Morgunblaðið - 24.04.2003, Side 76
Rosalegt uppistand framundan
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Uppistandarinn Nick Wilty stillir sér upp.
NÆSTU þrjá daga verður rosalegt
uppistand hér í höfuðborginni en
einnig norðan heiða. Nýr alþjóð-
legur uppistandsklúbbur í Reykja-
vík, Rosalegt uppistand stendur
fyrir komu bresku grínistanna
Nick Wilty og „risans“ Alun
Cochrane (sem kom til Íslands fyr-
ir um tveimur árum) hingað en
einnig mun Ágústa Skúladóttir,
driffjöður klúbbsins, troða upp svo
og fyndnasti maður Íslands, Fíllinn
frá Dalvík (aðeins í Sjallanum).
Stofnun umrædds klúbbs kemur
í kjölfar talsverðrar uppsveiflu í
uppistandi hérlendis og hefur
Reykjavík og Ísland borið talsvert
á góma þegar erlendir uppistand-
arar ræða málin sín á milli. Þeir
sem þegar hafa komið hingað bera
landi og þjóð nefnilega vel söguna
og því sumir þeirra orðnir nokk
heitir fyrir því að kíkja hingað í
heimsókn.
Það er við hæfi að kynna Nick
Wilty aðeins betur til sögunnar en
hann á nokkuð skrautlegan feril að
baki. Að sögn var hann í þrjátíu og
átta mismunandi störfum fram að
því að hann steig fyrst á svið sem
grínari. Hann fann strax að það
ætti vel við hann og hefur hann
verið atvinnumaður í tólf ár og
ferðast til áttatíu og átta landa
með efni sitt.
Tólf ár í bransanum? Þér er ekk-
ert farið að leiðast?
„Alls ekki. Þvert á móti hef ég
yndi af þessu starfi mínu. Ég get
farið upp á svið og spjallað um
heima og geima og lifað af því. Það
er bara frábært. Ég hef ekki þurft
að gera handtak síðan ég fór að
vinna með þverrifunni!“
Er þetta eitthvað sem þú stefnd-
ir að í æsku?
„Ja …það eina sem ég hef alltaf
stefnt að er að heimsækja öll lönd
heimsins og ég er að uppfylla þann
draum með þessu starfi.“
Uppistandshefðin er sterk í
Bretlandi, er það ekki?
„Jú, og hún hefur styrkst með
árunum. Bara í Lundúnum eru 95
grínklúbbar. Erlendir uppistand-
arar eru farnir að setjast að í Bret-
landi þar sem að aðstæður eru svo
góðar fyrir slíka starfsemi.“
Brandararnir þínir hljóta að
vera nokkuð „alþjóðlegir“, þar sem
þú ferðast svona mikið …
„Ég vona það já. Ég leitast alltaf
við að skrifa eitthvað á staðnum
svo ég geti tengt við eitthvað sem
fólk hér þekkir. Í þeirri von þá að
ég, sem utanaðkomandi gestur,
geti varpað nýju og spaugilegu
ljósi á hlutina. Svo er ég að tala um
hluti sem nýlega hafa gerst, eins
og til dæmis stríðið í Írak. Það er
kannski ekkert fyndið í sjálfu sér
en vissulega hlægilegt þegar tvö
fífl ráðast á eitt fífl.“
Svona að lokum. Beitir þú ein-
hverri sérstakri tækni þegar þú ert
á sviðinu?
„Ég æfi mig aldrei. Besta leiðin
til að dæma um það hvort brandari
er fyndinn er að segja hann.
Reyndar þegar ég byrjaði þá límdi
ég punkta á bjórkrúsina mína sem
ég gat kíkt á ef ég skyldi lenda í
vandræðum. Þannig var nú það.“
Glens, fyndni, spé, skop,
grín, gaman, háð, gys,
spaug og spott
Uppistandið fer fram í kvöld og á
morgun í Leikhúskjallaranum en á
laugardaginn í Sjallanum, Akureyri.
Miðaverð er 2.000 kr. en 1.700 kr.
fyrir tíu eða fleiri. Þá verður hægt
að panta mat í Leikhúskjallaranum.
Uppistandið hefst kl. 22 öll kvöld.
arnart@mbl.is
76 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 6.
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.50 og 8. B.i. 16.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 10.10. B.i. 12.
ÁLFABAKKI
HILARY SWANK
AARON ECKHART
DELROY LINDO
STANLEY TUCCI
Sýnd kl. 5, 6.30, 8, 9.30 og 11. B.i.14 ára. / Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 14 ára.
ÁLFABAKKI
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKK
KRINGLAN / ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8.
HL MBL
Kvikmyndir.is
ÓHT Rás 2
Óskarsverðlaun
Besti leikari í
aukahlutverki
Chris Cooper
Sýnd kl. 4. ísl. talSýnd kl. 4, 6 og 8.
Fyrst var það Mr Bean.
Nú er það Johnny English.
Grín og fjör alla leið.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 5.30, 8.30 og 10.. B.i.14 ára.
SV MBL
HK DV
SG Rás 2
Radio X
ÞÞ Frétta-
blaðið
Radíó X
H.K. DV
1/2 HL Mbl
Kvikmyndir.is
1/2 Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 10.15. B.i 14.
kl. 5.45 og 8.
Mögnuð hrollvekja
frá Stephen King
sem engin má missa af!
Kvikmyndir.com
HJ MBL
ÓHT RÁS 2
Radio X
3
Besti leikari
í
aðalhlutverk
Adrien
Brody
Besti
leikstjóri
Roman
Polanski
Besta
handritÓSKARS-
VERÐLAUN
Sýnd kl. 5 og 10. B.i. 14
Sýnd kl. 4.