Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 11 Mér hefur fundist á þessum fjórum árum að við höfum verið að vinna okkar störf með lág- marksþingmannafjölda. Ef við fáum skilaboð sem eru með þeim hætti sem kemur fram í skoðanakönnunum eigum við ekkert erindi í ríkisstjórn.“ Þú sagðir hér áðan að flokkurinn hefði lagt mikið á sig í virkjanamálum og kannski meira en flokkurinn þoldi. Hvað áttu við með því? „Ég á við með því að við fengum mikla and- stöðu bæði á Austurlandi, vegna þess að við gátum ekki svarað til um það í aðdraganda síðustu kosninga hvenær niðurstaða fengist í þessu máli, og síðan hér á Suðvesturlandi vegna sterkra tilfinninga í umhverfismálum. Framsóknarflokkurinn hefur ávallt verið flokkur sem hefur lagt áherslu á umhverfis- mál. Það eru mjög margir náttúruunnendur í flokknum og það fannst mörgum í flokknum við ganga of hart fram í málinu. Við tókum málefni Þjórsárvera mjög alvar- lega og það var umræða innan flokksins um það að blása það allt saman af. Við sem vorum í forystu flokksins gerðum okkur grein fyrir því að það gæti þýtt að verksmiðjan á Grund- artanga yrði alls ekki stækkuð en þeir sem byggðu verksmiðjuna á sínum tíma höfðu fyr- irheit um slíka stækkun. Þess vegna ákváðum við að reyna til þrautar að finna lausn sem tryggði friðlandið. Það tókst. “ Þannig að tillaga Jóns Kristjánssonar setts umhverfisráðherra í máli Norðlingaölduveitu hefur þá verið mikill léttir fyrir flokksmenn Framsóknar? „Jón Kristjánsson lagði mikla vinnu í að leysa þetta mál og allir sanngjarnir menn hrósa niðurstöðunni. Frammistaða Jóns sýnir hvað það er mikilvægt að stjórnmálamenn gefist ekki upp við að finna bestu lausnina á hverjum vanda.“ Má ekki segja að það hafi orðið trún- aðarbrestur á milli stjórnvalda og Lands- virkjunar þegar leitað var annað en til fyr- irtækisins eftir tillögu um útfærslu á Norðlingaölduveitu? „Það liggur fyrir að Landsvirkjun lagði mikla áherslu á að fá sem hagkvæmasta nið- urstöðu. Umhverfisráðherra varð að taka tillit til annarra sjónarmiða og það tókst að finna lausn þar sem var viðunandi samræmi milli viðhorfa beggja. Það var mikið ánægjuefni.“ Verðið þið áfram í ríkisstjórn hvað munið þið leggja til í orkumálum? „Það verða virkjanaframkvæmdir í gangi allt næsta kjörtímabil og það er nægur tími til þess að kanna ýmsa kosti fyrir framtíðina, bæði hvað varðar jarðhita og vatnsafl. Við höfum beitt okkur fyrir því að rammaáætlun hefur verið sett í gang og við munum vinna áfram á þeim grundvelli. Ég á ekki von á að það komi til neinna sambærilegra árekstra og við höfum orðið vitni að á síðustu árum. Ég held að þessi mál muni sigla nokkuð lygnan sjó á næsta kjörtímabili.“ Taka ekki þátt í byltingarkenndum hugmyndum Þú hefur lýst því yfir að þú hafir mikinn áhuga á áframhaldandi stjórnarsamstarfi. Má líta svo á að atkvæði greitt ykkur sé atkvæði greitt núverandi ríkisstjórn, munið þið útiloka samstarf við aðra flokka? „Ég kannast ekki við að hafa gefið neina slíka yfirlýsingu. Við erum tilbúnir til sam- starfs við alla flokka. Hins vegar teljum við að samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn hafi verið farsælt og við höfum lagt á það áherslu að það sé kominn tími á það að Framsóknarflokk- urinn fái forystuhlutverk í íslenskum stjórn- málum. Gengi okkar í kosningum mun fyrst og fremst ráða því. Við erum hins vegar ekki tilbúnir að fara í ríkisstjórnarsamstarf sem setur stöðugleikann í hættu eða taka þátt í einhverjum ævintýrum og byltingarkenndum hugmyndum um undirstöðumál í íslensku samfélagi en margar hugmyndir stjórnarand- stöðunnar ganga í þá áttina.