Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Halldór Ásgrímsson hefur setið ístóli utanríkisráðherra í átta árupp á dag þegar viðtalið er tekiðog á ríkisstjórnin jafnframt áttaára afmæli þennan dag. Hann
gerir ekki mikið úr afmælinu en leggur
áherslu á að samstarf ríkisstjórnarflokkanna
hafi verið ánægjulegt.
Í könnun sem gerð var fyrir Morgunblaðið
fyrir skömmu kom í ljós að þau mál sem
skipta kjósendur á höfuðborgarsvæðinu
mestu máli eru félagsleg velferð á höfuðborg-
arsvæðinu og kvótakerfið fyrir kjósendur á
landsbyggðinni. Hvaða mál setur Framsókn-
arflokkurinn á oddinn í þessari kosningabar-
áttu?
„Við setjum stöðugleikann á oddinn því við
teljum að hann skipti mestu máli. Við setjum
síðan áframhaldandi atvinnuuppbyggingu,
skattalækkanir og áframhaldandi uppbygg-
ingu velferðarkerfisins á oddinn í þessari
kosningabaráttu. Umfram allt teljum við að
það þurfi að halda áfram á þeirri braut sem
hefur verið mörkuð á síðustu átta árum sem
er mesta hagvaxtarskeið í sögu þjóðarinnar.
Ný þjóðhagsspá sem nýlega var gefin út gerir
ráð fyrir jafnmiklum hagvexti á næstu fjórum
árum. Ef hún gengur eftir held ég að það sé
algert met hjá OECD-löndunum að hagvöxtur
sé að meðaltali 3,5% um 12 ára skeið.
Við höfum lagt áherslu á hóflegar skatta-
lækkanir og tekið sérstakt tillit til fólks sem
hefur mikla greiðslubyrði vegna húsnæðis-
lána, námslána og leikskólagjalda. Ástæðan
fyrir því að við viljum hafa skattalækkanir
hóflegar er sú að við teljum mjög mikilvægt
að velferðarkerfið verði styrkt og eflt en því
miður er það svo að það er ekki hægt að nota
sömu peningana tvisvar.“
Þú nefnir þarna mál sem hafa verið í
brennidepli fyrir þessar kosningar eins og t.d.
skattalækkanir. Hvað hefur Framsóknar-
flokkurinn fram að færa sem aðrir flokkar
hafa ekki? Hvað aðgreinir ykkur frá hinum
miðjuflokkunum?
„Það aðgreinir okkur frá öðrum flokkum
hvað við höfum lagt mikið í sölurnar fyrir
uppbyggingu atvinnulífsins. Við höfum lagt
áherslu á þau mál í langan tíma og nú erum
við að uppskera. Þjóðin er að uppskera. Við
höfum lagt mikla áherslu á að einkavæðing í
heilbrigðiskerfinu komi ekki til álita og við
höfum lagt mjög mikið upp úr jafnri aðstöðu
fólks til náms. Okkur hefur tekist ágætlega á
þessum átta árum að ná saman við Sjálfstæð-
isflokkinn í þessum málum sem við höfum
leitt í þessari ríkisstjórn. Stjórnarandstaðan
hefur hins vegar frá upphafi verið andvíg
þeirri atvinnustefnu sem við höfum fylgt. Rík-
isstjórnin ákvað líka að lækka skatta á at-
vinnulífið og við náðum góðri samstöðu um
það. Það var mál sem stjórnarandstaðan lagð-
ist gegn en það er ein ástæðan fyrir því að það
er heilmikil verðmætasköpun í landinu í dag.“
Þannig að einkavæðing í heilbrigðisgeir-
anum er það sem aðgreinir ykkur einna helst
frá Sjálfstæðisflokknum?
„Ég ætla ekki að tala fyrir hönd Sjálfstæð-
isflokksins en það liggur alveg ljóst fyrir að
við erum ekki til í einkavæðingu í heilbrigð-
iskerfinu en við erum hins vegar tilbúin að
bjóða út afmarkaða þjónustuþætti þar.“
Hefði Framsóknarflokkurinn verið einn í
ríkisstjórn undanfarin ár, hvað hefðuð þið
gert á annan hátt?
„Það er spurning sem er mjög erfitt að
svara. Ég tel að Framsóknarflokkurinn hafi
komið fram mikilvægustu málunum sem við
höfum barist fyrir. Ég nefni atvinnumálin,
fæðingarorlofið og heilbrigðiskerfið. Við erum
tiltölulega sátt við það sem við höfum komið
áfram í þessari ríkisstjórn. Ég er ekki viss um
að það sé hollt að einn flokkur ráði öllu.“
Mikilvægt að ræða Evrópumálin
Hvað með aðild að Evrópusambandinu? Þú
hefur verið einna ötulastur við að halda á lofti
umræðum um þau mál undanfarin misseri en
Sjálfstæðisflokkurinn er andvígur aðild-
arviðræðum.
