Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ Vinstrihreyfingin – grænt framboð(VG) býður nú fram til Alþingis íannað sinn. Flokkurinn var stofn-aður í febrúar 1999 og fékk 9,1%fylgi og sex þingsæti að loknum al- þingiskosningum sama vor. Skoðanakannanir fyrr á þessu kjörtímabili sýndu stuðning við VG upp á meira en 20% þegar mest var. Sam- kvæmt síðustu fylgiskönnunum fengi flokk- urinn fimm til sjö þingmenn ef kjörfylgið yrði eins og kannanir sýna nú. Því lá fyrst við að spyrja Steingrím J. Sigfússon hvort hann væri ánægður með niðurstöður nýjustu fylgiskann- ananna. „Ég yrði ekkert ánægður ef þetta yrði út- koma kosninga, en hef ástæðu til að ætla að við gerum betur í kosningum. Markmið okkar er að bæta við fylgið og skila góðri tveggja stafa tölu,“ sagði Steingrímur. Hann segist finna að flokkurinn hafi fengið aukinn meðbyr um og eftir páskana. Fylgið hafi mælst nokkuð jafnt frá því í sveitarstjórnarkosningunum í fyrra- vor, sveiflast um 1–2% frá kjörfylgi. Hið mikla fylgi sem flokkurinn fékk í skoðanakönnunum í upphafi kjörtímabilsins hafi skapast af sér- stökum aðstæðum í þjóðfélaginu. Steingrímur bendir á að miklar sveiflur hafi verið und- anfarið í fylgi flokkanna, en VG haldið sínum hlut. „Nú trúi ég að það sé komið að okkur að taka flugið inn í lokasprett kosningabarátt- unnar. Það er ekki versti tíminn til að vera á uppleið!“ Stjórnarandstaðan myndi stjórn Þið hafið lýst því markmiði að fella sitjandi ríkisstjórn og að stjórnarandstöðuflokkarnir myndi velferðarstjórn. Hefur þú trú á að það takist? „Já, ég hef trú á að það sé mögulegt og vís- bendingar úr skoðanakönnunum gefa til kynna að það geti verið í sjónmáli. Tilfinningu mína um að þetta sé mögulegt byggi ég ekki nema að litlu leyti á vísbendingum skoðanakannana, heldur á því sem ég skynja úti á meðal almenn- ings.“ Steingrímur segist finna það á fólki að það geri kröfu um breyttar áherslur. Að velferð- armálin og nýjar áherslur í umhverfis-, jafn- réttis- og friðarmálum fái að komast að við stjórn landsins. „Við búum í blönduðu hagkerfi, erum nor- rænt velferðarsamfélag að því marki sem við höfum náð slíkum þroska. Ef naprir hægri- vindar nýfrjálshyggju, markaðsvæðingar og græðgi ráða of lengi ríkjum í samfélaginu skekkist myndin. Þetta finnur fólk. Það er búið að fá meira en nóg af einkavæðingu, eða einka- vinavæðingu, taumlausri markaðsdýrkun og vill að nú komi tímabil félagslegrar samhjálp- arhugsunar þar sem við treystum innviði vel- ferðarsamfélagsins á nýjan leik.“ Steingrímur segir að takist stjórnarandstöð- unni að fella ríkisstjórnina eigi hún að hafa metnað til þess að vilja taka við. „Undir þetta hafa til dæmis vinir okkar í Frjálslynda flokknum tekið nokkuð skýrt. Það veldur vissulega vonbrigðum að Samfylkingin hefur átt í einhverjum vandræðum með að taka jafnskýra afstöðu. Það hefur líka vakið athygli að Samfylkingin hefur haldið dyrunum merki- lega opnum fyrir samstarfi með Sjálfstæð- isflokknum. Þá hafa menn spurt: Er það þá allt og sumt sem yrði í boði, ný Viðeyjarstjórn krata og sjálfstæðismanna? Af henni var ekki góð reynsla. Það var sú ríkisstjórn sem lagði á sjúklingaskatta, skólagjöld, komugjöld á heilsugæslustöðvar, hækkaði lyfja- og tann- læknakostnað, innleiddi eftirágreiðslur og vexti á námslán og annað í þeim dúr. Þessu hef- ur öllu meira og minna verið viðhaldið í sam- stjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Það hefur sýnt sig að það skiptir nánast engu máli hvor miðjuflokkanna sest í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Stjórnarstefnan er óbreytt. Leiðarljósin eru hægri stefna, ný- frjálshyggja, einkavæðing og markaðsvæðing á öllum mögulegum sviðum.