Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ „STARFIÐ leggst mjög vel í mig og móttök- urnar í bankanum hafa verið afar hlýjar. Ann- ars er ég svona rétt að byrja að skoða hvernig hlutirnir eru gerðir hérna. Eins og flestir þekkja tekur alltaf einhvern tíma að koma sér inn í nýtt starf,“ sagði Sigurjón Þorvaldur Árnason, nýráðinn bankastjóri Landsbank- ans, í samtali við Morgunblaðið í gær. Athygli vakti þegar bankaráð Landsbanka Íslands gaf út tilkynningu um að Sigurjón hefði verið ráðinn bankastjóri Landsbankans við hlið Halldórs J. Kristjánssonar í síðustu viku. Sigurjón telst til yngri bankastjóra þó að hann sé reyndar elstur í hópi þriggja viðmæl- enda Morgunblaðsins í hópi bankastjóra að þessu sinni. Hann er sonur Árna Bergþórs Sveinssonar, framkvæmdastjóra í Reykjavík, og Snjólaugar Önnu Sigurðardóttur kennara og er fæddur 24. júlí árið 1966. Sambýliskona Sigurjóns er Kristrún Þorsteinsdóttir og eiga þau von á sínu fyrsta barni síðar á árinu. Fyr- ir á Sigurjón einn son, Garðar, fæddan árið 1992. Stærðfræðihugsun gagnleg Sigurjón gekk í Menntaskólann í Reykjavík og varð semidúx á stúdentsprófi úr eðl- isfræðideild árið 1986. Hann varð dúx í véla- verkfræði á iðnaðarverkfræðilínu frá Háskóla Íslands árið 1992. Að því námi loknu nam hann fjármálafræði til MBA-gráðu við University of Minnesota og eina önn í Japan og hagverkfræði við Tækniháskólann í Berlín í Þýskalandi. Sigurjón var spurður hvort hann teldi að grunnmenntun á sviði raungreina nýttist al- mennt vel í fjármálaheiminum. „Já, eins og reyndar á fleiri sviðum. Stærðfræðihugsun kemur víða að góðum notum. Hinu er ekki að leyna að nauðsynlegt er að bæta einhvers konar fjármálalegri menntun ofan á slíka menntun til að komast almennilega inn í við- skiptaheiminn.“ Ákveðin persónueinkenni eru kannski nauðsynleg í bland? „Jú, jú, mikið rétt og viðskipti eru auðvitað blanda af mann- legum samskiptum og hvers konar samn- ingagerð. Traust er afar mikilvægt og svo auðvitað að vita hvert maður stefnir.“ Gífurlegar breytingar Sigurjón hóf störf í Búnaðarbankanum árið 1995 og gegndi starfi framkvæmdastjóra hjá bankanum frá 1998. Hann var framkvæmda- stjóri rekstrarsviðs þegar hann var ráðinn bankastjóri Landsbankans. Hann segir að gíf- urlegar breytingar hafi orðið á íslenskum verð- bréfamarkaði frá því hann hóf störf í Bún- aðarbankanum fyrir 8 árum. „Ef mig misminnir ekki var ég annar í röðinni til að byrja að fylgj- ast með Verðbréfaþinginu hjá Búnaðarbank- anum á sínum tíma. Ég býst við að svipaður fjöldi hafi verið að fylgjast með verð- bréfamarkaðnum í hinum bönkunum og svona einn til tveir að eiga þar einhver viðskipti. Núna minnir mig að miðlararnir séu orðnir 92 í Búnaðarbankanum. Heilu fyrirtækin hafa verið stofn- uð um verðbréfaviðskipti. Samhliða þessum breyt- ingum á fjármálamark- aðnum hafa orðið gífurlegar breytingar í atvinnulífinu. Verðbréfamarkaðurinn býð- ur upp á breytingar á eign- araðild fyrirtækja. Að fyr- irtæki séu keypt af öðrum fyrirtækjum eða deild í einu fyrirtæki seld yfir í annað o.s.frv. Þannig að segja má að þessi mikla breyting sem orðið hefur á ís- lensku atvinnulífi hefði aldrei getað orðið nema vegna þess að fjármálamarkaðurinn var farinn að þróast með þeim hætti sem við þekkjum.“ Sókn innan- og utanlands Björgólfur Guðmundsson, formaður banka- ráðs Landsbankans, hefur látið hafa eftir sér að Landsbankinn verði ekki lengi minnsti banki á Íslandi. Hvernig heldur þú að ykkur Halldóri eigi eftir að ganga að standa undir þessum væntingum? „Við ætlum að standa undir þess- um væntingum. Að Landsbankinn vaxi uppúr því að verða minnsti bankinn hvað efnahag varðar á tiltölulega skömmum tíma. Nú hefur harðsnúið lið bæst við allan þann góða mann- skap sem fyrir var í Landsbankanum og í und- irbúningi er sókn bæði á innanlands- og utan- landsmarkaði. Halldór leiðir væntanlega útrásina og gerir ráð fyrir að í því starfi verði byggt á grunni Heritable-bankans. Ég legg meiri áherslu á innanlandsmarkaði,“ svarar Sigurjón og er spurður að því hvaða áherslur hann muni leggja í þeirri sókn. „Ég mun leggja mikla áherslu á að ferlar innan fyrirtækisins verði með þeim hætti að í senn sé hægt að taka ákvarðanir hratt, af fag- mennsku og fullkominni yfirvegun. Hitt verður tím- inn að leiða í ljós.