Morgunblaðið - 24.04.2003, Page 36
LISTIR
36 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SHMS - Leiðandi á heimsvísu í hótelstjórnun
Meðlimur í Sambandi hótelskóla í Sviss
Swiss Hotel Management School
“Caux-Palace”, 1824 Caux-Montreux (Switzerland)
SHMS, einn af stærstu og virtustu hótelstjórnunarskólunum í Sviss, býður þrjár
alþjóðlegar námsgráður í þriggja ára námi.
* Swiss Æðri diplóma í hótelstjórnun og ferðaþjónustu
* Bandaríkin AH og MA diplóma í hótelstjórnun
* Bretland BA gráða í hótel- og veitingastjórnun (Hospitality) / Ferðaþjónustu/
Umsjón viðburða og heilsulinda
Einnig í boði: Meistaragráða, MBA, framhaldsgráða, nám fyrir fólk með
starfsreynslu, sumarnám - möguleiki á mati úr öðrum skólum.
* Launaðar lærlingsstöður á hverju námsári
* Ráðningarþjónusta eftir námslok
* Frábær aðstaða á fyrrum 5* “Caux-Palace” hóteli.
Nánari upplýsingar fást hjá:
SMHS EUROPE, Rudolfplatz 6, 50674 Koeln, Þýskalandi,
sími: +49 - 221 - 258 5210,
fax +49 - 221 - 258 5211
NETFANG:
SHMSEUROPE@SHMS.COM
WWW.SHMS.COM
SILFURSMÍÐI á sér langa sögu í
Bretlandi og óvíða annars staðar eru
merkingar muna úr þessum eðal-
málmi jafnítarlegar og þar í landi, en
þeir sem til þekkja geta lesið sér til
um uppruna gripanna af táknunum
einum saman. Silfur er líka málmur
sem flestir tengja frekar skartgrip-
um en skúlptúrum.
Á sýningunni sem nú stendur yfir
í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
gegnir silfrið hins vegar síðarnefnda
hlutverkinu og hýsir safnið rúmlega
fimmtíu smáskúlptúra eftir jafn-
marga listamenn. Gripirnir eiga það
sameiginlegt að vera steyptir hjá
hinni bresku Pangolin-málmsteypu,
en listamennirnir, sem flestir eru
breskir, eiga vel flestir ef ekki allir
að baki fyrra samstarf við fyrirtæk-
ið. Auk Bretanna eiga Íslendingarn-
ir Jóhanna Þórðardóttir, Pétur
Bjarnason og Sigurjón Ólafsson
verk á sýningunni og öðlast til að
mynda Hávaðatröll Sigurjóns nýtt
líf í nýjum efnivið. Það er líka fyrir
tilstilli Pangolin sem sýningin er sett
upp og leitaði fyrirtækið sérstaklega
til listamannanna með það í huga að
setja saman sýningu á silfur smá-
skúlptúrum sem ekki væru stærri en
15 cm.
Smæðin og nálægðin
Þessi smæð munanna veldur því
óneitanlega að það er allsérstök
stemning að ganga um Listasafn
Sigurjóns að þessu sinni og ekki
laust við að sýningargestir verði að
setja sig í sérstakar stellingar.
Smæðin krefst jú meiri nálægðar við
viðfangsefnin en við eigum að venj-
ast og fyrir vikið er eins og hægi á
öllu – ekki dugir að skima hratt um
sýningarrýmið og öðlast þannig
grófa hugmynd um efni sýningarinn-
ar – smágerður skalinn krefst ein-
faldlega óskiptrar athygli gestanna.
