Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 37
Sími 588 55 30
Pétur Pétursson, löggiltur fasteignasali,
Þekking - öryggi - þjónusta
Sumarbústaður í Grímsnesi
OPIÐ HÚS Í DAG, sunnudag
Úr landi Hæðarenda, Grímsnesi,
sýnum við í dag, sunnudag, frá
kl. 13-16 glæsilegan sumarbústað
Um er að ræða 2ja hæða 52 fm
sumarbústað með 12 fm aukahúsi.
100 fm verönd/sólpallur. Glæsilegar
innréttingar. Plankaparket og flísar á
gólfum. Gaseldavél og vönduð eld-
hústæki. 2 herbergi undir súð. Tæplega hektara eignarland sem er
afgirt. Vegur og vandað hlið. Landið liggur að og afmarkast af Búr-
fellslæk sem er fiskgengur. Ágústa og Sigurður taka á móti ykkur.
Sími 695 4547.
OPIÐ HÚS - Hraunbær 102b
Páll Höskuldsson Sími 864 0500
pall@remax.is RE/MAX
Heimilisfang: Hraunbær 102b
Stærð eignar: 97,4 fm
Byggingarár: 1973
Brunabótamat: 104 millj.
Verð: 11 millj.
Mjög rúmgóð 97,4 fm 4ra herbergja íbúð á
3. hæð við Hraunbæ. Íbúðin er með flísa-
lagðri forstofu og góðum fataskápum. Eld-
húsið er með fallegri innréttingu og parket er
á gólfum. Stofa er björt með miklu útsýni og
útgengi út á suðursvalir. Frábær staðsetning.
Páll Höskuldsson fasteignamiðlari RE/MAX
tekur á móti gestum milli kl. 14 og 16.
Viggó Jörgensson
lögg. fasteignasali
EINBÝLI
Trönuhólar - Frábær stað-
setning Glæsilegt 320 fm einbýli á
tveimur hæðum með stórum bílskúr.
Rúmgóðar stofur og góð herb. Falleg lóð
m.a. tveir góðir sólpallar til suðurs. Húsið
er staðsett neðst í götu alveg við óbyggt
svæði. Glæsilegt útsýni yfir Elliðaárdalinn
og víðar. Góðar innréttingar og saunaklefi
með hvíldarherbergi. Sérstaklega útbúið
sjónvarpsherb. Eigandi er til í að skoða
skipti á minni eign. V. 28,8 m. 2546
Sjávargata - Álftanesi Vorum
að fá í einkasölu sérstaklega glæsilegt
215 fm einbýli á einni hæð. Tvöfaldur
innbyggður bílskúr. Húsið skiptist m.a. í
tvær samliggjandi stofur og þrjú herb.
Mikil lofthæð. Mjög stór afgirt timburver-
önd með heitum potti. V. 23,9 m. 3270
Hlíðarvegur - Kóp. Vorum að fá í
einkasölu fallegt og vel skipulagt einbýl-
ishús á tveimur hæðum. Húsið skiptist
m.a. í tvær stofur og fjögur herb. Stór
gróin lóð. V. 19,5 m. 3281
HÆÐIR
Valhúsabraut - Útsýni Vorum
að fá í einkasölu sérstaklega fallega 4ra
herbergja (efstu) hæð í 3-býli. Hæðinni
tilheyrir 25 fm bílskúr. Íbúðin hefur verið
mikið standsett. Glæsilegt útsýni. V.
15,6 m. 17302
Leifsgata - 8 herbergi Vorum
að fá í einkasölu mjög góða 167 fm íbúð
í 3-býli. Íbúðinni tilheyrir 32 fm bílskúr.
Íbúðin skiptist m.a. í tvær stofur og sex
herbergi. Þvottahús og geymsla er inn í
íbúðinni. Þrennar svalir. V. 20,5 m. 3141
4RA-6 HERB.
