Morgunblaðið - 27.04.2003, Page 39
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 39
Um er að ræða 143,6 fm raðhús, þar af er bílskúr 18,6 fm. 3 góð
svefnherbergi, rúmgóð stofa, bílskúrinn er með vatni, hita og raf-
magni. Halldóra tekur á móti ykkur með bros á vör í dag á milli
kl. 14 og 16. Áhv. ca 7,7 millj. Verð aðeins 16,9 millj.
OPIÐ HÚS Í DAG
Álfhólsvegur 137b
Skúlagata 17, Rvík 595 9000
Hlíðasmári 15, Kóp. 595 9090
holl@holl.is • www.holl.is
Opið virka daga kl. 9-18, laugard. kl. 12-14.
Um er að ræða 158,6 fm íbúð á 2. hæðum, 5 stór svenherbergi
stofa og sjónvarpshol, parket á gólfum, glæsilegar innréttingar,
baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Þetta er eign í sérflokki .Ekki
skemmir útsýnið. áhv ca 8 millj verð 17,4 millj. Kristín og Hilmar
taka á móti ykkur í dag á milli kl 14 og 16.
OPIÐ HÚS Í DAG
Fífulind 13
Flétturimi 4, íbúð 0301
Opið hús í dag frá kl. 15-17
Glæsileg 4ra herbergja 114 fm íbúð á 3. hæð ásamt stæði í bílskýli. Húsið er nýlega viðgert og mál-
að að utan. Vandaðar innréttingar og gólfefni. Rúmgóðar stofur, stórar sólríkar svalir, verðlaunagarð-
ur og örstutt í alla þjónustu. Verð 14,8 m. Áhv. 3,0 m. 6084. Áhugasamir velkomnir frá kl. 15-17 í
dag, bjalla 301.
Nánari upplýsingar
á skrifstofu
í síma 588 4477
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði Glæsilegt 240 fm raðh. á
þessum frábæra stað. Mikið
endurnýjuð eign í tappstandi.
100 fm timburverönd í garði.
Sjón er sögu ríkari. Verð 27,5
millj.
Ingólfur og Inga Brá bjóða
gesti velkomna
Magnús Emilsson löggiltur fasteignasala
Bollagarðar - Seltjnesi endaraðhús
Opið hús í dag frá 14-17
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteignasali,
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali, Unnar Smári Ingimundarson, viðskiptafr. og lögg. fasteignasali
Njálsgata 30
Opið hús frá kl. 14-16
Fallegt og mikið endurnýjað járn-
klætt einbýlishús sem er kjallari,
hæð og ris. Á aðalhæð eru forst., 2
samliggjandi stofur auk borðstofu
og eldhúss, uppi eru hol og 3 svefn-
herbergi og í kjallara er sér 2ja herb.
íbúð auk þvottaherbergis. Falleg
viðarborð á gólfum. Húseign í góðu
ástandi. Afgirtur bakgarður með
timburskjólveggjum mót suðri. Góð
staðsetning miðsvæðis í Reykjavík.
Áhv. húsbr./lífsj. 10,4 millj. Verð 18,5 millj.
Húsið er til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16. Verið velkomin.
FASTEIGNASALA
HÁTÚNI 6a
SÍMI 512 1212 FAX 512 1213
Glæsilegt 164 fm raðhús á tveimur
hæðum á þessum vinsæla stað í
Árbænum. Séríbúð á jarðhæð
sem er ekki inn í heildarfmtölunni.
Glæsilegt eldhús með kirsuberja-
innréttingu, gaseldavél og must-
angflísum á gólfi. Stórar svalir.
Stutt í alla þjónustu. Björn og
Laufey taka vel á móti væntan-
legum kaupendum frá kl. 13:30–
15:00 í dag. Verð 23,5 millj.
VIÐARÁS 3
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 13-15
OPIÐ HÚS - Tómasarhagi 42
Heimilisfang: Tómasarhagi 42
Stærð eignar: 102 fm
Bílskúr: 0 fm
Byggingarár: 1955
Brunabótamat: 10 millj.
Áhvílandi: 8 millj.
Verð: 15,2 millj.
Til sölu falleg 3 herbergja íbúð á þriðju
hæð (risi) í fjórbýli með útsýni yfir
Ægisíðuna. Stofa og herbergi parketlögð
en forstofa og baðherbergi með flísum.
Fallegur garður og stutt er á gott
leiksvæði.