“ Er samstaða innan ykkar raða um að stofna til stjórnarsamstarfs með Samfylkingunni eftir það sem gekk á í Reykjavík í haust við framboð Ingibjargar Sólrúnar? „Ég treysti því að menn láti hvorki þann at- burð né aðra einstaka atburði, og þaðan af síð- ur persónuleg mál, torvelda eða hindra að menn nái saman um jafn mikilvægt verkefni og að koma núverandi ríkisstjórn frá völdum og mynda vinstri- eða velferðarstjórn. Það er ljóst að af okkar hálfu látum við ekkert slíkt aftra okkur í að ná hér fram gjörbreyttri stjórn- arstefnu. Það er markmiðið, ekki formið, ekki titlarnir. Auðvitað eru öll atkvæði greidd stjórnarandstöðuflokkunum jafngild í því sam- bandi. Að því leyti verð ég að segja að málflutn- ingur Samfylkingarinnar, ekki síst Össurar Skarphéðinssonar, veldur okkur og vænt- anlega einnig Frjálslynda flokknum miklum vonbrigðum. Það er nánast ekki hægt að kalla það annað en ódrengskap að reyna stanslaust að halda því að kjósendum að eina leiðin til að fella ríkisstjórnina sé að kjósa Samfylkinguna. Teljast þá ekki atkvæði greidd okkur og Frjáls- lynda flokknum með?“ Steingrímur telur að kosningasigur VG í vor verði sterkustu skilaboð sem fólk geti sent um að það krefjist gagngerra breytinga í þjóðmál- unum. „Ef við förum í gegnum þessi stóru átakamál, stóriðju- og virkjanamálin, umhverf- ismálin, einkavæðinguna, utanríkismálin og fleiri slík, þá höfum við verið hin einbeitta stjórnarandstaða. Samfylkingin hefur skrifað upp á margt af því sem ríkisstjórnin hefur verið að gera í þessum efnum.“ Ef ekki verður af því að núverandi stjórn- arandstöðuflokkar myndi stjórn, getur þú sagt hvaða annað stjórnarmynstur þér þyki líklegt? „Ég bind vonir við að það takist að fella rík- isstjórnina og þá er okkar fyrsti kostur að stjórnarandstaðan taki við. Takist það ekki er því miður langlíklegast að núverandi stjórn- arflokkar haldi áfram. Ég held að þeir muni gera það, jafnvel þó að þeir tapi nokkru fylgi og verði lemstraðir. Þeir þurfa báðir að tapa miklu fylgi til að það sé öruggt að við sitjum ekki uppi með sömu ríkisstjórn áfram.“ Nú virðist nokkuð áberandi í umræðunni að í pólitíkinni séu tveir stórir póstar, Sjálfstæð- isflokkur og Samfylking. Ingibjörgu S. Gísla- dóttur er stillt upp gegn Davíð Oddssyni, eins og þau séu einu kostirnir. Eruð þið aukanúmer í kosningabaráttunni? „Þegar fólk fer að leggja sig eftir því sem fram fer í kosningabaráttunni áttar það sig á að svona er þetta ekki. Það var gerð mjög mark- viss og úthugsuð tilraun af hálfu Samfylking- arinnar til að hanna kosningabaráttuna og koma henni í þennan farveg. Það var þessi til- raun til að búa til tveggja turna, tveggja of- urleiðtoga kosningabaráttu. Láta svo fólk halda að það ætti að kjósa um forsætisráð- herra! Eins og þetta væru forsetakosningar og bara tvö í framboði, Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir og Davíð Oddsson. Upp að vissu marki er Samfylkingin með þessu að hefja Davíð Odds- son til skýjanna og taka undir að hann sé ein- hver ofurstærð í þessum efnum. Við blásum á þetta og þjóðin er að gera það líka. Ég verð áþreifanlega var við það að nú er eftirspurnin eftir málefnum og einarðri pólitík. Það á að kjósa um málefni 10. maí næstkomandi, ekki um titla sem menn setja á sjálfa sig. Það skyldi nú ekki fara svo að úr þessu verði bræðrabylta eða réttara sagt systkinabylta hjá þeim Ingi- björgu og Davíð og hvorugt verði forsætisráð- herra á næsta kjörtímabili.