Morgunblaðið - 27.04.2003, Síða 60
60 SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 10.10. B.i. 12.Sýnd kl. 6 og 10.10. B.i. 16.
HILARY SWANK
AARON ECKHART
DELROY LINDO
STANLEY TUCCI
kl. 8. B.i. 12.
KRINGLANÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. / Sýnd kl. 2, 4 og 6. / Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8.
ÁLFABAKKI / AKUREYRI / KEFLAVÍK
Radio X
Kvikmyndir.is
HL MBL
Kvikmyndir.is ÓHT Rás 2
Óskarsverðlaun Besti leikari í
aukahlutverki Chris Cooper
Sýnd kl. 4. ísl. tal.Sýnd kl. 3,50. Tiboð 500 kr.
Fyrst var það Mr Bean.
Nú er það Johnny English.
Grín og fjör alla leið.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 5.30, 8.30 og 10. B.i.14 ára.
SV MBL
HK DV
SG Rás 2
Radio X
ÞÞ Frétta-
blaðið
Radíó X
H.K. DV
1/2 HL Mbl
Kvikmyndir.is
1/2 Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 10.05. B.i. 14.
Mögnuð hrollvekja
frá Stephen King
sem engin má missa af!
Sýnd kl. 4, 6 og 8.
Kvikmyndir.com
HJ MBL ÓHT RÁS 2
Radio X
3
Besti leikari
í
aðalhlutverk
Adrien Brody
Besti
leikstjóri
Roman
Polanski
Besta
handritÓSKARS-
VERÐLAUN
Sýnd kl. 6.
Kvikmyndahátíðin
Reykjavík Shorts & Docs
hefst 30 apríl.
Sýnd kl. 5 og 8. Sýnd kl. 8.
Radio X
Kvikmyndir.is
ÍUPPHAFI má segja að hip-hop hafi aðallega veriðskemmtitónlist þótt inn ámilli hafi verið listamenn sem
fléttuðu trega saman við taktinn.
Ákveðinn vendipunktur í hiphop-
sögunni var sveitin Public Enemy
sem beitti tónlistinni sem pólitísku
eggvopni, skar á kýli kynþáttahat-
urs og aldagamallar kúgunar.
Skyndilega var hiphop ekki bara
skemmtun heldur tónlist sem skipti
máli, vettvangur þjóðfélagsgagnrýni
og róttækni og einnig vegsömun of-
beldis og kynlífs, svonefnt bófarapp.
Tilefni er til að velta fyrir sér bóf-
arappinu í kjölfar þess að nýlega
voru helstu skífur NWA endur-
útgefnar og einnig fyrstu fjórar
plötur Ice Cube. Fyrsta plata NWA
var reyndar ekki mikil bófarapps-
kífa þótt þar væri að finna ýmis til-
brigði við það, yfirleitt kímin.
Næsta plata, Straight outta Comp-
ton, sem kom út 1988, var aftur á
móti gríðarlega umdeild og áhrifa-
mikil plata sem er sannkallað tíma-
mótaverk. Mestar deilur spunnust í
kringum lagið Fuck tha Police þar
sem þeir félagar sögðu frá við-
skiptum sínum við lögreglumenn í
Los Angeles sem voru samkvæmt
lýsingunni uppfullir af kynþátta-
hatri og fasískum kvalalosta. Lög-
reglumenn um gervöll Bandaríkin
tóku lagið óstinnt upp, nema hvað,
og mótmæli þeirra og fjölmargra
íhaldssamra frammámanna vest-
anhafs kynntu plötuna svo rækilega
að hún náði milljónasölu og NWA
varð vinsælasta rappsveit Banda-
ríkjanna.
Straight outta Compton var ein-
mitt endurútgefin um daginn með
fjórum aukalögum, lengri útgáfum
af Straight Outta Compton og Ex-
press Yourself og tveimur sjald-
heyrðum lögum, Bonus Beats og A
Bitch Iz a Bitch sem gerir hana enn
eigulegri. Menn gæti þó að því að
kaupa ekki þá útgáfu sem búið er að
hreinsa allt dónalegt af, en hana má
meðal annars þekkja á því að lyk-
illagið Fuck tha Police er ekki á
henni(!).
Plötufyrirtæki
fyrir fíkniefnagróða
Eric „Eazy-E“ Wright stofnaði
plötufyrirtækið Ruthless Records
fyrir fíkniefnagróða og síðan Niggaz
With Attitude með þeim Andre „Dr.
Dre“ Young, O’Shea „Ice Cube“
Jackson, Antoine „DJ Yella “ Car-
raby og DOC en síðar slóst Lorenzo
„MC Ren“ Patterson í hópinn. Þeir
Dre og Ice Cube voru hæfi-
leikamennirnir í sveitinni þegar
textar og tónlist voru annars vegar,
en Eazy-E sá aftur á móti um við-
skiptahliðina með lögmanninn Jerry
Heller sér við hlið, en Heller var
umboðsmaður NWA. Í ljósi þess að
þeir Ice Cube og Dr. Dre voru aðal-
höfundar tónlistarinnar sem gerði
NWA lands- og síðar heimsfræga
kemur ekki á óvart að þeir hafi vilj-
að fá stærri sneið af kökunni en
þeim var skömmtuð. Svo fór að Ice
Cube hætti með látum árið eftir að
Straight Outta Compton kom út og
eftir það má segja að lítið hafi verið
spunnið í sveitina. Næsta skífa á
eftir Straight Outta Compton, stutt-
skífan 100 Miles and Runnin’, var
þó þokkaleg, en á henni veitist Dr.
