Morgunblaðið - 11.05.2003, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 11.05.2003, Blaðsíða 56
Kate Hudson lætur margoft reyna á þolrifin í Matthew McConaughey. Hér klæðast þau samstæðum Burberry-fötum. Litli hundurinn fær að vera í stíl. ÁSTIN og samskipti kynjanna eru uppspretta ótal kvikmynda en það sem gerir Hvernig á að losna við gaur á 10 dögum (How to Lose a Guy in 10 Days) öðruvísi er óvenjulegur sögu- þráður. Andie Anderson (Kate Hudson) er dálkahöfundur hjá Composure Maga- zine í New York, sem fær það verk- efni að skrifa um hvernig eigi að losa sig við strák á tíu dögum. Hún lætur sér ekki nægja getgátur heldur not- ast við tilraunadýr, Benjamin Barry (Matthew McConaughey), upprenn- andi starfsmann auglýsingastofu í borginni. Það sem hún veit ekki er að hann er búinn að veðja við yfirmann sinn um að hann geti látið konu verða ástfangna af sér á tíu dögum. Í húfi er arðvænlegur auglýsingasamningur við demantafyrirtæki. Þetta býður að sjálfsögðu upp á ýmis bráðfyndin atriði um samskipti kynjanna en í þetta sinnið fer stelpan ekki grátandi heim þegar hún kemst að því að strákurinn veðjaði um hana því hún hefur sín eigin plön. Segja má að myndin sé fyndin og rómantísk allt í senn eins og margar sígildar myndir af þessum toga. „Ég var að reyna að gera hana í stíl gam- alla mynda með Spencer Tracy og Katherine Hepburn í aðalhlut- verkum. Í þessum myndum voru báð- ar persónur sterkar fyrir,“ segir Don- ald Petrie, leikstjóri myndarinnar. Annað sem gefur myndinni gam- aldags „glamúr“ eru demantarnir, sem skipa aukahlutverk í myndinni. Demantar fyrir milljarð „Ég varð frekar stressaður eftir að við ákváðum að nota ekta demanta í myndinni. Ég var hræddur um að þeir myndu annaðhvort týnast eða tefja fyrir upptökum því það var mikil viðbótaröryggisgæsla í kringum þá á tökustað,“ segir Petrie en í myndinni skartar Kate sérsmíðuðum demanti frá Harry Winston, sem kostar hvorki meira né minna en 400 millj- ónir króna. Alls lánaði fyrirtækið demanta fyr- ir um milljarð króna til notkunar í myndinni. Öryggisgæslan var í sam- ræmi við það og þurftu leikararnir jafnvel að láta demantana í hendur öryggisvarða ef þeir þurftu að bregða sér á salernið. Petrie komst að því af eigin raun að demantar eru dýrir, jafnvel þótt þeir eigi að endast að eilífu. Leikstjórinn rómantíski segir frá því að honum hafi dottið í hug að festa kaup á eyrnalokkum handa eiginkonunni. „Ég ætlaði að vera örlátur. Ég leit á eyrnalokka og spurði hvað þeir kost- uðu,“ segir hann en svarið var 25 milljónir króna þannig að eiginkona Petries fékk enga eyrnalokka í þetta sinnið. „Þetta voru ekki einu sinni stórir eyrnalokkar,“ segir hann og hlær. Þetta er ekki fyrsta rómantíska gamanmyndin sem Petrie gerir. Hann gerði myndina Undurfurðulega flatbakan (Mystic Pizza) frá árinu 1988 með Juliu Roberts í aðalhlut- verki og Vinsælustu stúlkuna (Miss Congeniality) frá árinu 2000 þar sem Sandra Bullock skartaði sínu feg- ursta. Hann leikstýrði einnig gaman- myndinni vinsælu Önugum gamal- mennum (Grumpy Old Men) með stórleikurunum Jack Lemmon og Walter Matthau í helstu hlutverkum, svo eitthvað sé nefnt. Að skilja konur Petrie virðist vera næmur fyrir mannlegum samskiptum og takast hið ómögulega, (að mati Hollywood, þar sem samskipti kynjanna snúast að miklu leyti um mismun kynjanna), að skilja konur. Hann segist fylgjast með bæði konum og körlum úr fjar- lægð og segir eina ástæðu þess að myndin sé eins vel heppnuð og raun ber vitni að fólk geti samsvarað sig persónunum. „Stundum heyrast allar konurnar í kvikmyndahúsinu hlæja en ekki karl- arnir og stuttu síðar hlæja karlarnir en ekki konurnar,“ segir hann og nefnir eitt slíkt dæmi. „Þegar Kate biður Matthew að sækja handa sér gosglas á lokamín- útum spennandi körfuboltaleiks, þá hlæja karlarnir ekki á meðan.