Morgunblaðið - 24.04.2003, Qupperneq 56
56 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Óskum eftir
að ráða vanan mann á traktorsgröfu.
Góð vinna hjá öflugu byggingafélagi.
Upplýsingar veitir Tryggvi í síma 693 7009.
50% starf við bókhald
Óskað er eftir að ráða hæfan einstakling í 50%
starf við bókhald.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi gott vald
á ensku og þekkingu á Navision hugbúnaði.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist til auglýsingadeildar Mbl.
eða í box@mbl.is merktar: „Bókhald — 13591“
eigi síðar en 30. apríl.
Smurbrauðsdama
óskast
Óskum að ráða smurbrauðsdömu til íhlaupa-
starfa og afleysinga í sumar. Umsækjendur
þurfa að hafa starfsreynslu að baki.
Upplýsingar veitir Bjarni.
Brauðbær á Hótel Óðinsvéum við Óðinstorg,
101 Rvík. Sími 511 6200.
Ert þú
leikskólakennari?
Okkur í leikskólanum Krummafæti á Grenivík
vantar einmitt leikskólakennara/deildarstjóra
frá og með 11. ágúst 2003. Grenivík er lítið
fallegt sjávarþorp við austanverðan Eyjafjörð.
Stutt er til fjalls og fjöru á Grenivík og það nýt-
um við okkur hér í leikskólanum þar sem við
leggjum áherslu á samspil umhverfis, barna,
og fullorðinna.
Frekari upplýsingar gefur Regína leikskólastjóri
í síma 463 3240 og einnig er hægt að senda
okkur tölvupóst: krummaf@mi.is . Umsóknar-
frestur er til 15. maí nk.
Bestu kveðjur frá okkur í Krummafæti!
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FERÐIR / FERÐALÖG
Orlofsferðir fyrir konur
í Reykjavík
Eigum laus sæti í eftirtaldar ferðir:
Vík í Mýrdal 16. maí til 19. maí
Akureyri 19. júní til 22. júní
Færeyjar 20. júní til 25. júní
Costa del Sol 10. sept.- 17. eða 24. sept.
Upplýsingar um ferðirnar eru veittar á skrif-
stofu Orlofsnefndar húsmæðra í Reykjavík,
Hverfisgötu 69 mánudaga, þriðjudaga og mið-
vikudaga á milli kl. 17 og 19, sími 551 2617 og
auk þess alla daga í síma 864 2617.
Ath. Að í lögum um orlof húsmæðra segir svo: „Sérhver kona, sem
veitir eða hefur veitt, heimili forstöðu án launagreiðslu fyrir það
starf, á rétt á að sækja um orlof.“
Stjórnin.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur Enex hf.
Enex hf. boðar til aðalfundar fimmtudaginn
8. maí næstkomandi. Fundurinn verður hald-
inn í sal Grand Hótels Reykjavíkur, Sigtúni 38,
Reykjavík, Setrinu, og hefst kl. 15:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum félagsins.
2. Önnur mál.
Stjórn Enex hf.
Aðalfundur FVFÍ
verður haldinn í Borgartúni 22,
2. maí nk. kl. 19.00.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Tillaga um breytingar á lögum.
3. Önnur mál.
Kaffiveitingar að fundi loknum.
Tillögur um breytingar á lögum þurfa að berast
stjórn félagsins fyrir 25. apríl.
Reikningar félagsins munu liggja frammi á skrif-
stofu FVFÍ, alla virka daga, milli kl. 10.00 og 16.00,
vikuna fyrir fund.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórn FVFÍ.
KENNSLA
Frá Tónlistarskóla FÍH
Innritun nýnema fyrir næsta skólaár stendur
yfir til 8. maí nk. Hægt er að nálgast umsóknar-
eyðublöð á skrifstofu skólans í Rauðagerði 27
og á netinu www.fih.is//umsóknir . Skrifstofan
er opin frá kl. 13:00 til 17:00 alla virka daga,
nánari upplýsingar í síma 588 8956.
Að kröfu borgaryfirvalda verða nemendur sem
ætla að stunda nám við Tónlistarskóla FÍH frá
hausti 2003 að hafa lögheimili í Reykjavík.
Nemendur með lögheimili annars staðar en
í Reykjavík geta þó stundað nám við skólann
hafi þeir undirritaða staðfestingu frá heima-
sveitarfélagi um að það greiði kostnað við
námið umfram skólagjöld.
Skólastjóri.
