Morgunblaðið - 11.05.2003, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KJÖRSÓKN MEIRI
Kjörsókn var nokkru meiri í al-
þingiskosningunum á hádegi í gær
en hún mældist á sama tíma í kosn-
ingunum 1999. Um 212 þúsund
manns eru á kjörskrá og þúsundir
ungmenna eru að kjósa í fyrsta sinn.
Rætt um jarðvarmavirkjun
Landsvirkjun hefur sent Skipu-
lagsstofnun skýrslu þar sem lýst er
áætlun um 90 MW jarðvarmavirkjun
í áföngum við Bjarnarflag í Mý-
vatnssveit. Líklegt er að úrskurður
Skipulagsstofnunar muni liggja fyrir
í haust.
Vilja hefja viðræður á ný
Sýrlendingar segjast reiðubúnir
að hefja aftur friðarviðræður við Ísr-
aela. Hinir síðarnefndu sögðust fyrr
í vikunni vilja hefja aftur samninga
en þjóðirnar deila einkum um yf-
irráð Gólanhæða. Colin Powell, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna, hélt
í gær til Mið-Austurlanda til að ýta
undir friðarviðræður Ísraela og Pal-
estínumanna.
WHO skortir upplýsingar
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin,
WHO, segir að vegna skorts á upp-
lýsingum um útbreiðslu bráða-
lungnabólgunnar, HABL, í Peking
sé nær útilokað að gera sér grein
fyrir því hvernig hún smitist milli
manna. Yfir 200 manns hafa nú látist
í Kína úr sjúkdómnum og álíka
margir í Hong Kong.
Fimm stungnir með hnífi
Fimm manns voru stungnir með
hnífi í íbúð í Mosfellsbæ í gærmorg-
un. Þeir voru allir fluttir á sjúkrahús
en mismikið særðir að sögn lög-
reglu, enginn lífshættulega. Mála-
vextir voru óljósir er síðast fréttist
en grunaður einstaklingur var flutt-
ur á lögreglustöð.
Skortur á sumarstörfum
Allt bendir til þess að ekki verði
hægt að útvega nær 1.200 náms-
mönnum sumarvinnu í Reykjavík, að
sögn Vinnumiðlunar skólafólks í
Hinu húsinu. Umsóknarfrestur rann
út um mánaðamótin en um 1.400
störf eru í boði. Staðan er sögð svip-
uð og í fyrra en að þessu sinni rann
fresturinn út mánuði fyrr til að auð-
veldara væri að meta stöðuna.
Sunnudagur
11. maí 2003
atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð
mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 8,4196 Innlit16.2961 Flettingar 69.700 Heimild: Samræmd vefmæling
Rennismiður óskast
Maður vanur rennismíði óskast til starfa
sem fyrst hjá rótgrónu fyrirtæki í Rvík.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl.
eða á box@mbl.is, merktar: „R — 13669.“
Störf í grunnskólum
Reykjavíkur
skólaárið 2003—2004
Borgaskóli, sími 577 2900
Almenn kennsla á miðstigi.
Breiðholtsskóli, sími 557 3000
Dönskukennsla. Tónmenntakennsla. Matráður.
Engjaskóli, sími 510 1300
Smíðakennsla. Almenn kennsla á yngra stigi.
Foldaskóli, sími 567 2222
Almenn kennsla á yngsta stigi. Almenn kennsla
á miðstigi. Almenn kennsla á unglingastigi,
kennslugreinar danska, íslenska og stærðfræði.
Matráður í mötuneyti skólans.
Skólaliðar/starfsfólk í eldhúsi, þrjár stöður.
Þroskaþjálfi, 85% staða.
Grandaskóli, sími 561 1400
Umsjónarmaður með mötuneyti nemenda.
Hamraskóli, símar 567 6300, 895 9468
og 895 5766
Íþróttakennsla. Raungreinakennsla á unglinga-
stigi. Tæknimennt - smíðar. Kennari og
þroskaþjálfi í sérdeild fyrir einhverf börn.
Æskilegt að viðkomandi hafi þekkingu á ein-
hverfu og reynslu af vinnu með einhverfum
börnum.
Hólabrekkuskóli, sími 557 4466
Almenn kennsla á yngra stigi.
Ingunnarskóli, sími 585 0400
Umsjónarmaður skóladagvistar, hlutastarf.
Klébergsskóli, sími 566 6083 og 863
4266
Almenn kennsla á yngsta stigi og miðstigi.
Tæknimennt. Stærðfræðikennsla. Tungumála-
kennsla. Heimilisfræðikennsla. Tónmennta-
kennsla.
Rimaskóli, símar 567 6464 og 897 9491
Almenn kennsla á unglingastigi, kennslugrein-
ar danska og samfélagsfræði.
Sérkennsla á unglingastigi.
Þroskaþjálfi til að annast nemendur á yngsta
stigi með miklar sérþarfir.
Seljaskóli, sími 557 7411
Tónmenntakennsla. Skólaliðar.
Ölduselsskóli, sími 557 5522
Heimilisfræðikennsla.
