Morgunblaðið - 24.04.2003, Síða 66
ÍÞRÓTTIR
66 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
JÓHANNES Karl Guðjónsson,
landsliðsmaður í knattspyrnu, sem
er á lánssamningi hjá enska úrvals-
deildarliðinu Aston Villa segist
ekki hafa mikinn áhuga á að snúa
aftur til Real Betis á Spáni en Jó-
hannes var lánaður til Aston Villa í
janúar frá Real Betis og gildir láns-
samningurinn til loka tímabilsins.
„Nei eins og málin horfa í dag þá
hef ég ekki mikinn áhuga á að fara
aftur til Real Betis. Ég vonast eftir
því að Aston Villa og Real Betis nái
samkomulagi um kaupverð og ég
semji við Aston Villa til framtíðar.
Ég er ákaflega ánægður með
veruna hjá Villa og vill vera hjá lið-
inu lengur. Hins vegar veit maður
aldrei hvað getur gerst í boltanum.
Ég gæti þess vegna verið kominn til
Spánar í sumar en núna á Aston
Villa hug minn allan,“ sagði Jó-
hannes Karl við Morgunblaðið í
gær.
Jóhannes er samningsbundinn
Real Betis til ársins 2007 og hann
segir að ef sú staða komi upp að
Real Betis vilji fá sig í sumar
geti hann ekki neitað því
en hann hefur enga trú
á að slíkt gerist á
meðan Victor
Fernandez er
þjálfari liðs-
ins.
„Ég var al-
veg úti í
kuldanum
hjá Fern-
andez og ég
sá enga
framtíð hjá
Real Betis með hann sem þjálfara.
Ég reikna með að félögin setjist
niður í lok tímabilsins og reyni að
semja um kaupverð enda hefur
Graham Taylor sagt að hann vilji
gera við mig samning. Það verður
ekkert vandamál fyrir mig að
semja við Villa en aðalatriði er að
félögin nái samningum.“
Jóhannes Karl segist halda að
Real Betis vilji fá 1,5 til 2 millj-
ónir punda fyrir sig, sem sam-
svarar 180 til 240 milljónum
króna, en félagið keypti
hann frá hollenska liðinu
Waalwikj í september 2001
fyrir 350 milljónir.
Skagamaðurinn knái varð
fyrir meiðslum í sigurleik
Aston Villa á Chelsea um síð-
ustu helgi en hann segist
vera á góðum batavegi og vonast til
að geta verið klár í slaginn þegar
Aston Villa heimsækir Everton á
Goodison Park á laugardaginn.
Jóhannes Karl kemur síðan til
móts við íslenska landsliðshópinn á
mánudaginn þegar leikmenn lands-
liðsins koma saman í Finnland.
Sjö aðrir leikmenn leikmenn sem
leika með enskum liðum, mæta
einnig til leiks – Guðni Bergsson,
Bolton, Hermann Hreiðarsson,
Charlton, Lárus Orri Sigurðsson,
WBA, Brynjar Björn Gunnarsson,
Stoke, Heiðar Helguson, Watford,
Eiður Smári Guðjohnsen, Chelsea
og Ívar Ingimarsson, Brighton.
Leikið verður við Finna á mið-
vikudaginn kemur á Pohjola-
leikvellinum í Vantaa, sem er bær
rétt norðan við Helsinki.
Jóhannes Karl vill ekki fara aftur til Betis
ÓLAFUR Oddur Sigurðsson, úr
HSK, og sveitungur hans Lárus
Kjartansson hafa glímt átján sinn-
um á síðustu þremur árum. Ólafur
hefur unnið 10 sinnum, Lárus hefur
unnið sjö glímur og ein glíma hefur
endað með jafnglími.
ARNGEIR Friðriksson, HSÞ, og
Pétur Ingvarsson, úr Víkverja, hafa
glímt átta glímur á sama tíma. Arn-
geir hefur unnið fjórar, Pétur hefur
unnið þrjár og ein glíma hefur endað
með jafnglími.
ÓLAFUR Oddur og Arngeir hafa
á fyrrgreindu tímabili mæst níu
sinnum, Ólafur hefur unnið í sjö
skipti og Arngeir í tvígang.
LÁRUS og Pétur hafa glímt 11
sinnum, af þeim hefur Lárus unnið
fjórar, Pétur tvær og fimm glímur
hafa endað með jafnglímu.
ÓLAFUR Oddur og Pétur hafa á
þessu tímabili mæst í tólf skipti.
Ólafur hefur hefur unnið sex
glímur, Pétur hefur unnið þrjár og
jafnoft hefur niðurstaðan verið jafn-
glími.
LÁRUS og Arngeir hafa glímt 5
glímur. Lárus hefur unnið 3 og 2
hafa endað með jafnglímu.
INGA Gerða Pétursdóttir, HSÞ,
og Soffía Kristín Björnsdóttir, einn-
ig úr HSÞ, hafa á síðustu þremur ár-
um glímt fimm sinnum. Inga Gerða
hefur unnið tvær glímur en þrjár
hafa endað með jafnglími.
BERGLIND Kristinsdóttir, HSK,
og Svana Hörn Jóhannsdóttir,
GFD, hafa glímt níu glímur og hefur
Svana sigrað í þeim öllum.
INGA Gerða og Sólveig Rós Jó-
hannsdóttir, GFD, hafa glímt þrisv-
ar sinnum og hefur Inga Gerða haft
betur í þeim öllum.
SOFFÍA og Berglind hafa glímt
sjö glímur, Soffía hefur sigrað í sex
skipti og ein glíma hefur endað með
jafnglími.
SVANA og Sólveig hafa glímt
fjórar glímur og hafa þær unnið
tvær hvor.
