Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 59
Madonna
American Life
Maverick/Warner
Meðvitaða Madonna mætt á svæðið,
reynslunni ríkari, full efasemda um lífið
sitt ljúfa og tilveru.
þó satt að Americ-
an Life er ekki
besta platan sem
Madonna hefur
sent frá sér, og er
eiginlega svolítið
langt frá því líka.
Sem er hin mesta synd því kella
hefur verið á slíku róli undanfarið,
var algjörlega búin að endurnýja sig
sem listamann, og farin að senda frá
sér plötur, sem lögðu línurnar,
hvort sem er í vinsældapoppi eða
því sem framsæknara þykir, búin að
brúa bilið milli fjöldans og kúrist-
anna. Ray of Light er hennar allra
besta plata á ferlinum og Music með
því besta sem hún hefur gert – báð-
ar morandi í skemmtilegum hug-
myndum, iðandi af sköpunargleði,
geislandi af sjálfstrausti listamanns
HÚN er nú kannski ekki eins
vond og gagnrýnendur erlendir
vilja flestir meina, en það segja þeir
og skemmtikrafts sem loksins var
orðinn sáttur við sjálfan sig.
Kannski þess vegna veldur Americ-
an Life meiri vonbrigðum en ella.
Hún er langt frá því að vera vond,
en maður er svo innilega meðvit-
aður um hversu miklu betur Ma-
donna er fær um að gera.
Stóru meinin eru tvö, hreint und-
arlegt óöryggi hjá henni í textagerð
og söngtúlkun – rapptilburðirnir
eru í besta falli klaufalegir, versta
falli hjákátlegir – og allt of mikil
fyrirferð Frakkans Mirwais Ahm-
adzaï, sem stjórnar upptökum og
semur átta af ellefu lögum plötunn-
ar, ásamt poppdrottningunni. Það
getur vart verið tilviljun að hin þrjú
lögin, „Nothing Fails“, „X-Static
Process“ og „Easy Ride“, séu þau
bestu – reyndar ásamt hinu Red
Hot Chili Peppers-skotna „Inter-
vention“.
Eins og maður hefur nú á tilfinn-
ingunni að Madonnu finnist Miwais
sinn vera nýmóðins og klár þá er
þetta mínimalíska rafdiskó hans
orðið eitthvað undarlega þreytt og
þunnt – eins og kristallast best í
mislukkuðum fyrstu tveimur lögum
plötunnar, titillaginu og Hollywood.
Þar er Madonna líka á verulega hál-
um ís í textagerðinni, í einhverjum
stórundarlegum vangaveltum um
hvort frægðin og framinn hafi verið
þess virði – sjálf drottning efnis-
hyggjunnar, sem búin er að baða sig
meir í sviðsljósinu en nokkur önnur
stjarna þessa heims! Vitanlega hef-
ur fólk rétt á að sjá að sér, en hún
gerir það bara ekki á nógu sannfær-
andi máta og fær að ég held minni
samúð en hún ætlaði sér með slíku
kveini yfir veruleikafirringu ljúfa
lífsins. Annað sem maður heggur
eftir er hversu mótsagnakenndar
meiningar hennar eru, segist
vantrúuð í einu laginu („Nothing
Fails“) en ákallar svo Jesú Krist í
öðru („X-Static Process“)!
Þrátt fyrir ofannefndan meinbug
á misjafnri en þó alveg ágætlega
áheyrilegri plötu – sérstaklega fyrir
heitustu fylgjendur – þá er hrein
flónska að lýsa því yfir að Madonna
sé búin að missa það, líkt og ófáir
hafa vogað sér að gera í bandarísku
pressunni undanfarið. Hún á sér
fleiri en níu ljúf líf og á sannarlega
eftir að koma niður á fæturna eftir
þetta smávægilega fall. Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
Ljúfa líf,
ljúfa líf?
Cameron
Diaz er hætt
með kærasta
sínum til fjög-
urra ára, Jar-
ed Leto. Tals-
maður leik-
konunnar
segir þau hafa
slitið sam-
bandinu þar
sem þau hafi
fjarlægst
hvort annað.
Vinir leikkon-
unnar segja
Leto hins veg-
ar hafa átt
erfitt með að sætta sig við að hún
nyti meiri velgengni á hvíta tjald-
inu en hann og að það hafi orðið til
þess að hann hafi komið æ verr
fram við hana. Diaz og Leto voru
nýlega sögð hafa trúlofað sig á ný
en Diaz sleit fyrri trúlofun þeirra
árið 2000. Þau héldu sambandinu
þó áfram en sögusagnir af kven-
semi hans hafa loðað við það æ síð-
an …
FÓLK Ífréttum
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Traust, svik og blekkingar
Í heimi leyniþjónustunnar er ekki allt
sem sýnist.
Frábær spennumynd sem fór
beintá toppinn í Bandaríkjunum.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14. Sýnd kl. 8. B.i 12
HK DV
Kvikmyndir.com
SV MBL
HJ MBL
HK DV
Kvikmyndir.com
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 8. B.i 12.
HOURS
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i 12.
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i 12.
ÓSKARSVERÐLAUN
HK DV
X-97,7
HJ MBL
Kvikmyndir.com
ATH SÍÐASTI SÝNINGARDAGUR 101 KVIKMYNDAHÁTÍÐ
Forsala hafin á heimsfrumsýningu X-Men 2
BESTA HEIMILDARMYNDIN
GAMLE MÆND I NYE BILER
sýnd kl. 6. ísl. texti.
PINOCCHIO
sýnd kl. 4. ísl. texti.
GOOD GIRL
sýnd kl. 4. ísl. texti.
COMEDIAN
sýnd kl. 10.20. enskt. tal.
RABBIT PROOF FENCE
sýnd kl. 6. enskt tal.
SPIDER
sýnd kl. 4. ísl. texti.
EL CRIMEN DEL PADRE AMARO
sýnd kl. 6. enskur texti.
NAQOYQATSI
sýnd kl. 10.20. enskt tal.
BOWLING FOR COLUMBINE
sýnd kl. 8 og 10.10. ísl. texti.
400
kr
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
Þetta
var hin
fullkomna
brúðkaups-
ferð...
þangað til
hún
byrjaði!
Þrælfyndin og skemmtileg mynd með
Ashton Kutcher úr Dude Where´s
My Car og Brittany Murphy úr 8 Mile.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal. 400 kr.
Sýnd kl. 3.30, 5.45 og 8.
www.laugarasbio.is
Sex vinir hafa komist að hryðjuverkaáætlun.
Nú hafa þeir sólarhring til að vara heiminn við
áður en hryllingurinn verður að veruleika.
Brjálaður hasar og
geggjuð áhættuatriði.
400
kr
Forsala hafin á heimsfrumsýningu X-Men 2
Sýnd kl. 2. Ísl. tal. 400 kr.
Heimsfrumsýning
30. apríl 2003
VERÐUR ÞÚ HEPPINN
ÁSKRIFANDI?
Í tilefni HEIMSFRUMSÝNINGAR á stórmyndinni X-Men 2
efnir Morgunblaðið til netleiks á
Leikurinn er eingöngu fyrir áskrifendur Morgunblaðsins
og stendur frá 24.-30. apríl.
Taktu þátt og þú gætir unnið! 200 heppnir áskrifendur
fá glæsilegan varning eða miða fyrir tvo á myndina.
HEIMSFRUMSÝND EFTIR 3 DAGA!