Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 46
FRÉTTIR
46 SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Ert þú að tapa réttindum
Eftirtaldir lífeyrissjóðir hafa sent sjóðsfélögum
yfirlit um iðgjaldagreiðslur á árinu 2002:
en dregið hefur verið af launum þínum í einn eða fleiri af ofangreindum lífeyrissjóðum, eða ef launaseðlum ber
ekki saman við yfirlitið, skalt þú hafa samband við viðkomandi lífeyrissjóð hið allra fyrsta og eigi síðar en
1. maí n.k.
Við vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð er hætta á að dýrmæt réttindi tapist. Þar á meðal má nefna:
Ell i l ífeyri
Makalífeyri
Barnalífeyri
Örorkulífeyri
Fáir þú ekki yfirlit,
Gættu réttar þíns
Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota,
skulu launþegar innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits ganga úr skugga um skil vinnu-
veitenda til viðkomandi lífeyrissjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal launþegi innan sömu
tímamarka leggja lífeyrissjóði til afrit launaseðla fyrir það tímabil sem er í vanskilum.
Komi athugasemd ekki fram frá launþega er viðkomandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur
fyrir réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd, enda hafi
lífeyrissjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna.
Lífeyrissjóður Austurlands
Lífeyrissjóður Bolungarvíkur
Lífeyrissjóðurinn Framsýn
Lífeyrissjóður Norðurlands
Lífeyrissjóður Rangæinga
Lífeyrissjóður sjómanna
Lífeyrissjóður Suðurlands
Lífeyrissjóður Suðurnesja
Lífeyrissjóður Vestfirðinga
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja
Lífeyrissjóður Vesturlands
Sameinaði lífeyrissjóðurinn
LÍFLEGAR umræður urðu um
bókaútgáfu og stefnu stjórnvalda í
málefnum bókaþjóðarinnar á Bóka-
þingi í Iðnó á föstudag. Yfirskrift
þingsins var: Ölmusa eða menning-
arstefna og meðal þess sem rætt var
var hvort fella ætti niður virðisauka-
skatt af bókum.
Halldór Guðmundsson, útgáfu-
stjóri Eddu útgáfu, kvaðst eindregið
vilja fella niður virðisaukaskatt af
bókum. „Þessi skattur er ekki fyrir
hendi eða er lægri í flestum saman-
burðarlöndum okkar.“
Bókabúðir heyra
brátt sögunni til
Pétur Gunnarsson rithöfundur
hafði framsögu um bóksölustríðið á
jólamarkaðnum. Hann sagði að með
verðstríði stórmarkaðanna fyrir hver
jól væri búið að kippa grundvellinum
undan rekstri hefðbundinna bóka-
búða.
„Ef heldur áfram sem horfir þá
heyra þær sölunni til. Bókabúðir eru
að breytast í sýningarbás og skipti-
miðstöð,“ sagði Pétur.
Í máli hans kom fram að flestar
Evrópuþjóðir með Frakka í broddi
fylkingar hafa snúið til baka frá
frjálsri verðlagningu á bókum. Þjóð-
verjar hafa fest verð á bókum af
menningarlegum ástæðum og Evr-
ópusambandið hefur gert undanþágu
á lögum sínum til að þetta sé hægt.
„Það sem fylgir þessu kerfi er
„bestsellerismi“ sem veldur því að
bóksala færist á æ færri titla.“
Guðmundur Sigurðsson, forstjóri
Samkeppnisstofnunar, sagði að ekki
þyrfti lagabreytingu til að festa verð á
bókum, því heimildarákvæði væri í
lögunum til að fá undanþágu sam-
kvæmt ákveðnum skilyrðum.
„Til að fá úr því skorið hvort und-
anþága fæst til að festa bókaverð þarf
að láta á það reyna. Það fer eftir rök-
stuðningi o.fl. hvort það yrði leyft,“
sagði Guðmundur.
Sigurður G. Valgeirsson, sem sæti
á í stjórn Bókmenntakynningarsjóðs,
hafði framsögu um sóknarfæri ís-
lenskra bókmennta erlendis.
Hann sagði sjóðinn einungis hafa
6,5 milljónir í ráðstöfun á hverju ári
þannig að hann væri hvorki fugl né
fiskur. „Ástandið er því óbærilegt
eins og það er. Kvikmyndamiðstöð Ís-
lands hefur um 400 milljónir til ráð-
stöfunnar. Þetta er árangur baráttu
kvikmyndagerðarmanna þar sem
m.a. var sýnt fram á að ákveðinn
fjöldi ferðamanna kæmi hingað til
lands vegna þess að hann hefði séð ís-
lenska kvikmynd.“
Ólafur Haukur Símonarson tók
undir að Bókmenntakynningarsjóður
þyrfti að hafa mun meira fjármagn til
ráðstöfunar og taldi 25 milljónir á ári
algjört lágmark til að sjóðurinn gæti
sinnt hlutverki sínu.
Jóhann Páll Valdimarsson útgef-
andi taldi mjög varhugavert að ljá
máls á hugmyndum um að leggja
Bókmenntakynningarsjóð niður.
„Aðalvandamálið er hversu fjárveit-
ingin er lítil,“ sagði hann.
Allir flokkar vilja afnema
virðisaukaskatt af bókum
Í lok þingsins stigu fulltrúar stjórn-
málaflokkanna í pontu og lýstu hug-
myndum sinna flokka um stuðning
við bókmenntir og bókaútgáfu.
Björn Ingi Hrafnsson frá Fram-
sóknarflokki taldi að of litlum fjár-
munum væri varið í þennan mála-
flokk og sagði Framsóknarflokkinn
styðja lækkun eða niðurfellingu virð-
isaukaskatts á bækur. Björn Bjarna-
son, Sjálfstæðisflokki, kvaðst vilja
lækka virðisaukann um helming, úr
14% í 7%. „Varðandi frjálst verð á
bókum þá þurfa að koma fram sterk-
ari rök fyrir því að festa verð á bókum
en að fjölga bókaverslunum.“ Einar
Karl Haraldsson, Samfylkingunni,
sagði að upphæðirnar sem nú væru
lagðar í sjóði greinarinnar væru ekki
til þess fallnar að skila árangri. Sagði
hann Samfylkinguna vilja létta virð-
isaukaskatti af bókum. Kolbrún Hall-
dórsdóttir, Vinstri grænum, sagði
flokk sinn vera opinn varðandi um-
ræðu um að aflétta sköttum af menn-
ingarstarfsemi almennt. Gísli Helga-
son, Frjálslynda flokknum, kvaðst
vilja fella niður allan virðisaukaskatt
af bókum og benti á að sérstaklega
þyrfti að huga að því að hljóðbækur
bera 24% virðisaukaskatt.
Morgunblaðið/Golli
Fulltrúar stjórnmálaflokkanna ásamt umræðustjórnendum á Bókaþingi.
Líflegar umræður á Bókaþingi 2003
Opinber stefna
um bókaútgáfu