Flúðasel Björt, falleg og rúmgóð 108
fm 4ra herbergja íbúð í nýlega álklæddu
fjölbýlishúsi með yfirbyggðum svölum
auk stæðis í bílageymslu. Eignin skiptist
m.a. í hol, þrjú herb., baðherb., eldhús,
stofu og yfirbyggðar svalir. Fallegt útsýni
m.a. yfir Vatnsendahæð og Rjúpnahæð.
Ástand og útlit eignarinnar er gott. 3286
Espigerði - Lyfthús m. bíl-
skýli Falleg og rúmgóð u.þ.b. 140 fm 5
herbergja íbúð á 2. hæð í eftirsóttu lyftu-
húsi ásamt stæði í bílageymslu. Íbúðin
er með fjórum herbergjum, sérþvotta-
húsi og tvennum svölum. Góð sameign.
Eftirsóttur staður. V. 19,5 m. 3190
Granaskjól Falleg 3ja-4ra herb. efri
sérhæð á eftirsóttum stað í vesturbæn-
um. Eignin skiptist í hol, tvö herb., stofu,
sjónvarpsstofu (mögul. herb.), eldhús og
baðherb. Í kjallara er sérgeymsla og
sameiginlegt þvottahús. Eignin hefur
verið töluvert mikið endurn. s.s yfirfarið
rafmagn, þak nýmálað og nýtt dren.
Húsið lítur mjög vel út. Nýtt eldhús,
gluggar og gler hefur verið endurnýjað.
Merbau-parket á flestum gólfum. Suður-
svalir. 3242
Sólvallagata - 144 fm 6 her-
bergja falleg og töluvert endurnýjuð hæð
sem skiptist í gang, 4 herbergi, tvær
samliggjandi stofur, tvö baðherbergi og
eldhús. V. 17,9 m. 3269
Bólstaðarhlíð Góð 92 fm 4ra herb.
íbúð á jarðhæð/kjallara með sérinng. í
traustu steinhúsi á þessum eftirsótta
stað. Eignin skiptist m.a. í forstofu, hol,
eldhús, baðherbergi, stofu og þrjú her-
bergi. Útg. út á nýja glæsilega timurpalls-
verönd úr stofu. Tvær sérgeymslur og
sameiginlegt þvottahús. V. 11,9 m. 1170
3JA HERB.
Naustabryggja - Stæði í bíla-
geymslu Mjög falleg 3ja herbergja
108 fm íbúð á jarðhæð með sérgarði í
nýrri blokk við Naustabryggju auk stæð-
is í bílageymslu. Gott skipulag. Vandað-
ar innréttingar. Laus strax. Hagstæð
lánakjör. V. 14,8 m. 2263
Lynghagi - Endurnýjuð 3ja
herb. falleg og mikið endurnýjuð íbúð á
jh. á mjög góðum stað. Íbúðin skiptist í
forstofu, gang, stofu, 2 herbergi, eldhús
og bað. V. 11,0 m. 3164
Mávahlíð - Falleg 3ja-4ra mjög
falleg og mikið endurnýjuð risíbúð sem
skiptist í hol, stofu og þrjú herbergi. V.
10,9 m. 3280
2JA HERB.
Gullsmári - Eldri borgarar
Vorum að fá í einkasölu fallega 62 fm í-
búð á 6. hæð í nýlegu lyftuhúsi. Mikið
útsýni. Svalir til vesturs. Tvær lyftur.
Þjónusta er í húsinu. Íbúðin er laus strax.
V. 12,9 m. 3282
SUMARBÚSTAÐUR
Sumarbústaður Skorradal
Einstaklega fallegur 52 fm sumarbústað-
urá besta stað í Skorradalnum. Bústað-
urinn stendur nálægt vatninu, 100 fm
timburverönd í kringum bústaðinn. Þrjú
svefnherbergi. Stofa, baðherbergi, eld-
hús, geymsla, milliloft. Furu gólfborð.
