Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
GRENSÁSDEILD Landspítala
Háskólasjúkrahúss á Grensási hefur
starfað í þrjátíu ár um þessar mund-
ir. Með sameiningu Sjúkrahúss
Reykjavíkur í Fossvogi og Land-
spítalans við Hringbraut, var end-
urhæfing sjúkrahúsanna sameinuð
undir eitt svið, endurhæfingarsvið.
Þar starfa læknar, hjúkrunarfræð-
ingar, sjúkraliðar, sjúkraþjálfar,
iðjuþjálfar, talmeinafræðingar, fé-
lagsráðgjafar, sálfræðingar, prest-
ar, þroskaþjálfar, ritarar og ófag-
lært starfsfólk eða 240 manns.
Endurhæfingarsvið starfar á
fimm stöðum, við Hringbraut, í
Fossvogi, á Landakoti, í Kópavogi
og á Grensási, þar sem legudeildirn-
ar eru til húsa. Deildin sinnir fyrst
og fremst frumendurhæfingu og í
einstaka tilfellum langtíma endur-
hæfingu.
„Á Grensás eru tvær legudeildir
þar sem áhersla er lögð á endurhæf-
ingu sjúklinga með flókin líkamleg
vandamál,“ segir Þórdís Ingólfs-
dóttir sviðsstjóri hjúkrunar á end-
urhæfingarsviði. „Þetta eru sjúk-
lingar, sem þurfa mikla umönnun og
markvissa meðferð sérstaklega í
byrjun. Ein mesta ánægjan í starf-
inu er að fylgjast með sjúklingnum
ná aukinni færni og hvernig hann
aðlagast oft á tíðum mjög breyttum
aðstæðum í lífi og starfi.“
Þórdís segir að markmiðið sé að
sjúklingurinn nái á ný eins góðri lík-
amlegri, andlegri og félagslegri
færni og unnt er. „Meðferðin felur í
sér að öll þau úrræði, sem miða að
því að draga úr áhrifum sjúkdóms-
ins og/eða fötlunarinnar og þeim
hindrunum sem hún veldur,“ segir
hún. „Jafnframt þau úrræði sem
gera einstaklingunum kleift að vera
virkir þjóðfélagsþegnar.“
Flestir sjúklinganna koma inn á
deildina af bráðadeildum spítalans.
„Þetta er fjölbreyttur hópur og á öll-
um aldri allt frá 13 ára en það heyrir
reyndar til undantekninga,“ segir
Þórdís. „Hingað koma margir með
mænuskaða enda er endurhæfingar-
deildin á Grensási eina deildin á
landinu sem sinnir frumendurhæf-
ingu mænuskaðaðra. Á síðustu ár-
um hefur meðferð mænuskaðaðra
sjúklinga tekið miklum framförum.
Þeir koma yfirleitt á deildina um tíu
dögum eftir slys og byrja fljótlega
meðferðina. Undanfarin ár hafa
tveir til fjórir mænuskaðaðir sjúk-
lingar komið til okkar á ári að með-
altali og þá aðallega eftir slys en
einnig eftir veikindi. En frá því í
haust höfum við fengið til okkar tíu
sjúklinga með mænuskaða. Á
Grensás koma einnig þeir sem hlotið
hafa fjöláverka eftir bílslys, þeir
sem hafa misst fætur, heilaskaðaðir
og sjúklingar með taugasjúkdóma
en í þeim hópi eru þeir fjölmennastir
sem fengið hafa heilablóðfall.“
Heim sem fyrst
Meðallegutími sjúklinga á
Grensásdeildunum tveimur var 16,5
dagar árið 2002 en það sem af er
þessu ári er hann 19,2 dagar. Legu-
tíminn getur þó verið allt upp í sex
til tólf mánuðir. Báðar deildirnar
Markviss með-
ferð frá byrjun
Þórdís Ingólfsdóttir sviðsstjóri hjúkrunar á endurhæfingarsviði.
Áslaug Sigurjónsdóttir og Guðrún Þorsteinsdóttir sjúkraliði, færa Henry Olsen yfir í „Bláa lónið“, en það
er sérstakur búnaður sem gripið er til þegar baða þarf sjúklinga.
Sjúkraliðarnir Kristbjörg Fríða Sigurgísladóttir og Þórhildur Jakobsdóttir nota sérstakan lyftu-
búnað þegar Sigurrós M. Sigurðardóttir er færð úr hjólastólnum yfir í rúm.
Gunnar Páll Ívarsson við tölvuna hjá talmeinafræðingunum en innan talmeina-
þjónustunnar fer fram þjálfun í tjáskiptum, bæði munnlegum og skriflegum.
Sem dæmi má nefna að mikið er unnið á forrit, sem varð til í norrænu sam-
starfsverkefni, ARNIT. Hlutverk þess er að auðvelda einstaklingum með mál-
stol aðgang að netpósti og vefsíðum.
Tæp 20 ár eru síðan sundlaug Grensásdeildar var tekin í notkun og er hún ómetanleg þegar kemur að endurhæfingu.
Endurhæfingarsvið Landspítalans,
Grensásdeild, er þrjátíu ára um þessar mundir.
Kristín Gunnarsdóttir heimsótti deildina ásamt
Kjartani Þorbjörnssyni, ljósmyndara.
Endurhæfingarsvið Landspítalans, Grensásdeild, 30 ára