Upplýsingar veita skólastjórar og aðstoðar-
skólastjórar í viðkomandi skólum. Umsóknir
ber að senda til skóla. Laun skv. kjarasamning-
um Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttar-
félög.
Nánari upplýsingar um laus störf, umsóknar-
frest og grunnskóla Reykjavíkur er að finna
á netinu undir www.grunnskolar.is .
Leikskólinn Naustatjörn við
Hólmatún á Akureyri, sem tekur
til starfa þann 18. ágúst, óskar
eftir að ráða í eftirtaldar stöður:
Leikskólakennarar. Aðstoðarleikskólastjóri
100% starf. 3 stöður 100%, leikskólakenn-
arar með deildarstjórn. Einnig er óskað eftir
almennum leikskólakennurum.
Eldhús. Ein staða matráður, 100% staða.
Ein staða aðstoð í eldhúsi, 100% staða.
Upplýsingar veita: Jónína Hauksdóttir
skólastjóri í síma 462 3676 og Hrafnhildur
G. Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
í síma 460 1452.
Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu
Akureyrarbæjar http://www.akureyri.is
Akureyrarbær • Geislagötu 9 • 600 Akureyri
Sími 460 1000 • Fax 460 1001 • www.akureyri.is
„Ef fiskurinn
væri ferskari …“
Völundur Snær Völundarson ólst upp á bökk-
um Laxár í Aðaldal. Hann er lærður kokkur og
hefur farið víða um heiminn. Ragnhildur Sverr-
isdóttir hafði uppi á honum á Bahama-eyjum,
þar sem hann rekur eigin veitingastað og eldar
wahoo og mahi-mahi. / 2
Ljósmynd/Hreinn Hreinsson
Sunnudagur
11. maí 2003
Umboðsmenn og söluaðilar um land allt. Nánari upplýsingar er að finna á www.ok.is eða í síma 570 1000= allt er framkvæmanlegt
*S
am
kv
æ
m
tI
D
C
er
u
hp
co
m
pa
q
m
es
ts
el
du
tö
lv
ur
na
rí
he
im
iá
rið
20
00
,2
00
1
og
20
02
.
A
B
X
90
30
31
4
Tíminn líður hratt. Það er ekki víst að þú vitir hvar þú verður árið
2006 – en hp compaq tölvan þín verður enn í ábyrgð. Stöðug
þróun og auknir notkunarmöguleikar kalla á vandaðri tölvur til að
þjóna notandanum af öryggi og stöðugleika. Sérfræðingar HP eru
haldnir fullkomnunaráráttu. Fullvissa þeirra um hraða, öryggi og
gæði skilar sér til þín í þriggja ára ábyrgð.
Kynntu þér málið og tryggðu þér eintak af mest seldu tölvu í heimi.*
ferðalögBerlínsælkerarLeon BeyerbörnMæðradagurinn magnaðibíóSumarmyndir
„Eldsálir“ í Færeyjum
Tónlistarbyltingin í Götu
Í fjörunni
finnast bæði
líf og sögur,
jafnvel Íslend-
ingasögur
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Þjónusta 47
Hugsað upphátt 16 Myndasögur 48
Listir 28/35 Bréf 48/49
Af listum 26 Dagbók 50/51
Forystugrein 32 Krossgáta 52
Reykjavíkurbréf 32 Leikhús 54
Skoðun 34/35 Fólk 54/61
Umræðan 36/39 Bíó 58/61
Minningar 40/45 Sjónvarp 62
Hugvekja 47 Veður 63
* * *
FJÖLMARGIR landsmenn tóku daginn snemma og mættu á kjörstað fyrir
hádegi í gær. Algengt var að börn kæmu með foreldrum sínum eins og
þessi ungi drengur sem mætti á hjólinu sínu í Hagaskóla. Þótt smáfólkið
þurfi reyndar að bíða í nokkur ár eftir kosningarétti er upplagt að mæta á
kjörstað og kynna sér hvernig alþingiskosningarnar fara fram.
Morgunblaðið/RAX
Ungir sem aldnir
á kjörstað
LEIÐBEINENDUM í skólum hef-
ur farið fækkandi á undanförnum
árum, þar sem sífellt fleiri verða sér
úti um kennsluréttindi, samkvæmt
upplýsingum menntamálaráðuneyt-
isins. Sú skýring er m.a. nefnd að
með lagabreytingum árið 1998 hafi
leiðbeinendum verið auðveldað að
verða sér úti um kennsluréttindi,
auk þess sem kjör kennara hafi
batnað. Elna Katrín Jónsdóttir, for-
maður Félags framhaldsskólakenn-
ara, segir að fækkun leiðbeinenda sé
samt hæg.
Leiðbeinendur, sem eru kennarar
án kennsluréttinda, eru einungis
ráðnir til eins árs í senn, í samræmi
við lög um lögverndun á starfsheiti
og starfsréttindum kennara. Dæmi
eru um leiðbeinendur, sem hafa
fengið árlega undanþágu mennta-
málaráðuneytisins til kennslu frá því
að fyrstu lög um lögverndun voru
sett árið 1976, eða í 27 ár.