Krafan um nálægðina sem í
smæðinni felst, sem og efniviðurinn
sjálfur, eru hins vegar í raun það
eina sem sameinar skúlptúrana og
er ekki ofsögum sagt að sýningin
einkennist af mikilli fjölbreytni. Að-
standendur Sterling Stuff vilja
meina að sú fjölbreytni sé kostur og
óneitanlega sýnir fjölbreytnin marg-
breytileika silfursins, málms sem
svo sannarlega virðist ekki síður
vera vænlegur efniviður fyrir mynd-
höggvara en silfursmiði. Fjölbreytn-
in er hins vegar líka slík að ekki eiga
öll verkanna sama erindi í umræðu
um samtímamyndlist, til þess eru
sum þeirra einfaldlega of bundin á
klafa hefðanna og þó að þau beri
tækni og handbragði höfunda sinna
gott merki falla þau frekar í flokk
stofulistar. Verk á borð við Aramad-
illo eftir Anitu Mandl, Jafnvægi eftir
Nick Bibby, Hestur frá Thermopylæ
eftir Ian Rank-Broadley, Úlfur (Í
haldi) eftir Alison Wilding og Merlín
eftir David Backhouse bera þannig
öll handverki listamannanna, sem
sumir hafa sérhæft sig í dýraskúlpt-
úrum, gott vitni án þess að þar sé
endilega einhverju við að bæta.
Þetta hefðbundna viðhorf til silf-
ursins einkennir þó alls ekki öll verk
á sýningunni og eru áhugaverðir
munir eftir listamenn á borð við
Damien Hirst, Antony Gormley,
Lynn Chadwick og Kenneth Arm-
itage vissulega heimsóknarinnar
virði og áhugavert að sjá á hve ólík-
an hátt þeir kjósa að nálgast málm-
inn. Þannig hefur Lynn Chadwick,
sem telst í hópi áhugaverðari högg-
myndalistamanna 20. aldarinnar,
valið tilbrigði við kennimark sitt ver-
ur með hyrnd höfuð í verki sínu Ver-
ur á hraðferð. Skúlptúrinn nær
óneitanlega að viðhalda nokkru af
krafti og styrk sínum þó að í smækk-
aðri mynd sé og nýtur sín vel í efni-
viðnum þó að ekki sé erfitt að
ímynda sér verkið enn áhrifameira í
stækkaðri mynd. Við val á skúlptúr
eftir Kenneth Armitage, sem líkt og
Chadwick tilheyrði þeim hópi
breskra höggmyndalistamanna sem
á sjötta áratugnum kenndu sig við
nýja bronsöld, var einnig valið eldra
verk úr smiðju listamannsins, en
Armitage lést í janúar 2002. Og þó
að hið frumstæða Maður með upp-
rétta handleggi sé gjörólíkt hyrnd-
um verum Chadwicks eru tengslin
við upprunalega skúlptúrinn jafn
augljós, þó að vissulega nái bæði
verkin einnig að njóta sín í smækk-
aðri mynd.
Yngri listamennirnir virðast hins
vegar síður fastir fyrir en þeir eldri
og er nálgun þeirra við silfrið sér-
lega áhugaverð – þeir vinna með
smæðinni og leita að styrk þeirra
möguleika sem hún býður upp á líkt
og verk Damien Hirst Depurð er
gott dæmi um. En hönd hans með
opið pilluglas í réttum hlutföllum
kallar óneitanlega fram fjölda
spurninga í huga sýningargests. Ír-
onían sem felst í Afhjúpun Angus
Fairhurst, fullkominni eftirlíkingu af
afhýddum banana fer heldur ekki
framhjá neinum, frekar en örheim-
urinn sem Daniel Chadwick nær að
skapa með verki sínu Móðir og barn.
Öðrum smáskúlptúrum fremri er þó
Fóstur Anthony Gormleys og nær
stækkuð eftirmynd listamannsins af
fóstri í bakka að kalla fram sterk við-
brögð hjá áhorfendum og sýnir það
rót sem verkið getur komið á huga
sýningargests ekki hvað síst þá
möguleika sem smáskúlptúrarnir
búa yfir.