„Það liggur alveg ljóst fyrir að Framsókn-
arflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn eru
ekki sammála í mati sínu á stöðu Íslands
gagnvart Evrópusambandinu. Ég er þeirrar
skoðunar að þau mál komi til ákvörðunar og
uppgjörs fyrr en ég hef heyrt af forystu Sjálf-
stæðisflokksins. Ég tel mjög brýnt að ræða
þessi mál opið. Ég tel mjög mikilvægt að meta
kosti og galla Evrópusambandsaðildar eins og
ég hef talið nauðsynlegt að meta kosti og galla
EES-samstarfsins.
Það þarf ekki mikið að gerast til þess að
það samstarf verði í algeru uppnámi. Ég er
sannfærður um að Noregur gengur inn í Evr-
ópusambandið. Þá verður staða Íslands allt
önnur en hún er í dag. Við þurfum að búa okk-
ur undir þau tímamót. Ég tel hins vegar að
aðrir flokkar færist nær okkur í þessu máli
þegar næsta kjörtímabil gengur í garð og ég
held að Sjálfstæðisflokkurinn taki það til end-
urmats á næstu árum.“
Verðir þú áfram í ríkisstjórn hvað munt þú
leggja til í sambandi við Evrópusambands-
aðild?
„Ég mun leggja til að halda áfram á þessari
leið og ég er tilbúinn að veita henni forystu
eins og ég hef gert á undanförnum árum. Ég
hef tekið það skýrt fram að ég útiloka ekki að-
ild að Evrópusambandinu en ég tel hins vegar
að það geti ekki orðið að veruleika nema með
ákveðnum skilyrðum. Það sem þar er við-
kvæmast eru yfirráðin yfir okkar auðlindum
og málefni landbúnaðarins. Þessi mál þarf að
fara yfir með skipulegum hætti. Við höfum átt
mjög gott samstarf við landbúnaðinn á und-
anförnum mánuðum um þessi mál. En ég er
þeirrar skoðunar að sjávarútvegurinn þurfi
að taka málið til miklu meiri umfjöllunar en
hann hefur gert og meta stöðu sína.
Sveitarfélögin hafa hafið mjög gott starf í
að meta sína stöðu og með hvaða hætti þau
geta haft meiri áhrif inni í Evrópusamstarfinu
og með hvaða hætti þau geti komist inn í það
fjármagn sem er til sameiginlegrar ráðstöf-
unar í Evrópu. Ég tel að samstarfið við sveit-
arfélögin hafi verið með miklum ágætum.
Sama má segja um Alþýðusamband Íslands.
Það þurfa öll samtök atvinnuvega og laun-
þega að fara skipulega yfir stöðuna og utan-
ríkisráðuneytið hefur lýst sig reiðubúið til
slíks samstarfs. Ég tel afar brýnt að þessi
vinna haldi áfram.“
Tölum aðeins um landbúnaðinn. Nú eru ný-
ir búvörusamningar í burðarliðnum og ef
Doha-viðræðurnar ná fram að ganga er útlit
fyrir að miklar breytingar verði á leyfilegum
innanlandsstuðningi við landbúnað og leyfi-
legri tollvernd. Hvernig hyggst flokkurinn
takast á við þessar breytingar?
„Það er rétt að við horfumst í augu við
meira frjálsræði í innflutningi landbúnaðar-
afurða og í ljósi þess þarf að endurmeta
stuðninginn við landbúnaðinn. Við höfum haf-
ið viðræður við forystumenn í landbúnaði um
það. Við sjáum ýmsa möguleika í því að
breyta greiðslufyrirkomulaginu þannig að
það standist þær tillögur sem Evrópusam-
bandið hefur lagt fram.
Miðað við að tillögur Evrópusambandsins í
þessum viðræðum verði ofan á, sem ekki er
ólíklegt að geti orðið því þær ganga mun
skemur en tillögur Bandaríkjanna og annarra
og það er okkar mat að það verði að minnsta
kosti gengið jafnlangt og Evrópusambandið
leggur til, þá má segja að íslenskur landbún-
aður verði að laga sig að miklu leyti að þeirri
landbúnaðarstefnu sem rekin verður í Evr-
ópusambandinu þegar þar að kemur. Í þessu
ljósi þarf íslenskur landbúnaður að end-
urmeta sína stöðu.