Leiðbeinendur segja það óöryggi,
sem þeir búa við, óþolandi. Þeir
missi stöðu sína, jafnvel eftir
margra ára kennslu, sæki kennari
með réttindi um hana, þar sem lög-
um samkvæmt ber að ráða kennara
með kennsluréttindi, sé það unnt.
Ráðnir til eins árs í senn
Elna Katrín segir að stærsti vandi
leiðbeinenda sé það óöryggi sem
þeir búi við, þar sem þeir séu aðeins
ráðnir til eins árs í senn. „Það er
engin önnur lausn á þeim vanda en
að auðvelda þeim sem fest hafa sig í
starfi sem leiðbeinendur að verða
sér úti um kennsluréttindin.“
Boðið er upp á nám til kennslu-
réttinda við Háskóla Íslands, Kenn-
araháskóla Íslands, Háskólann á
Akureyri og Listaháskóla Íslands.
Aðsókn í námið hefur aukist veru-
lega á síðustu árum. HÍ býður ekki
upp á fjarnám í ár og er fjárskorti
kennt um. KHÍ býður bæði stað-
bundið nám og fjarnám, námið við
HA er fjarnám að hluta, en námið
við LHÍ staðbundið.
Leiðbeinendum
í skólum fækkar
Réttindalausir/10
JENNA Huld Eysteinsdóttir,
læknanemi og móðir 11 mánaða
stúlku sem lá við köfnun í sandkassa
leikskólans Sólgarðs við Eggerts-
götu í liðinni viku, segir að málið sé
mjög alvarlegt og augljóst sé að eitt-
hvað hafi farið úrskeiðis í sambandi
við eftirlit barnanna.
Í Morgunblaðinu í gær kom fram
að ekki væri ljóst hver tildrög
óhappsins væru en Jenna Huld segir
ljóst að annað barn hafi mokað sandi
yfir dóttur hennar í nokkurn tíma.
„Hún lá á bakinu og var alhulin
sandi, þannig að það sást rétt glitta í
gallann hennar. Andlitið sást ekki,
vit barnsins voru full af sandi, heil-
mikill sandur fór í maga og lungu og
í sjúkrabíl á leiðinni á slysadeild átti
hún mjög erfitt með öndun, en mett-
unin var 90%, sem er mjög lítið mið-
að við svona lítið barn,“ segir hún.
Jenna Huld segir ennfremur að
lungnamynd hafi sýnt maga barns-
ins uppfullan af sandi, heilmikinn
sand í lungum auk þess sem stúlkan
hafi verið með mjög bólgna efri vör
og marbletti í andliti. Kalla hafi
þurft út eina lungnasérfræðing
barna til að hreinsa sandinn út og
því hafi stúlkan farið í svæfingu og
aðgerð. „Þetta var því heldur meira
en eftirlit yfir nótt eins og sagt var í
Morgunblaðinu,“ segir hún.
Jenna Huld segir líka rangt hjá
framkvæmdastjóra hjá Félagsstofn-
un stúdenta að talið sé að tveir leik-
skólakennarar hafi verið úti við þeg-
ar óhappið varð. „Það var einn
starfsmaður úti með sjö til 10 börn,“
segir hún og bætir við að hann hafi
ekki séð sandkassann. Ljóst sé að
það taki tveggja ára barn þónokkurn
tíma að moka yfir annað barn og því
hafi stúlkan greinilega verið eftir-
litslaus í nokkuð langan tíma. „Það
verður farið yfir það hvort eitthvað
hafi farið úrskeiðis við að koma
börnunum út og hvort leiksvæðið
þarfnist yfirferðar,“ var m.a. haft
eftir framkvæmdastjóranum. Jenna
Huld segir augljóst að eitthvað hafi
farið úrskeiðis „og leikskólastjórinn
viðurkennir það sem og allir starfs-
menn leikskólans. Það er ekki
spurning hvort leiksvæðið þarfnist
yfirferðar því það þarfnast yfirferð-
ar,“ segir hún.
„Þetta er mjög alvarlegt mál,“
segir Jenna Huld ennfremur og
bætir við að maður á leiðinni heim
hafi séð glitta í stúlkuna í sandkass-
anum fyrir tilviljun og hún vilji koma
miklu þakklæti á framfæri til hans
og starfsfólks leikskólans sem hafi
brugðist rétt við. „Barnið verður
einhverjar vikur að jafna sig og ég
verð að vera heima á meðan en fyrir
vikið kemst ég ekki í próf í næstu
viku.“
Móðir 11 mánaða barns sem var nær
kafnað í sandkassa segir aðgerða þörf
„Þetta er mjög
alvarlegt mál“
ÞESSI brandönd sást sveima yfir Rifi á Snæfellsnesi en um þessar mundir
stendur varp hennar yfir. Brandendur teljast til flækingsfugla á Íslandi en
hafa á síðustu árum verpt hér á landi. Kjörlendi brandanda eru leirur við
strendur landsins. Þar bora þær eftir fæðunni með nefinu eða sía hana úr
vatni og eðju. Brandendur eru alfriðaðar hérlendis.
Morgunblaðið/Alfons
Brandönd í Rifi