarathöfn frístundahelgarinnar fer fram á morgun.
Reykjanesbær
ÍSLANDSPÓSTUR er með það í at-
hugun að flytja frímerkjasölu sína til
Reykjanesbæjar, í húsnæði í póst-
húsinu í Keflavík. Við þessa starf-
semi sem felst meðal annars í sölu
frímerkja til safnara eru átta til tíu
menn.
Einar Þorsteinsson, forstjóri Ís-
landspósts, segir að fyrirtækið sé að
endurskipuleggja húsnæðismál sín,
meðal annars í þeim tilgangi að losa
leiguhúsnæði og nýta betur eigin
húsnæði. Við þá vinnu hafi komið
upp sú hugmynd að flytja frímerkja-
söluna til Keflavíkur, þar sem fyr-
irtækið eigi húsnæði sem megi nýta
betur. Jafnframt hafi stjórnendur
fyrirtækisins það jafnan í huga að
flytja starfsemi út á landsbyggðina, í
þeim tilvikum sem það sé talið jafn
hagkvæmt og að vera á höfuðborg-
arsvæðinu. Í þessu tilviki virtust
báðir þessir þættir falla saman.
Getur Einar þess að skiptiborð og
þjónustuborð fyrir einstaklinga væri
á Akureyri, rekstrarlager á Blöndu-
ósi auk þess sem ýmsir þættir frí-
merkjaútgáfu væru úti á landi.
Frímerkjasöludeildin hefur um-
sjón með útgáfu frímerkja og sölu og
afgreiðslu nýrra frímerkja til safn-
ara. Samkvæmt upplýsingum Einars
eru 11 til 12 þúsund áskrifendur að
nýjum frímerkjum og eru 80%
þeirra búsett erlendis. „Eðli starf-
seminnar er því þannig að starfs-
mennirnir eru mest í samskiptum við
fólk sem hvort sem er er langt í
burtu,“ segir Einar.
Forstjórinn tekur fram að endan-
leg ákvörðun hafi ekki verið tekin
um staðsetningu deildarinnar, „en
við höfum fullan hug á að láta þetta
ganga upp,“ segir Einar.
Ef af verður má búast við að starf-
semin flytjist til Keflavíkur síðari
hluta sumars eða í haust.
Frímerkja-
salan til
Keflavíkur?
Keflavík
VERKEFNIÐ Friður í Reykja-
nesbæ var unnið í tengslum við
Frístundahelgi í Reykjanesbæ
sem hefst á morgun.
Öllum grunnskólabörnum í
Reykjanesbæ var boðið að taka
þátt í verkefninu en það var unn-
ið í samstarfi við unglingadeild
Rauða krossins á Suðurnesjum.
Nemendur áttu að teikna eða
mála myndir út frá orðinu friður.
Verkefnið var unnið undir leið-
sögn myndlistarkennara skól-
anna.
Alls bárust um 1.300 myndir
frá nemendum skólanna og verða
allar myndirnar hengdar upp í
skrúðgarðinum við Tjarnargötu
kl. 14 á morgun, í tengslum við
opnun Frístundahelgarinnar.
Árni Sigfússon bæjarstjóri mun
opna sýninguna.
Sunnudaginn 27. apríl kl. 14
verða myndirnar til sölu og er
verð hverrar myndar 100 krónur
og rennur allur hagnaður til
Unglingadeildar Rauða krossins
sem lætur upphæðina renna til
stríðshrjáðra barna. Sérstakir
styrktaraðilar þessa verkefnis
eru Sparisjóðurinn í Keflavík og
Reykjanesbær.
Friður í Reykjanesbæ