Morgunblaðið - 27.04.2003, Blaðsíða 55
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 55
áfram Ísland
xd.is
Sjálfstæ›isfélögin í Reykjavík eru me› opnar kosningaskrifstofur um allan bæ.
Skrifstofurnar eru opnar frá kl. 17.00 til 21.00.
Kosningaskrifstofan, Austurstræti - Sími 551 0919
Kosningaskrifstofan, Hjar›arhaga 47 - Sími 551 1306
Kosningaskrifstofan, Miklubraut 68 - Sími 561 1500
Kosningaskrifstofan, Glæsibæ - Sími 553 1559
Kosningaskrifstofan, Hraunbæ 102b - Sími 567 4011
Kosningaskrifstofan, Álfabakka 14a - Sími 557 2576
Kosningaskrifstofan, Hverafold 1-3 - Sími 557 2631
Kíktu í kaffi og spjall vi› frambjó›endur.
Allir velkomnir.
Komdu í heimsókn
Gu›laugur fiór
fiór›arson
Katrín Fjeldsted Helga
Gu›mundsdóttir
Pétur H. Blöndal Sólveig G.
Pétursdóttir
Birgir
Ármannsson
Lára Margrét
Ragnarsdóttir
Gu›rún Inga
Ingólfsdóttirr
Vilhjálmur fi.
Vilhjálmsson
Kolbrún
Baldursdóttir
Helga Árnadóttir
Frambjó›endur Sjálfstæ›isflokksins í Reykjavík
Björn Bjarnason
Geir H. Haarde
Daví› OddssonSigur›ur Kári
Kristjánsson
Ásta Möller Ingvi Hrafn
Óskarsson
Soffía Kristín
fiór›ardóttir
Vernhar›
Gu›nason
Lilja StefánsdóttirGu›mundur
Hallvar›sson
Au›ur Björk
Gu›mundsdóttir
Vilborg Anna
Árnadóttir
Jóna Lárusdóttir
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 39.962
M.v. hjón með 2 börn, vikuferð, flug,
gisting, skattar.
Verð kr. 49.950
M.v. 2 í íbúð, vikuferð, 14. maí, flug,
gisting, skattar.
Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800.
Heimsferðir bjóða nú síðustu sætin til Benidorm þann 14. maí á
einstökum kjörum. Þú bókar núna flug og gistingu, í eina eða
tvær vikur og 3 dögum fyrir brottför segjum við þér hvar þú
gistir. Benidorm er einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga á
Spáni og hér nýtur þú sumarsins til hins ítrasta við frábæran
aðbúnað í sólinni.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Stökktu til
Benidorm
14. maí
frá kr. 39.962
Háteigskirkja. Eldri borgarar. Fé-
lagsvist á morgun í Setrinu kl. 13.
Árbæjarkirkja. Æskulýðsfélagið
Lúkas með fund í safnaðarheimilinu
kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Mánudagur:
Kl. 13-15.30 opið hús fyrir fullorðna
í safnaðarheimili kirkjunnar. Spilað,
fræðst, kaffi og spjall. Bænastund
kl. 15.15 í kirkjunni. Fyrirbænaefn-
um má koma til djákna í síma
557 3280. Þeir sem óska eftir
akstri láti vita í sama síma fyrir há-
degi á mánudögum. Stúlknastarf fyr-
ir 11-12 ára kl. 17-18. Æskulýðs-
starf fyrir 8.-10. bekk á mánu-
dagskvöldum kl. 20.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl.
20. Tekið er við bænarefnum alla
virka daga frá kl. 9-17 í síma
587 9070.
Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir 9.
og 10. bekk kl. 20.
Seljakirkja. Mánudagur: KFUK fund-
ur fyrir stelpur 9-12 ára kl. 17.15 í
kirkjunni. Fjölbreytt fundarefni. Allar
stelpur velkomnar.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Mánudagur:
Unglingar 16 ára og eldri kl. 20-22.
Vídalínskirkja. Fjölbreytt æskulýðs-
starf fyrir 9-12 ára drengi í safnaðar-
heimilinu Kirkjuhvoli kl. 17.30-
18.30 í umsjón KFUM.
Lágafellskirkja. Sunnudagaskólinn
kl. 13 í safnaðarheimili kirkjunnar
að Þverholti 3, 3. hæð. Allir vel-
komnir. Mánudagur: Al-Anon fundur í
kirkjunni kl. 21. Bænahópur á
mánudagskvöldum í Lágafellskirkju
kl. 20.
Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld
sunnudag kl. 19.30.
Krossinn. Almenn samkoma að
Hlíðasmára 5 kl. 16.30. Allir vel-
komnir.
Fríkirkjan KEFAS, Vatnsendabletti
601. Samkoma kl. 14. Ræðumaður
Helga R. Ármannsdóttir. Lofgjörð og
fyrirbænir. Tvískipt barnastarf fyrir
1-5 ára og 6-12 ára börn á sama
tíma. Kaffi og samfélag eftir sam-
komu. Allir hjartanlega velkomnir.
Safnaðarstarf
BOÐIÐ er til kyrrðardaga í Skál-
holti um næstu helgi, 2.–4. maí.
Dagskráin hefst á föstudags-
kvöldið um sexleytið og lýkur um
hádegisbil á sunnudegi. Hins vegar
gefst þátttakendum kostur á að
koma þegar á fimmtudeginum,
sem er almennur frídagur, og
njóta dvalarinnar í kyrrðinni í
Skálholti án þess að um sérstaka
dagskrá sé að ræða. Á fimmtu-
dagskvöldið er boðið upp á mið-
aldakvöldverð en hann er byggður
upp á mataruppskriftum frá mið-
öldum.
Segja má að stef þessara kyrrð-
ardaga sé æðruleysi enda eru þeir
tengdir tólf spora starfinu sem fer
fram í mörgum söfnuðum landsins.
Hins vegar eru allir velkomnir til
kyrrðardaganna hvort sem þeir
hafa kynnst tólf spora vinnunni
eða ekki. Séra Jakob Ágúst Hjálm-
arsson annast leiðsögn en umsjón
með kyrrðardögunum hafa að
vanda rektorshjónin í Skálholti,
Rannveig Sigurbjörnsdóttir og
Bernharður Guðmundsson.
Á kyrrðardögum er farið í hvarf,
fólk dregur sig í hlé frá áreiti hins
vanabundna daglega lífs og nýtur
andlegrar og líkamlegrar hvíldar.
Kyrrðin sem skapast af hinni hlýju
þögn sem ríkir á kyrrðardögunum,
gefur tækifæri til að takast á við
þær spurningar sem oftast sitja á
hakanum í erli dagsins, til að mæta
sjálfum sér og Guði.
Þetta verða síðustu kyrrðardag-
arnir í vor, fyrir utan kyrrðardaga
hjóna sem verða um miðjan maí.
Vegna mikillar umferðar ferða-
manna um sumartímann, er óger-
legt að bjóða til kyrrðardaga í
Skálholti þá mánuði en starfið
hefst aftur með haustinu og verða
kyrrðardagar hálfsmánaðarlega
frá ágústlokum.
Kyrrðardagarnir tengdir tólf
spora starfinu verða sem fyrr segir
haldnir í Skálholti dagana 2.–4.
maí. Nánari upplýsingar og skrán-
ing er í Skálholtsskóla, sími 486
8870, netfang skoli@skalholt.is.
Svövusjóður styður þá til þátttöku
sem þess þurfa. Öllum er velkomið
að nýta þetta tækifæri til and-
legrar og líkamlegrar uppbygg-
ingar.
Síðasta Tómasar-
messan að sinni
ÁHUGAHÓPUR um svokallaðar
Tómasarmessur efnir til fjórðu
messunnar á þessu ári í Breiðholts-
kirkju í Mjódd í kvöld, sunnudag-
inn 27. apríl, kl. 20.
Tómasarmessan hefur vakið
mikla ánægju þeirra sem þátt hafa
tekið og virðist hafa unnið sér fast-
an sess í kirkjulífi borgarinnar, en
slík messa hefur verið haldin í
Breiðholtskirkju í Mjódd síðasta
sunnudag í mánuði, frá hausti til
vors, síðustu fimm árin. Verður
þetta því síðasta Tómasarmessan
að sinni, en þær hefjast síðan vænt-
anlega að nýju í haust. Það er
a.m.k. von okkar, sem að Tómasar-
messunni stöndum, að hún megi
áfram sem hingað til verða mörg-
um til blessunar og starfi íslensku
kirkjunnar til eflingar.
Messan einkennist af fjölbreyti-
legum söng og tónlist og sömuleið-
is af virkri þátttöku leikmanna.
Framkvæmdaaðilar að þessu
messuhaldi eru Breiðholtskirkja,
Kristilega skólahreyfingin, Félag
guðfræðinema og hópur presta og
djákna.
Kyrrðardagar
tengdir tólf
spora vinnu