“ Velferðin hefur verið vanrækt Samkvæmt skoðanakönnun Félagsvís- indastofnunar fyrir Morgunblaðið fyrr í mán- uðinum setja kjósendur ykkar velferðarmálin efst á blað. Getur þú útskýrt áherslur ykkar í þeim málaflokki? „Við settum vörumerki á baráttu okkar strax í haust að við vildum mynda velferðarstjórn. Í kosningastefnuskrá okkar sem heitir: Næst á dagskrá: Réttlæti er þetta nánar útfært. Í mál- efnum fjölskyldunnar nefni ég sérstaklega til- lögu okkar um að fella niður leikskólagjöld í áföngum. Þannig yrði leikskólinn, eins og aðrir skólar, án endurgjalds. Þetta yrði gríðarlega góð kjarabót fyrir ungu barnafjölskyldurnar, sem eru með barn eða börn á leikskóla, svo næmi 30 til 50 þúsund krónum á mánuði. Samt er þetta ekki stærra verkefni en svo að ef ríki og sveitarfélög til samans leggja í þetta 2,4 milljarða króna er þetta gerlegt. Við viljum gera mikið átak í húsnæðismálum. Ástand á fasteignamarkaði hér á höfuðborg- arsvæðinu er mjög erfitt og leiguverð svimandi hátt. Það er afleiðing af því að núverandi rík- isstjórn lagði niður félagslega húsnæðiskerfið. Vextir hafa verið hækkaðir á lánum og leigu- verðið rokið upp, bæði vegna hærri vaxta og skorts á húsnæði. Við viljum sameina stuðning við kaupendur og leigjendur í samræmdu hús- næðisframlagi innan skattkerfisins. Það kæmi í stað núverandi vaxtabóta og húsaleigubóta. Við viljum setja allt að þúsund milljónir á ári í stofnstyrki til byggingar leiguíbúða á vegum félagslegra aðila. Við erum með tillögur um fjárhagslegan stuðning við íþrótta- og æsku- lýðsfélög og aðra sem bjóða upp á hollt tóm- stundastarf fyrir börn og unglinga. Við sjáum í vaxandi mæli að fólk á í erfiðleikum með að veita börnum sínum þessa hluti því það á ekki fyrir æfingagjöldum. Auðvitað er það ákveðið birtingarform fátæktarinnar. Ég hlýt að nefna sem lið í verkefnum þessarar velferðarstjórnar herferð til þess að útrýma þessari fátækt. Þá erum við komin að grundvallarþáttum velferðarkerfisins, almannatryggingum, upp- hæðum elli- og örorkulífeyris og atvinnuleys- isbóta. Við viljum stórbæta stöðu þessara hópa og útrýma bótahugtakinu. Það er arfur frá fá- tæktarframfærslu- og ölmusuhugsunarhætt- inum. Í staðinn viljum við tala um samfélags- laun.“ Skattalækkanir á lægri laun Steingrímur segir VG vera með áherslur í skattamálum sem miðist að því að létta skatt- byrði af lægstu launum og lífeyri og draga úr skattlagningu meðaltekna og lægri tekna. „Við viljum skoða blandaða leið þar sem um væri að ræða einhverja hækkun persónufrádráttar til að lyfta skattleysismörkunum og einnig tekju- tengdar endurgreiðslur sem lágtekjufólk nyti. Í reynd myndi það þýða að skattleysismörk þess yrðu hærri en fólks með hærri tekjur. Þetta væri aðferð sem létti sköttum af þeim sem mesta þörfina hafa fyrir það, en gengi ekki til hinna sem eru betur settir. Þetta gerum við meðal annars vegna þess að allar almennar að- gerðir í þessum efnum, eins og stórhækkun persónufrádráttarins til allra – einnig þeirra tekjuháu – að ekki sé nú talað um margra stiga lækkun álagningarprósentunnar, eru gríð- arlega dýrar aðgerðir og kosta ríkissjóð gríð- arlega fjármuni. Samanber skattalækkunarlof- orð hinna flokkanna sem hlaupa á tugum milljarða. Við erum ekki þátttakendur í því lof- orðafylleríi því við ætlum að mynda velferð- arstjórn og hún þarf að hafa fjármuni til að bæta velferðarkerfið.