Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 31 FRAMLAG Leikfélags Sauð- árkróks til Sæluviku er að þessu sinni frumflutningur á nýju ís- lensku gamanleikriti eftir Hávar Sigurjónsson sem ber heitið heit- ir Ertu hálf-dán? Sýnt er í Bifröst á Sauðárkróki og leikstjórn er í höndum Þrastar Guðbjartssonar. Í fréttatilkynningu frá Leik- félagi Sauðárkróks segir að Ertu hálf-dán? fjalli um leikhúsið og fólkið sem þar starfar. „Leik- ararnir eru að leika gamalt breskt leikrit, ekkert klassískt enda er það alltof lélegt til þess. En málin fara að verða snúin þegar persónuleg vandamál leik- ara og annarra leikhússtarfs- manna trufla einbeitinguna við leiksýninguna. Leikritið verður þá aukaatriði og vandamálin verða að aðalefni leikritsins,“ segir formaður leik- félagsins og einn leikenda, Sig- urður Halldórsson. „Svo vitnað sé eina persónu verksins þá er þetta leikrit „sem hefur engan boðskap og er fyrst og fremst ætlað að vera saklaus skemmtun sem fólk getur notið í leikhúsinu án þess að þurfa að taka vandamálin með sér heim,“ segir Sigurður og bætir við að átta leikarar skipti með sér 10 hlutverkum í sýningunni og er enginn í aðalhlutverki en allir að keppast við að vera það,“ segir Sigurður. Leikfélag Sauðárkróks á Sæluviku Ertu hálf- dán? Frá æfingu á Ertu hálf-dán? á Sauð- árkróki. NÝTT handverksgallerí var opnaði að Háholti 1 á Laugarvatni á dög- unum. Eigendurnir eru hjónin Þur- íður Steinþórsdóttir og Jóel Fr. Jónsson, en þau ráku áður Forn-ný járnagallerí og bólstrun í Garðabæ og munu þau áfram verða með samskonar starfsemi á Laug- arvatni. Galleríið er með íslenskt handverk úr öllum áttum. Á sama stað munu þau hjón verða með vinnustofur sínar. Í tilefni opnunarinnar sýnir Þur- íður Sigurðardóttir (Þura), mynd- listarkona nokkur málverk. Sýn- inguna nefnir Þura „himinn – jörð / sky – earth“ og sækir myndefnið í landslagið í Bláskógabyggð. Sýn- ingin stendur til 27. apríl. Morgunblaðið/Kári Jónsson F.v. Jóel Fr. Jónsson, Þuríður Steinþórsdóttir og Þuríður Sigurð- ardóttir (Þura), við eina eina af myndum Þuru. Nýtt gallerí á Laugarvatni Laugarvatn. Morgunblaðið. BÓKAVERÐLAUN barnanna voru afhent á sumardaginn fyrsta við hátíðlega athöfn í Borgarbóka- safni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15. Það er Borgarbókasafn Reykja- víkur sem hefur haft frumkvæði að þessu verkefni og voru kjörseðlar og veggspjöld með kápumyndum af barnabókum síðasta árs send í alla skóla í Reykjavík og víðar. Einnig var hægt að kjósa í öllum deildum Borgarbókasafns og á heimasíðu safnsins. Þær bækur sem urðu hlutskarp- astar í vali barna á bestu bókinni 2002 voru Marta Smarta eftir Gerði Kristnýju, sem Mál og menning gaf út og Kafteinn Of- urbrók og innrás ótrúlega asna- legu eldhúskerlinganna utan úr geimnum (og uppreisn aftur- gengnu nördanna úr mötuneytinu) eftir Dav Pilkey í þýðingu Bjarna Frímanns Karlssonar. JPV útgáfa gaf bókina út. Bjarni Fr. Karlsson tók við verðlaunum fyrir þýðingu sína á Kafteininum en systir Gerð- ar tók við verðlaunum fyrir hennar hönd þar sem hún var erlendis. Fulltrúar forlaganna voru einnig viðstaddir. Verðlaunin voru ljós- myndir eftir Signýju Jóhannes- dóttur og Steinvöru Jóhannsdóttur sem báðar eru nemendur í Mynd- listaskóla Reykjavíkur. 2.700 krakkar tóku þátt í valinu. Nöfn 10 þeirra voru dregin út og fengu þau viðurkenningu fyrir þátttökuna. Við hæfi þótti að gefa þeim verð- launabækur fræðsluráðs Reykja- víkur en þau verðlaun fengu Krist- ín Steinsdóttir fyrir bók sína Engill í Vesturbænum og Ragn- heiður Erla Rósarsdóttir og Sig- fríður Björnsdóttir fyrir þýðingu á sögunni Milljón holur eftir Louis Sachar. Börn verð- launa bækur Með AVIS kemst þú lengra Pantaðu AVIS bílinn áður en þú leggur af stað – Það borgar sig Hringdu til AVIS í síma 591-4000 AVIS Knarrarvogi 2 – 104 Reykjavík – Sími 591 4000 Fax 591 4040 – Netfang avis@avis.is Innifalið í verði er ótakmarkaður akstur, trygging, vsk. og flugvallargjald. (Verð miðast við lágmarksleigu 7 daga). Ekkert bókunargjald. Bretland kr. 2.800,- á dag m.v. A flokk Danmörk kr. 3.200,- á dag m.v. A flokk www.avis.is Við gerum betur frá kl. 13-17 Kynning verður á nýju sumarlitunum „Crazy Flower“ og öðrum spennandi nýjungum í Lyfju Mánudagur 28. apríl, frá kl. 13 – 17 • Setbergi Þriðjudagur 29. apríl, frá kl. 13 – 17 • Garðatorgi Miðvikudagur 30. apríl, frá kl. 13 – 17 • Spöng S ólris ehf / JB B áfram Ísland Til fundar vi› flig Daví› Oddsson Geir H. Haarde Eskifjör›ur Sunnudagur 27. apríl Valhöll kl. 20.00 Djúpivogur Sunnudagur 27. apríl Hótel Framtí› kl. 20.00 Á næstu dögum og vikum munu Daví› Oddsson, forsætisrá›herra og forma›ur Sjálfstæ›isflokksins, og Geir H. Haarde, fjármálará›herra og varaforma›ur Sjálfstæ›isflokksins, ásamt ö›rum flingmönnum og frambjó›endum Sjálfstæ›isflokksins halda fundi um land allt og heimsækja vinnusta›i. Vi› hlökkum til a› fá tækifæri til a› kynnast sjónarmi›um flínum, ræ›a vi› flig um flann mikla árangur sem vi› Íslendingar höfum í sameiningu ná› og hvernig vi› getum best tryggt a› Ísland ver›i áfram í fremstu rö›. xd.is Vilborg Dagbjartsdóttir Vilborg Dagbjartsdóttir og Kristín Marja Baldursdóttir lesa úr bókinni Mynd af konu í Þjóðmenningarhúsinu sunnudaginn 27. apríl kl. 14:00 Ókeypis aðgangur Sýningar eru opnar alla daga frá kl. 11:00-17:00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.