Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 34
SKOÐUN 34 SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ NÝFALLINN hæstaréttardóm- ur hefur vakið viðbrögð hjá þeim sem vænst höfðu annarrar niður- stöðu. Umráðamaður hlunninda- jarðar hafði verið kærður fyrir að verja sitt friðlýsta æðarvarp á ólög- legan hátt, hlotið fyrir það dóm í héraði en var síðan sýknaður í hæstarétti. Sú niðurstaða stingur vissulega í stúf við viðhorf sem ríkt hafa undanfarið og vekur til um- hugsunar. Málið snýst um tvær alfriðaðar fuglategundir, örn og æðarfugl. Eins og flestir vita hefur æðarfugl verið friðaður lengi, vegna þess að hann gefur af sér verðmæta útflutn- ingsvöru, örninn miklu skemur. Hann hafði þvert á móti verið litinn sem meindýr sem þyrfti að halda í skefjum. Þegar farið var að nota eit- ur í hræ til fækkunar refum bitnaði það á erninum sem sótti í hræin. Snemma á síðustu öld hafði þetta, ásamt öðrum hernaði, leitt til þess að örninn var að deyja út, og aðeins fá pör eftir á Vesturlandi, aðallega við Breiðafjörð. Aðgætnir menn sáu að ekki væri gott að ganga svo langt að útrýma þessum konungi íslenskra fugla, sem yrði illt til afspurnar, eins og frægt er varðandi geirfuglinn. Þetta leiddi til alfriðunar og síðan fjölg- unar arnarins. Þau tíðindi hafa gerst við Breiðafjörð og í nágrenni hans, einfaldlega vegna þess, að þar gengu menn ekki jafn hart fram og aðrir gerðu. Lítið hefur þó breið- firskum æðarbændum verið þökkuð sú löðurmennska, en þeir skamm- aðir öðrum meir, bæði fyrir lin- kindina, en þó meira hitt að geta ekki tekið því þegjandi og með þökkum að mega ekki bera hönd fyrir höfuð sér í arnarmálum. Það er ekkert launungarmál þó að ókunnugir hafi ekki alltaf viljað heyra, að assa gamla getur valdið miklu tjóni í æðarvarpi. Að því leyti var það afar óheppilegt að stofninn skyldi halda velli og dæmast ósnert- anlegur á Breiðafjarðarsvæðinu sem frá náttúrunnar hendi er mesta og ákjósanlegasta varpland æðar- fugls hér á landi. Áður komu bændur í veg fyrir að örninn gerði sér hreiður úti um eyj- ar, þar sem þeir vissu fullvel að það þýddi eyðingu æðarvarps á stóru svæði. Þess vegna mátti það heita óþekkt fyrir daga alfriðunar að ern- ir gerðu sér hreiður og yrpu úti í Breiðafjarðareyjum. Þeir byggðu sér hreiður og áttu sín óðul á kletta- syllum í fjöllum á fastalandi jafnvel fjarri sjó. Ekki bar á að það atriði stæði þeim fyrir þrifum, svo vitað sé. Þetta breyttist hins vegar við friðunina, þegar ekki mátti lengur stugga við þeim. Þeir gengu þá fljótt á lagið og fóru að nema land úti í eyjum þar sem lífsskilyrði voru þeim hagstæðust og undantekning- arlítið flýði þá æðarfuglinn af stóru nærliggjandi svæði með sitt varp. Nú er þess að geta að friðunar- menn arnarins sóttu sitt mál af hörku og óbilgirni í upphafi, sem kannski var ekki vanþörf á frá þeirra sjónarmiði. Þannig hafa þeir löngum haldið því fram að kvartanir bænda séu ástæðulausar, þó að örn- inn sé sólginn í æðarfugl og drepi hann sér til matar ásamt mörgu öðru, hafi það engin áhrif á stærð stofnsins. Þar ráði aðrir hlutir og önnur afföll miklu meiru. Þetta má rétt vera, en kynni þó að orka tví- mælis þegar þessum rándýrum fjölgar. Aðalatriðinu í þessu máli hefur hins vegar minna verið haldið á lofti, en hér með skal reynt að skýra það fyrir ókunnugum, úr því að menn hafa kosið að efna til upp- þots í fjölmiðlum. Æðarfugl er log- andi hræddur við össu gömlu, eins og sum önnur rándýr, miklu hrædd- ari en við eggja- og ungaræningja á