Morgunblaðið - 11.05.2003, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 11.05.2003, Blaðsíða 58
58 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS kl. 1.40, 3.45, 5.50, 8 og 10.10. 400 kr Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14. Miðasala opnar kl. 13.30 kl. 3, 6 og 9. Sýnd kl. 2, 4 og 6. ísl. tal. 400 kr. Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.40. B.i. 12 Kvikmyndir.is Sýnd kl 2 og 4. B.i. 12 Ertu nokkuð myrkfælinn? Búðu þig undir að öskra. Mögnuð hrollvekja sem fór beint á toppinn í Bandaríkjunum. Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16. KJÓSIÐ X-MEN UM HELGINA  HK DV SV MBL  Kvikmyndir.com "Tvöfalt húrra" Frétta- blaðið 400 kr Sýnd kl. 4, 8 og 10.10. Brjálaður morðingi, Stórhættulegir dópsmyglarar Nú er honum að mæta. Svakaleg spennumynd með töffaranum Vin Diesel úr xXx. FRUMSÝNING Sýnd kl. 4 og 6.10. Tilboð 400 kr. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 12 SV MBL  HK DV  Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is "Tvöfalt húrra" Frétta- blaðið KJÓSIÐ X-MEN UM HELGINA ÞAÐ ER alltaf gaman þegar menn eru að gera eitthvað nýtt í rokk- inu og gildir þá einu þótt það eigi sér gamlar rætur. Með for- vitnilegri sveitum nú um stundir eru breska rokkdúóið The Kills og bandaríska tríóið Yeah Yeah Yeahs, en síðarnefnda sveitin hef- ur fengið meiri umfjöllun og lof en dæmi eru um í seinni tíð. Þau Nick Zinner, Karen Orzal- ek og Brian Chase eru öll lista- skólaspírur, stunduðu nám í há- skólanum í New York, en öll höfðu þau fengist við tónlist hvert í sínu lagi, Zinner var á kafi í fram- sæknum djassi, Chase stundaði nýbylgju og Karen O var eins- konar trúbadúr. Þau Zinner og Karen O kynntust um mitt ár 2000, en hann var þá í annarri hljómsveit og kunni því ekki vel að sögn. Eftir ærlegt fyllerí ákváðu þau að stofna hljómsveit saman og Karen O kallaði til Chase bekkjarfélaga sinn í kvik- myndanámi. Frá fyrstu tónleikunum vakti sveitin mikla athygli og ekki bara fyrir tónlistina; sviðsframkoma Karen O. þótti með því mergj- aðasta sem menn höfðu séð árum saman; ekki var bara að hún var geysifjörleg og kattliðug í hreyf- ingum heldur söng hún og öskraði sem mest hún mátti og hellti yfir sig bjór í lítravís. Allt var þetta fyrirtaks upp- skrift að fjölmiðlafári, skrautleg kraftmikil rokksveit með litríka söngkonu og æsingur útgáfufyr- irtækja, sem buðu í sveitina sem mest þau máttu. Svo mikið hefur verið fjallað um sveitina reyndar að mörgum finnst nóg um, enda lá ekkert eftir hana nema nokkur lög þegar lærðir skríbentar voru farn- ir að mæra hljómsveitna sem björtustu von rokksins, Blondie nýrra tíma, en bara betri sögðu sumir. Tónlistin var vissulega fersk og skemmtileg en mestu réð um áhugann að andlit sveitarinnar út á við er kona, Karen Orzalek, sem kemur ekki bara vel fyrir heldur hefur sitthvað skemmtilegt að segja. Vissulega er hún ekkert sérstök söngkona en af henni geislar rokkstemmning sem er öllu sjaldgæfari en góð söngrödd. Hrátt bílskúrsrokk Önnur sveit ólík en þó svipuð um margt, bílskúrsrokksveit með stúlku við hljóðnemann, er breska hljómsveitin The Kills sem sendi líka frá sér frumraunina fyrir skemmstu. Hún leggur enn meiri áherslu á hrátt og harðsoðið en Yeah Yeah Yeahs, hljóðfæraleikur einfaldur og lítið legið yfir hlut- unum. Það ýtir svo enn undir hrátt yfirbragð tónlistarinnar að fyrsta plata The Kills er tekin upp og frágengin að öllu leyti á mán- uði og það í Toe Rag-hljóðverinu í Lundúnum, sama hljóðveri og White Stripes tóku upp þá ágætu plötu Elephant, en meðal þess sem gerir Toe Rag sérstakt er að í hljóðverinu er enginn búnaður sem framleiddur er efrtir 1963 að því er sagan segir. The Kills á það einnig sameig- inlegt með White Stripes að vera dúó pilts og stúlku sem kann að meta frumstæðan gítarhljóm en þar lýkur líka samlíkingunni því þótt tónlist The Kills megi flokka sem bílskúrsrokk er hún öllu nú- tímalegri en blúsrokk White Strip- es, gítarhljómarnir harðari og meiri drungi yfir öllu saman. Gít- arleikari sveitarinnar og lagasmið- ur heitir Jamie Hince, en tók sér það afkáralega listamannsnafn Hotel. Hince var meðal liðsmanna rokksveitarinnar Scarfo sem varð næstum fræg fyrir fimm eða sex árum. Eftir að Scarfo leystist upp stofnaði hann sveitina Fiji sem komst aldei almennilega í gang, en virðist nú vera búinn að finna fjöl- ina sína. Enn kjánalegra en Hotel er listamannsheiti söngkonunnar Al- ison Mosshart – hún kallar sig VV. Þau Hince og Mosshart, eða Hotel og VV, kynntust í Lund- únum, en hún er bandarísk. Eftir stutt snörp kynni hélt hún aftur til Bandaríkjanna en langlokubréf og -símtöl treystu sambandið svo að VV sneri aftur til Bretlands og The Kills varð til. Ólíkt listamannsnöfnum er tón- listin langtífrá afkáraleg eða kjánaleg, fyrsta breiðskífa sveit- arinnar, Keep On Your Mean Side, er þrælskemmtileg rokk- skífa, grípandi tilraunakennt rokk af bestu gerð. Hince er hug- myndaríkur gítarleikari með æv- intýralegan hljóm, Mosshart syng- ur og emjar vel og trommuheilinn gerir sitt. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Sungið, öskrað og emjað Þau Nick Zinner, Karen Orzalek og Brian Chase kalla sig Yeah Yeah Yeahs. Jamie Hince, eða Hotel, og Alison Mosshart, sem kallar sig VV, skipa The Kills. Mikið er látið með rokk- sveitirnar The Kills og Yeah Yeah Yeahs, en báðar státa sveitirnar af söngkonum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.