INGA GERÐA og Berglind hafa
glímt átta glímur og hefur Inga sigr-
að í þeim öllum.
SOFFÍA og Svana hafa glímt sjö
sinnum og hefur Svana sigrað í
þremur viðureignum en Soffía í
tveimur. Þjár viðureignir hafa endað
með jafnglími.
BERGLIND og Sólveig hafa hafa
glímt fjórar glímur. Sólveig hefur
unnið tvær og Berglind einu sinni,
ein glíma hefur endað með jafnglími.
INGA GERÐA og Svana hafa
glímt átta sinnum. Svana hefur unn-
ið fjórar glímur og Inga hefur unnið
eina. Jafnglími hefur orðið niður-
staðan hjá þeim í þrígang.
SOFFÍA og Sólveig hafa mæst
tvisvar sinnum. Sólveig vann í eitt
skiptið en einu sinni urðu þær að
sættast á jafnglími.
FÓLK
Enginn þeirra átta karla sem nú reyna með sér hefurunnið Grettisbeltið og því ljóst að nýtt nafn verður
letrað á skjöld sem festur verður við beltið að keppni
lokinni á laugardaginn. Reynslumesti
glímumaðurinn í keppninni um Grett-
isbeltið að þessu sinni verður Þingey-
ingurinn Arngeir Friðriksson sem nú
tekur þátt í fjórtánda sinn. Arngeir hef-
ur lengi verið í hópi fremstu glímumanna landsins en
ekki lánast að vinna Íslandsglímuna þrátt fyrir að hafa
á tíðum gert harðar atlögur að beltinu. Hann hefur fjór-
um sinnum hafnað í öðru sæti, árin 1992, 1996, 1997 og
2000.
Næst reynslumesti glímumaðurinn keppninnar að
þessu sinni er Ólafur Oddur Sigurðsson, HSK, sem nú
er með í áttunda sinn. Hann hefur lent í öðru sæti á eftir
Ingibergi undanfarin tvö ár. Pétur Eyþórsson, Vík-
verja, á að baki þátttöku í fimm Íslandsglímum og Lár-
us Kjartansson, HSK, hefur verið með í tvígang.
Fjórir nýliðar spreyta sig í Íslandsglímunni að þessu
sinni – Þingeyingurinn Jón Smári Eyþórsson og þrír
Fjölnismenn, Heimir Hansen, Hlynur Hansen og Orri
Ingólfsson.
Fyrst keppt í húsi góðtemplara
á Akureyri 1906
Að undanskildum fimm árum á árum fyrri heims-
styrjaldarinnar hefur Íslandsglíman, keppnin um
Grettisbeltið verið háð á hverju ári frá 1906 að fjórir
glímumenn komu saman og þreytti Íslandsglímu í húsi
góðtemplara á Akureyri. Fyrsti handhafi Grettisbelt-
isins var Ólafur V. Davíðsson. Lagði Ólafur þá m.a. hinn
þekkta glímu- og aflraunamann Jóhannes Jósefsson
[Jóhannes á Borg].
Vinnur Inga Gerða
í þriðja sinn?
Inga Gerða Pétursdóttir, HSÞ, á
möguleika á að vinna Freyjumenið í
þriðja sinni að þessu sinni en hún
stóð uppi sem sigurvegari á síðasta
ári og einnig fyrir þremur árum þeg-
ar keppt var um menið í fyrsta sinn í
tilefni af því að þá voru tíu ár síðan ís-
lenskar konur kepptu í glímu í fyrsta
sinn. Í fyrra átti Inga Gerða, sem á
dögunum var valin fegurðardrottn-
ing Norðurlands, í harðri keppni við
Svönu Hrönn Jóhannsdóttur, GFD,
sem eflaust kemur tvíefld til leiks að
þessu sinni. Það á einnig við um
Soffíu Kristínu Björnsdóttur, félaga
Ingu Gerðu úr HSÞ. Soffía var ekki
með í fyrra en hafnaði í öðru sæti fyr-
ir tveimur árum og í þriðja sæti fyrir
þremur árum. Auk Ingu Gerðu,
Soffíu Kristínar og Svönu Hrannar,
mætir Berglind Kristinsdóttir, HSK,
til leiks að þessu sinni. Berglind hef-
ur tekið þátt í keppninni um Freyju-
menið undanfarin þrjú ár án þess þó
að blanda sér í keppnina um verð-
laun. Þá spreytir Sólveig Rós Jó-
hannsdóttir sig einnig að þessu sinni
en hún hreppti 7. sæti í fyrra en þá
keppti hún fyrsta sinni. Sólveig er
yngst þeirra fimm keppenda sem
sækjast eftir Freyjumeninu.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ingibergur Sigurðsson með Grettisbeltið, sem hann vann sjö ár í röð.
Inga Gerða Pétursdóttir, HSÞ, varð sigurvegari í
Freyjuglímunni í fyrra – lagði alla keppinauta
sína og fékk sjö vinninga.
INGIBERGUR Sigurðsson, úr Víkverja, glímu-
kóngur Íslands undanfarin sjö ár, glímir ekki
um Grettisbeltið á laugardaginn þegar átta
glímumenn mæta til leiks og reyna með sér í
Íslandsglímunni og freista þess að vinna
þennan elsta verðlaunagrip í íslenskri
íþróttasögu. Íslandsglíman fer að þessu sinni
fram í Víkinni kl. 13 og eftir að keppni lýkur
hjá körlunum ganga fimm konur fram á sviðið
og reyna með sér í Freyjuglímunni sem nú
verður þreytt í fjórða sinn.
Eftir
Ívar
Benediktsson
Ingibergur
glímir
ekki um
Grettis-
beltið