borð við krumma og svartbak. Nær- vera arnarins veldur því venjulega flótta æðarfugls af svæðinu þar sem örninn sest að. Einhverjar undan- tekningar kunna að vera á því – tímabundið. Hitt er vel þekkt að stundum fer assa að herja á ákveðna eyju eða hólma, með fylgi- fiska með sér; hrafn og máva. Æð- arfuglinn flýr í skelfingu og fylgi- fiskarnir rífa upp hreiðrin. Þannig hafa varpeyjar eyðst og bóndanum sem missir þar verðmætar land- nytjar er líklega lítil bót í því þótt reiknað sé út að þetta sé allt í lagi, þetta hafi lítil áhrif á stofnstærðina. Áföll af þessu tagi geta haft var- anleg áhrif og jafnvel þurrkað út varp endanlega, sem búið var að rækta upp og verja lengi. Stundum heyrist sagt að bóndinn verði bara að passa varpið betur, ef honum sé annt um það. Það kann reyndar að vera hægt sums staðar, þar sem þétt varp er á litlu afmörkuðu svæði, en á Breiðafirði, þar sem eyj- ar skipta tugum og jafnvel hundr- uðum á sumum jörðum eru slíkar hugmyndir tómt rugl. Þegar erninum fór að fjölga og hættan á útrýmingu minnkaði var slakað á óbilgjörnum kröfum um umgengni við össu og mönnum leyft að hafa áhrif á hvar hún settist að (reglugerð 252/1996), enda virðist koma til greina að sumra áliti að henni verði smám saman ýtt úr varplöndum æðarfuglsins eins og gert var áður. Það segir sig reyndar sjálft að þótt eyjarnar yrðu friðaðar aftur fyrir arnarvarpi, gæti örninn sótt þangað til fanga, en í því sam- bandi myndi þó væntanlega skipta verulegu máli hvort hann elst upp á fastalandi eða úti í eyjum. Og eins og áður segir getur arnarsetur þar valdið auðn og eyðileggingu á stóru svæði. Bóndinn sem nýlega var kærður af fuglaverndarmönnum, sakfelldur í héraði en síðan sýknaður í hæsta- rétti, hefur væntanlega verið í góðri trú um að hann mætti meina erni varp í friðuðu varplandi sínu. Þann- ig virðist hæstiréttur líka líta á það mál. Fuglaverndarmenn bregðast illa við og boða hertar aðgerðir. Hverjum yrðu þær til góðs? Kynni einhver að spyrja. Varla fuglakóng- inum okkar. Er hann ekki kominn það vel úr allri hættu að óhætt sé að meina honum aðgang til varps í æð- arvarpi? Er þörf á að afla honum aukins fjandskapar? Hann er vissu- lega fyrir hendi og kraumandi undir niðri hjá ýmsum. Nú er það fjarri undirrituðum, þótt æðarbóndi sé og kominn af slíkum í marga liði, að vilja skamma forystumenn í fuglaverndarmálum og í Fuglaverndarfélagi Íslands, sem hann þekkir marga hverja að góðu einu. Þeir eiga vissulega heið- ur skilinn fyrir að hafa forðað okkur frá þeirri hneisu að útrýma össu gömlu, en assa verður líka á móti að sæta því að henni sé meinað að út- rýma og spilla verðmætri, einstæðri og séríslenskri búgrein, æðardúns- framleiðslu. En hvað er til ráða? Hér skal varpað fram tillögu til umhugsunar fyrir fróða menn og vel meinandi. Eins og áður segir er arnarstofn- inn bundinn við það svæði landsins þar sem hann ætti síst að vera, og þar fer honum fjölgandi. Áður var hann dreifður um allt land. Hægt er að hafa áhrif á búsetumál hans eins og dæmið um „lokun“ Breiðafjarð- areyja á sínum tíma sannar. Merk- ur maður benti á það eitt sinn, ern- inum til upphefðar og réttlætingar, að fátt eða ekkert gleddi augu er- lendra túrista jafnmikið og að sjá hinn íslenska konung á flugi. Túr- istar leggja hins vegar lítið leið sína út í Breiðafjarðareyjar. Þess vegna væri æskilegt að lokka össu greyið þaðan sem hún má ekki vera, þang- að sem hún myndi gera stormandi lukku meðal ferðamanna utan úr ÖRNINN FLÝGUR Eftir Eystein G. Gíslason „Vænt þætti okkur bú- andkörlum um ef mennta- menn syðra sýndu þeirri viðleitni okkar svolítinn skilning annað slagið, jafnvel samstöðu.