“ Tillögur ykkar um niðurfellingu leikskóla- gjalda kosta 2,4 milljarða, allt að þúsund millj- ónir eiga að fara á ári til leiguíbúða. Eins leggið þið til hækkun barnabóta og fleira. Hafið þið sett verðmiða á hvað þessi velferðarpakki kost- ar í heild? „Já, við höfum skoðað það. Í ákveðnum til- vikum er um að ræða verðreiknaðar tillögur, eins og í leikskólamálum, húsnæðismálum og nokkrum fleiri þáttum. Við höfum ekki tölusett skattamálin og það er meðvitað. Ég hef sagt að okkar velferðarpakki og það sem við viljum gera í skattamálum er af stærðargráðu þeirra tillagna sem ASÍ setti fram. Þarna værum við í mesta lagi að ræða um 7 til 9 milljarða heild- arpakka. Upp í það erum við með tekjur því við gerum ráð fyrir að breyttar aðferðir við skatt- lagningu fjármagnstekna geti skilað allt að tveimur milljörðum króna. Nettóútgjöld gætu verið á stærðargráðunni 5 til 7 milljarðar.“ Hvar dragið þið efri mörk millitekna? „Þar erum við ekki með okkar eigin mörk en höfum skoðað meðaltöl sem birtast t.d. í frétta- bréfi Kjararannsóknanefndar. Við myndum styðjast við opinber og viðurkennd meðaltöl heildartekna, mörkin liggja þá kannski á bilinu 250 til 300 þúsund króna mánaðartekjur. Þarna er vísað til viðurkenndra talna sem liggja fyrir opinberlega, við höfum ekki hugsað okkur að gefa út eigin viðmið.“ Hafið þið hugleitt hvað hækkun fjármagns- tekjuskatts upp í 12% og 18% mun hafa að segja fyrir lífeyrissjóðina og þeirra fjármagns- tekjur? „Þessar tillögur hafa engin bein áhrif á ávöxtun eða fjármagnstekjur lífeyrissjóðanna þar sem þeir eru undanþegnir greiðslu fjár- magnstekjuskatts. Tillögur okkar um fjár- magnstekjuskatt ýta undir almennan sparnað, því fjármagnstekjur, allt að 100 þúsund, af smásparnaði verða skattfrjálsar. Tillögurnar þýða líka að þeir sem eru með gríðarlegar fjár- magnstekjur, tugi og hundruð milljóna, borga meira en nú. Það eru einstaklingar sem hafa 300 þúsund krónur í fjármagnstekjur á dag. Er óeðlilegt að tekið sé sama hlutfall af þeim tekjum og tekið er af endanlegum hagnaði fyr- irtækja? Ég segi nei og finnst að þessi hópur geti vel borgað 18%. Það er einfaldara að leggja flatan 10% fjármagnstekjuskatt á alla, en ef við eigum að velja á milli einfaldleikans og réttlæt- isins þá veljum við réttlætið.“ Blikur á lofti Steingrímur segist að sjálfsögðu vonast til þess að efnahagslíf þjóðarinnar verði blómlegt á næstu árum. Þrátt fyrir bjartsýnisspár sé slíkt ekki enn í hendi. „Af því að menn eru að vísa mikið á gróðann af væntanlegum stór- iðjuframkvæmdum þá vara ég mjög við því að stilla dæminu þannig upp að þar verði ein- göngu plúsar en engir mínusar. Hvar sem ég fer núna eru bullandi áhyggjur af rekstrarskil- yrðum og horfum hins almenna atvinnulífs, einkum útflutningsatvinnuveganna. Menn segja fullum fetum að það stefni hraðbyri í gjaldþrot og mikla erfiðleika hjá útflutnings- atvinnuvegunum. Þeir eiga að búa við þetta háa raungengi sem jafnvel er enn að hækka, ef til vill næstu fimm til sex ár. Auk þess gera menn ráð fyrir að keyrt verði á um það bil tvö prósent hærri vöxtum á þessu tímabili sem hefur gríð- arleg neikvæð áhrif á skuldsett atvinnulíf og