Morgunblaðið - 27.04.2003, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 53
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Afmælisbörn dagsins eru
óvenjulega hugrökk og for-
vitin. Þau eru einnig sögð
staðföst og áreiðanleg. Af
þeim sökum eru þau
vinamörg.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert í skapi til þess að eyða
tíma með fólki og skemmta
þér. Þessi dagur hentar sér-
staklega vel til þess.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nú er hugsanlega rétti tím-
inn til þess að kynnast nýj-
um hlutum, fara á sýningar,
söfn eða listviðburði. Margir
vilja hins vegar eyða tíma
með fjölskyldu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Nú skiptir máli að rækta vin-
skap við vini eða tengsl við
ættingja. Hittu fólk og
njóttu dagsins með því.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Nú kann að vera rétti tíminn
til þess að sinna fjármálum,
fjárfestingum eða ýta undir
feril þinn í starfi.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú hefur mikinn áhuga á
framandi löndum og mikla
þörf til þess að ferðast. Enn-
fremur kæmi menntun í öðru
landi til greina.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú hyggst huga að fjár-
málum þínum næstu daga.
Að minnsta kosti hefur þú í
hyggju að fá lán, veð eða
koma reglu á fjármál þín
með einhverjum hætti.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Nú er kjörið tækifæri til
þess að kynna nána vini þína
hvorn fyrir öðrum. Samræð-
ur við maka ganga ein-
staklega vel um þessar
mundir.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú hefur þörf fyrir að ræða
áhyggjur þínar við einhvern
en skalt varast að gera það
við hvern sem er.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Afmælisbörn hafa í hyggju
að njóta dagsins til afþrey-
ingar eða samskipta við vini.
Rómantík er til staðar og
samskipti við annað fólk
ganga vel fyrir sig.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Einhver sem er þér náinn
gefur þér hlut sem er fyrir
heimilið eða fjölskyldu þína.
Þú telur næstu daga henta
vel til þess að afla fjármuna
fyrir ákveðið verkefni sem
þú hefur í undirbúningi.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert í skapi til að kynnast
nýju fólki og sjá hvað það
leiðir af sér. Hafðu samt all-
an vara á þér við fyrstu
kynni.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú sérð tækifæri framundan
í fjárfestingum sem tengjast
ferðalögum, listum eða af-
þreyingu. Nú ríður á hvort
þú vilt grípa tækifærið.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
VORKVEÐJA
Ég veit þú ert komin, vorsól.
Vertu ekki að fela þig.
Gæstu nú inn um gluggann.
Í guðs bænum kysstu mig.
Þeir eru svo fáir aðrir,
sem una sér hjá mér.
Já, vertu nú hlý og viðkvæm.
Þú veizt ekki, hvernig fer.
- - -
Jóhann Gunnar Sigurðsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
70 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 27.
apríl, er sjötug Helga Jóna
Guðjónsdóttir. Hún tekur á
móti gestum á heimili sínu,
Þúfubarði 10, Hafnarfirði,
kl. 16 á afmælisdaginn.
EINN feitasti biti Ís-
landsmótsins er þessi
grandslemma úr fimmtu um-
ferð:
Norður
♠ Á82
♥ ÁG7
♦ 9543
♣D109
Vestur Austur
♠ 10 ♠ G9753
♥ K10643 ♥ D85
♦ 7 ♦ D1086
♣G87653 ♣4
Suður
♠ KD64
♥ 92
♦ ÁKG2
♣ÁK2
Slemma var spiluð á 8
borðum af 10, ýmist sex tígl-
ar eða sex grönd. Báðar
slemmurnar eru slæmar, en
tígulslemman heldur skárri.
Hún vinnst ef austur á Dx
eða Dxx í trompi, en líkur á
því eru tæplega 34%. Í sex
gröndum þarf fleira gott að
gerast – spaðinn að falla,
hjartað að skila aukaslag og/
eða einhvers konar þvingun.
Sex sagnhafar fengu makleg
málagjöld og fóru niður, en
sex grönd unnust á tveimur
borðum. Þar voru á ferð
Karlar tveir, annar Sig-
urhjartarson og hinn Al-
freðsson. Hvorugur fékk þó
út hjarta.