“ Viðhorf ekki tengd aldursskeiðum Sigurjón er í framhaldi af umræðum um samein- ingu bankastofnana inntur eftir því hvort að til greina komi að sameina Lands- banka og Íslandsbanka. „Ég á ekki von á því að svo verði í framtíðinni. Hins vegar er því ekki að neita að bankarnir ættu að ein- hverju leyti að geta unnið saman á ákveðnum svið- um. Miðað við hvað hefur verið að gerast á vettvangi Samkeppnisstofn- unar á maður fyrirfram von á að hugmyndir um sameiningu yrðu erfiðar viðfangs.“ Sigurjón var spurður að því hvort hann ætti von á því að kynslóðaskipti í sætum banka- stjóra þriggja stærstu bankanna ættu eftir að skila breyttum viðhorfum inn í bankana. „Ég á ekkert sérstaklega von á því að okkur þremur fylgi einhver viðhorfsbreyting. Mestu máli skiptir að menn séu tilbúnir til að takast á við ný verkefni og hugsa jákvætt. Menn á miðjum aldri geta verið alveg jafnnútímalegir í hugsun og yngri menn. Hinu má heldur ekki gleyma að menn safna auðvitað að sér reynslu í gegnum tíðina. Ég held að það sé oft þannig að það sem menn telja kannski íhaldssemi er afleiðing af reynslu – gagnlegri reynslu. Eftirsóknarverð- ast hlýtur alltaf að vera að hafa ákveðna breidd í mannavali.“ Sigurjón sagðist ekki telja að ráðning hans og fleiri fyrrverandi starfsmanna Bún- aðarbankans markaði upphafið að harðari samkeppni um fólk á fjármálamarkaðnum. „Það eru náttúrlega ákveðnir umbrota- og óróatímar á þessu sviði núna. Þá er ekkert óeðlilegt að fólk hugsi sér til hreyfings. Hins vegar á ég ekki von á því að samkeppnin um fólk verði eitthvað harðari en áður. Hörð sam- keppni um starfsmenn er heldur ekki ný af nálinni. Það hefur bara ekki gerst áður að þær aðstæður hafi skapast að menn verði svona varir við að fólk sé að flytjast á milli fyr- irtækja þótt dæmi séu um slíkt eins og þegar ráðið var til FBA úr öðrum bönkum á sínum tíma.“ Oft með hugann við vinnuna Nú hefur þeirri staðhæfingu verið fleygt fram að þú hafir búið í Búnaðarbankanum. Áttu von á að vinnudagurinn verði mjög lang- ur í Landsbankanum? „Það er nú dálítið orðum aukið að ég hafi búið í bankanum. Hins vegar verð ég að við- urkenna að ég hef alltaf verið með hugann mikið við vinnuna. Menn hafa kannski frekar verið að meina það heldur en að ég væri þarna allan daginn.“ Þú átt þér s.s. líka annað líf? „Já, já, aðeins meira en komið hefur fram (hlátur).“ Nú hefur einmitt komið fram að þið hjónin eigið von á barni. Hefur þú hugsað þér að gefa þér tíma frá annasömu starfi til að taka þér feðraorlof ? „Ef ég á að segja eins og er verð ég að við- urkenna að allt þetta ferli hefur gengið svo hratt fyrir sig að við hjónin höfum ekki haft al- mennilegt ráðrúm til að tala um hvernig þessu verður háttað. Við verðum að finna út úr því með tilliti til aðstæðna heima fyrir og í bank- anum.“ Ákveðin kynslóðaskipti hafa átt sér stað að undanförnu í íslensku viðskiptabönkunum. Með ráðningu Sigurjóns Þ. Árnasonar í starf bankastjóra Landsbanka Íslands við hlið Halldórs J. Kristjánssonar er meirihluti bankastjóra viðskiptabankanna undir fertugu Morgunblaðið/Sverrir Sigurjón fer fyrir fyrirtækjasviði, verðbréfasviði og stoðsviðum Landsbanka Íslands. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Bjarni Ármannsson er nú einn forstjóri Íslandsbanka en áður voru forstjórar Íslandsbanka tveir. Að lokinni einkavæðingu ríkisbankanna hefur landslagið á íslenskum bankamarkaði breyst talsvert. Morgunblaðið ræddi við þrjá unga stjórnendur bankanna; Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóra Landsbankans, Bjarna Ármannsson, forstjóra Íslandsbanka, og Hreiðar Má Sigurðsson, forstjóra Kaupþings og væntanlegan forstjóra sameinaðs banka Kaupþings Búnaðarbanka hf. Harðsnúið lið ago@mbl.is „Það eru náttúrulega ákveðnir umbrota- og óróatímar á þessu sviði núna. Þá er ekkert óeðlilegt að fólk hugsi sér til hreyfings. Hins vegar á ég ekki von á því að samkeppnin um fólk verði eitthvað harðari en áður.“ Morgunblaðið/Sverrir Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings og verðandi forstjóri sameinaðs banka: Kaupþings Búnaðarbanka hf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.