Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 56
SKÓLABLAÐ Fjölbrautaskólans
við Ármúla, Kronika, kom út í lið-
inni viku. „Við gerðum þetta alveg
sjálf frá A til Ö. Við fengum enga
utanaðkomandi hjálp og sáum sjálf
um skrif, auglýsingasöfnun, um-
brot og hönnun,“ segir Guðbjörg
Eva Baldursdóttir ritstjóri.
Þetta er í þriðja sinn, sem blaðið
kemur út með þessu sniði. Útgáfan
lagðist af á tímabili en er nú ár-
legur viðburður. „Þetta var áður
ekki eiginlegt blað heldur meira
fréttapési en var lagt niður og
ekkert gert í 12 ár.“
Guðbjörg Eva segir að það hafi
verið mjög ánægjulegt að koma að
þessu verkefni. Reyndar verður
það í fyrsta og síðasta skipti hjá
henni en hún er að útskrifast í
vor. „Ég myndi örugglega gera
þetta aftur ef ég væri áfram í
skólanum. Það er gaman að taka
þátt í þessu og sjá blaðið verða til.
Maður hafði ekki áttað sig á því
hvað það felst mikil vinna í þessu.“
Ritnefndin kemur öll úr áfang-
anum fjöl-
miðlun 213.
Guðbjörg Eva
útskýrir að það sé mikil uppbygg-
ing á upplýsinga- og fjölmiðla-
braut skólans og gaman að hægt
sé að tengja saman skólablaðið og
nám. Brautin er ný starfsnáms-
braut, sem orðin er til vegna
áhuga fyrirtækja og einstaklinga á
menntun á sviði upplýsingatækni,
m.a. er kennd veftækni, net- og
tölvuumsjón og grafísk miðlun.
Ritstjórinn útskýrir að þetta
hafi líka mikið að segja í sambandi
við félagsstarfið í skólanum.
„Þetta er ákveðinn líður í félags-
starfinu og gerir skólagönguna
líka minnisstæða,“ útskýrir Guð-
björg Eva.
Kroniku er dreift innan skólans,
til velunnara og nærliggjandi
grunnskóla. „Blaðið er líka kynn-
ing á starfsemi skólans,“ segir
Guðbjörg Eva en einnig verður
nokkrum eintökum dreift á valin
kaffihús.
Skólablað FÁ komið út
Guðbjörg Eva rit-
stjóri og Eva
Björk Guðmunds-
dóttir ritnefndar-
maður með bleika
stoltið sitt.
Gerðu það sjálf
Morgunblaðið/Golli
FÓLK Í FRÉTTUM
56 SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Í KJÖLFAR Koyaanisqatsi og
Powaqqatsi, kemur Naqoyqatsi og
lokar qatsi-þrennu Godfreys Reggio.
Sem fyrr er titillinn fenginn úr máli
Hopi indjána og mun þýða eitthvað í
áttina við „stríð sem lífstíll“; myndin
líka mun harðneskjulegri en fyrir-
rennararnir. Naqoyqatsi er samt sem
áður byggð upp á sama máta. Klippi-
mynd gerð úr bútum úr fréttamynd-
um, tölvuleikjum, tölvuumhverfi,
myndum af þjóðarleiðtogum, osfrv.
Myndirnar og myndskeiðin margend-
urtekin og margvíslega breytt með
stafrænni tækni. Naqoyqatsi er ekki
síður upplifun fyrir eyru en augu, tón-
list og tónlistarnotkun Philips Glass
er jafn áberandi og magnaður þáttur
sem fyrr.
Reyndar var það tónlistin, þessi
seiðandi blanda af músíkölskum
hrærigraut frá sýrurokki til selló-
leiks, sem vakti fyrst athygli á Koya-
anisqatsi og hlutverk Glass er jafnvel
enn merkara innlegg í þrennulokin og
magnar þau óheillavænlegu skilaboð
sem flæða til manns undir áhorfinu.
Hér er enginn léttleiki lengur til stað-
ar og lítil og sparsöm litanotkun.
Reggio minnir á aðsteðjandi ógnir
illskunnar, sívaxandi mátt hátækni og
véla. Frumleiki Koyaanisqatsi er
engu að síður löngu að baki og áhrifin
verða slítandi þegar til lengdar lætur.
Ef menn vilja kynnast verkum þessa
einstaka kvikmyndagerðarmanns og
draumkenndari tónlistarnotkun
Glass, vil ég benda fólki á hina dul-
mögnuðu Koyaanisqatsi, tímamóta-
verk sem flytur mann heilshugar inní
framandi töfraveröld sem áhorfand-
inn sér hér og heyrir í hillingum.
Þrennulok
KVIKMYNDIR
Regnboginn – 101
kvikmyndahátíð
Leikstjórn og handrit: Godfrey Reggio.
Kvikmyndatökustjóri: Russell Lee Fine.
Tónlist: Philip Glass. Aðalleikendur: . 89
mín. Miramax. Bandaríkin 2002.
NAQOYQATSI Sæbjörn Valdimarsson
Naqoyqatsi minnir á „aðsteðjandi
ógnir illskunnar, sívaxandi mátt há-
tækni og véla“, segir í umsögn.
Sunnud. 27. apríl kl. 14 Örfá sæti
Laugard. 3. maí kl. 14 Örfá sæti
Sunnud. 4. maí kl. 14
Stóra svið
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
FRUMSÝNING í kvöld kl 20 - UPPSELT
Mi 30/4 kl 20 - UPPSELT
Fi 1/5 kl 20 - 1.maí tilboð kr. 1.800
Fö 2/5 kL 20, Lau 10/5 kl 20
PÚNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht
Su 4/5 kl 20, Su 11/5 kl 20,Fi 22/5 kl 20
ATH: Sýningum lýkur í maí
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
Lau 3/5 kl 20,Fö 9/5 kl 20,Fö 16/5 kl 20
Fö 23/5 kl 20,Fö 30/5 kl 20,Lau 31/5 kl 20
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR
Nýja svið
Þriðja hæðin
Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga.
