Morgunblaðið - 27.04.2003, Side 30

Morgunblaðið - 27.04.2003, Side 30
LISTIR 30 SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ                         !  ! "    !   $% &%   ' ( % )% &   &  Frönskunámskeið innritun 22. apríl til 2. maí Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Taltímar og einkatímar. Námskeið fyrir börn. Stuðningsnámskeið fyrir skólafólk. FRANSKA FYRIR FERÐAMENN (10 tíma hraðnámskeið) Hringbraut 121 - JL-húsið, 107 Reykjavík, fax 562 3820 Veffang: http://af.ismennt.is Netfang: af@ismennt.is Innritun í síma 552 3870 Námskeiðin hefjast 5. maí. Símon Z. Bahraoui, 30 ára, sölufulltrúi Ég hef farið á þrjú námskeið og er alltaf jafn ánægður. Andrúmsloftið í hópunum hefur verið létt og hvetjandi. Það er gott að vera hluti af samstilltum hóp með svipuð markmið. Oddur Ólafsson, 45 ára, lögreglumaður Námskeiðin eru frábær leið til að koma sér af stað í líkams- þjálfunina. Síðan ég byrjaði í Hreyfingu er ég búinn að léttast um 27 kíló og hef gert þjálfunina af föstum lið í mínu lífi. Egill Örn Einarsson, 32 ára, deildarstjóri Frábær félagsskapur, kraftmikil og markviss þjálfun og góður árangur er það sem mér finnst lýsa námskeiðunum í Hreyfingu best. Góð leið til að koma sér aftur af stað eftir nokkurt hlé. ÍSLENDINGAR eru eina þjóðin á Vesturlöndum – Evrópu og Norður- Ameríku – sem fer á mis við listtíma- rit og fylgist þar af leiðandi takmark- að með því sem gerist á sviði sam- tímalistar. Reyndar á það jafnframt við um allar aðrar listir en bókmennt- ir. Á tímum þegar útgáfa íslenskra tímarita margfaldast bólar ekki á list í þeirri flóru. Fyrir utan hvers kyns búksorgir, kryddaðar léttu klámi, eða leiðbeiningum um líkamsrækt – svo almennir lesendur geti skammast sín ögn meir fyrir kropp sinn og ástand hans – margfaldast sá vemmilegi neð- anmálsgrautur sem beinist að þekkt- um einstaklingum úr þjóðlífinu og einkalífi þeirra. Reynt er að koma lesendum upp í ból með þeim, eða á kamarinn, svo þeir geti sem best kannað á þeim göt- in og kynnt sér með hverjum viðkom- andi var að skemmta sér, bera upp að altarinu, barna eða skilja við. Áhugi okkar Íslendinga á náunganum virð- ast engin takmörk sett. Við verðum að vita hvað hann étur, hvað hann getur, hvað hann heldur, hvað hann geldur og síðast en ekki síst, hverjum hann er skyldur, tengdur og mægður. Allur er þessi áhugi í öfugu hlutfalli við löngun okkar til að vita eitthvað um raunverulegan gang tilverunnar. Áberandi skortur á íslenskum tíma- ritum um menningu og listir er skýr- asti votturinn um áhugaleysi okkar á raunhæfum málefnum. Svo er að sjá sem við væntum einskis af upplýsingu, málefnum né umræðu. Hannes Lárusson myndlist- armaður telur í Lesbók Morgun- blaðsins, 12. apríl, að umræða sé hald- lítil því hún trufli listamenn frá vinnu sinni. Séu þeir á „púlsinum“, eins og hann kallar það, upplifi þeir og hugsi það sama og hinir og því sé umræða óþörf. Séu þeir á öndverðum meiði telur hann hættu á að þeir lendi upp á kant við skoðanir og viðhorf allra hinna. Vera má að Hannes þekki sálarlíf kollega sinna svo vel að hann hafi hér lög að mæla. En mikið vantar þá upp á sálartetur íslenskra listamanna ef þeir eru; í fyrsta lagi, allir að upplifa og hugsa það sama og aðrir; í öðru lagi, þora ekki að lenda öndvert við það sem „allir hinir eru að segja og flestir vilja heyra“, svo notuð séu orð Hannesar. Ég fæ ekki betur séð en með þessu sé hann að segja okkur les- endum að íslenskir listamenn séu upp