Víxlverkandi list
Húmorinn sem einkennir verk
listamanna á borð við Angus Fair-
hurst er ekki síður sjáanlegur á sýn-
ingu Ilmar Stefánsdóttur, Mobiler á
Kjarvalsstöðum, enda var Ilmur við
nám í Bretlandi í kjölfar þess að
Freeze sýning Hirst, Fairhurst og
fleiri festi árið 1998 þessa „ill-
ræmdu“ kynslóð ungra breskra
listamanna kirfilega í minni landa
sinna.
Það eru þó engir smáskúlptúrar
sem bíða gesta á sýningu Ilmar held-
ur óvenjuleg farartæki listakonunn-
ar sem nýtur þess að losa sig og okk-
ur úr viðjum vanans með því að
nálgast hversdagsleikann á nýjan
hátt. En meðal farartækjanna er
reiðhjól sem stóll hefur verið festur
á, hækjur á hjólum, göngugrind fyrir
fullorðna og skíði á stultum svo fátt
eitt sé nefnt. Farartækin eru líka
líkt og lýsing þeirra gefur til kynna
misheppilegir fararskjótar, þó svo
að notagildi sé vissulega fyrst og
fremst huglægt hugtak, líkt og
Ragna Sigurðardóttir bendir á í um-
fjöllun sinni í sýningarskrá.
Farartæki Ilmar koma hins vegar
svo sannarlega ímyndunarafli okkar
af stað og ná að brjóta upp hefð-
bundna hugsun. Víxlverkunin sem
þau og krefjast nær einnig að skila
miklu og virðist listakonan hér ná
góðu sambandi við sýningargesti.
Gestir, sem hvattir voru til að prófa
farartækin, virtust líka taka því
tækifæri fegins hendi og vöktu far-
arskjótarnir ekki minni lukku meðal
eldri en yngri sýningargesta. Með
sýningunni Mobiler tekst Ilmi líka
einkar vel að draga sýningargesti úr
hinu hefðbundna hlutverki áhorf-
andans og gera þá að þátttakendum
sem segir er upp er staðið meira en
mörg orð um lifandi eiginleika verk-
anna.
Úr viðjum
vanans
MYNDLIST
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Sýningin er opin alla daga nema mánu-
daga frá kl. 14–17. Henni lýkur 4. maí.
STERLING STUFF
Listasafn Reykjavíkur –
Kjarvalsstaðir
Sýningin er opin alla daga frá kl. 10–17.
Henni lýkur 11. maí.
MOBILER – ILMUR STEFÁNSDÓTTIR
Anna Sigríður Einarsdóttir
Morgunblaðið/Árni Torfason
Eitt farartækja Ilmar Stefánsdóttur á sýningunni á Kjarvalsstöðum.
Morgunblaðið/Jim Smart
Frelsi eftir Antony Gormley á sýningunni Sterling Stuff.
PORTÚGALINN José Saramago,
sem hlaut bókmenntaverðlaun
Nóbels árið 1998, verður meðal
gesta á Bókmenntahátíð í Reykja-
vík, sem haldin verður í Norræna
húsinu og Iðnó dagana 7.–13. sept-
ember í haust. Fleiri þekktir höf-
undar úr bókmenntaheiminum eru
jafnframt væntanlegir, en þar má
nefna Yann Martel sem hlaut
Booker-verðlaunin á síðasta ári,
breska höfundinn Hanif Kureishi,
hinn japanska Haruki Murakami,
José Carlos Somoza sem ættaður
er frá Kúbu en ólst upp á Spáni og
sænska spennusagnarithöfundinn
Henning Mankell sem er einn mest
lesni spennusagnahöfundur heims
um þessar mundir. Þetta kom fram
á blaðamannafundi sem efnt var til
í tilefni hátíðarinnar í gær.
22 erlendir rithöfundar
væntanlegir
Þetta er í sjötta sinn sem Bók-
menntahátíð í Reykjavík er haldin,
en hún var fyrst haldin árið 1985.
