Morgunblaðið - 11.05.2003, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 11.05.2003, Blaðsíða 55
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 55 Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur glæsilega tónleika 16. og 17. maí í Laugardalshöllinni undir heitinu „Thank you for the Music“. fiar munu öll gömlu gó›u ABBA-lögin hljóma  í flutningi Sinfóníuhljómsveitarinnar og fjölda stórsöngvara frá West End International í London. Ekki missa af flessari frábæru tónlistarveislu! Taktu flátt í laufléttum leik á isb.is og flú gætir unni› mi›a fyrir tvo á tónleikana. Íslandsbanki styrkir íslenskt menningarlíf. Stjörnustund í Laugardalshöllinni Thank y ou for t he Mus ic Sinfóní uhljóms veit Ísla nds lei kur öll þ ekktust u lög .. . fiú gætir unni› mi›a á tónleikana á isb.is SJÓSTANGAFÉLAG Reykjavíkur stóð fyrir opnu stangveiðimóti í Grundarfirði á dögunum. Mótið er með þeim stærstu sem haldin hafa verið í Grundarfirði en þar mættust um 80 keppendur úr 5 stangveiðifélögum víðsvegar að af landinu. 15 bátar víða af Snæfellsnesi voru fengnir til að sigla með keppendur á miðin. Veitt voru verðlaun í sjö flokk- um ásamt svokölluðum Jón- asarbikar en hann hlaut Sigurður Hávarðarson úr Sjóstangafélagi Reykjavíkur. Að verðlaunaaf- hendingu afstaðinni var slegið upp dansleik. Verðlaunagripir mótsins voru unnir og hannaðir af heimamönnum, þeim Kristínu Pétursdóttur og Dagbjörtu Línu Kristjánsdóttur, en þær hafa um árabil unnið ýmsa muni úr stein- leir. Sjóstanga- veiðimót og dansleikur Ljósmynd/Guðlaugur Albertsson Kvennasveit Sjóstangveiðifélagsins var kampakát með árangurinn og var leyst út með verðlaunum. Sigurður Hávarðarson með Jón- asarbikarinn veglega. Hefnt fyrir Angelo (Avenging Angelo) Gamanmynd Bandaríkin 2002. Skífan. VHS (99 mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leikstjóri: Martin Burke. Aðalleikendur: Sylvester Stal- lone, Madeleine Stowe, Anthony Quinn, Raoul Bova. HVAÐ sem öðru líður er það deg- inum ljósara að Hefnt fyrir Angelo er ekki myndin sem kemur liðónýtum ferli Sylvester Stallone aftur á sporið. Stallone er ekki einvörðungu um að kenna lítil gæði myndarinnar en hann átti að sjá að hand- ritið býður ekki upp á annað en mistök. Og halda sig í öruggri fjarlægð. Stallone leikur Frankie, lífvörð mafíósans Angelo (Quinn), og nánasta samstarfsmann. Þegar karlinn er myrtur lendir það í hans hlut að tjá Jennifer (Stowe), að hún er laundóttir og erfingi Angelos. En hún erfir fleira en auðinn, óvinina líka og þá er gott að hafa traustan og hraustan lífvörð sér við hlið. Myndin er ótrúlega innantóm, soð- in saman úr hundruðum glæpamynda og aukinheldur mjótt á mununum hvort kvikmyndagerðarmennirnir eru að fást við spennumynd eða róm- antíska gamanmynd. Sögufléttan glær sem rúðugler og hvert manns- barn sér endinn fyrir í upphafi. Út- koman því litlaus og óspennandi. Í leikaravalinu má segja að haltur leiði bindan því sér til halds og trausts hef- ur Stallone hina íðilfögru Stowe, sem hefur líkt og hann nánast horfið spor- laust og skyndilega í kvikmyndaborg- inni. Quinn gamli allur og löngu upp- urinn. Engin furða þótt myndin hafi ekki ratað í bíósalina. ½ Myndbönd Glæpur eða grín? Drekaflugur (Dragonflies/Öyenstikker) Drama Noregur 2002. Myndform. VHS (100 mín.) Bönnuð innan 16 ára. Aðalleik- endur: Maria Bonnevie, Kim Bodnia, Mikael Persbrandt. FORTÍÐIN flýr ekki af hólmi. Hún leitar mann uppi, ekki síst ef eitthvað gruggugt er í pokahorninu. Eddie (Bodnia) er gamall smákrimmi um fertugt sem hefur haldið sínum málum á þurru undanfarin ár. Kynnst stúlkunni Mariu (Bonnevie) og líður bærilega í norskri sveitasælu þar sem þau hafa hreiðrað um sig á bóndabæ, erfða- góssi Maríu. Friðurinn er úti er Pullman (Per- brandt) kemur skyndilega inn í myndina. Hann er fyrrverandi félagi Eddies í glæpaheiminum og hefur setið inni fyrir þá báða undanfarin fimm ár. Falleg mynd fyrir augað og þokka- lega leikin af þremenningunum en nær aldrei tökum á áhorfandanum. Það er ekki nokkur lífsins leið að tengjast þessum óskýru persónum þótt maður leggi sig allan fram um að ná sambandi við þær, ekki síst Eddie, sem virðist góður náungi sem hefur fullan hug á að bæta sig og snúa við blaðinu. María er óljós og illa skrifuð og friðarspillirinn Pullman er gjör- samlega út úr myndinni sakir hand- bragðs höfunda þótt Persbrandt reyni að gera honum skil. Niðurstað- an er því bæði óljós og ófullnægjandi. Svo er það spurningin: Hvers vegna er norsk mynd í bandarískum pakkningum? Það skyldi þó aldrei vera að útgefendurnir hefðu enga trú á norrænum myndum. Fortíðin bankar upp á Sæbjörn Valdimarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.