Karl Sigurhjartarson og
sonur hans Snorri spila í
sveit Skeljungs. Þeir urðu
efstir í svokölluðum „butler“
reikningi mótsins, þar sem
árangur para er borinn sam-
an í öllum leikjum. Spilið
kom upp í töfluleik Skelj-
ungs og Íslenskra að-
alverktaka. Sævar Þor-
björnsson og Matthías
Þorvaldsson voru í AV. Sæv-
ar kom út með lauf, sem Karl
tók heima og spilaði strax
hjartaníu! Þetta er nettur
millileikur, sem ekkert kost-
ar. Sævar lét smátt hjarta og
nían dró fram drottningu
Matthíasar. Þar með hafði
Karl byggt upp möguleika á
hjartaslag ef með þurfti. Og
það reyndist full þörf á þeim
slag. Karl kannaði litina,
svínaði tígulgosa og svo
hjartagosa þegar legan
sýndi sig. Í lokastöðunni var
austri um megn að valda
bæði spaðann og tígulinn og
Karl fékk síðasta slaginn
með þvingun. Hjartanían var
því tveggja slaga virði.
Aðrir feðgar, Alfreð Vikt-
orsson og Karl Alfreðsson af
Skaganum, spiluðu sex
grönd gegn Subaru-
mönnunum Þorláki Jónssyni
og Sverri Ármannssyni. Þor-
lákur kom líka út með lauf og
Karl Alfreðsson fór fyrst í
tígulinn og sá þar leguna.
Spilaði svo hjartaníu og lét
hana fara.
Vissulega gátu bæði Sæv-
ar og Þorlákur hnekkt
slemmunni með því að leggja
tíuna á níuna, en það er ekk-
ert sjálfgefið í þeim efnum.
Sagnhafi gæti til dæmis ver-
ið að þreifa fyrir sér með
D98x.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, s. 588 5711 og 694 6103
SUMARNÁMSKEIÐ Í YOGA MAÍ OG JÚNÍ
Líkamsæfingar, öndunaræfingar, slökun og hugleiðsla
Morgun-, hádegis-, síðdegis- og kvöldtímar.
Sértímar fyrir barnshafandi konur
Verð 9.500 – Því ekki að prófa!
MORGUNVERÐARFUNDUR
LÝÐHEILSA OG
SAMFÉLAGSHEILL
ÞRIÐJUDAGINN 29. APRÍL 2003
Á HÓTEL SÖGU SUNNUSAL KL. 8:00-10:00
8:00-8:25 Skráning.
8:25-8:30 Geir Gunnlaugsson, formaður Félags um lýðheilsu:
Morgunverðarfundurinn settur.
8:30-9:05 Finn Kamper-Jörgensen, forstjóri Dönsku
lýðheilsustofnunarinnar:
Lýðheilsa og samfélag - Pólitísk þýðing lýðheilsu í Evrópu
og í alþjóðlegu samhengi.
9:05-9:15 Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra:
Lýðheilsa og samfélagsheill.
9:15-9:25 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri og
frambjóðandi til Alþingis: Lýðheilsa og samfélagsheill.
9:25-10:00 Umræður með þátttöku stjórnmálamannanna
og allra viðstaddra.
Morgunverðarfundurinn er opinn öllu áhugafólki um lýðheilsu!
Þátttökugjald kr. 1.800 greiðist við komu og er morgunverður innifalinn.
Skráning er á lydheilsa@strik.is. Skráning er æskileg og auðveldar
undirbúning en einnig er hægt að koma og skrá sig á sjálfum fundinum.
Stjórn Félags um lýðheilsu.
Lithimnulestur
Með David Calvillo
fimmtudag og
föstudag
Lithimnulestur er gömul fræðigrein þar sem
upplýsingar um heilsufar, mataræði og
bætiefni eru lesnar úr lithimnu augans.
Á fimmtudag og föstudag mun David Calvillo
vera með lithimnulestur í Heilsubúðinni, Góð
heilsa gulli betri. Njálsgötu 1, uppl. og tímapantanir í s:561-5250.
