Morgunblaðið - 11.05.2003, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
DANSLEIKHÚSIÐfrumsýnir á nýja sviðiBorgarleikhússinsFjögur dansverk eftirfjóra íslenska danshöf-
unda miðvikudaginn 14. maí, klukkan
20. Efnisskráin er fjölbreytt og
spannar efni verkanna allt frá hugs-
unum viðutan sirkusstjóra til kamm-
erdansverks þar sem samspil dans-
ara og sellóleikara er reynt til
þrautar.
Þetta er önnur sýning Dansleik-
hússins sem stofnað var fyrir rúmu
ári með það að markmiði að auka
tækifæri fyrir íslenska dansara og
danshöfunda. „Dansleikhúsið er þró-
unarverkefni til að byrja með en við
stefnum að því að það verði raunhæf-
ur möguleiki fyrir atvinnudansara og
danshöfunda. Við höfum fundið fyrir
því að það hefur sárvantað vettvang
til þess að leyfa ungu fólki að spreyta
sig. Það eru mjög margir dansarar
sem hafa lokið því skólastigi sem er í
boði hérlendis á sviði listdans og eru
að reyna að halda áfram. Annaðhvort
fer þetta fólk utan til framhaldsnáms
eða atvinnumennsku því þar eru
miklu fleiri tækifæri, eða það reynir
að gera eitthvað hérna heima. Við
viljum gefa þessu unga fólki tækifæri
til að halda listinni vakandi hér á
landi og nýta þá krafta sem þau hafa
upp á að bjóða. Það er ómögulegt að
horfa upp á að það hafi ekkert að
gera,“ segir Irma Gunnarsdóttir,
framkvæmdastjóri Dansleikhússins
og danshöfundur.
Fylltust af krafti
eftir síðustu sýningar
Eins og áður sagði var fyrsta sýn-
ing Dansleikhússins haldin fyrir ári
og var henni mjög vel tekið. „Okkur
var ofsalega vel tekið. Við fengum
svo góða strauma og fundum hvernig
dansararnir fylltust af krafti að við
ákváðum að við yrðum að halda
áfram,“ segir Irma.
Á efnisskrá Dansleikhússins eru
að þessu sinni fjögur verk, tvö nú-
tímadansverk, eitt kammerdansverk
og eitt dansleikhúsverk.
Fyrst á efnisskránni er nútíma-
dansverkið Vita eftir Katrínu Ingva-
dóttur. Vita merkir líf á latnesku og
fjallar verkið um lífið sjálft. Katrín er
dansunnendum að góðu kunn sem
dansari til margra ára hjá Íslenska
dansflokknum auk þess sem hún hef-
ur stundað kennslu hjá Jassballett-
skóla Báru.
Verkið Vision er kammerdansverk
þar sem reynir á samspil tónlistar-
manns og dansara. Tónverkið heitir
Dans og er eftir Snorra S. Birgisson
en dansverkið er eftir Lovísu Ósk
Gunnarsdóttur dansara og Sigurð
Halldórsson sellóleikara. Snorri
samdi þetta verk á níunda áratugn-
um og var að velta fyrir sér uppruna-
legri merkingu orðsins músík, sem er
hreyfing. Lovísu og Sigurð langaði að
þróa þessa pælingu áfram og þannig
varð þetta kammerdansverk til.
Tónlist eftir Worm is green
Þriðja verkið á efnisskránni heitir
Fló og er nútímadansverk eftir Jó-
hann Frey Björgvinsson. Jóhann
dansaði í mörg ár með Íslenska dans-
flokknum en hefur síðastliðin tvö ár
starfað sem sjálfstæður danshöfund-
ur og dansari. Hann hefur áður sam-
ið verk fyrir Dansleikhúsið og einnig
fyrir Reykjavík Dansfestival meðal
annars. Tónlistin við verkið Fló er
eftir unga íslenska tónlistarmenn í
hljómsveitinni Worm is green.
Síðasta verk kvöldsins er eft-
ir Irmu sjálfa og nefnist Við-
utan. Verkið fjallar um viðutan
sirkusstjóra sem Ólafur Darri
Ólafsson leikur, en sex dans-
arar taka þátt í verkinu.
Irma segir að
Dansleikhúsið
leggi mikla
áherslu á sam-
starf listform-
anna og byggir
verkið Viðutan
jafnt á leiklist og
dansi en Irma
hefur leikstjór-
ann Jón
Gunnar Þórð-
arson sér til
fulltingis. Hann
er jafnframt höf-
undur alls texta í
verkinu.