Fax 568 0383 - midasala@borgarleikhus.is
Miðasala 568 8000
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Lau 3/5 kl 20
Su 11/5 kl 20
Takmarkaður sýningarfjöldi
Litla svið
RÓMEÓ OG JÚLÍA
e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT
Fö 2/5 kl 11 - UPPSELT, Fö 2/5 kl 20
Mi 7/5 kl 20 - UPPSELT
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN
í samstarfi við SJÓNLEIKHÚSIÐ
Leikrit með söngvum - og ís á eftir!
Lau 3/5 kl14, Lau 10/5 kl. 14
GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt
Su 11/5 kl 20
Su 18/5 kl 20
Örfáar sýningar vegna fjölda áskorana
"MANSTU EKK´ EFTIR MÉR"
dagskrá Kringlusafns í lok bókaviku
ætluð börnum 10-12 ára
Rithöfundar koma í heimsókn, spilað og sungið
Þri 29/4 kl 11- ÓKEYPIS AÐGANGUR
SJÖ BRÆÐUR e. Aleksis Kivi
Gestaleiksýning Mars frá Finnlandi
Mi 7/5 kl 20 - AÐEINS EIN SÝNING
SUMARÆVINTÝRI e. Shakespeare og
leikhópinn
Í kvöld kl 20, Fö 2/5 kl 20,
Su 4/5 kl 20, Lau 10/5 kl 20
MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS
VÆRI HATTUR
eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne
Fi 1/5 kl 20, Fö 9/5 kl 20, Fö 16/5 kl 20
KVETCH eftir Steven Berkoff
í samstarfi við Á SENUNNI
Lau 3/5 kl 20 SÍÐASTA SÝNING
Vesturgötu 3 Í HLAÐVARPANUM
Hugleikur sýnir:
„Þetta mánaðarlega“
í kvöld sun. 27. apríl kl. 20.00
Ljúffengur málsverður
fyrir alla kvöldviðburði
MIÐASALA: 551 9030 kl. 10-16
má.-fö. Símsvari á öðrum tímum.
Smurbrauðsverður innifalinn
Miðasala Iðnó í síma 562 9700
Hin smyrjandi jómfrú
sýnt í Iðnó
Sun 27. apríl kl 20
Fös 2. maí kl 20
Fös 9. maí kl 20
Lau 11. maí kl 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Sunnudagur 27. apríl kl. 20
TÍBRÁ: Píanótónleikar
Anna Áslaug
Ragnarsdóttir
leikur verk eftir
Mozart, Janácek,
Hjálmar H.
Ragnarsson og
Chopin. Verð kr.
1.500/1.200.
Miðvikudagur 30. apríl kl. 20
TÍBRÁ: Sellósónötur Brahms
Gunnar Kvaran og Jónas Ingimundar-
son leika báðar sellósónötur Brahms,
í e-moll og í F-dúr.
Verð kr. 1.500/1.200.
Föstudagur 2. maí kl. 20
Vortónleikar Tónsmíðadeildar
Frumflutt verk eftir nemendur í Tón-
listarsk í Rvík. Verð kr. 1.000/kr. 500.
Laugardagur 3. maí kl. 20
BORGARDÆTUR 10 ÁRA
Andrea Gylfadóttir, Ellen Kristjánsdóttir
og Berglind Björk Jónasdóttir ásamt
Eyþóri Gunnarssyni o.fl. fagna 10 ára
afmæli Borgardætra með tónleikum
í Salnum. Verð kr. 2.000.
Guðbrandsmessa
eftir Hildigunni Rúnarsdóttur
í Langholtskirkju
í kvöld sun. 27/4 kl. 20
Flytjendur:
Kór Langholtskirkju
Kammersveit Langholtskirkju
Ólöf Kolbrún Harðard., sópran
Marta Hrafnsdóttir, alt
Björn Jónsson, tenór
Eiríkur Hreinn Helgason, bassi
Stjórnandi: Jón Stefánsson
Pantanir í síma 520 1300 og
klang@kirkjan.is
Miðasala í Langholtskirkju
og við innganginn.
mið 30/4 Sellófon 1. árs
Örfá sæti
Í tilefni afmælis Sellófon er
miðaverð kr. 1600 30/4.
föst 2/5 Örfá sæti
lau 3/5 Nokkur sæti
föst 9/5 Laus sæti
nýr vefur www.sellofon.is opnar um helgina
Söngskemmtun
Söngseturs Estherar Helgu
Karlakórshúsinu Ými sunnudaginn 27. apríl kl. 17.00
Aðgangseyrir kr. 1.000 er seldur við innganginn.
Fyrir eldri borgara og 12 ára og yngri kr. 700.
Flytjendur eru Dægurkórinn,
Regnbogakórinn og Regnboga-
bandið ásamt einsöngvurunum
Esther Helgu Guðmundsdóttur,
Pálínu Gunnarsdóttur
og Karli Erni Karlssyni.
Á dagskrá er blanda af heimstónlist og söngleikjatónlist.
Stjórnandi er Esther Helga Guðmundsdóttir.
Skólavörðustíg 8
Sími/fax 511 3555
Myndlistarsýning
Bjarni Ragnar
mbl.is
VIÐSKIPTI
VEÐUR
mbl.is