Morgunblaðið - 27.04.2003, Qupperneq 16
„ÉG ER 35 ára gamall Skagamaður og ól
þar aldur minn á bernskuárum,“ segir
Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka,
aðspurður hver hann sé í raun og veru,
þessi ungi maður sem hafi verið svo áber-
andi í íslensku fjármálalífi í meira en ára-
tug. „Ég fór í Fjölbrautaskóla Vesturlands
og útskrifaðist þaðan 1987. Þá hóf ég nám í
tölvunarfræðum við Háskóla Íslands og þar
átti sér stað sú tilviljun að ég endaði í þess-
um fjármálageira, en í útskriftarferðalagi
með tölvunarfræðinemum hitti ég Pétur
Blöndal, sem bauð mér starf hjá Kaupþingi.
Ég hafnaði því reyndar í fyrstu en hann
hafði aftur samband ári síðar og þá sló ég
til og byrjaði að vinna hjá Kaupþingi í árs-
byrjun 1991. Síðan stofnaði ég fjölskyldu og
á nú eiginkonu og þrjú börn. Árið 1996 fór
ég í framhaldsnám til Sviss og meðan á því
stóð var mér boðið að taka við rekstri
Kaupþings, sem ég þáði. Haustið 1997 var
tekin ákvörðun um uppstokkun og samruna
fjárfestingalánasjóða í eigu ríkisins og þá
var mér boðið að koma þar inn í nýjan
banka sem fékk nafnið Fjárfestingarbanki
atvinnulífsins eða FBA. Ég fór með þeim
banka í gegnum einkavæðingu á árunum
1998 og 1999, og í framhaldi af því samein-
uðust FBA og Íslandsbanki árið 2000, þar
sem ég hef verið síðan.“
Með öðrum orðum hefur Bjarni verið for-
stjóri þriggja stórra fjármálafyrirtækja, en
hann segir að hann hafi ekki stefnt að þessu
lífshlaupi í æsku. „Ég held að þetta séu til-
viljanir. Upphaflega ætlaði ég bara að
stunda sjósókn og landbúnaðarstörf eins og
forfeðurnir og sá ekki fyrir mér þennan ak-
ur sem ég fór síðan inn á og sé í sjálfu sér
ekki eftir. Þetta hefur verið afskaplega
skemmtilegt tímabil á fjármálamarkaðnum.
Margt hefur gerst og flest af því hefur ver-
ið til góðs fyrir íslenskt samfélag. Ennþá er
mikil gróska og því tel ég að þetta verði
áfram spennandi starfsvettvangur.“
Tölvur frekar
en takkaskór
Skagamenn hafa oft skarað fram úr í
knattspyrnu og þeir hafa gjarnan átt bestu
knattspyrnumenn landsins. Þetta á líka við
um skólafélaga Bjarna, en hann fór ekki í
fótboltann eins og flestir hinir strákarnir,
heldur hélt sig mest heima á Steinsstöðum,
þar sem hann ólst upp, rétt utan við bæinn
á Akranesi. „Í fyrsta lagi var ég frekar
heimakær og kunni betur við störfin í sveit-
inni og umgengnina við dýrin en að sparka
fótbolta. Á fermingaraldri fékk ég svo heift-
arlega heilahimnubólgu og mátti ekki
stunda mikið líkamleg störf um skeið, en ég
jafnaði mig reyndar á þessu á nokkrum ár-
um. Auk þess var mikið að gera í ýmsum
áhugamálum. Þar á meðal dundaði ég svo-
lítið við saumaskap, sem þykir víst óvenju-
legt hjá drengjum, en það hefur reyndar lít-
ið farið fyrir honum í seinni tíð. Ég hef líka
lengi fengist við kartöflurækt og stunda
hana enn af kappi þegar tími gefst til. En á
unglingsárunum sneri ég mér í auknum
mæli að félagsstörfum, ræðumennsku, leik-
list og öðru í þeim dúr. Ég hafði alltaf gam-
an af stærðfræði og slíkum greinum og
1987 var mikið nýjabrum yfir tölvunarfræði.