til hópa persónulausir aumingjar. Þeir hugsi allir eins en þori þó ekki að tjá það af ótta við að vera öðruvísi en aðrir. Er það ef til vill þess vegna sem Hannes telur sig tala fyrir munn þeirra þegar hann ræðst á borgaryf- irvöld og eigendur Safnsins, hins ný- stofnaða samtímalistasafns við Laugaveginn? Hannesi er svo mikið niðri fyrir að það mætti halda að hér væri á ferðinni jafnalvarlegt fjár- hagsáfall fyrir íslenskt listalíf og sjálft fölsunarmálið. En svo þegar upphæðin er nefnd sem fara á til rekstur væntanlegs safns næstu fimm árin, eða hvað það nú er, hlýtur maður að spyrja sig hvar Hannes hafi alið manninn að undanförnu; Tim- búktú eða kannski í fátækrahverfum Kalkútta? Húseign í götunni hvar undirritaður býr fór á talsvert hærri upphæð en Reykjavíkurborg ætlar til reksturs Safnsins, og hefur sú hús- eign þó ekkert til að bera sem líkst gæti listasafni Rögnu Róbertsdóttur og Péturs Arasonar, hvorki að inn- taki, eflingu menningar né tekju- möguleikum. Hamagangur Hannesar upplýsir lesendur þó rækilega um það hvers vegna hvorki gengur né rekur í upp- byggingarmálum myndlistar á Ís- landi. Í staðinn fyrir að nýta sér ný- legt samkomulag Reykjavíkurborgar og aðstandenda Safnsins, Laugavegi 37, sem hvata til að sækja fram á öðr- um brýnum sviðum myndlistar, og sækja jafnframt um ferskt og aukið fjármagn til þeirra framkvæmda, sér Hannes ofsjónum yfir upphæðinni sem um var samið við Safnið, og lætur að því liggja að hægt væri að reka alla íslenska myndlist fyrir þann pening. Hann hljómar eins og útigangsmaður í bráðakasti sem ímyndar sér að kog- araglasið sem hann sér í umferð sé eina fáanlega áfengið á svæðinu. Þannig afhendir þessi endemisbósi vopnin í hendur þeim sem eru himin- lifandi yfir því hve litlu vöggur verður feginn. Mikið hljóta yfirvöld að vera ánægð með íslenska myndlist svo ódýra á fóðrum sem hún er, og mikið hljóta þau að vera ánægð með varð- hundinn Hannes sem alltaf geltir að þeim sem fá úthlutað hungurlúsinni. Með spangólinu fullvissar hann þau um að meira þurfi ekki að fleygja í fagið, þetta léttvægasta hundabúr ís- lenskrar menningar. En fyrir okkur hin sem dreymir um að lyfta innlendu myndlistarlífi af sjálfsþurftarlegu amatörplaninu og skjóta undir það faglegum stoðum svo það megi verða barn í brók – við- urkennd og öflug atvinnugrein eins og annars staðar á Vesturlöndum – er það dragbítur að þurfa að druslast með þennan sítálgandi og sígapandi dúllara í farteskinu; alltaf reiðubúinn að falbjóða sig fjendum sínum ef það mætti verða til að bregða fæti fyrir ímyndaða keppinauta, hverra vel- gengni ætlar hann lifandi að æra. Fyrir bráðræði hans og upphlaup geldur hugmyndin um Reykjavík sem mögulegt menningarlegt að- dráttarafl og þar með íslensk mynd- list eins og hún leggur sig. Hið gagnsæja gól Ljósmynd/Halldór Björn Ilya Kabakov, þekktasti myndlistarmaður Rússa, gengur frá sýningu í hús- næðinu Laugavegi 37, þar sem Safn, einkasafn Rögnu Róbertsdóttur og Péturs Arasonar, verður opnað á komandi mánuðum. eftir Halldór Björn Runólfsson KOLBRÚN Lilja Antonsdóttir hef- ur opnað sýningu á verkum sínum á Kaffi Kúltúr, Garðatorgi, Garðabæ. Þar gefur að líta 15 nýjar vatnslita- myndir og eru þær allar til sölu. Kolbrún Lilja lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1972 og frá grafíkdeild árið 1975. Einnig stundaði hún nám á Ítalíu árið 1982 í De Belle Arti Roma. Vatnslitamynd- ir í Garðabæ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.