Morgunblaðið - 11.05.2003, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 11.05.2003, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. NÚ ER vorið komið, blómin elsku- leg að stinga upp kollinum og dag- lega berast boð á tónleika, með söngvurum, hljóðfæraleikurum, karlakórum, kvennakórum og barnakórum. Erfitt að velja úr og ekki hægt að hlusta á þá alla. Elskulegur fyrrverandi nemandi minn, Ragnheiður Linnet, kom til mín og bauð mér á tónleikana sína í nafni Laugarneskirkju laugardag- inn 26. apríl sl., þar sem hún og Árni Arinbjarnarson fluttu kirkjuleg verk. Ég hafði aldrei heyrt um þessa kirkju, en leigubílstjórinn ók mér beint upp að dyrum. Þar hitti ég ættingja og vini söngkonunnar, og við fengum okkur sæti í þessari fal- legu kirkju. Ég tók eftir að framan við altarið var hljóðnemi og nótna- púlt, en allt í einu dundu við org- eltónar um alla kirkju. Þar var kom- inn Árni Arinbjarnarson að leika Prelúdíu og fúgu í D-dúr eftir Buxtehude. Þá kom fyrsta atriði söngkonunnar úr Mattheusarpassíu Bachs, sem hún flutti með sinni fal- legu mezzosópranrödd. Svo rann vel valið og skemmtilegt prógramm í samvinnu þessara tveggja listamanna. Aríurnar úr Rinaldo Lascia ch’io pianga og Serse Ombra maifu hittu mig í hjartastað. Meðleikur orgelleikarans var meist- aralegur. Söngur Ragnheiðar fannst mér sérstaklega vel útfærður og hin hlýlega mezzósópranrödd hennar er sjaldgæf og verður mér ógleyman- leg. Þetta var líka óvenjuleg upp- lifun að því leyti að í fyrsta sinn var ég viðstaddur einsöngstónleika í kirkju þar sem eingöngu voru kirkjuleg verk á dagskrá. Á þeim 48 árum sem ég hef átt heima á Íslandi hefur orðið ótrúleg framför í söngmennt á Íslandi og á sú framför við um allar tegundir tónlistar, ekki eingöngu klassíska tónlist, heldur einnig jazz og popp- tónlist. SIGURÐUR V. DEMETZ, söngkennari. Ragnheiður og Árni í Laugarneskirkju Frá Sigurði V. Demetz ÉG hafði lengi velt því fyrir mér hvernig stendur á því að daunillar, fitusprengdar og hættulega ávana- bindandi kartöflur geta verið nefndar eftir höfuðsetri menningar og rómantíkur, Frakklandi? Hvernig stendur á því að Amerík- anar eru ekki löngu búnir að tryggja sér einkarétt yfir kartöflu- tegundinni sem þeir, ekki Frakk- ar, færðu heiminum? Því gladdi það mig mikið að lesa það í Morg- unblaðinu, að vinir mínir vestan- hafs hafi loks náð áttum, nafnið á kartöflunum er komið heim. Og nafngiftin hefur fullan rétt á sér. Hvergi er meira frelsi á holdafari en í Ameríku, hvergi minni meng- unarhöft vegna soðningar kart- aflnanna, hvergi meira víðsýni og því Frelsis-kartöflur! En hvað fékk menn til að opna augun fyrir þessu vandamáli? Jú blessaður stríðsreksturinn, eða verðandi stríðsrekstur öllu heldur. Frakkarnir gerðu nefnilega þau reginmistök að standa með Sadd- am Hussein. Þjóðin sem færði okk- ur Chopin og Sartre, hýsti Joyce og Beckett, stendur nú staðfast- lega við bakið á íröskum fjölda- morðingja! Frakkar hugsa ekki um öll lífin sem stríðið mun bjarga, hugsar ekki um öll litlu börnin sem gætu haldið upp á litlu afmælin sín á McDonalds í Bagdad ef dusilmenn- ið væri drepið. Nei, Frakkar ásamt Þjóðverjum og nokkrum öðrum þjóðum, sem ekkert vægi hafa í heiminum, ætla að styðja manninn sem selur kommúnistun- um í Rússlandi olíu, frekar en að ganga í lið með öflum frelsis og fagnaðarerindis. Og nú fá þeir heldur betur að kenna á því. En af hverju að stoppa hér? Þó svo að franskarnar séu fallnar í valinn er af nógu að taka. T.d. mætti banna öll rússnesk nöfn á áfengum drykkjum. Smirnoff gæti til dæmis kallast Bush-off, Stol- isnæja gæti orðið Rumsfelding. Nú, ekki mega Þjóðverjarnir sleppa og hægt væri að flytja Októberfest fram í júlí og kalla það The Great Fourth of July Festival. Kínverjunum mundi svíða undan því ef Chinatown yrði endurskírður Powell-ville og Sam- einuðu þjóðirnar myndu seint ná sér af því ef höfuðstöðvunum í New York yrði lokað og þær flutt- ar til Kanada. Slá þar sem meiðir! Í þessu sambandi get ég ekki annað en dáðst að stjórnvisku ís- lenskra ráðamanna. Hugsa sér ef við værum í hinu liðinu. Þá gætum við lent í því að The Icelandic Lamb (íslenska fjallalambið) yrði bannað í núverandi mynd og allt kynningarstarfið færi í súginn. Við sætum e.t.v. uppi með að þurfa að senda til Ameríku pakkningar sem segðu „þetta lamb studdi innrás í Írak og féll við að koma skoðunum sínum á framfæri“. En þetta er til- gangslaus útúrsnúningur þar sem Ísland stendur sem klettur við bak Ameríku í styrjaldarrekstrinum. Að lokum. Þar sem Bretar og Ameríkanar eru nú bandamenn þá má rífa frelsisstyttuna sem Frakk- arnir byggðu og reisa í staðinn nýtt minnismerki. Minnismerki sem ekki aðeins tekur hinu fyrra fram í verkfræðilegri kunnáttu og umfangi, heldur geri lýðum það ljóst að Ameríku byggir og stjórn- ar guðs útvalda þjóð. ÞORLEIFUR ÖRN ARNARSSON, Drápuhlíð 15. Land hinna frjálsu Frá Þorleifi Erni Arnarssyni:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.