Ég hef alltaf verið ófeiminn við að reyna
eitthvað nýtt, fannst tölvunarfræðin
heillandi og mér fannst þetta spennandi
vettvangur sem ég gæti tileinkað mér. Það
var sennilega helsta ástæða þess að ég datt
þar inn.“
Bjarni segir að eitt hafi tekið við af öðru
hjá sér og ekki sé hægt að tala um eðlileg-
an tröppugang í því sambandi auk þess sem
störfin hafi verið mjög ólík. „Maður er hluti
af ákveðinni þróun, reynir að hafa áhrif á
umhverfið og það hefur áhrif á mann. Ég er
auðvitað afskaplega þakklátur fyrir það
traust sem mér hefur verið sýnt á þessum
tíma. En starfssviðið hefur tekið meiri
breytingum en margan grunar og verður æ
flóknara. Fyrst og fremst hvað lýtur að
fjölda starfsstöðva, fjölda fólks og mismun-
andi persónuleikum með mismunandi þrár
og langanir. Í grunninn er maður alltaf að
eiga við fólk. Það er rauði þráðurinn í gegn-
um þetta allt saman, hvort sem um er að
ræða viðskiptavini, starfsmenn eða hluthafa.
Allir hafa sín markmið og starfið felst í því
að reyna að sjá hvar bökin snúa saman,
hvar snertifletirnir eru, hvernig hlutir, sem
gagnast einum, gagnast öðrum og svo fram-
vegis, þannig að skapa megi verðmæti.“
Fjölskyldan
mikilvægust
Vinnudagurinn er jafnan langur, en
Bjarni reynir að verja eins miklum tíma og
mögulegt er með eiginkonunni, Helgu
Sverrisdóttur hjúkrunarfræðingi, og börn-
um þeirra Tómasi, sem er átta ára, og fimm
ára gömlum tvíburum, Benedikt og Helgu
Guðrúnu. „Langi vinnudagurinn hefur hent-
að mér mjög vel. Hvort sem það var á eyr-
inni hjá Haraldi, til sjós, í landbún-
aðarstörfum eða í þessu
sem ég er að fást við
núna, því það þarf að
vinna vinnuna og ganga í
verkin. Hins vegar átta
ég mig á því eftir því sem
tíminn líður að það þarf
að gæta jafnvægis í öllum
hlutum og það verður æ
mikilvægara að gera sér
grein fyrir hvað það er
sem skiptir máli í lífinu,
en að sjálfsögðu er það
fjölskyldan og börnin.“
Bjarni segist leggja
áherslu á að reyna að
gera eitthvað með fjöl-
skyldunni sem er sam-
hliða skemmtilegt og
þroskandi. „Hvort sem
það er að ferðast og
skoða framandi hluti eða
gróðursetja plöntur, lesa
bækur, horfa á góðar
myndir eða einfaldlega
njóta samverustund-
anna.“
En áhugamálin eru
fleiri. „Vinnan hefur ver-
ið mikið áhugamál,
stjórnun og allt sem lýtur
að þessari þróun á fjár-
málamarkaði, en auk
þess hef ég alltaf haft
mjög gaman af fé-
lagsmálum. Ég hef verið
í framkvæmdastjórn
Verslunarráðsins í rúm
þrjú ár og haft mjög
gaman af þeirri vinnu.
Ég er formaður stjórnar
Velferðarsjóðs barna,
sem er málefni sem er
mér mjög hugleikið. Það
er mikilvægt með fram-
tíðina í huga og það lýsir
vel hverri þjóð hvernig
hún hlúir að börnum og
fjölskyldumálum.“ Bjarni
þykir líka góður söngvari
og syngur meðal annars
á nýjasta diski Bubba
Morthens. „Ég hef alltaf haft gaman af því
að syngja. Ég vann mikið á dráttarvélum
þegar ég var yngri, tætti kartöflugarða, sló
og svo framvegis og þá söng ég mikið, mest
dægurlög, en framlagið með Bubba var ekki
hugsað til að auka hróður minn sem lista-
manns enda fer ég með afar lítið hlutverk.“
Óhjákvæmilegt
að lækka kostnað
Bjarni segir að fjármálamarkaðurinn sé í
mjög örri þróun um þessar mundir. „Það er
ljóst að fyrirtækin sem á honum starfa leita
eftir því að stækka og bæta sig, hvort sem
er í þjónustu eða fagþekkingu. Það er jafn-
framt ljóst að kostnaður við íslenskt fjár-
málakerfi er mikill og óhjákvæmilegt að sí-
fellt sé leitað leiða til þess að lækka kostnað
og bæta samkeppnisstöðu.“
Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka
Fór óvænt
inn á akurinn
steg@mbl.is
16 SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HREIÐAR Már Sigurðsson tók við starfi for-
stjóra Kaupþings banka fyrir rúmum mánuði af
Sigurði Einarssyni, starfandi stjórnarformanni
Kaupþings. Hreiðar er yngsti bankastjórinn á
Íslandi, 32 ára að aldri, fæddur 19. nóvember
1970.
Hreiðar ólst upp í Stykkishólmi en hann er
sonur hjónanna Sigurðar Arnórs Hreiðarssonar
skipstjóra og Grétu Sigurðardóttur skrifstofu-
manns.