Sveinspróf í flugvélavirkjun
Sveinspróf í flugvélavirkjun verður haldið dagana
28. og 29. júní 2003, í Flugvirkjaheimilinu, Borg-
artúni 22.
Umsækjendur skili inn ljósriti af burtfararskírteini
með einkunnablaði og vinnuvottorði til Flugvirkj-
afélags Íslands fyrir 15. maí nk.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Flugvirkjafélags Íslands. Ennfremur er hægt að
nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu Flug-
virkjafélagsins, www.flug.is .
Flugvirkjafélag Íslands,
Borgartúni 22, 105 Reykjavík,
sími 562 1610, fax 562 1605,
netfang: fvfi@centrum.is
heimasíða: www.flug.is
Skógræktarfélag Íslands
Skógræktarnámskeið
Björns Jónssonar
fyrir áhugafólk,
sniðið að þörfum þess sem vill
ná góðum árangri.
Björn Jónsson, fyrrv. skólastjóri, hefur mikla
reynslu af skógrækt. Á námskeiðinu fjallar
Björn um ýmsa hagnýta þætti fyrir áhugafólk
um skógrækt.
Björn nefnir námskeiðið „Skógrækt áhuga-
mannsins“ og segir svo í inngangi: „Oft er
sagt að skógrækt gangi hægt á Íslandi og trjá-
planta sem stungið er niður þurfi býsna mörg
ár til að vaxa upp fyrir mannhæð. Þetta þarf
ekki að vera svo. Ræktunarmaður getur náð
skjótum árangri ef hann kærir sig um og snýr
sér að skógrækt með svipuðu hugarfari og fólk
sem gengur að annarri ræktun. Það sem skiptir
máli er að við setjum okkur markmið og vinn-
um skipulega. Þá mun árangur skila sér fljótt
og vel“.
Fyrirhuguð eru tvö námskeið í Mörkinni 6,
kl. 20.00—22.30.
Námskeið I 29. og 30. apríl.
Námskeið II 6. og 7. maí.
Skráning á námskeiðin er hjá Skógræktarfélagi
Íslands, Ránargötu 18, sími 551 8150 eða
skog@skog.is .
Verð kr. 5.900, innifalin eru vegleg nám-
skeiðsgögn og kaffi. Félagar í skógræktar-
félögum fá afslátt, svo og hjón.
Nauðsynlegt að skrá sig með góðum fyrirvara.
Þátttakendafjöldi er takmarkaður á hvert
námskeið.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f. h.
Verkefnisstjórnar um uppbyggingu í
Norðlingaholti, Landsíma Íslands og
Orkuveitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum
í eftirfarandi verk:
Norðlingaholt áfangi 1a, gatnagerð
og lagnir.
Helstu magntölur eru:
Lengd 8,0 m gatna 300 m
Lengd 7,5 m gatna 250 m
Lengd 7,0 m gatna 170 m
Lengd 6,0 m gatna 105 m
Hringtorg 1 stk.
Gerð ljósagatnamóta 1 stk.
Holræsalagnir Ø600-Ø1000 1.000 m
Holræsalagnir Ø250-Ø500 1.000 m
Holræsalagnir Ø150-Ø200 400 m
Verkinu skal lokið fyrir 1. nóvember 2003.
Útboðsgögn verða seld á kr. 10.000 á skrifstofu
Innkaupastofnunar Reykjavíkur, Fríkirkju-
vegi 3.
Opnun tilboða: 5. maí 2003 kl. 10:00 á sama
stað.
GAT45/3
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f. h.
Verkefnisstjórnar um uppbyggingu í
Norðlingaholti, Landsíma Íslands og
Orkuveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboð-
um í eftirfarandi verk:
Norðlingaholt áfangi 1b, gatnagerð
og lagnir.
Helstu magntölur eru:
Lengd 8,0 m gatna 350 m
Lengd 7,5 m gatna 450 m
Lengd 7,0 m gatna 170 m
Lengd 6,0 m gatna 105 m
Hringtorg 1 stk.
Holræsalagnir Ø600-Ø1000 780 m
Holræsalagnir Ø250-Ø500 1.000 m
Holræsalagnir Ø150-Ø200 850 m
Reiðstígur 500 m
Verkinu skal lokið fyrir 1. nóvember 2003.
Útboðsgögn verða seld á kr. 10.000 á skrifstofu
Innkaupastofnunar Reykjavíkur, Fríkirkju-
vegi 3.
Opnun tilboða: 5. maí 2003 kl. 14:00 á sama
stað.
GAT 46/3