Dre að Cube fyrir að hafa hætt og
kallar hann Benedict Arnold
(bandarískur föðurlandssvikari).
Niggaz4life sem kom út 1991 var
þó þokkaleg skífa, ef ekki fyrir ann-
að er útsetningar Dr. Dre, en hann
hætti ekki löngu eftir að sú skífa
kom út, fór að vinna með öðrum
fyrrverandi fíkniefnasala, Marion
„Suge“ Knight, en sagan segir að
hann hafi losað Dr. Dre undan
samningi sínum við Ruthless með
því að hóta Heller lífláti.
Meiri pólitík og hvassari
Segja má að NWA og Public
Enemy hafi verið algjörar and-
stæður því á meðan síðarnefnda
sveitin barðist fyrir pólitískri vakn-
ingu meðal blökkumanna og sam-
eiginlegu átaki til að brjóta hlekki
kynþáttakúgunar og fáfræði voru
NWA menn á kafi í lífsnautna-
hyggju, kvenfyrirlitningu og kæru-
leysislegu ofbeldi. Það þótti því saga
til næsta bæjar þegar Ice Cube leit-
aði til Bomb Squad, upptökugengis
Public Enemy, að taka upp með sér
plötu. Sú plata, AmeriKKKa’s Most
Wanted, var og er hreint afbragð,
ekki bara framúrskarandi útsetn-
ingar heldur einnig frábærar rímur
vel fluttar. Textarnir eru beittari en
forðum, meiri pólitík og hvassari og
minna um óbeislaðan hedónismann
sem einkenndi fyrstu NWA skíf-
urnar. Sama ár kom svo út önnur
plata, stuttskífan Kill at Will, en
lögin sjö af henni eru aukalög á end-
urútgáfu AmeriKKKa’s Most Wan-
ted sem gerir þá frábæru plötu enn
betri.
Helsta einkenni AmeriKKKa’s
Most Wanted var grimmileg heift
hans og brennandi reiði, en á næstu
skífu, Death Certificate, er hann
ekki bara að blása út, heldur hefst
platan þar sem hann segir að
ríkjandi sé neyðarástand meðal
blökkumanna og á skífunni séu tvær
hliðar, dauðahliðin, sem segi frá því
hvernig málum sé háttað þegar skíf-
an kemur út og lífhliðin sem segi
hvert eigi að stefna. Annað einkenni
textanna er áhrif frá músl-
imahreyfingunni Nation of Islam
sem boðaði meðal annars að hvítir
menn væru djöflar, en einnig birtist
á skífunni hatur á gyðingum, snar
þáttur í kenningum Nation of Islam,
og einnig fá Bandaríkjamenn af kór-
eskum uppruna og japönskum til te-
vatnsins. Meðal krassandi laga á
skífunni eru tvö sem voru ekki á út-
gáfum Death Certificate sem feng-
ust hér á landi á sínum tíma, Black
Korea og No Vaseline, bæði svo
harkaleg að þeim var sleppt af
bresku útgáfunni sem fékkst hér á
landi, en í seinna laginu veitist Cube
mjög harkalega að fyrrum félögum
sínum í NWA og Jerry Heller, svar
við Benedict Arnold-skeytinu. Á
endurútgáfu af plötunni er lagið
How To Survive In South Central
sem var í kvikmyndinni.
Vonleysi og vantrú
Death Certificate kom út 1991 og
þegar óeirðirnar vegna Rodney
King málsins blossuðu upp vorið
1992 kom glöggt í ljós hve forspár
Cube hafði verið og átti sinn þátt í
því hvað skífan The Predator seldist
vel, en mestu réð þó að á henni var
vinsælasta lag Cubes til þessa, It
Was a Good Day. Þrátt fyrir létt yf-
irbragð þess og jákvæðni á yf-
irborðinu er grunnstef lagsins og
plötunnar allrar þó vonleysi og
vantrú á að hægt verði að bæta að-
stöðu litra íbúa Los Angeles og
Bandaríkjanna almennt.
Síðasta platan í endurútgáfu-
pakkanum sem hér er gerður að
umtalsefni, er Lethal Injection sem
kom út 1993. Um það leyti var Cube
kominn á kaf í bíómyndir sem leik-
ari, handritshöfundur og leikstjóri
og hafði ekki tíma fyrir hiphopið
lengur. Fyrir vikið var óvenju lítið
spunnið í skífuna miðað við fyrri
verk, reiðin virkaði eins og uppgerð
og hann hafði litlu við það að bæta
sem þegar hafði verið sagt. Það liðu
líka fimm ár þar til hann tók upp
þráðinn í tónlistinni að nýju, en ekki
má gleyma laginu Natural Born Kil-
laz sem Cube gerði með Dr. Dre
1993, vissulega sögulegar sættir
sem áttu að leiða til breiðskífunnar
Helter Skelter sem kom aldrei út.
Grimmileg
heift og brenn-
andi reiði
Fyrstu fjórar plötur Ice Cube hafa verið endurútgefnar.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson