Morgunblaðið - 24.04.2003, Page 31
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 31
ESSÓ-stöðvarnar
Gildir til 7. maí nú kr. áður kr. mælie.verð
Snickers kingsize ................................. 89 105 955 kr. kg
Mars kingsize ...................................... 89 105 955 kr. kg
Góa risahraun ..................................... 59 80 1.271 kr. kg
Apolló lakkríspoki, 110 g...................... 99 120 1.110 kr. kg
KRÓNAN
Gildir 24.–30. apríl nú kr. áður kr. mælie.verð
Goða grillsagað lambalæri.................... 899 Nýtt 899 kr. kg
Goða grillsagaður lambaframpartur ....... 499 Nýtt 499 kr. kg
SS dilkahamborgarhryggur ................... 989 1.318 989 kr. kg
Matráðs klettasalatblanda.................... 269 358 2.690 kr. kg
Matráðs salatblanda frisée ................... 219 287 1.090 kr. kg
Sun Lolly, 5 teg. ................................... 189 217 300 kr. kg
Quaker Crusli, 3 teg. ............................ 229 Nýtt 450 kr. kg
H&S sjampó, 3 teg. ............................. 499 588 1.240 kr. kg
NÓATÚN
Gildir 24.–30. apríl nú kr. áður kr. mælie.verð
Lambafillet m/pöru.............................. 1.999 2.398 1.999 kr. kg
Bautabúrs kartöflusalat, 300 g ............. 129 184 430 kr. kg
Fresca ................................................ 99 169 99 kr. ltr
Magic dós ........................................... 129 159 510 kr. ltr
Drykkjarjógurt skógarb./ferskju/kirsub... 69 85 276 kr. ltr
Nivea shower milk&vitamin/relaxing...... 199 249 790 kr. ltr
LB Berlínarbollur m/súkkulaði, 12 st. .... 699 1.098 58 kr. st.
LB Súkkulaði Pims, 10 st...................... 499 699 49 kr. st.
SAMKAUP
Gildir til 28. apríl nú kr. áður mælie.verð
Kell. Rice Crispies, 450 g ..................... 299 349 664 kr. kg
Kellog. Frosties, 500 g ......................... 269 329 538 kr. kg
Nói 100 g fyllt piparmyntusúkkul........... 119 154 1.119 kr. kg
Nói 100 g fyllt karamellusúkkul. ............ 119 149 1.119 kr. kg
Nói 100 g fyllt kaffisúkkul. .................... 119 149 1.119 kr. kg
Nói 100 g fyllt rjómalíkjörsúkkul. ........... 119 149 1.119 kr. kg
SELECT
Gildir til 30. apríl nú kr. áður mælie.verð
Draumur stór ....................................... 95 120
Sport Lunch, 80 g ................................ 95 118
Bouchee - noisettine - wit-blanc............ 50 62
Gevalía rautt, 500 g ............................. 320 399
Gevalía skyndikaffi, 100 g .................... 386 483
Vicks, 75 g.......................................... 135 173
Vicks, 40 g.......................................... 85 105
Pringles, 200 g .................................... 190 238
Mjólkurkex .......................................... 175 219
SPAR Bæjarlind
Gildir til 28. apríl eða m. birgðir endast nú kr. áður mælie.verð
Lambagrillsneiðar ................................ 1.198 1.693 1.198 kr. kg
Esju bayonne-skinka ............................ 689 1.198 689 kr. kg
Esju drottningarskinka.......................... 1.289 2.100 1.289 kr. kg
Laxaflök ½ reykt - grafin ....................... 1.725 2.458 1.725 kr. kg
Spergilkál............................................ 228 349 228 kr. kg
Appelsínur .......................................... 118 154 118 kr. kg
ÚRVAL
Gildir til 28. apríl nú kr. áður mælie.verð
Kell. Rice Crispies, 450 g ..................... 299 349 664 kr. kg
Kellog. Frosties, 500 g ......................... 269 329 538 kr. kg
Nói 100 g fyllt piparmyntusúkkul........... 119 154 1.119 kr. kg
Nói 100 g fyllt karamellusúkkul. ............ 119 149 1.119 kr. kg
Nói 100 g fyllt kaffisúkkul. .................... 119 149 1.119 kr. kg
Nói 100 g fyllt rjómalíkjörsúkkul. ........... 119 149 1.119 kr. kg
UPPGRIP – Verslanir OLÍS
Apríltilboð nú kr. áður kr. mælie.verð
Maarud kartöfluflögur, 3 teg.................. 70 99
Marabou Daim Double ......................... 99 129
Freyju Rís stórt..................................... 89 115
MS samlokur með 2x15 g Toblerone...... 295 nýtt
Coca Cola Diet 0,5 ltr plast................... 119 140
Coca Cola 0,5 ltr plast ......................... 119 140
Toppur án bragðefna ............................ 99 140
ÞÍN VERSLUN
Gildir 24.–30. apríl nú kr. áður kr. mælie.verð
Búrfells nautahakk............................... 678 798 678 kr. kg
Búrfells nautagúllas ............................. 1.180 1.388 1.180 kr. kg
Ítölsk grýta .......................................... 189 238 189 kr. pk.
Bolognese grýta................................... 219 259 219 kr. pk.
Pågens kanilsnúðar, 260 g ................... 159 197 604 kr. kg
OTA gullkorn, 500 g.............................. 279 299 558 kr. kg
Frissi fríski, 250 ml .............................. 49 62 196 kr. ltr
Helgartilboð
Verðupplýsingar sendar frá verslunum
Grillkjöt og klettasalat á tilboðsverði
UPPSKERA er hafin á íslenskum
kirsuberjatómötum og eru þeir jafn-
framt komnir í verslanir um land
allt. Í frétt frá garðyrkjubændum
segir að mikil söluaukning hafi verið
á kirsuberjatómötum að undan-
förnu. Jókst sala þeirra um 69% á
síðasta ári. Kirsuberjatómatar eru
sætari á bragðið en venjulegir tóm-
atar og vinsælir í salöt og sem með-
læti.