Glæsilegt útsýni út á vatnið í gegnum
stóran stofuglugga. Loftið er panelklætt.
Baðherbergið er með sturtu. Upphitun er
með rafmagni. Kalt vatn. Hitadúnkur.
3209
FREYJUGATA - TVÆR ÍBÚÐIR
Einstök 4ra herbergja 130 fm íbúð á
efstu hæð með útsýnisturni/herbergi.
Eignin skiptist m.a. í eldhús, baðher-
bergi, tvö herbergi og stofu. Baðher-
bergið er flísalagt í hólf og gólf og
með sturtu og hornbaðkari. Tvennar
svalir. Arinn er í turnherbergi. Stór-
glæsilegt útsýni. Verð 17,5 m. Einnig
vel skipulögð 2ja herbergja útsýnis-
íbúð með tvennum svölum. Lögn f.
þvottavél í íbúð. Eftirsótt eign. Verð 11,5 m. 3259
OPIÐ HÚS - JAKASEL 18
Glæsilegt þrílyft um 300 fm einbýlishús m. 37 fm innbyggðum bílskúr og
stóru upphituðu bílaplani. Stórar stofur, 4-5 herb., sólstofa, stórt eldhús
o.fl. Fallegt útsýni. HÚSIÐ VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG, SUNNUDAG,
FRÁ KL. 15-18. V. 26,0 m. 9316
OPIÐ HÚS - MOSARIMI 21
Glæsilegt einlyft 151 fm endaraðhús með innbyggðum 28 fm bílskúr.
Húsið skiptist í forstofu, hol, stofur, eldhús, þrjú herbergi, baðherbergi
og þvottahús. Garðurinn er mjög fallegur og með fjölbreyttum gróðri.
HÚSIÐ VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 14-17. V.
22,5 m. 2218
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði Nýkomið í einkasölu á þessum frábæra útsýnisstað við sjóinn,
glæsilegt mikið endurnýjað einbýli á einni hæð ásamt bílskúr,
samtals um 175 fm. Eignin hefur öll verið endurnýjuð á smekkleg-
an hátt, húsið klætt að utan, glæsilegur sólpallur og tilheyrandi. 4
góð herbergi, parket, flísar. Húsinu fylgir 2 hesta hús sem þarfn-
ast lagfæringa. Eign sem vert er að skoða.
Magnús Emilsson löggiltur fasteignasala
Smáratún - Vatnsleysuströnd
VINSTRIHREYFINGIN –
grænt framboð gengur til komandi
alþingiskosninga undir kjörorðinu
„Næst á dagskrá: Réttlæti“. Eftir
að Sjálfstæðisflokkurinn hefur far-
ið fyrir landsstjórninni undanfarin
tólf ár, ýmist í samstarfi við Al-
þýðuflokkinn eða Framsóknar-
flokkinn, er orðið aðkallandi að
önnur sjónarmið og aðrar áherslur
fái að ráða stjórnarstefnunni.
Á tólf ára valdatíma Sjálfstæð-
isflokksins hefur misskipting í
samfélaginu aukist. Aðgerðir rík-
isstjórnarinnar í skattamálum hafa
jafnan tekið mið af hagsmunum
hinna efnameiri, en láglaunafólk,
aldraðir og öryrkjar hafa setið eft-
ir. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
gætt að því að fjármagnseigendur
héldu sínum hlut og ríflega það. Á
sama tíma berst ungt barnafólk í
bökkum, en jaðaráhrif skattkerf-
isins koma verst niður á þeim hópi.
Eignatilfærslan í samfélaginu sem
kvótakerfið hefur haft í för með
sér, að ekki sé talað um byggð-
aröskunina sem á að verulegu leyti
rætur í því, er með öllu óviðunandi
og almenningur í landinu hefur
fengið sig fullsaddan af.