Jassballettskóli Báru
og Dansrækt JSB eru
aðalstyrktaraðilar Dans-
leikhússins en Irma segir
að þegar hafi verið leitað
stuðnings hjá menntamála-
ráðuneytinu. „Við höfum
ekki fengið hljómgrunn
ennþá en vonumst til að það
komi í kjölfar góðra verka,“
segir Irma og segir að stefnt
sé að því að halda eina til
tvær metnaðarfullar sýningar
á ári.
„Ef það kemur eftirspurn
eftir einhverju fleiru þá erum
við tilbúin,“ segir Irma og upp-
lýsir að vonir standi til að Dansleik-
húsið geti í nánustu framtíð auglýst
eftir danshöfundum og dönsurum
þannig að allir sem starfa í greininni
hér á landi fái tækifæri til að koma
listsköpun sinni á framfæri í gegnum
þennan vettvang.
Verkfræðingur og viðskipta-
fræðinemi á meðal dansaranna
Dansarar Dansleikhússins að
þessu sinni eru á aldrinum 18 til 27
ára og eiga það flestir sammerkt að
hafa lokið námi frá Jassballettskóla
Báru. „Þetta er fjölbreyttur hópur
fólks sem leggur stund á ýmislegt
fleira en dans þótt það hafi náð langt
á þessu sviði. Ein úr hópi dansaranna
er til dæmis menntaður verkfræðing-
ur, önnur hefur lokið námi frá
Sænsku ballettakademíunni og sú
þriðja stundar nám í viðskiptafræði
við Háskólann í Reykjavík,“ segir
Irma.
Hún segir að nokkrir dansarar séu
á leið utan næsta haust til að leggja
stund á framhaldsnám í nútímadansi,
en hérlendis sé ekkert slíkt í boði.
Hún segir mikla þörf á að koma á fót
framhaldsnámi í listdansi hér á landi:
„Ef búið væri að stofna listdansbraut
við Listaháskólann hérlendis þá
þyrftu dansarar ekki að leita út fyrir
landsteinana til framhaldsnáms, þeir
hefðu að minnsta kosti val, en eins og
er gefst ekki kostur á áframhaldandi
námi hér á landi.“
Hvað atvinnutækifæri varðar er
staðan aðeins betri. Irma segir að
sjálfstætt starfandi dansarar eigi
nokkra möguleika hér á landi. „Fyrir
utan Íslenska dansflokkinn, sem hef-
ur upp á að bjóða fá stöðugildi, þá er
Reykjavík Dansfestival nýr starfs-
vettvangur í mótun og svo Dansleik-
húsið. Það eru fjölmargir dansarar
við nám erlendis eins og stendur og
þó nokkrir við störf. Ef þetta fólk fær
fleiri tækifæri til að starfa hér heima
þá er ég viss um að það nýti sér það.
Vonandi þróast Dansleikhúsið út í
atvinnudansleikhús með tímanum
þar sem við auglýsum eftir lista-
mönnum og getum borgað þeim
sómasamleg laun. Þetta er bara byrj-
unin,“ segir Irma að lokum og kveðst
geta lofað fjölbreyttri og skemmti-
legri sýningu þar sem allir leggi sig
að minnsta kosti 120% fram.
Aðeins þrjár sýningar eru fyrir-
hugaðar á verkunum, 14., 17. og 20.
maí.
Dansleikhús með gleði
Hugsanir viðutan sirkusstjóra
og samspil dansara og sellós
eru meðal viðfangsefna dans-
höfunda Dansleikhússins á
sýningu sem frumflutt verður
í Borgarleikhúsinu næstkom-
andi miðvikudag. Ragna Sara
Jónsdóttir kynnti sér nánar
efni sýningarinnar og heyrði af
máli Irmu Gunnarsdóttur,
framkvæmdastjóra Dans-
leikhússins, að það sárvantar
tækifæri fyrir frambærilega
dansara hérlendis.
Morgunblaðið/Arnaldur
Kraftmiklar konur í verkinu Vita eftir Katrínu Ingvadóttur. Frá vinstri eru Ásta Bærings, Ásdís Ingvadóttir og Sigyn Blöndal.
Morgunblaðið/Kristinn
Irma Gunnarsdóttir er framkvæmdastjóri Dansleikhússins. Hún segist geta lof-
að sýningu þar sem allir leggi sig að minnsta kosti 120% fram.
Morgunblaðið/Sverrir
„Það eru fjölmargir
dansarar við nám er-
lendis eins og stend-
ur og þónokkrir við
störf. Ef þetta fólk
fær fleiri tækifæri til
að starfa hér heima
er ég viss um að það
nýtir sér það.“
Úr verkinu Fló eftir Jóhann Frey Björgvinsson. Fló er eitt fjögurra verka
sem Dansleikhúsið býður upp á á sýningu á Nýja sviðinu næstu daga.
rsj@mbl.is
Inga Þóra Sveins-
dóttir í hlutverki
sínu í verkinu Fló.