Morgunblaðið - 24.04.2003, Side 72
FÓLK Í FRÉTTUM
72 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NÝ kvikmynd Sólveigar Anspach,
Stormy Weather, hefur verið valin
til sýningar í Un Certain Regard
dagskránni á
kvikmyndahátíð-
inni í Cannes í
Frakklandi sem
fram fer dagana
14.–26. maí
næstkomandi.
Að undan-
skildri aðal-
keppninni sjálfri
er Un Certain
Regard sú dag-
skrá á hátíðinni
sem jafnan fær
mesta athygli og
því mjög eftirsótt að koma mynd
þangað inn.
Stormy Weather var að stórum
hluta kvikmynduð í Vestmanna-
eyjum en hún er samstarfsverkefni
Frakka, Íslendinga og Belga og var
styrkt af Kvikmyndasjóði Íslands/
Kvikmyndamiðstöð. Baltasar Kor-
mákur er einn af framleiðendum
myndarinnar fyrir fyrirtækið Sögn
ehf. sem hann á og rekur í sam-
starfi við eiginkonuna, Lilju Pálma-
dóttur.
Stormy Weather er önnur mynd
Sólveigar en fyrsta mynd hennar,
Haut les coeurs!, var tilnefnd til
frönsku César-verðlaunanna sem
besti frumburðurinn árið 2000 og
aðalleikkona myndarinnar Karin
Viard vann Césarinn.
Með tvö stærstu hlutverkin í
Stormy Weather fara Elodie
Bouchez, ein skærasta stjarnan í
Frakklandi um þessar mundir, sem
fékk verðlaun í Cannes 1998 fyrir
leik sinn í Dagdraumum engla (La
vie revée des anges), og Sigurlaug
Jónsdóttir, betur þekkt sem skáld-
konan Didda, í sínu fyrsta hlut-
verki. Baltasar Kormákur og Ingv-
ar E. Sigurðsson fara með veiga-
mikil hlutverk í myndinni og marg-
ir Íslendingar smærri hlutverk.
Tökur í Vestmannaeyjum fóru fram
í nóvember og desember sl.
Eastwood keppir við von Trier
og van Sant um Gullpálmann
Alls hafa 20 myndir verið valdar
til þátttöku í aðalkeppninni, myndir
sem keppa myndu um Gullpálmann.
Að venju eru flestar myndirnar
franskar, eða fimm talsins, þrjár
eru bandarískar, tvær japanskar,
og ein frá Kanada, Kína, Bretlandi,
Sviss, Ítalíu, Íran, Rússlandi, Dan-
mörku, Tyrklandi og Brasilíu. Er
þar margt þekktra nafna, en vekur
þó mesta athygli að ný mynd eftir
Clint Eastwood er þar á meðal,
Mystic River, með Sean Penn, Tim
Robbins og Kevin Bacon í aðal-
hlutverkum. Dogville, nýjasta
mynd Danans Lars von Trier, með
Nicole Kidman í aðalhlutverki,
keppir einnig um Gullpálmann, en
von Trier fékk þessa eftirsóttu
vegtyllu árið 1998 og 2000 fyrir
Breaking The Waves og Myrkra-
dansarann, sem færði Björk Guð-
mundsdóttur einnig verðlaun sem
besta leikkonan. Bandaríski kvik-
myndagerðarmaðurinn Gus van
Sant, sem á að baki rómaðar mynd-
ir á borð við Drugstore Cowboy, My
Own Private Idaho og Good Will
Hunting, hlýtur í fyrsta skipti náð
fyrir augum valnefnda Cannes-
hátíðar því mynd hans, Elephant,
verður með í aðalkeppninni, einnig
mynd hins kenjótta velska kvik-
myndagerðarmanns Peter Greena-
ways The Moab Story/The Tulse
Luper Suitcase - Part 1, sem skart-
ar heilum her af kunnum andlitum.
Aðrar myndir í aðalkeppninni
verða Faðir og sonur eftir Alex-
andre Sokourov, Les côtelettes eft-
ir Bertrand Blier, La petite lili eftir
Claude Miller, Carandiru eftir
Hector Babenco.
Það er í höndum sérstaklega
skipaðrar dómnefndar að velja úr
myndina sem hlýtur Gullpálmann.
Að þessu sinni leiðir dómnefndina
franski leikstjórinn Patrice Cher-
eau (La Reine Margot, Intemacy) en
meðal kunnra liðsmanna dóm-
nefndar eru Meg Ryan og Steven
Soderbergh.
Opnunarmynd Cannes-hátíð-
arinnar verður Fanfan La Tulipe
með Pénelope Cruz og Vincent
Perez í aðalhlutverkum. Myndin er
framleidd og skrifuð af Luc Besson
en leikstjóri hennar var Gérard
Krawczyk, sem gerði Taxi 2 og 3.
Utan hefðbundinnar dagskrár há-
tíðarinnar verður haldin sérstök
heimsfrumsýning á The Matrix Re-
loaded 15. maí. Lokamynd hátíð-
arinnar verður endurbætt útgáfa af
Nútíma Chaplins.
D a g s k r á k v i k m y n d a h á t í ð a r i n n a r í C a n n e s k u n n g j ö r ð
Kvikmynd Sólveig-
ar Anspach veitt
sérstök athygli
Lars von Trier hef-
ur margsinnis unn-
ið til verðlauna í
Cannes og er í sér-
stöku uppáhaldi
hátíðarhaldara.
Ljósmynd/Jerome Brezillon
skarpi@mbl.is
Sean Penn leikur aðalhlutverk í Mystic River, mynd
Eastwoods sem keppir um Gullpálmann.
Baltasar Kormákur, Élodie Bouchez og Didda í einu
Vestmannaeyjaatriðanna í Stormy Weather.0