Tómatarnir eru ræktaðir á garð-
yrkjustöðinni Brún við Flúðir. Haft
er eftir Birgi Thorsteinsson garð-
yrkjubónda að uppskeran sé góð og
að íslenskir kirsuberjatómatar verði
á markaði í allt sumar og fram í lok
október.
„Úrvalið af íslensku grænmeti í
verslunum fer vaxandi með hækk-
andi sól. Nú má fá íslenska tómata,
agúrkur, græna papriku, rófur og
sveppi auk kirsuberjatómatanna. Þá
eru íslenskar kartöflur á markaði,“
segir ennfremur.
Fyrsta uppskeran af íslenskri
papriku kom í verslanir í síðustu
viku og upp úr miðjum maí koma
rauðar og appelsínugular paprikur.
Garðyrkjubændur leggja áherslu
á mikilvægi þess að vanda valið á
paprikum og velja þær sem eru slétt-
ar, gljáandi, stinnar og ekki farnar
að hrukkast og linast.
Fáar hitaeiningar,
mikil næring
„Mikilvægt er að geyma papriku
ekki á of köldum stað því ef hitastigið
fer undir 6°C eiga þær á hættu að
linast. Paprikur innihalda mikið af
næringarefnum en mjög fáar hita-
einingar (30he/100g), sem er gott
fyrir þá sem þurfa að grennast.
Paprikur, eins og allt grænmeti,
innihalda trefjar sem eru nauðsyn-
legar fyrir heilbrigði meltingarkerf-
isins. Hvað næringunni viðkemur er
vitað að best er að fá vítamín og
steinefni úr fæðunni og þá sérstak-
lega úr grænmeti og ávöxtum. Allt
grænmeti er hollt fyrir líkamann en
dökkt og litsterkt grænmeti er al-
mennt næringarríkara en það ljós-
ara. Til dæmis eru grænar og gular
paprikur mjög ríkar af beta-karótíni
sem umbreytist í A-vítamín í líkam-
anum. Beta-karótín flokkast sem
andoxunarefni og ver frumur líkam-
ans gegn slæmum áhrifum súrefnis
og mengunar. Einnig er talið að and-
oxunarefni eins og beta-karótín og
C-vítamín, sem paprikur eru einnig
ríkar af, minnki hættu á myndun
krabbameins í líkamanum, auk þess
að draga úr oxun LDL kólesteróls í
æðum sem hefur bein áhrif á lægri
tíðni kransæðasjúkdóma. Paprikur
innihalda einnig önnur efni, svoköll-
uð plöntuefni (phytochemicals) sem
eru ekki raunveruleg vítamín en efla
varnir líkamans og auka heilbrigði
hans,“ segja garðyrkjubændur.
69% aukning í sölu
kirsuberjatómata
Ljósmynd/Haraldur Jónasson
Íslenskir kirsuberjatómatar verða í
verslunum út október.
ÞRJÚ sýni af 44 voru talin ófull-
nægjandi í eftirliti Umhverfisstofu
og Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga
með rjómabollum í febrúar og mars
síðastliðnum. Kannað var svonefnt
örveruástand rjómabolla á sjö heil-
brigðiseftirlitssvæðum og voru tekin
44 sýni, aðallega úr rjómabollum, úr
24 bakaríum víða um land og á
tveimur kaffihúsum. Sýni voru tekin
af vatnsdeigs- og gerdeigsrjómaboll-
um, rjómatertum og kleinuhringj-
um. Ýmist eru tekin sýni hjá fram-
leiðanda eða seljanda.
Rannsakaðir eru helstu þættir
sem hafa áhrif á örverufræðileg gæði
og öryggi vörunnar, eða svokölluð
líftala við 30 gráður. Sjónum er beint
að bacillus cereus, staphylococcus
aureus og saurkólígerlum sem gefa
til kynna hreinlæti starfsfólks og al-
mennt hreinlæti við framleiðslu.
Tvö sýni voru ófullnægjandi vegna
of hárrar líftölu og eitt vegna
staphylococcus aureus yfir viðmið-
unarmörkum.
Niðurstöðurnar eru svipaðar og í
samskonar rannsókn í fyrra og segir
Umhverfisstofnun þær benda til
þess að „ástandið sé gott“ og að
næsta ár sé athugandi að skoða fleiri
þætti tengda bakaríum og sambæri-
legum fyrirtækjum, eins og segir í
skýrslu Umhverfisstofnunar.
Þrjú bollusýni sögð
ófullnægjandi
Langflest bollusýni stóðust eftirlit.
TÆPT ár er liðið frá stofnun
„broste-copenhagen“-klúbbsins á Ís-
landi og eru verslanir sem veita
klúbbfélögum afslátt nú 14 talsins og
staðsettar um land allt, að því er
fram kemur í tilkynningu.
„Klúbbfélagar eru í dag tæplega
800 talsins og njóta allir sérkjara á
„broste-copenhagen“-vörulínunni í
14 sérverslununum.
Fyrr í mánuðinum bættust versl-
anir Blómavals í Reykjavík og á Ak-
ureyri í hópinn.
Hægt er að nálgast afsláttarkortið
með skráningu á vefsíðu Bergíss ehf.
– heildverslunar sem sér um sölu og
dreifingu á „broste-copenhagen“-
vörulínunni hér á landi. Veffangið
erwww.bergis.is en þar er einnig
hægt að fá nánari upplýsingar.“
Afsláttarklúbbur
„broste-copenhagen“