Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 52
DAGBÓK 52 SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Sel- foss kemur í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Grinna kemur í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Fé- lagsvist á morgun kl. 14. Félagsstarf eldri borg- ara í Mosfellsbæ, Kjal- arnesi og Kjós. Félags- starfið opið mánu- og fimmtudaga. Pútt- kennsla í íþróttahúsinu á sunnudögum kl. 11. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Dansleikur kl. 20, Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Skrifstofa félagsins er í Faxafeni 12 sími. 588 2111. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Hálfs- dags ferð á Akranes um Hvalfjörð 13. maí. Skráning og upplýs- ingar í Hraunseli sími 555 0142. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Á morgun kl. 9-16.30 vinnustofur opnar frá hádegi, spila- salur opinn, fjölbreytt dagskrá alla virka daga næstu vikur. Allar upp- lýsingar um starfsem- ina á staðnum og í síma 575 7720. Kristniboðsfélag karla. Fundur verður í kristniboðssalnum mánudagskvöldið 28. apríl kl. 20, Ragnar Gunnarsson kristniboði sér um fundarefni. Kvenfélag Hreyfils fundur verður þriðju- daginn 29. apríl kl. 20, snyrtivörukynning. Bandalag kvenna í Hafnarfirði aðalfund- urinn verður haldinn þriðjudaginn 29. apríl kl. 19.45 í Safn- aðarheimili Fríkirkj- unnar í Hafnarfirði. Allar bandalagskonur velkomnar. Minningarkort Hrafnkelssjóður (stofnað 1931) minning- arkort afgreidd í sím- um 551-4156 og 864- 0427. Félag MND-sjúklinga selur minningarkort á skrifstofu félagsins á Norðurbraut 41, Hafn- arfirði. Hægt er að hringja í síma 565-5727. Allur ágóði rennur til starfsemi félagsins. Landssamtökin Þroskahjálp. Minningarsjóður Jó- hanns Guðmundssonar læknis. Tekið á móti minningargjöfum í síma 588-9390. Minningarsjóður Krabbameinslækn- ingadeildar Landspít- alans. Tekið er við minningargjöfum á skrifst. hjúkrunarfor- stjóra í síma 560-1300 alla virka daga milli kl. 8 og 16. Utan dag- vinnutíma er tekið á móti minningargjöfum á deild 11-E í síma 560- 1225. Minningarkort Minn- ingarsjóðs Maríu Jóns- dóttur flugfreyju eru fáanleg á eftirfarandi stöðum: Á skrifstofu Flugfreyjufélags Ís- lands, s. 561-4307/fax 561-4306, hjá Halldóru Filippusdóttur, s. 557- 3333 og Sigurlaugu Halldórsdóttur, s. 552- 2526. Minningarkort Minn- ingarsjóðs hjónanna Sigríðar Jakobsdóttur og Jóns Jónssonar á Giljum í Mýrdal við Byggðasafnið í Skóg- um fást á eftirtöldum stöðum: Í Byggðasafn- inu hjá Þórði Tómas- syni, s. 487-8842, í Mýr- dal hjá Eyþóri Ólafssyni, Skeiðflöt, s. 487-129. Minningarkort, Félags eldri borgara Selfossi. eru afgreidd á skrif- stofunni Grænumörk 5, miðvikudaga kl. 13–15. Einnig hjá Guðmundi Geir í Grænumörk 5, sími 482-1134, og versl- unni Íris í Miðgarði. Slysavarnafélagið Landsbjörg, Stang- arhyl 1, 110 Reykjavík. S. 570 5900. Fax: 570 5901. Netfang: slysa- varnafelagid@lands- bjorg.is Minningarkort Rauða kross Íslands eru