Hreiðar útskrifaðist með stúdentspróf frá
Verzlunarskóla Íslands árið 1990 og útskrifaðist
frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands 1994.
Á háskólaárunum sat hann í stjórn Vöku, var
í fyrstu stjórn Viðskiptafræðistofnunar og var
fulltrúi nemenda á deildar- og skorarfundum.
Hreiðar er kvæntur Önnu Lísu Sigurjóns-
dóttur grunnskólakennara og saman eiga þau
tvö börn, Arnór ellefu ára og Hildi fjögurra ára.
Hreiðar hóf störf í Kaupþingi daginn eftir síð-
asta prófið í viðskiptafræði-
deildinni og hefur starfað
þar allar götur síðan.
„Í upphafi var ég ráðinn á
eignastýringarsvið og bar
ábyrgð á rekstri lífeyris- og
hlutabréfasjóða sem Kaup-
þing hafði umsjón með
ásamt Bjarna Ármanns-
syni, sem var forstöðumað-
ur sviðsins á þeim tíma.“
Hreiðar var ráðinn for-
stöðumaður eignastýring-
arsviðs 1996, staðgengill
forstjóra 1997 og aðstoð-
arforstjóri 1998. Hann hef-
ur setið í stjórn Bonus Stor-
es Inc. og Vífilfells hf. ásamt
fjölda dótturfyrirtækja
Kaupþings.
„Fyrri hluta árs 2000
flutti ég ásamt fjölskyldu
minni til New York og bar
ábyrgð á rekstri Kaupthing
New York þar til við flutt-
um aftur heim í árslok
2001.“
Einkavæðing löngu tímabær
Nýverið lauk einkavæð-
ingarferli Landsbankans og
Búnaðarbankans og er ríkið
því komið út úr rekstri við-
skiptabanka á Íslandi.
Hreiðar segir að einka-
væðing bankanna hafi verið
löngu tímabær og hafi
greinilega mikil áhrif á þró-
un íslensks fjármálamark-
aðar. „Við megum búast við
meiri samkeppni og snarp-
ari fyrirtækjum í kjölfarið.
Einkavæðingin hefði mátt
eiga sér stað fyrr en raun
varð á en á móti má segja að
hlutirnir hafi gengið hratt
fyrir sig síðastliðið ár. Jafn-
framt er það gleðiefni hve
vasklega hefur verið gengið
í átt til hagræðingar á fjár-
magnsmarkaði í kjölfar
einkavæðingarinnar. Með
einkavæðingu ríkisbankanna hefur verið lagður
grunnur að hagræðingu í bankakerfinu sem er
forsenda fyrir lækkun vaxtamunar og þjónustu-
gjalda til handa neytendum,“ segir Hreiðar.
Frekari sameining innanlands ólíkleg
Mikið hefur verið rætt um frekari samein-
ingu á bankamarkaði og þá einna helst um sam-
iningu Íslandsbanka og Landsbanka. Á Norð-
urlöndum hafa að undanförnu átt sér stað
sameiningar á bankamarkaði og nýverið var
haft eftir framkvæmdastjóra Nordea, Lars G.
Nordström, í danska blaðinu Börsen, að Nordea
hefði hug á að kaupa smærri og meðalstóra
banka í Danmörku. Nordea er stærsti banki á
Norðurlöndum að markaðsvirði en næstur hon-
um er Danske Bank
Hreiðar segist telja ólíklegt að við eigum eftir
að sjá fleiri stórar sameiningar innlendra banka
í ljósi úrskurðar Samkeppnisstofnunar vegna
samruna Landsbanka og Búnaðarbanka, sem
fyrirhugaður var. „Líklegast er að þær þrjár
stóru einingar sem eru nú að myndast á banka-
markaðnum muni heyja harða samkeppni á inn-
lendum markaði í framtíðinni. Mesta óvissan er
um framtíð sparisjóðanna, en ekki er óhugsandi
að viðskiptabankarnir muni leita eftir samein-
ingu við þá á einhverjum tímapunkti. Það má
síðan gera ráð fyrir að íslensku bankarnir muni
fyrst og fremst sjá vaxtartækifæri utan Íslands
og að þar muni sameiningar og yfirtökur líta
dagsins ljós. Hins vegar tel ég ekki að erlendir
bankar muni setja upp starfsstöðvar hér á landi
sökum smæðar markaðarins, en þeir munu hins
vegar koma að stærri fjármögnunarverkefnum
eins og þeir hafa gert hingað til,“ segir Hreiðar.
Eignaraðild – kjölfesta eða dreifð?