Samfelldur niðurskurður í heil-
brigðiskerfinu á valdatíma Sjálf-
stæðisflokksins með auknum not-
endagjöldum hefur aukið
misskiptinguna í þjóðfélaginu og
kemur sér verst fyrir þá sem síst
skyldi. Sinnuleysið í málefnum
framhaldsskólanna er orðið alvar-
legt vandamál sem krefst skjótra
úrlausna, enda er brottfall nem-
enda úr framhaldsskólum mikið
hér á landi í samanburði við önnur
Evrópulönd. Þessi þróun er í hróp-
legri mótsögn við stóraukið átak í
málum grunnskólanna eftir að
sveitarfélögin tóku alfarið við
rekstri þeirra árið 1996. Aukin
framlög til menntamála hérlendis
á undanförnum árum má að mestu
rekja til grunnskólans og sveitar-
félaganna en ekki til fjármálaráð-
herra eða menntamálaráðherra
Sjálfstæðisflokksins.
Sérstök andúð einstakra ráð-
herra Sjálfstæðisflokksins, einkum
forsætisráðherra, dómsmálaráð-
herra og samgönguráðherra, á
meirihlutanum í borgarstjórn
Reykjavíkur, hefur komið niður á
mörgum framfaramálum á höfuð-
borgarsvæðinu. Viðhorf þeirra til
rúmlega helmings landsmanna
sem býr á því svæði og stjórn
þeirra byggist á geðþótta fremur
en málefnalegum sjónarmiðum.
Þjónkun stjórnarinnar við herskáa
stjórnarherra í Bandaríkjunum og
Bretlandi sem fara með stríði á
hendur öðrum þjóðum í berhögg
við samþykktir alþjóðasamfélags-
ins, er í andstöðu við vilja þjóð-
arinnar og þau gildi sem sæmir
friðsamri þjóð.
Raunhæfur möguleiki
Allt þetta sýnir í hnotskurn
hversu brýnt er orðið að skipta um
ríkisstjórn í landinu. Þótt nokkrar
sviptingar hafi verið í skoðana-
könnunum undanfarnar vikur sýna
þær þó flestar að það er raunhæf-
ur möguleiki að fella ríkisstjórn
Davíðs Oddssonar í komandi þing-
kosningum.
En það er ekki nóg að fella sitj-
andi ríkisstjórn. Við þarf að taka
ríkisstjórn sem er reiðubúin að
auka réttlætið í skattkerfinu og
taka á tekjuskiptingunni í sam-
félaginu, ekki síst með hagsmuni
ungra barnafjölskyldna í huga,
stórbæta þjónustuna í heilbrigðis-
og tryggingakerfinu og auka fram-
lög til menntamála. Ennfremur að
vinna af heilum hug í umhverfis-,
jafnréttis- og byggðamálum,
standa fyrir sjálfstæðri utanríkis-
stefnu og tryggja sameign þjóð-
arinnar á auðlindum hennar til
lands og sjávar. Þetta eru tví-
mælalaust meðal brýnustu verka
nýrrar ríkisstjórnar. Aðeins einn
flokkur hefur jafnvíðtækar breyt-
ingar á sinni stefnuskrá. Eigi að
vera tryggt að réttlætið verði næst
á dagskrá þarf Vinstrihreyfingin–
grænt framboð að fá góðan stuðn-
ing og traust kjósenda í komandi
alþingiskosningum og verða burð-
arás í næstu ríkisstjórn.
Ríkisstjórn
um réttlæti
Eftir Árna Þór
Sigurðsson
„Við þarf að
taka ríkis-
stjórn sem
er reiðubúin
að auka
réttlætið í skattkerfinu
og taka á tekjuskipting-
unni í samfélaginu, ekki
síst með hagsmuni
ungra barnafjölskyldna í
huga, stórbæta þjón-
ustuna í heilbrigðis- og
tryggingakerfinu og
auka framlög til
menntamála.“Höfundur er forseti borgarstjórnar
Reykjavíkur.