OFANGREIND orð eru í
málfræði kölluð aftur-
beygt fornafn. Þetta for-
nafn (fn) er ekki til í nefni-
falli (nf) og er eins í öllu
kynjum og báðum tölum,
svo sem segir í málfræði-
bókum. Notkun þessa for-
nafns, ekki sízt þolfallsins
sig, getur í ákveðnum til-
vikum verið nokkuð
vandasöm, enda tek ég eft-
ir, að menn fara ekki alltaf
rétt með það í máli sínu.
Verður það því til umræðu
að þessu sinni. Aftur-
beygða fornafnið vísar aft-
ur til þriðju persónu (t.d.
fornafns eða nafnorðs).
Dæmi: Maðurinn talar um
sig, Stúlkan flýtti sér
heim. Mennirnir nutu sín
ekki. Hér rugla menn
þessu fornafni oft saman
við 3. persónufornafnið
hann. Tökum dæmið um
manninn og setjum fn.
hann í staðinn. Hann talar
um sig. Ef við setjum hann
í stað sig og segjum: Mað-
urinn talar um hann, hlýt-
ur hann að vera að tala um
annan en sjálfan sig, þ.e.
einhvern þriðja mann. Hér
kemur svo nýlegt dæmi,
sem ég rakst á í DV 7. þ.
m.: Jóhann Ársælsson
upplýsti þar að honum
(feitletrað hér) hefði ekki
komið til hugar fyrr en í
vetur að o.s.frv. Hér hefði
átt að segja og skrifa: að
sér hefði ekki komið til
hugar, enda er Jóhann að
tala um sjálfan sig, en ekki
einhvern þriðja mann.
Annað dæmi: Hann sagði,
að honum hefði ekki dottið
betra ráð í hug. Eftir
orðanna hljóðan hljóta
menn að skilja þetta sem
svo, að hann væri að tala
um annan mann en sjálfan
sig. Svo mun samt ekki
vera, því að hann mun hafa
átt við sjálfan sig. Þá hefði
átt að segja: Hann sagði,
að sér hefði ekki dottið
betra ráð í hug. Þá var
ekki um að villast, við
hvern átt var. Ég vona, að
þessi dæmi séu öllum auð-
skilin. – J.A.J.
ORÐABÓKIN
Sig – sér – sín
1. c4 c6 2. d4 d5 3. Bf4 dxc4
4. e3 Be6 5. Rf3 Rf6 6. Re5
Rd5 7. Bg3 b5 8. Be2 f6 9.
Rf3 Rd7 10. O-O Bf7 11. a4
a6 12. e4 R5b6 13. Rc3 e6 14.
d5 cxd5 15. exd5 exd5 16. a5
Rc8 17. He1 Be7 18. Rxd5
Ha7 19. Rxe7 Rxe7 20. Dd4
Hb7 21. Rh4 Re5 22. Bxe5
fxe5 23. Dxe5 O-O 24. Bf3
Hd7 25. Bg4 Rc6 26. Dc5
Hd4 27. Rf5 Hxg4 28. Dxc6
Hf4 29. Re7+ Kh8 30. Dxa6
Dd2 31. Db6 Bh5 32. De3
Dxb2 33. a6 Hxf2 34. Dh3
Dd4 35. De3
Staðan kom upp á danska
meistaramótinu sem er ný-
lokið í Horsens. Sune Berg
Hansen (2537) hafði svart
gegn Karsten Rasmussen
(2423). 35...Hf1+! 36. Hxf1
Dxe3+ 37. Kh1 Hxf1+ 38.
Hxf1 Dxe7 39. a7 Bf3 og
hvítur gafst upp. Lokastaða
mótsins varð þessi: 1. Peter
Heine Nielsen (2625) 7 vinn-
inga af 9 mögulegum. 2. Da-
vor Palo (2483) 6½ v. 3. Ni-
colai Vesterbaek Pedersen
(2508) 5½ v. 4.-5. Lars
Schandorff (2563) og Sune
Berg Hansen (2537) 5 v. 6.
Jens Ove Fries-Nielsen
(2448) 4½ v. 7. Karsten
Rasmussen (2423) 4 v. 8.
Erling Mortensen (2453) 3½
v. 9. Steffen Pedersen
(2443) 3 v. 10. Carsten Hoi
(2406) 1 v.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
MEÐ MORGUNKAFFINU
Hann sparkaði í sjálfsala sem gaf ekki til baka!
Teppi á stigaganga
Ármúla 23, sími 533 5060