seld í sölubúðum Kvenna- deildar RRKÍ á sjúkra- húsum og á skrifstofu Reykjavíkurdeildar, Fákafeni 11, s. 568- 8188. Minningarkort Hvíta- bandsins fást í Kirkju- húsinu, Laugavegi 31, s. 562-1581 og hjá Kristínu Gísladóttur, s. 551-7193 og Elínu Snorradóttur, s. 561- 5622. Minningarkort Sjúkra- liðafélags Íslands eru send frá skrifstofunni, Grensásvegi 16, Reykjavík. Opið virka daga kl. 9–17. S. 553- 9494. Minningarkort Vina- félags Sjúkrahúss Reykjavíkur eru af- greidd í síma 525-1000 gegn heimsendingu gíróseðils. Minningakort Breið- firðingafélagsins, eru til sölu hjá Sveini Sig- urjónssyni s. 555-0383 eða 899-1161. Í dag er sunnudagur 27. apríl, 117. dagur ársins 2003. Orð dags- ins: Þú skalt ekki framar hafa sól- ina til að lýsa þér um daga, og tunglið skal ekki skína til að gefa þér birtu, heldur skal Drottinn vera þér eilíft ljós og Guð þinn vera þér geislandi röðull. (Jes. 60, 19.) Víkverji skrifar... ÍHUGA Víkverja eru vorboðarbreimandi kettir í garðinum hjá honum. Á þessum árstíma hrekkur Víkverji upp með andfælum nótt eft- ir nótt við nístandi mjálm úti í garði, hljóð sem virðist hreinlega vera af öðrum heimi. Víkverji var næstum búinn að hringja í Neyðarlínuna eina vornóttina fyrir skömmu þegar óhljóðin byrjuðu, enda líkjast þau helst því að verið sé að pynta smá- barn, hversu andstyggilegt sem það kann að hljóma. Víkverji er mikill kattavinur en hefur þó stöku sinnum skvett vatni út um gluggann á breima kettina til að hvetja þá til að stunda makaveiðar sínar annars staðar. En er ekki ráð að halda kött- um inni á nóttunni? Sérstaklega á þeim tíma þegar eðlunarþörfin er al- veg að fara með þessa vesalinga? Það getur vissulega reynst erfitt að halda ketti inni sem er vanur að fá að ganga frjáls ferða sinna allan sól- arhringinn en það hlýtur að vera á ábyrgð kattaeigenda að sjá til þess að þessir loðnu vinir okkar valdi ekki nágrönnum andvökunóttum. Það er heldur ekki gaman að vakna með ókunnan kött í rúminu hjá sér sem hefur læðst inn um gluggann! KÖTTUR Víkverja er óvenjuheimakær og fer ekki út fyrir hússins dyr. Sem kettlingur var hann oft lasinn og fór Víkverji því nokkrum sinnum með hann á Dýra- spítalann í Víðidal. Víkverji hefur átt mörg dýr frá því hann var barn sem hafa sum hver dáið hræðilegum dauðdaga, verið étin af öðrum dýr- um, fengið krabbamein, stífkrampa, garnaflækju eða verið send til Jap- ans í hundamat. Víkverja leið því ekki vel þegar kisi veiktist og hélt að dagar dýrsins væru taldir. En dýra- læknarnir á Dýraspítalanum voru fljótir að róa Víkverja sem þurfti sennilega þegar upp var staðið meira á hjálp þeirra að halda en kötturinn sem er í dag fílhraustur, þökk sé dýralæknum Dýraspítalans. x x x SONUR Víkverja missti náinn viná dögunum. Sá hét Sprettur Kaldi og var naggrís. Útför Spretts hefur þegar farið fram á æskuheim- ili Víkverja sem er í dreifbýli. Þar er að finna myndarlegan gælu- dýragrafreit, hvíldarstað loðinna fjölskylduvina. En það eru ekki allir sem hafa aðgang