Við leggjum fyrst og fremst áherslu á
áframhaldandi trygga búsetu í sveitum lands-
ins. Þess vegna eru ýmsar nýjungar á því
sviði þýðingarmiklar, eins og ferðaþjónusta
og skógrækt, því það er hætt við því að þessar
nýju tillögur kunni að hafa nokkur áhrif á
bæði sauðfjárræktina og mjólkurframleiðsl-
una.“
Það er útlit fyrir að allverulega verði dregið
úr styrkjum?
„Það er ekki víst að það dragi svo mikið úr
styrkjum. Það þarf að minnsta kosti að breyta
styrkjum í svokallaðar grænar greiðslur eða
það sem má kalla búsetustyrki. Evrópusam-
bandið gerir ráð fyrir að styrkirnir verði
áfram við lýði en styrkirnir eru að breytast. Í
dag er greitt meira vegna umhverfissjónar-
miða og framleiðsluhátta sem taka mið af vist-
vænum afurðum. Það fellur á margan hátt vel
að þeim hugmyndum sem Íslendingar hafa
um sína landbúnaðarframleiðslu.“
Þannig að þú sérð framtíð landbúnaðarins
hér á landi fyrir þér þannig að honum muni
svipa meira til þess sem er í Evrópusam-
bandslöndunum?
„Já ég tel að enginn vafi sé á því að það
muni gerast. Landbúnaðurinn þarf að búa sig
undir þetta, hvað svo sem líður hugsanlegri
aðild að Evrópusambandinu.“
Fljótvirk fyrningarleið
setur sjávarútveginn á hliðina
Snúum okkur að sjávarútvegsmálum.
Hverju telurðu að sú málamiðlun sem náðst
hefur um veiðigjald skili?
„Ég var að vonast til að hún skilaði meiri
sátt um sjávarútvegsmálin en svo virðist ekki
ætla að vera. Ég var fyrstur til að taka undir
það þegar stjórnarandstaðan lagði til fyrir
nokkrum árum að setja upp nefnd um þessi
mál. Það var síðan samþykkt af ríkisstjórn-
arflokkunum. Nefndin var skipuð og komst að
þeirri niðurstöðu að það væri rétt að taka hóf-
legt gjald af sjávarútveginum, annaðhvort í
formi gjaldtöku eða fyrningar.
Nú hafa stjórnarandstöðuflokkarnir, sem
að vísu hafa skipt um nafn síðan þessi nefnd
var skipuð, komið með allt aðrar hugmyndir.
Þeir setja fram fljótvirka fyrningarleið sem
ég tel að setji sjávarútveginn á hliðina. Þetta
kemur mér mjög á óvart en Vinstri grænir
ganga að vísu skemmra en Samfylking í þess-
um efnum. Ef þessar hugmyndir ná fram að
ganga er stöðugleikanum í sjávarútvegi ógnað
og þar með stöðugleikanum í landinu. Mér
finnst hugmyndir Frjálslynda flokksins þó
enn verstar.
Með þessu er ég ekki að segja að þetta kerfi
sé allt saman gallalaust. Á því eru margir
gallar, en ég hef ekki komið auga á neina betri
grundvallarleið en þá sem nú er við lýði en tel
sjálfsagt að sjávarútvegurinn greiði fyrir af-
not af auðlindinni. Sú greiðsla verður að taka
mið af getu hans og afkomu. Ef það er ekki
tekið mið af því mun það hafa mikil áhrif á
gengi íslensku krónunnar sem aftur mun leiða
til verðbólgu og óstöðugleika. Sjávarútvegur-
inn er svo mikill grundvallaratvinnuvegur í
landinu. Rétt er að benda á að engin samstaða
er um neitt fyrirkomulag sem gæti komið í
stað kvótakerfisins og ganga raunar tillögur
stjórnarandstöðunnar hver í sína áttina. Kerf-
ið þarf þó að vera í stöðugri endurskoðun.“
Þú ert fylgjandi því að auka veiðiskyldu úr
50% í 75% og takmarka þannig framsal afla-
heimilda. Hefurðu áhyggjur af því að með
þessari breytingu yrði ungu fólki sem vill
koma inn í greinina gert enn erfiðara fyrir?
„Allar aðgerðir í þessu kerfi hafa bæði kosti
og galla. Ég er þeirrar skoðunar að framsalið
hafi verið of mikið. Það séu of mörg skip með
litlar aflaheimildir sem hafi leitt til brott-
kasts. Slík umgengni um auðlindina er ekki
afsakanleg. Það er rétt að það dregur úr
framsalinu og þar með aðkomu ýmissa aðila í
greininni. Þetta hefur verið mikið áherslumál
sjómanna í gegnum tíðina og ég vil standa
með samtökum sjómanna í þessu sambandi.“
En er það ekki alvarlegt mál í þínum huga
hversu nýliðun er erfið í greininni?
