Morgunblaðið - 24.04.2003, Side 46
UMRÆÐAN
46 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
UM nýliðna helgi birti Samfylk-
ingin áhrifamikla auglýsingu í prent-
miðlum og í sjónvarpi sem benti á þá
staðreynd að í vor geta orðið tíma-
mót í stjórnmálasögu landsins. Í
fyrsta skipti standa kjósendur
frammi fyrir þeim möguleika að
kona geti orðið forsætisráðherra lýð-
veldisins. Kvenkyns frambjóðendur
hægri flokkanna brugðust ókvæða
við og í greinum þeirra í Morgun-
blaðinu sl. þriðjudag mátti jafnvel
lesa að auglýsingin væri móðgun við
konur. Slíkar stjórnmálaskýringar
eru fjarstæðukenndar. Þær einkenn-
ast af misskilningi og vanþekkingu á
jafnréttismálum.
Auglýsingin gerir ekki lítið úr kon-
um, hún gerir ekki lítið úr einstak-
lingnum og frambjóðandanum Ingi-
björgu Sólrúnu eða málefnastöðu
hennar heldur þvert á móti. Í auglýs-
ingunni felst viðurkenning á nauðsyn
þess að konur gegni ábyrgðarstöðum
í stjórnmálum og ekki síst því að
styrkur Ingibjargar Sólrúnar sem
stjórnmálamanns liggur meðal ann-
ars í þeirri staðreynd að hún er kona,
kona sem hefur breytt ásýnd ís-
lenskra stjórnmála. Að halda því
fram að sú staðreynd geri lítið úr
konum og dragi úr viðurkenningu
kjósenda á hæfni þeirra sem einstak-
linga einkennist af kvenfyrirlitningu
sem hefur verið áberandi í stjórn-
málaumræðu síðustu missera.
Konur geta breytt
stjórnmálunum
Árið 1997 samþykktu Alþjóðasam-
tök þjóðþinga almenna stefnuyfirlýs-
ingu um lýðræði, þar sem einn af
hornsteinum þess er sagður þessi:
„Lýðræði verður ekki skapað á ann-
an hátt en þann að karlmenn og kon-
ur vinni saman að málefnum sam-
félagsins á jafnréttisgrundvelli og
auðgist að reynslu, með þekkingu á
því sem kann að skilja kynin að.“ Yf-
irlýsingin viðurkennir að kyn skiptir
máli í stjórnmálum, að mismunandi
reynsla og félagsmótun kynja valdi
því að sýn karlmanna á stjórnmál er
önnur en sýn kvenna. Hún bendir á
að kynferði er ein þeirra félagslegu
breytna sem hefur afgerandi áhrif á
líf einstaklingsins. Femíniskir
stjórnspekingar allt frá John Stuart
Mill til okkar tíma hafa bent á þessa
staðreynd. Samkvæmt þeim hefur
þátttaka kvenna í stjórnmálum tákn-
ræna þýðingu og með henni eru póli-
tískar stofnanir gerðar lögmætari og
lýðræðið stöðugra. Jafnframt hefur
verið bent á að þátttaka kvenna í
stjórnmálum sé spurning um rétt-
læti, að það sé fjarstæðukennt og
ósanngjarnt að karlar einoki ábyrgð-
arstöður í stjórnmálum. Hugmynda-
fræði nýfrjálshyggjunnar sem bygg-
ir á athafnafrelsi einstaklingsins
hafnar hins vegar samfélagslegri
þýðingu kynferðis og er þannig að
upplagi andsnúin konum.
Jöfn þátttaka kynjanna í stjórn-
málum og opinberu lífi þarf ekki
endilega að þýða breytingu á stefnu,
markmiðum eða framkvæmd stjórn-
málanna. Hagsmunir kvenna komust
hins vegar ekki á dagskrá stjórnmál-
anna fyrr en konur hófu afskipti af
þeim. Þannig hefur það sýnt sig að
þar sem konur koma að ákvarðana-
töku verða áherslubreytingar í
stjórnmálum, einkum ef konur eru
meðvitaðar um samfélagslegt kynja-
misrétti og ef þeim tekst að yfirvinna
þær hindranir sem konur í stjórn-
málum mæta. Fjöldi rannsókna hef-
ur sýnt fram á að konur mæta marg-
víslegum hindrunum í stjórnmálum
jafnvel eftir að þær hófu þátttöku.
