Morgunblaðið - 24.04.2003, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 24.04.2003, Qupperneq 62
62 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ                        ! "    # $  "    % &' (    %#         BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÓLÍKT hafast menn að; á meðan Davíð Oddsson hamast á okkar minnstu bræðrum þeim Jóni Bæjó, Jóni Ásgeir, forsetanum og biskupn- um þá fer Ingbjörg Sólrún til Borg- arness og gerir bæn sína. Það hefur verið mörgum undrunarefni hvers vegna Borgarnes verður fyrir valinu þegar dreifa þarf dylgjum um Davíð Oddsson. Kanski er skýringin sú að í næsta nágrenni Borganess, er Leirá í Leirársveit. Þar bjó fyrir hálfri annarri öld skáldið Jón Thoroddsen sem uppdiktaði þá góðu konu Gróu á Leiti. Andi Gróu svífur yfir vötnum hvar sem Samfylkingin kemur sam- an eða sendir frá sér efni. Þessi aðferð að ata andstæðingin auri og láta hann hann neita ávirð- ingum sem á hann eru bornar flokk- ast klárlega undir það að vera um- ræðu- eða söguburðarstjórnmál. Borgarnesguðspjall Ingibjargar hið seinna opinberaði þó fleira en „einkennilegt eðli“ Samfylkingar- innar. Þar var æðstu embættis- mönnum þjóðarinnar blandað með fádæma smekklausum hætti í kosn- ingabaráttu Samfylkingarinnar. Ingibjörg Sólrún vísar í ræðu sinni til meintra ofsókna Davíðs Oddsson- ar á hendur forsetanum og biskupn- um. Hvorugur hefur gert tilraun til að afþakka afskipti Samfylkingar- innar af embættum þeim sem þeir gegna. Þetta vekur til umhugsunar um heilindi þessara æðstu embætt- ismanna þjóðarinnar. Ætla þeir að láta sér vel líka að vera orðnir þátt- takendur í illskeyttri kosningabar- áttu. Þögn þeirra við Borgarnes- smekkleysunni verður að skoða sem samþykki. HRAFNKELL A. JÓNSSON, Fellabæ. Söguburðarstjórnmál Frá Hrafnkeli A. Jónssyni ÞAÐ hefur vakið undrun mína, hátta- lag stjórnvalda í Bandaríkjunum (með stuðningi frá 51. fylki sínu, Ísr- ael) að ætla að fara að ráðast inn í önnur lönd í Mið- Austurlöndum sem eru óvinveitt þeim og stefnir allt að byrjað verði á Sýrlandi. Ég hef verið al- gjörlega á móti stríðinu við Írak á þeim forsend- um að mér finnst það yfirgangur af hálfu Bandaríkjanna að ætla að virða Sameinuðu þjóðirnar að vettugi og krækja sér í hin miklu verðmæti og völd sem fást með leppstjórn í Írak. Ég hefði hins vegar verið samþykkur árásinni ef þarna hefði farið inn fjöl- þjóðaher undir forystu SÞ, því Sadd- am og stjórn hans voru hin mestu úr- þvætti og er írösku þjóðinni betur borgið án þeirra. En með Sýrland gegnir öðru, þeir hafa ekki verið að gera neitt af sér, íbúarnir hafa það mun betra en í Írak og þeir hafa ekki beitt efnavopnum gegn sinni þjóð eða öðrum. Írakar hafa gert þetta hvort tveggja og reyndar finnst mér fáránlegt að reyna að réttlæta innrásina í Írak út af því sem gerðist í Íran í stjórnartíð Reagans. Bandaríkjamenn studdu innrásina og þeir vissu af beitingu efnavopna sem voru nú líklega komin frá Bandaríkjamönnum. En með eign gereyðingarvopna hefur náðst al- þjóðleg samþykkt sem flest ríki í heiminum eru aðilarað, þar sem segir að beiting kjarnorkuvopna sé með öllu bönnuð og að þróun og fram- leiðsla þeirra sé óleyfileg. Einnig seg- ir ekkert ríki megi eiga kjarnorku- vopn nema þau fimm ríki sem hafa viðurkennt að eiga þannig vopn, Rússland, Kína, Frakkland, Bretland og Bandaríkin. Nú er hins vegar vitað að Ísrael, Indland og Pakistan eiga þau einnig. Ísrael má því ekki eiga svona vopn en á þau nú samt með fullri vitund Bandaríkjastjórnar sem dælir í þá meira en 3 milljörðum doll- ara árlega. Berum nú saman þessi þrjú ríki, Ísrael, Sýrland og Íran. Árið 1967 réðst Ísrael inn í nágrannaríki sín og hertók hluta af nokkrum þeirra, m.a. Gólanhæðir í Jórdaníu. Þeir hafa ráð- ist miskunnarlaust á Palestínumenn undanfarin tvö ár og drepið eitthvað um 2500 manns. Þeir búa yfir kjarn- orkuvopnum og líklega líka efna- og sýklavopnum. Þarna er reyndar lang- mesta lýðræðið í þessum þrem lönd- um. Sýrland hefur lítið gert af sér annað en það að vera óvinveitt Bandaríkjunum, innrás þeirra í Írak og að vera sökuð um að eiga gereyð- ingarvopn. Íran er svipað ríki, þeir áttu á ár- unum 1980-1988 í stríði við Írak en þar var Írak árásaraðilinn, einnig hefur Íran gangsett kjarnorkuver á síðastliðnu ári sem þeir segja reynd- ar bara vera að framleiða orku og hafa leyft vopnaleitarsveitum SÞ, UNMOVIC, að skoða þau. Svo er hægt að setja önnur ríki inn í þetta samhengi s.s. Líbýu og Norður Kór- eu. Líbýa er sökuð um sprenginguna yfir Lockerbie árið 1988 með þeim af- leiðingum að yfir 200 manns létust. Norður-Kórea er hins vegar mun hættulegri því þeir hafa vísvitandi ögrað heiminum með eldflaugaskot- um og hafa sett af stað kjarnorku- áætlun sína. Ég verð nú samt að draga í efa að Bandaríkjamenn ráðist þangað inn. Því ef þeir eiga kjarnorkuvopn gætu þeir lagt í rúst borgir eins og Vladiv- ostok, Seoul, margar borgir í Kína og einnig hafa þeir sannað að þeir búi yf- ir eldflaugum sem geta drifið yfir Japan. Ef á þá yrði ráðist og þeir ættu 10 kjarnorkusprengjur gætu þeir drepið hátt í hundrað milljónir manna í Rússlandi, Kína, Suður-Kór- eu og Japan. STEINN HALLDÓRSSON, grunnskólanemi, Baughúsum 28, Reykjavík. Staðan í Mið-Austurlöndum Frá Steini Halldórssyni Steinn Halldórsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.