“ Þrátt fyrir það haldið þið opnu samstarfi við þessa flokka? „Ríkisstjórnarsamstarf er samkomulags- mál. Þeir sem vilja vera í ríkisstjórn verða að gera sér grein fyrir því að þeir þurfa að semja. Við höfum rekið hér ákveðna utanrík- isstefnu sem byggist á aðild að Atlantshafs- bandalaginu og varnarsamstarfinu við Banda- ríkin. Við erum ekki tilbúnir að breyta því og við erum ekki tilbúnir að setja ríkisfjármálin í hættu. Í því sambandi vil ég ekki draga dul á að mér finnst Sjálfstæðisflokkurinn ganga fulllangt í þeim efnum. Við í Framsókn- arflokknum erum að tala um skattalækkanir upp á rúma 16 milljarða. Þeir eru að tala um skattalækkanir upp á 30 milljarða. Ég tel að það verði ekki gert nema með verulegum nið- urskurði í velferðarkerfinu eða með því að reka ríkissjóð með miklum halla.“ Þú sagðir áðan að þið mynduð sækjast eftir forystuhlutverki haldi þessi ríkisstjórn velli. Hversu mikla áherslu mun Framsóknarflokk- urinn leggja á að fara með forsætisráðu- neytið? „Við munum leggja mjög mikla áherslu á það. Samningsstaða okkar mun ráðast af gengi okkar í kosningunum. Við misstum þrjá þingmenn í síðustu kosningum og staða okkar til að krefjast forystu í ríkisstjórn var mjög slæm.“ Í nokkrum könnunum undanfarið hefur þú ekki verið með öruggt þingsæti. Telurðu að það hafi verið mistök af þér að taka sæti í öðru Reykjavíkurkjördæmanna? „Nei. Mér fannst rétt að formaður flokksins setti sig í þessa baráttu. Ég er ekki svartsýnn í því sambandi en ég verð að sjálfsögðu að taka örlögum mínum eins og aðrir.“ Afkastamesta utanríkisþjónusta í heimi Utanríkisþjónustan hefur vaxið í þinni tíð og þú hefur meðal annars stofnað til friðar- gæslu. Lifum við á breyttum tímum, með til- liti til þátttöku Íslands í alþjóðasamstarfi? „Þegar ég kom inn í utanríkisráðuneytið fyrir átta árum var varið 0,43% af landsfram- leiðslu til utanríkismála. Á árinu 2003 er þetta hlutfall 0,65%. Langstærsti hlutinn af þessari aukningu er til þróunarmála og friðargæslu. Við höfum stofnað nokkur ný sendiráð í sam- ræmi við þær kröfur sem alþjóðavæðingin gerir til okkar og ég tel að sú styrking sem orðið hefur á utanríkisþjónustunni hafi verið mjög mikilvæg og því fjármagni hafi verið vel varið. Ég verð hins vegar var við það núna í kosn- ingabaráttunni að andstæðingar mínir dreifa því mjög að þarna hafi verið rangar áherslur og virðast fá nokkrar undirtektir. Þetta eru jafnvel sömu mennirnir og voru fyrstir til að leggja það til að það yrði stofnað sendiráð í Japan með þingsályktunartillögu á Alþingi. Ég tel að við verðum, ef við ætlum að halda sjálfstæði okkar og stöðu í heiminum, að reka öfluga utanríkisþjónustu. Alþjóðavæðingin gerir sífellt meiri kröfur. Við verðum stöðugt háðari viðskiptum og samskiptum við önnur lönd. Samningar við önnur ríki; Evrópusam- bandið, Alþjóðaviðskiptastofnunina og aðra skipta sköpum fyrir framtíð landsins. Ég fullyrði að við erum með minnstu, en af- kastamestu og skilvirkustu utanríkisþjónustu í heimi. Lúxemborg, sem er í hjarta Evrópu, er til dæmis með mun fleiri sendiráð og skrif- stofur en við og Danir og Norðmenn með fimm sinnum fleiri. Þeir sem gagnrýna utanríkisþjónustu okk- ar gleyma alltaf að skýra út hvers vegna aðr- ar þjóðir telja nauðsynlegt fyrir sína hags- muni að reka miklu stærri og fjölmennari þjónustur en við.