Meginmarkmið hátíðarinnar er að
kynna hérlendis brot af því helsta
sem býðst í alþjóðlegum bók-
menntum hverju sinni og efla um
leið kynningu íslenskra bókmennta
erlendis.
Alls taka 22 erlendir rithöfundar
þátt í hátíðinni og koma þeir frá 17
löndum, en íslenskir rithöfundar
sem taka þátt í henni eru á annan
tug. Erlendu höfundarnir sem eru
væntanlegir eru: Ingvar Ambjørn-
sen, Boris Akúnin, Murray Bail,
Emmanuel Carrère, Andres Ehin,
Kristiina Ehin, Per Olov Enquist,
David Grossman, Judith Hermann,
Bill Holm, Hanif Kureishi, Henn-
ing Mankell, Yann Martel, Haruki
Murakami, Mikael Niemi, Arto
Paasilinna, José Saramago, Nichol-
as Shakespeare, Johanna Sinisalo,
Jan Sonnergaard, José Carlos
Somoza og Peter Zilahy.
Verður boðið upp á fyrirlestra,
viðtöl, samræður og upplestra rit-
höfunda bæði í Norræna húsinu og
Iðnó, svo eitthvað sé nefnt, og
verður sá háttur hafður á við upp-
lestra rithöfundanna úr verkum
sínum, að þeir lesa upp á sínu móð-
urmáli en íslenskri þýðingu verður
varpað á vegg um leið.
Mikilvæg kynning á
íslenskum rithöfundum
„Það er að nokkru leyti sami
kjarni sem hefur unnið að Bók-
menntahátíð síðan lagt var af stað
fyrir átján árum og alltaf í sam-
vinnu við Norræna húsið. Það hef-
ur verið gaman að fylgjast með há-
tíðinni og því hvernig hún hefur
fest sig í sessi – það er mun auð-
veldara að fá hingað höfunda en
upphaflega var,“ sagði Sigurður G.
Valgeirsson rithöfundur, sem á
sæti í undirbúningsnefnd hátíðar-
innar.
Halldór Guðmundsson útgef-
andi, sem einnig á sæti í nefndinni,
tók undir með Sigurði að auðveld-
ara væri að fá erlenda rithöfunda
til þátttöku nú en áður. „Í byrjun
afþökkuðu um átta af hverjum tíu,
en því er í raun öfugt farið núna,“
sagði hann. Hann benti á að Bók-
menntahátíð í Reykjavík væri þó
ekki einungis mikilvæg varðandi
kynningu erlendra rithöfunda hér-
lendis, heldur einnig sem kynning
á íslenskum rithöfundum fyrir er-
lendum útgefendum, en þó nokkrir
slíkir hafa boðað komu sína á há-
tíðina.
Forstjóri Norræna hússins, Gro
Kraft, sem einnig á sæti í und-
irbúningsnefnd, sagði á fundinum
að hátíðin væri veigamikill þáttur í
starfsemi Norræna hússins sem
frá upphafi hefur verið samstarfs-
aðili hátíðarinnar og að hún fagn-
aði samstarfinu eindregið.
Auk Sigurðar og Halldórs sitja í
undirbúningsnefnd hátíðarinnar
Einar Kárason rithöfundur, Frið-
rik Rafnsson, vefritstjóri Háskóla
Íslands og þýðandi, Pétur Már
Ólafsson útgáfustjóri, Thor Vil-
hjálmsson rithöfundur og Örnólfur
Thorsson íslenskufræðingur. Fyrir
hönd Norræna hússins sitja í
nefndinni Gro Kraft forstjóri,
Andrea Jóhannsdóttir yfirbóka-
vörður og Guðrún Dís Jónatans-
dóttir, upplýsinga- og verkefna-
fulltrúi. Susanne Torpe er
verkefnisstjóri hátíðarinnar.
Þekkt nöfn á Bókmenntahátíð í Reykjavík í haust
Auðveldara að fá
höfunda en áður José Saramago Yann Martel
Hanif Kureishi Haruki Murakami