heimili. Það er verið að kynda þetta ástand upp með því að skapa gríðarlegar væntingar í tengslum við stóriðjuframkvæmdir og innspýt- ingu fjármagns í hagkerfið, aukinn kvóta og annað í þeim dúr. Á sama tíma hlýtur það að blasa við hverjum manni að það hljóta að verða miklar þrengingar framundan vegna ruðn- ingsáhrifanna í hagkerfinu hjá útflutnings- greinunum, sjávarútvegi, ferðaþjónustu og út- flutningsiðnaði. Þar óttast ég að eigi eftir að verða miklir frádráttarliðir þannig að þegar upp er staðið verði ávinningurinn lítill eða eng- inn. Ég undrast alveg það andvaraleysi sem er í umræðunni um þetta. Vissulega hafa heyrst viðvörunarorð frá Seðlabanka og ýmsum hag- fræðingum, Hagfræðistofnun háskólans og slíkum. Nú er búið að leggja niður Þjóðhags- stofnun og gengur erfiðar að fá hlutlægar upp- lýsingar um þessi mál. Ég tek mikið mark á þeim fjölmörgu forystumönnum úr efnahags- málum og atvinnulífi sem tala við mig. Það er galli að fáir virðast þora að segja opinberlega það sem þeir eru tilbúnir að segja í einka- samtölum um áhyggjur sínar í þessum efnum.“ Umhverfismál í brennidepli Þið hafið lagt mikla áherslu á umhverfismál. Samkvæmt fyrrnefndri skoðanakönnun um málefni sem kjósendur setja á oddinn töldu ein- ungis 2,7% aðspurðra að umhverfis- og orku- mál réðu mestu um hvernig þeir verðu atkvæði sínu. Er fólk orðið leitt á umræðunni um um- hverfisvernd? „Ég held að þessi skoðanakönnun end- urspegli fyrst og fremst það sem búið var að vera í umræðunni áður en hún var gerð. Það voru skattamál og velferðarmál. Umhverf- ismálin höfðu svolítið þokast til hliðar eftir að umfjöllun Alþingis um Kárahnjúkavirkjun lauk og eftir að niðurstaða setts umhverfisráðherra lá fyrir varðandi Þjórsárver.“ Steingrímur segir að eðlilega leggi VG mikla áherslu á umhverfismál, enda sé flokkurinn „grænn“. Umhverfismálin verði áfram fyr- irferðarmikil í starfi flokksins, enda gríðarlega mikið framundan í þessum efnum. „Það eru virkjunaráform um nánast allt sem virkjanlegt er á hálendi Íslands. Á borðum eru glænýjar eða nýlegar áætlanir um virkjun Jök- ulsár á Fjöllum, í tveimur þrepum, gegnum Jökuldal og yfir í Lagarfljót. Fullvirkjun Skjálfandafljóts, bæði upp undir Vonarskarði og niðri við Ísólfsvatn. Jökulvötnin í Skagafirði. Háhitinn sunnan undir Vonarskarði og jafnvel í Vonarskarði sjálfu. Torfajökulssvæðið. Var ekki Landsvirkjun að reyna að komast þar í gang með tilraunaboranir á liðnu hausti í Hrafntinnuskeri – í Friðlandinu að Fjallabaki? Ég sagði í vetur að það væri eins og það væri þráhyggja hjá þessum mönnum að athafna sig helst í friðlöndum þegar þriðja friðlandið á skömmum tíma kom í umræðuna, Kringilsárr- ani, Þjórsárver og svo að Fjallabaki. Það er op- ið hús fyrir erlenda stóriðju, hvernig sem á að koma því öllu fyrir í viðbót við það sem er áformað. Það bíður hér stækkun í Straumsvík, Rússar eru á ferðinni og gríðarmikið fram- undan í þessum efnum. Einmitt þess vegna er mikilvægt að fólk haldi vöku sinni. Það er ekki þannig að þau mál, sem tekist var á um á kjör- Fólkið krefst breytinga Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, vill að velferðarstjórn taki við stjórnartaumum að loknum kosningum. Hann telur að góð útkoma VG í kosn- ingunum verði sterk skilaboð um að fólk vilji breytingar. Guðni Einarsson hitti Steingrím að máli. Alþingiskosningar 10. maí 2003
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.