Guðrún Elín, fasteignamiðlari
RE/MAX, tekur á móti gestum
frá kl. 16-18
Guðrún Elín Guðlaugsdóttir,
Símar 820 9508/590 9508
gudrune@remax.is Hrafnhildur Bridde lögg. fasteignasali
MÁLEFNI aldraðra eru ávallt
mikilvæg og hagur aldraðs fólks í
samfélaginu sífellt til umræðu. Tals-
menn aldraðra hafa lyft grettistaki
og vil ég sérstaklega nefna Ólaf
Ólafsson, fv. landlækni, sem verið
hefur vakinn og sofinn yfir velferð
aldraðs fólks. Nauðsynlegt er að
meta hag þessa þjóðfélagshóps og
rétta af þær skekkjur sem eru á færi
ríkisvalds og Alþingis. Samstarfs-
hópur um málefni aldraðra var skip-
aður af ríkisstjórninni sl. haust og
skilaði tillögum í desember 2002. Þar
var komizt að samkomulagi um
breytingar á almannatryggingalög-
um og endurskoðun á lífeyris-
greiðslum er komi til framkvæmda á
næstu árum. Einnig var fjallað um
uppbyggingu hjúkrunarheimila,
styttingu biðlista og eflingu á heima-
þjónustu fyrir aldraða því æskilegt
er að fólk geti verið heima hjá sér
svo lengi sem það getur og vill. Sam-
komulagi af þessu tagi ber að fagna.
Miklu skiptir að vinna saman, eyða
tortryggni og ná sameiginlegri nið-
urstöðu.
Hvað ungur nemur
gamall temur
Fólk sem komið er á efri ár er eins
misjafnt og það er margt, því hvað
ungur nemur, gamall temur. Lengi
býr að fyrstu gerð. Margir halda því
fram að mótun manns eigi sér fyrst
og fremst stað á fyrstu fimm æviár-
unum. Sá sem elst upp við ást og ör-
yggi er líklegri til að verða ham-
ingjusamur á fullorðinsárum.
Útivera, hollt mataræði og hreyfing,
svo og áhugamál fólks hafa einnig
mikil áhrif á það hvernig gengur að
vinna úr því sem að höndum ber á
lífsleiðinni, svo ekki sé minnst á
kímnigáfuna. Hún, eins og kynþokk-
inn, á uppruna sinn í heilabúinu og
fyrnist ekki þótt líði á ævikvöldið.
Hvort tveggja lengir lífið og gerir
það mun skemmtilegra hvað sem
annars kann að henda.
Í komandi kosningum leggja
stjórnmálamenn verk sín í dóm kjós-
enda. Við sjálfstæðismenn óskum
eftir að vera metin að verðleikum.
Heilbrigðisáætlun
Í heilbrigðisáætlun sem Alþingi
samþykkti vorið 2001 og gildir til
ársins 2010 eru m.a. eftirfarandi
markmið hvað varðar eldra fólk:
Yfir 75% íbúa yfir 80 ára geti verið
heima með viðeigandi stuðningi og
tekið virkan þátt í daglegu lífi.
Bið eftir vistun á hjúkrunarheimili
í mjög brýnni þörf verði ekki meiri
en 90 dagar.
Ríkið mun því verja 150 mKr til
viðbótar á næstu þremur árum til
að efla heimaþjónustu við aldraða,
auk þess verður 170 mKr varið til
þess að fjölga dagvistarrýmum og
auka framboð á rýmum fyrir
hvíldarinnlagnir.
Það er ekki sama hverjir stjórna
og það vita engir betur en aldraðir
sem muna tímana tvenna! Stöðug-
leiki og traust eru lykilatriði og það
veit aldrað fólk. Kaupmáttur hefur
aukist á hverju ári á síðustu níu ár-
um og er það einsdæmi hjá okkar
litlu þjóð.
Vel þarf að búa að mannfólkinu á
öllum stigum lífsins. Kynslóðir þurfa
að rækta samband sín á milli svo
börn fái að umgangast þá sem elstir
eru. Verum meðvituð um það hve já-
kvætt það er og öllum kynslóðum til
góðs að eiga samneyti. Slíkt eflir
skilning okkar hvert á öðru.
Sjálfstæðisflokkurinn vill að ríkis-
valdið beri áfram ábyrgð á fjármögn-
un heilbrigðisþjónustu þótt eftirláta
eigi einkaaðilum rekstur hennar í
völdum tilvikum. Þannig má nýta
kosti þess að hafa öfluga velferðar-
þjónustu á Íslandi en jafnframt
virkja einstaklingsframtakið til góðs.
Segja má að framtíðin sé björt fyr-
ir aldrað fólk á Íslandi, einkum ef
rétt er á haldið.
…ef rétt er á
haldið
Eftir Katrínu
Fjeldsted
„Miklu
skiptir að
vinna sam-
an, eyða tor-
tryggni og
ná sameiginlegri nið-
urstöðu.“
Höfundur er alþingismaður fyrir
Sjálfstæðisflokkinn.