Þegar konur komast í fulltrúastöður
hafa þær þurft að beygja sig undir
ríkjandi hefðir, þær hafa þurft að
fylgja karlkyns flokksbræðrum og
málflutningi þeirra til að hasla sér
völl innan kerfisins. Það er mikil
áskorun að vilja breyta kynjasam-
setningu í stjórnmálum því í því felst
gagnrýni á það samfélag sem við bú-
um í, samfélag sem kerfisbundið hef-
ur skilið konur útundan og neitað að
fjalla um hagsmunamál þeirra.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er
dæmi um stjórnmálamann sem farið
hefur óhefðbundnar leiðir. Hún var
farsæll borgarstjóri í Reykjavík í 9
ár. Um það verður ekki deilt að mikl-
ar breytingar á sviði jafnréttismála
hafa átt sér stað undir hennar stjórn
í Reykjavík, gífurleg uppbygging í
grunn- og leikskólum, stjórnkerfis-
breytingar sem byggjast á öguðum
vinnubrögðum, áætlanagerð og
skýrum, gagnsæjum leikreglum.
Annað sem hefur gerst undir hennar
stjórn er að konum í stjórnunarstöð-
um hjá borginni hefur fjölgað mjög
en nú er jafnt hlutfall kvenna og
karla í efstu stjórnunarstöðum og
konur eru í meirihluta í neðri stjórn-
unarstöðum.
Af slæðukonum og
alvöru körlum
Umræðan um þátttöku kvenna í
stjórnmálum einkennist eins og áður
sagði af virðingarleysi við konur og
það beinist að konum innan allra
flokka. Það mátti til dæmis merkja af
úrslitum prófkjöra í Sjálfstæðis-
flokknum og umræðunni í kjölfar
þeirra. Slæmur hlutur kvenna þar
var meðal annars skýrður sem svo að
tími slæðukvenna væri liðinn og í
flokknum væri fólk dæmt eftir verð-
leikum einstaklingsins en ekki kyni.
Femínistar spurðu á sama tíma í for-
undran: Ef kynferði skiptir ekki máli
í stjórnmálum hvernig stendur þá á
því að ungir og óreyndir karlkyns
frambjóðendur unnu sigur á sér mun
reyndari konum? Slæður eða ekki
slæður; konur eru í mínum huga
jafningjar karla og eiga brýnt erindi
í stjórnmál m.a. vegna þess að þær
eru konur.
Skiptir kynferði máli
í stjórnmálum?
Eftir Rósu
Erlingsdóttur
„Ef kynferði
skiptir ekki
máli í stjórn-
málum
hvernig
stendur þá á því að ung-
ir og óreyndir karlkyns
frambjóðendur unnu
sigur á sér mun reyndari
konum?“
Höfundur er stjórnmálafræðingur.
ÉG vona, að enn finnist fjölmarg-
ir þokkalega og vel launaðir Íslend-
ingar sem kæra sig ekki um veru-
lega lækkun á eigin sköttum, meðan
fólk á „berum“ bótum eða launum
undir framfærslumörkum, er skatt-
lagt.
Nú er beinlínis lofað fyrir kosn-
ingar að auka skattamisrétti í land-
inu. Á skírdag birtist opnu auglýs-
ing í Morgunblaðinu þar sem
Sjálfstæðisflokkurinn stærir sig af
því, að hann hyggist stiglækka
skatta fólks eftir því sem það hafi
hærri tekjur, haldi hann áfram völd-
um. Samtímis er gert lítið úr þeirri
ákvörðun Samfylkingar að lækka
skatta jafnt hjá öllum, með hækkun
skattleysismarka, gefist henni tæki-
færi. Þetta tvennt er borið saman í
töflu sem sýnir að fólki með tekjur
upp að 104 þús. kr. á mánuði, hinum
auma minnihluta, er varla ætlað
neitt af rausnarlegri aðréttu Sjálf-
stæðisflokksins. Ekki virðist fólk
með allt að 140 þús. kr. mánaðar-
tekjur heldur eiga að fá mikinn
skerf af stórgjöfinni.