Hvað segir þú um eignaraðild að fjármálafyr-
irtækjum. Er betra að hafa kjölfestufjárfesti
eða á eignaraðildin að vera dreifð?
„Við hjá Kaupþingi höfum lengi verið þeirrar
skoðunar að óþarft sé að setja lög um dreifða
eignaraðild að fjármálafyrirtækjum. Það má
færa fyrir því rök að líklegast muni nokkrir
hluthafar mynda kjölfestu í bönkunum en eign-
araðild verði að öðru leyti dreifð. Það er mjög
athyglisvert að sjá hversu hratt Búnaðarbanki
og Landsbanki hafa gengið í átt til hagræðingar
og sameiningar í kjölfar nýafstaðinnar einka-
væðingar og helstu ástæðuna fyrir því tel ég
vera tilkomu sterkra kjölfestufjárfesta í bönk-
unum. Kjölfestufjárfestar sem eiga mikla fjár-
hagslega hagsmuni undir velgengni bankanna
eru líklegir til að leggja mikla áherslu á aðhalds-
semi í rekstri og metnaðarfullar arðsem-
iskröfur,“ segir Hreiðar Már.
Ný kynslóð bankastjóra
Eftir að Sigurjón Þ. Árnason var ráðinn
bankastjóri Landsbankans eru þrír; þú, Bjarni
Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, og Sig-
urjón, af fimm bankastjórum viðskiptabank-
anna á fertugsaldri, sem telja má ungan aldur í
starfi sem þessu. Eru að eiga sér stað kyn-
slóðaskipti í íslenskum bankaheimi?
„Það vekur oft athygli útlendinga sem hingað
koma hversu ungt fólk er í stjórnunarstöðum í
fjármálastofnunum landsins. Þetta má vænt-
anlega rekja til þess hversu ungur fjármagns-
markaðurinn er. Einnig held ég að ástæðuna sé
að finna í auknum erlendum samskiptum og því
hversu margt ungt fólk hefur starfað og mennt-
að sig erlendis.
Fjármagnsmarkaðurinn hefur tekið mjög
miklum breytingum á undanförnum misserum
og ég held að munurinn á áherslum nú og áður
snúi einkum að erlendri starfsemi og meiri
áherslu á hagkvæmni í rekstri. Hlutabréfa-
markaðurinn hefur gert það að verkum að mun
meiri þrýstingur er á fyrirtækjastjórnendur að
skila arðsemi til hluthafa og í kjölfar frjálsra
fjármagnsflutninga milli landa hafa skapast
vaxtarskilyrði utan Íslands. Í öllu tali um breyt-
ingar vegna nýrrar kynslóðar fyrirtækjastjórn-
enda má ekki gleyma því að stjórnendur í dag
njóta verka þeirrar kynslóðar sem á undan fór,
sem jók frjálsræði í viðskiptum, kom á öflugri
löggjöf á fjármagnsmarkaði og færði okkur
EES-samninginn,“ segir Hreiðar.
Kynntust í Vöku
Hvernig hafa leiðir ykkar þriggja legið sam-
an?
„Ég kynntist Sigurjóni og Bjarna fyrst þegar
ég hóf nám í Háskólanum en þar voru þeir í for-
svari fyrir Vöku og Stúdentaráð. Við unnum all-
ir töluvert saman í undirbúningi fyrir kosningar
til stúdentaráðs árið 1991. Ég held að við höfum
allir haft mjög gaman af starfinu í Vöku og lært
margt af því, árangur okkar varð þó ekki betri
en svo að Vaka tapaði kosningunum eftir
margra ára sigurgöngu. Eftir tapið þetta ár
tókst Vöku ekki að vinna sigur á ný fyrr en á
þessu ári eða eftir ellefu ósigra í röð. Eftir út-
skrift úr viðskiptafræðinni hóf ég störf í Kaup-
þingi og var Bjarni yfirmaður minn og raunar
nánasti samstarfsmaður allt þar til hann hóf
störf sem forstjóri hins nýstofnaða Fjárfesting-
arbanka atvinnulífsins,“ segir Hreiðar Már Sig-
urðsson að lokum.
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings banka
Harðnandi
samkeppni
„Líklegast
er að þær
þrjár stóru
einingar
sem eru nú
að myndast á banka-
markaðnum muni heyja
harða samkeppni á inn-
lendum markaði í fram-
tíðinni.“
guna@mbl.is
„Þetta hefur verið af-
skaplega skemmtilegt
tímabil á fjármálamark-
aðnum. Margt hefur
gerst og flest af því
hefur verið til góðs fyr-
ir íslenskt samfélag.“