að slíkum grafreit og enn hefur ekki verið gerður gælu- dýragrafreitur á höfuðborgarsvæð- inu þrátt fyrir fjölda tilmæla jafnt dýralækna sem gæludýraeigenda. Það er gríðarleg sorg fyrir barn að missa gæludýrið sitt, það þekkir Víkverji af eigin raun. Víkverji ímyndar sér að ef börn væru í ríkis- og borgarstjórn væri löngu kominn grafreitur fyrir dýr. Víkverji vill nú hvetja yfirvöld til að láta verða af þessu hið fyrsta, með því væri til- finningum barna og annarra gælu- dýraeigenda sýnd mikil og verð- skulduð virðing. Kettir fara sínar eigin leiðir en næt- urrölt þeirra er þreytandi. Bréf til Siglfirðinga ÁGÆTU Siglfirðingar. Á síldarárunum áður fyrr voru sjóflugvélar, bæði Flugfélagsins og Loftleiða, tíðir gestir við höfnina á Siglufirði í síldarleitarflugi og líka farþegaflugi. Erindi mitt er að spyrj- ast fyrir um hvort ljós- myndir af flugvélunum og þessari flugstarfsemi séu einhvers staðar finnanleg- ar. Einnig má nefna að laust fyrir stríð var stofn- sett Svifflugfélag á Siglu- firði sem átti eina svifflugu smíðaða af þeim Indriða og Geir Baldurssyni. Engar ljósmyndir eru til af þessari merku starfsemi svo vitað sé. Þeir sem hugsanlega vita af ljósmyndum af flug- vélum fyrri tíma á Siglu- firði góðfúslega hafi sam- band við mig í síma 565-7777. Snorri Snorrason, fv. flugstjóri. Hin valdasjúka Ingibjörg Sólrún HEFUR Ingibjörg Sólrún, er skipar 5. sæti á lista Samfylkingar, virkilega ekkert annað fram að færa í kosningabaráttunni, en að hnýta í og dylgja um Davíð Oddsson? Hvílík málefna- leg fátækt og öfundsýki í þessari konu. Hún og hennar fylgdar- lið eru líkust vindhana er sveiflast stjórnlaust áfram, og hafa harla lítið fram að færa er gæti orðið landi og þjóð til góðs. Dettur Ingibjörgu Sól- rúnu í hug að konur kjósi hana, bara af því hún er kvenkyns, eins og gefið er í skyn í auglýsingu á skír- dag? Þannig hugsanagang- ur er niðurlægjandi fyrir konur, eitthvað meira hlýt- ur að þurfa til. Það er ekki nóg að geys- ast áfram með svila sinn í eftirdragi, og lítið annað í farteskinu en ræður og stór orð sem ekkert er á bak við. Kjósum ekki yfir okkur glundroða, skattahækkan- ir, stefnuleysi og vald- hroka. Ásta Hávarðardóttir. Tapað/fundið Leðurbudda týndist LÍTIL svört leðurbudda týndist í Ými, húsi Karla- kórs Reykjavíkur, sl. mið- vikudagskvöld 23. apríl. Skilvís finnandi vinsamlega hafið samband í síma 562- 4644. Fundarlaun. Dýrahald Penelopu vantar heimili GRÁBRÖNDÓTT læða, gullfalleg, þriggja ára, fæst gefins vegna flutninga. Hún er geld og hefur verð innikisa. Hún er snyrtileg og í góðu ástandi. Upplýsingar gefur Tinna í síma 690 0309. Tík fæst gefins 7 MÁNAÐA tík, blanda af border collie og retriever, sprautuð og kubbamerkt, svarbrún að lit fæst gefins vegna flutnings eiganda. Hún mundi sóma sér sem heimilishundur, smali eða veiðihundur. Upplýsingar í síma 699 6400. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/ÓmarHekla Gunnarsdóttir blæs sápukúlur. LÁRÉTT 1 umhleypingasamur, 8 segir ósatt, 9 gefa fæðu, 10 ýtni, 11 jarða, 13 ræktuð lönd, 15 hrærð, 18 gremjast, 21 títt, 22 lág, 23 duftið, 24 leika á LÓÐRÉTT 2 gretta, 3 rauðbrúna, 4 refsa, 5 örlagagyðja, 6 heilablóðfall, 7 skordýr, 12 löður, 14 knæpa, 15 kaffibrauð, 16 rögg- samur, 17 smábýlin, 18 vinna, 19 auðugur, 20 hugleikið. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 helga, 4 dýfil, 7 lýsir, 8 rýmki, 9 arð, 11 aumt, 13 magi, 14 rimpa, 15 edrú, 17 rúma, 20 slæ, 22 túpan, 23 galti, 24 ranga, 25 rútan. Lóðrétt: 1 helja, 2 losum, 3 aðra, 4 dýrð, 5 fimma, 6 leifi, 10 rimil, 12 trú, 13 mar, 15 eitur, 16 ræpan, 18 útlát, 19 alinn, 20 snúa, 21 Ægir. Krossgáta 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16     Katrín Fjeldsted, þing-maður Sjálfstæð- isflokksins, heldur úti heimasíðu á vef Alþingis. Í nýjum pistli, undir fyr- irsögninni Um hvað verð- ur kosið 10. maí?, fjallar hún um kosningarnar.     Gefum Katrínu orðið:„Stöðugleiki síðustu ára er orðinn sjálfsagt mál, vaxandi kaupmáttur níunda árið í röð hefur komið öllum til góða og fólk áttar sig ekki endi- lega á því að fyrir því sé góð og gild ástæða. Það er nefnilega ekki sama hverjir sitja við stjórnvöl- inn!     Þótt ég telji ekki aðhagfræðin ein sé undirstaða hamingju eða að dansinn í kringum gullkálfinn sé eftirsókn- arverður er þó alveg ljóst í mínum huga að stöð- ugleiki í efnahagsmálum og traust forusta í stjórn landsins er mikils virði.     Velsæld er ekki og get-ur ekki verið til- viljun. Traust og stöð- ugleiki verða til vegna þess að að þeim er unnið sleitulaust. Ríkisfjár- málum má líkja við rekst- ur heimilis. Það er nauð- synlegt að leggja fyrir, greiða upp skuldir, við- halda húsnæði sínu, rækta mannfólkið og rækta garðinn sinn. Ann- ars getur fjölskyldan ekki reitt sig á öryggi í framtíðinni.     Fólkið í landinuákveður um hvað verður kosið. Óskhyggja og orðagjálfur breyta ekki þeirri staðreynd. Svo virðist sem almenn- ingur á Íslandi hafi ákveðið að í vor verði kosið um skattastefnu framtíðarinnar. Stað- reyndir blasa við um þær skattalækkanir sem þeg- ar hafa átt sér stað fyrir tilstilli Sjálfstæðisflokks- ins í þremur síðustu rík- isstjórnum og þótt loforð um lækkanir hafi ekki verið gefin í síðustu kosningum hafa þær samt orðið að veruleika. Þetta veit fólk og kann að meta.     Formaður Sjálfstæð-isflokksins, Davíð Oddsson, hefur lýst því yfir að vegna betri af- komu þjóðarbúsins og verulegrar lækkunar skulda séu forsendur fyr- ir því að lækka skatta enn frekar. Það er gleði- efni að svo vel skuli hafa verið búið um hnútana og að hægt sé að sigla inn í nýtt kjörtímabil með enn fleiri blóm í haga.     Til þess að tryggja aðsvo megi verða og að margra ára árangur og stöðugleiki haldist skiptir miklu að kosningaþátt- taka sé góð og að Sjálf- stæðisflokknum verði treyst til að efna sín lof- orð. Hann mun reynast traustsins verður,“ segir Katrín Fjeldsted. STAKSTEINAR Er stöðugleikinn sjálfgefinn?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.