“ Skólavörðustíg 8 Sími/fax 511 3555 Myndlistarsýning Bjarni Ragnar Mörkinni 3, sími 588 0640. Opið mán-fös kl.11-18 - lau kl. 11-15 Brúðkaupsgjafir Br úð ar gj af al is ta r Sérhæfðir sölumenn í atvinnuhúsnæði! FRANZ@holl.is Hóll — Alltaf rífandi salaAGUST@holl.is FJÖLDI EIGNA TIL SÖLU OG LEIGU! Ekki hika við að hringja í okkur félagana, Franz, gsm 893 4284, Ágúst gsm, 894 7230. Magnús Axelsson lögg. fasteignasali sími 533 1111 fax 533 1115 Opið hús - Skipholti 54 170 fm neðri sérhæð í tvíbýlishúsi á besta stað í bænum. Fjögur svefnherbergi og tvær fallegar parketlagðar stofur. Góður bílskúr og sólverönd á þaki hans. Lárus Magnússon Gsm 895 1998 Marías og Málfríður taka á móti ykkur með heitt á könnunni á milli kl. 14 og 16 í dag, ásamt því að Lárus Magnússon, sölumaður Laufáss, verður á staðnum og svarar fyrirspurnum. Kringlan 4-12 - Stóri turn - 9. hæð - www.laufas.is Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 257 fm gullfallegt nýlegt parhús á tveimur hæðum á þessum eftirsótta stað. Á neðri hæð er m.a. eld- hús, borðstofa, arinstofa, herbergi, garðskáli, þvottahús, geymslur, snyrting og 27,4 fm bílskúr. Á efri hæð eru þrjú góð svefnherbergi, fataher- bergi og baðherbergi. Falleg verönd með útiarni. Áhv. hagst. lán. Laus strax. 3811 Sigurður Karl frá Miðborg sýnir í dag, sunnudag, frá kl. 14.00 til 16.00. Opið hús - Vesturbrún 25 78 fm mjög falleg 3ja herbergja endaíbúð á fyrstu hæð. Eldhús og baðherbergi er mikið endurnýjað. Mikil lofthæð er í íbúðinni. 2 góðar stofur, hægt er að nýta aðra stofuna sem svefnherbergi. Rúmgott svefnherbergi með stórum skáp. Parket og flísar á gólfum. Sérgeymsla. Verð 11,5 millj. 4015 Magnús tekur á móti gestum í dag, sunnudag, frá kl. 13.00 til 15.00. Opið hús - Skipasund 88 Höfum til leigu glæsilega aðstöðu miðsvæðis í borginni. Um er að ræða fullkomna skrifstofu- eða þjónustuaðstöðu með öllum þeim tækjabúnaði og þjónustu sem viðkomandi óskar eftir. Hægt er að fá einingar frá 20-900 fm. Nánari upplýsingar veitir Björn Þorri á skrifstofu. Fyrirtækjahótel Björn Þorri hdl. lögg. fastsali, Karl Georg hrl. lögg. fastsali. Borgartúni 22, 105 Reykjavík, sími 5-900-800. Opið hús í dag - Dverghamrar 10 Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali Sýnum í dag þetta fallega 196 fm einbýlishús á góðum stað í Hamrahverfinu. Húsið er á einni hæð og skiptist þannig að íbúðarrými er 155 fm ásamt tvöföldum 41 fm bílskúr. Húsið er með sérlega fallegum garði ásamt sólpöllum, skjólveggjum og heitum potti. Parket á flestum gólfum, rúmgóðar stofur, 3 svefnherbergi og góðar innréttingar. Verð 25,4 millj. Áhv. Byggsj. rík. 3,9 millj. Steingrímur og frú taka á móti þér og þínum í dag á milli kl. 15 og 17. Veitingastaður/Bar Heimilisfang: Víkin Stærð eignar: 245 fm Bílskúr: 0 fm Byggingarár: 1993 Brunabótamat: 30 millj. Áhvílandi: Verð: 24 millj. Höfum fengið á söluskrá skemmtilegan veitinga- og skemmtistað á Höfn í Hornafirði. Húsnæði og rekstur í einum pakka. Á staðnum er pitsubakstur og útsendingar (bíll fylgir). Einnig eru dansleikir og fastakúnnar í hádegismat. Frábært sumar framundan og góðir tekjumöguleikar Skúli Þór Sveinsson, fasteignamiðlari RE/MAX, sýnir eignina. Skúli Þór Sveinsson Símar 820 9507/590 9507 Netfang: skulith@remax.is Hrafnhildur Bridde lögg. fasteignasali
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.