„Það er alveg sama hvaða leið er farin þeg-
ar verið er að takmarka aðgang að ákveðinni
auðlind þannig að nýliðun verður alltaf vanda-
mál. Það var líka vandamál í sóknarkerfinu.
En þeir sem eru í atvinnugreininni verða að
búa við einhvern stöðugleika, einhverja festu
til framtíðar. Annars fá þeir ekki lánafyrir-
greiðslu, geta ekki skipulagt sínar veiðar og
sitt markaðsstarf. Ef sjávarútvegurinn á að
halda áfram að vera kjölfesta í íslensku at-
vinnulífi þarf hann að geta skipulagt sig til
lengri tíma.
Á hinn bóginn gengur mjög stór hluti þess-
ara fyrirtækja kaupum og sölum. Þar eru nýir
fjárfestar að koma inn. Nýliðun getur ekki átt
sér stað með því að kollvarpa afkomu þeirra
sem eru fyrir í greininni. Nýliðun hlýtur að
þurfa að vera á eðlilegum forsendum. Á þessu
er engin einföld lausn. Það er vel hægt að
hugsa sér að auknar veiðiheimildir verði not-
aðar til að úthluta til nýrra aðila en þegar því
er lokið eru menn á sama stað. Nýliðun verð-
ur ekki tryggð með því að taka af einum og af-
henda öðrum. Það endar með ósköpum.
Það eru tólf ár síðan ég fór út úr sjávar-
útvegsráðuneytinu hvar ég var í átta ár og
það var mín ósk að það gæti myndast sátt um
þessi mál. Þetta voru erfiðustu árin á mínum
pólitíska ferli. Ég kom að málum þegar sjáv-
arútvegurinn var nánast gjaldþrota. Það var
mikið millifærslukerfi í gangi, arðsemi var lítil
og umgengni við auðlindina slæm. Það þurfti
gífurlegt átak til að snúa þessu við og ég er
stoltur af þessum árum. Ég tel að það starf
sem átti sér þar stað hafi skapað grundvöll að
þeim stöðugleika sem ríkir núna.“
Virkjanamálin tekið sinn toll
Niðurstöður skoðanakannana undanfarið
hafa ekki verið Framsóknarflokknum mjög í
hag þrátt fyrir að Kárahnjúkavirkjun og álver
á Reyðarfirði, sem var verulega stór hluti af
ykkar baráttumálum, sé að verða að veru-
leika. Miðað við þá áherslu sem þið hafið lagt
á þau mál finnst þér þið fá það til baka í fylgi?
„Ekki í þessum könnunum. Við höfum lagt
mikið á okkur í atvinnu- og byggðamálum og
kannski meira en flokkurinn þoldi. Við vildum
hins vegar ekki gefast upp og héldum barátt-
unni áfram. Það hefur vissulega tekið sinn toll
en við erum þess fullviss að það eigi eftir að
meta Framsóknarflokkinn fyrir þessi mál í
framtíðinni, vonandi í þessum kosningum.
Sannleikurinn er sá að við höfum miklu
betri tilfinningu fyrir stöðu okkar en fram
kemur í skoðanakönnunum. Þetta er níunda
kosningabaráttan sem ég tek þátt í og hef
aldrei fundið jafngóðan hug til flokksins og til
mín. Ég hef fundið það síðustu dagana að
margir eru hissa á stöðu Framsóknarflokks-
ins í skoðanakönnunum. Ég verð hvarvetna
var við mikinn áhuga fyrir því að flokkurinn
verði áfram í ríkisstjórn en það er alveg ljóst
að til þess þurfum við traust kjósenda. “
Þú hefur sagt þetta áður. Hvar dregurðu
mörkin fyrir það hvort þið fáið nægilegt fylgi
til að vera í ríkisstjórn?
„Það er erfitt að nefna tölur. Ég hef setið í
ríkisstjórn sem formaður Framsóknarflokks-
ins í átta ár. Fyrstu fjögur árin var flokkurinn
með fimmtán þingmenn. Við töpuðum fylgi í
síðustu kosningum og fengum tólf þingmenn.
„Setjum stöðug-
leikann á oddinn“
Framsóknarflokkurinn setur stöðugleikann á oddinn í þessari
kosningabaráttu og Halldór Ásgrímsson, formaður flokksins,
segir mikilvægt að halda áfram á þeirri braut sem þegar hefur
verið mörkuð af ríkisstjórninni á síðustu átta árum. Hann segir
í samtali við Rögnu Söru Jónsdóttur að flokkurinn sé tilbúinn
til samstarfs við alla flokka en hann sé ekki reiðubúinn að taka
þátt í ævintýralegum og byltingarkenndum hugmyndum um
undirstöðumál í íslensku samfélagi.
Alþingiskosningar 10. maí 2003