Skattlækkunarloforð listans til
einstaklings með 300 þús. kr. mán-
aðarlaun er hinsvegar 7.500 krónum
hærra á mánuði, 90 þús. kr.á ári en
sú jafna lækkun til allra sem Sam-
fylkingin (og raunar fleiri) boðar.
Tölum ekki um gjafmildi D-listans
við alvöruhátekjufólk. D-listinn vill
sem sé byrja á að lækka skatta fólks
með góðar eða háar tekjur og mikl-
ar sig af að meirihluti fólks græði á
lækkun skattprósentu, vel að
merkja mest það með hæstu launin.
Minnihlutinn, með lægstu launin og
bæturnar, stórtapar hinsvegar,
vegna þess að tiltölulega gott stað-
greiðslukerfi hefur fyrir löngu verið
rústað. Það var gert með því að af-
tengja rökrétt og lögboðið samband
skattleysismarka og verðlags, en
hirða smám saman hærri skatta af
lægri tekjum, jafnvel lengra og
lengra undir þurftamörkum. Slíkir
smámunir skipta e.t.v. ósköp litlu
máli fyrir stórhuga menn.
Þá er það bragarbótin sem D hef-
ur gert á loforðunum. Nauðsynlegt
var að „toppa“ þá sem nefndu
mannúðlegri lausnir, svo skattleys-
ismörkum var skyndilega hysjað
upp í 78 þús. kr. að viðbættri 4%
lækkuninni! Nóg af aurum í kass-
anum, a.m.k. til loforða……. 78 þús.
kr. mörkin nægðu líka til að ekki
yrði tekinn skattur af „þurfa-
manna“-bótum, en það hefur verið
algengt uppá síðkastið. Bara yrði að
halda bótum áfram lægstum á
Norðurlöndum svo það dæmi gengi
upp.
Hvers vegna lofar D-listinn ann-
ars ekki að leggja megnið af þeirri
tröllauknu summu – sem nú er allt í
einu tiltæk – í myndarlega leiðrétt-
ingu á skattleysismarka-villunni og
færa skattleysismörk í um 100 þús á
mánuði, svipað og voru 1988 reiknað
til núvirðis. Þar með lækkar skattur
heilmikið og jafnt hjá öllum. Það
kemur sér um leið best fyrir verð-
uga meirihlutann, fólk með lágar og
upp í meðaltekjur. Hátekjufólk
myndi ekki græða neitt sérlega.
Fjármálaráðuneytið getur reiknað
þetta eins og skot, meðal annars að
yfir 50% skattgreiðenda hagnast
langmest á þessari tilhögun. Raunar
svo að margir þeirra yrðu barasta
alls ekki tekjuskattgreiðendur eftir
breytinguna!
Sú kosningatafla myndi sannar-
lega gleðja marga.
Skattamisrétti lofað?
Eftir Hlédísi
Guðmundsdóttur
„Minnihlut-
inn, með
lægstu laun-
in og bæt-
urnar, stór-
tapar hinsvegar, vegna
þess að tiltölulega gott
staðgreiðslukerfi hefur
fyrir löngu verið rústað.“
Höfundur er læknir.
Fimmtudagur 24. apríl
Harmónikkuspil, glens og gaman í
kosningamiðstöðinni Lækjargötu 2
Kaffistýrur og barnapíur ráða húsum.
Trúðar, turtildúfur og allskyns
furðufuglar
Vilborg Dagbjartsdóttir skáldkona
segir sögur og flytur ljóð
Katla og Linda syngja sumarið inn
í hjörtun
Raddbandafélag Reykjavíkur flytur
nokkrar strófur
Ingibjörg Sólrún flytur ávarp
Frambjóðendur bjóða upp á
pönnukökur og annað bakkelsi með
kaffinu.
Dagskráin hefst klukkan þrjú
Sumardagurinn fyrsti