“ Kate Hudson er mjög viðkunn- anleg í hlutverki Andie og virðist eiga vel heima í gamanmynd líkt og móðir hennar, Goldie Hawn. Petrie segir það skipta miklu máli að áhorfendum líki vel við Kate því í raun hagi hún sér á nokkuð andstyggilegan hátt í myndinni. „Það sem Kate er að gera í mynd- inni er frekar illgjarnt. Við þurftum að passa að það skini í gegn að hún væri ekki að gera þetta vegna þess að hún væri vond manneskja. Hún gerir þetta til hjálpa bestu vinkonu sinni, til að sýna henni hvað hún er að gera vit- laust í samböndum sínum við stráka. Hún er að reyna að hjálpa henni,“ út- skýrir leikstjórinn. Þolraunir Matthews Þrautirnar, sem Kate lætur hjarta- knúsarann Matthew glíma við jafnast á við þolraunir Herkúlesar, fram- reiddum að hætti Hollywood. Hann þarf að horfa á stelpumyndir, klæðast í samstæð paraföt, hún kemur óboðin á strákakvöldið hans, hún endur- hannar íbúðina hans og skilur eftir litla og sæta bangsa á stílhreinu pip- arsveinarúminu. Allt þetta ætti að vera nóg til að buga meðalkarlmann- inn, enda verður Kate hissa þegar Matthew heldur áfram að ganga á eftir henni. Eins og Petrie bendir á gefur Kate honum næg tækifæri til að bakka út. „Kate spyr hann í upphafi hvort allt sé leyfilegt í ástum og stríði og hann svarar játandi.“ Petrie segir að oftar en ekki hafi hann leyft leikurunum að spinna inn í senurnar. „Til dæmis sagði ég Kate að gera eitthvað við Matthew en lét hann ekki vita af breytingunum. Hann varð því mjög hissa í þessum atriðum. Eins og þegar hún kemur með litla hundinn til hans, þá fleygir hún sér á hann og byrjar að kyssa hann og faðma hann í miðri skrifstof- unni. Það er ekki í handritinu,“ segir hann prakkaralega enda var Matt- hew greinilega brugðið. Petrie segir að stefnan hafi verið að láta myndina höfða til beggja kynja og virðist það hafa tekist. Petrie segir að hann hafi óttast að strákar kæmu ekki á myndina vegna titilsins en raunin hafi verið sú að strákarnir (sem yfirleitt fara með kærustunum sínum á myndina) hafi skemmt sér jafnvel og stelpurnar. Myndin er í grunnatriðum byggð á stuttri bók eftir Michele Alexander og Jeannie Long með ráðum um, hvernig eigi að losna við gaur á tíu dögum. New York leikur líkt og demant- arnir annað aukahlutverk í myndinni. „Mig langaði til, ekki síst eftir 11. september, að sýna fólki að New York er ennþá falleg borg,“ segir hann en borgin skartar sannarlega sínu fegursta í myndinni. Grínast með tískuheiminn Annar heimur en heimur stórborg- arinnar er áberandi í myndinni, heim- ur tímaritanna og tískunnar. „Fram- leiðandi myndarinnar, Linda Obst (Svefnvana í Seattle), hefur skrifað fyrir tímarit og vissi því margt um hvernig við gætum gert þennan heim raunverulegan,“ útskýrir Petrie en gert er góðlátlegt grín að því sem mætti kalla yfirborðslegan heim „kvennablaða“. Bebe Neuwirth (Lilith í Frasier) leikur ritstjóra tímaritsins Compos- ure, sem söguhetjan Andie Anderson, vinnur hjá. Glöggir áhorfendur taka eftir því að hún líkist mjög ritstjóra bandaríska Vogue, Önnu Wintour. Aðspurður staðfestir Petrie að per- sóna hennar hafi verði byggð á Wintour, sem þykir ein áhrifamesta manneskjan í tískuheiminum. Petrie var staddur í Toronto í Kan- ada þegar viðtalið fór fram og hefur síður en svo gefist upp á róm- antískum gamanmyndum. „Ég er að byrja að vinna við rómantíska gam- anmynd með Gene Hackman og Ray Romano í aðalhlutverkum,“ segir hann. Myndin er fyrsta kvikmynd Romanos (Allir elska Raymond) og heitir Velkomin til Mooseport (Wel- come to Mooseport). Romano leikur mann frá litlum bæ, sem hræðist hjónabandið. Hackman leikur hins vegar fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, sem sest að í litla bænum hans Romano þegar hann lætur af embætti og fer að eltast við kærustuna hans. Romano þarf því að grípa til eigin ráða. Hver sagði að ást- in væri auðveld? Leikstjórinn Donald Petrie sýnir Kate Hudson hvernig hún eigi að bera sig að á mótorhjólinu. Kate Hudson og Matthew McConaughey leika aðalhlutverkin í Hvernig á að losna við gaur á 10 dögum Allt er leyfilegt í ástum og stríði Er í alvörunni svona mikill munur milli kynjanna? Grínast er með hann í nýrri gamanmynd leikstjór- ans Donalds Petries. Inga Rún Sigurðardóttir ræddi við þennan kóng rómantísku gamanmynd- anna, sem hann fullyrðir að séu fyrir bæði kynin. ingarun@mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM 56 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Tímaritið Heilsa fylgir Morgunblaðinu í 58.000 eintökum sunnudaginn 18.maí. li f u nheilsa Tímarit um útivist og lífsstíl Hafðu samband í síma 569 1111 eða í gegnum netfangið augl@mbl.is Auglýsendur! • Efnistök eru tengd útivist sem fylgir hækkandi sól og lífsstílnum sem fylgir hollri hreyfingu. • Talað við göngugarpa, hlaupara, kajak-ræðara, veiðimenn, golfara og fleiri. • Fjallað um jaðarsport. • Áhugaverðar gönguferðir á vegum Útivistar. Gönguleiðir í Reykjavík og á Akureyri. • Skemmtilegar græjur í sumarsportið. • Áhugaverðir sumarleikir. • Hugmyndir að hollu og fersku nesti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.