“ En á tímum tækniframfara þar sem hægt er að tala saman augliti til auglitis á milli landa í gegnum tölvur, telurðu samt sem áður nauðsynlegt að opna sendiráð? „Við getum ekki haft alþjóðasamskipti í gegnum síma og tölvur. Það er ekki hægt að semja um viðkvæm og mikilvæg mál í gegnum tölvur. Þú færð ekki skilning á þínum málstað og þínum hagsmunum í gegnum tölvur. Fólk verður að hittast og læra að meta hagsmuni hvert annars. Það verður ekki gert nema með samskiptum. Tölvurnar eru gott hjálpartæki en ekkert meira.“ Gereyðingarvopn munu finnast Aðeins að Íraksstríðinu. Enn hafa engin gereyðingarvopn fundist í Írak. Myndirðu telja það áfall ef engin slík finnast fyrir þá sem stóðu að stríðinu? „Það sem hefur fundist eru grafir ungs fólks fyrir utan fangelsi í Bagdad þar sem u.þ.b. 40 hafa verið líflátnir í hverrri viku. Það var sagt að slíkt væri ekki fyrir hendi. Það hafa fundist lyf í stórum stíl en það var sagt að það væri lyfjaskortur. Það hafa fundist peningar í kössum sem hefði verið hægt að nota til að kaupa mat og lyf fyrir sveltandi börn en það var sagt að þessir peningar væru ekki til. Ég tel að gereyðingarvopn muni finn- ast. Saddam Hussein gerði aldrei grein fyrir þeim gereyðingarvopnum sem hann við- urkenndi að eiga árið 1991. Gátan um örlög þeirra verður áreiðanlega ráðin. Þetta mál verður metið þegar allt er komið í ljós og það er of snemmt að dæma um það.“ Ríkið seldi Lands- og Búnaðarbanka á dög- unum. Verði Framsóknarflokkurinn áfram í ríkisstjórn, hyggið þið á frekari einkavæð- ingu? „Við teljum rétt að halda áfram með athug- un á sölu Símans en við viljum stíga þau skref varlega. Við erum andvígir einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. Við teljum að Íbúðalána- sjóður eigi áfram að vera í eigu ríkisins og leggjum mikla áherslu á að hægt verði að hækka lánshlutfall við íbúðakaup. Í stefnu- skrá okkar fyrir þessar kosningar er lagt til að þau mörk verði hækkuð í 90% af kaupverði venjulegs húsnæðis. Hvað Lánasjóð íslenskra námsmanna varð- ar kemur ekki til greina að einkavæða hann eins og hugmyndir hafa verið uppi um. Við teljum lánasjóðinn algjöra forsendu þess að allir eigi jafnan aðgang að námi án tillits til efnahags og annarra aðstæðna.“ Að lokum, þetta er níunda kosningabar- áttan þín. Hvernig líturðu á framtíð þína í stjórnmálum og í formannsstóli Framsókn- arflokksins? „Á mér er enginn bilbugur. Ég verð nú ekki í þessu að eilífu en ég hef ekki ákveðið hvað ég ætla að vera lengi. Ef ég fæ traust kjósenda þá er ég skuldbundinn að vinna fyrir þeirra hönd og ég ætla mér að standa undir því.“ Morgunblaðið/Jim Smart rsj@mbl.is ’ Fyrstu fjögur árin varflokkurinn með fimmtán þingmenn. Við töpuðum fylgi í síðustu kosningum og fengum tólf þingmenn. Mér hefur fundist á þess- um fjórum árum að við höfum verið að vinna okk- ar störf með lágmarks- þingmannafjölda. Ef við fáum skilaboð sem eru með þeim hætti sem kem- ur fram í skoðanakönn- unum eigum við ekkert erindi í ríkisstjórn. ‘
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.