Morgunblaðið - 11.05.2003, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 11.05.2003, Blaðsíða 54
FÓLK Í FRÉTTUM 54 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sunnud. 11. maí kl. 14 Miðvikud. 14. maí kl 13.30 Sunnud. 18. maí kl 14 Sunnud. 25. maí kl 14 Smurbrauðsverður innifalinn Miðasala Iðnó í síma 562 9700 Hin smyrjandi jómfrú sýnt í Iðnó Sun 11. maí kl 20 ALLRA SÍÐASTA SÝNING Stóra svið Nýja svið Þriðja hæðin Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga. Fax 568 0383 - midasala@borgarleikhus.is Miðasala 568 8000 PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler Í kvöld kl 20, Su 18/5 kl 20 Takmarkaður sýningarfjöldi Litla svið RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT Fö 16/5 kl 20, Lau 17/5 kl 20 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN í samstarfi við SJÓNLEIKHÚSIÐ Leikrit með söngvum - og ís á eftir! Lau 17/5 kl 14 MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS VÆRI HATTUR eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne Fö 16/5 kl 20, Fö 23/5 kl 20 ATH: Síðustu sýningar KVETCH eftir Steven Berkoff í samstarfi við Á SENUNNI Fi 15/5 kl 20 aukasýning ATH: SÍÐASTA SÝNING GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt Í kvöld kl 20, Su 18/5 kl 20 Örfáar sýningar vegna fjölda áskorana SUMARÆVINTÝRI e. Shakespeare og leikhópinn Lau 17/5 kl 20, Fi 22/5 kl 20, Lau 24/5 kl 20 ATH: Sýningum lýkur í maí ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield Lau 17/5 kl 20, Lau 24/5 kl 20 PÚNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht Í kvöld kl 20, Fi 22/5 kl 20, Su 25/5 kl 20 ATH: Sýningum lýkur í maí SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson Fö 16/5 kl 20, Fö 23/5 kl 20 Fö 30/5 kl 20, Lau 31/5 kl 20 ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR "DANS FYRIR ÞIG" 30 ára afmælissýning Íslenska dansflokksins FROSTI-Svanavatnið (lokakafli) eftir Láru Stefánsdóttur Brot úr nokkrum af eftirminnilegustu verkum Íslenska dansflokksins 2.sýn fi 15/5 kl 20, 3.sýn su 18/5 kl 20 ATH. AÐEINS ÞESSAR TVÆR SÝNINGAR Sunnudagur 11. maí kl. 20 TÍBRÁ: Íslensk sönglög Snorri Wium tenór, Ólafur Kjartan Sig- urðarson bariton og Jónas Ingimundarson píanó flytja sönglög eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson og Árna Thorsteinson, Enn ertu fögur sem forðum, Kirkjuhvoll, Nótt o.fl. Verð kr. 1.500/1.200 Mánudagur 12. maí kl. 20 Vortónleikar Tónlistarsk. í Rvík Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Miðvikudagur 14. maí kl. 19 Vortónleikar Tónlistarsk. Kóp. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Miðvikudagur 15. maí kl. 20 Tónleikar framhaldsdeildar Tónskóla Sigursveins Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Laugardagur 17. maí kl. 17 Sautjan sangara fra Klakksvik Kórtónleikar. Stjórnandi Jogvan vid Keldu. Verð kr. 1.500/1.200. www.sellofon.is lau 17. maí kl. 21, NASA, örfá sæti fim 22. maí, HÓTEL SELFOSS föst 23. maí, kl. 21 nokkur sæti mið 28. maí, Lokasýning í Nasa í vor fim 5. júní kl. 21, SJALLINN AKUREYRI Miðasala á Akureyrir fer fram í Pennanum Eymundsson Glerártorgi og á Selfossi í Alvörubúðinni, „MARKMIÐ hljómsveitarinnar er ekki flókið,“ segir í upplýsingabækl- ingi Austfirskra staksteina II sem er eftir Danshljómsveit Friðjóns Jó- hannssonar, „en það er að skemmta fólki á dansleikjum með fjölbreyttri danstónlist, þar sem einfaldleikinn ræður ríkjum, en þar að auki að varðveita alþýðutónlist með útgáfu sem þessari.“ Svona hljóðar stefnuyfirlýsing Danshljómsveitar Friðjóns Jó- hannssonar. Að þessu markmiði sækja þeir fast á áðurnefndum hljómdiski. Á honum er að finna ís- lenska alþýðutónlist, í þeim skilningi að á ferð eru létt dægurlög eftir alls kyns fólk; bændur, sjómenn, hús- mæður og frístundatónlistarmenn sem allir eiga heimili sitt í og við Austfirði. Alþýðutónlist er það í ná- kvæmum skilningi þess orðs – ekki þjóðlagatónlist. Flest eiga lögin það sameiginlegt að þeim er oft snarað fram er Austfirðingar bregða undir sig betri fætinum. Sagnfræðilegt verkefni Danshljómsveit Friðjóns Jó- hannssonar er frístundasveit ef svo má að orði komast, telur þrjá með- limi sem allir eru í fastri vinnu ann- ars staðar. Friðjón er t.d. mjólkur- fræðingur og sem slíkur ferðast hann mikið um landið og heimsækir bændur og búalið. Þar hefur hann drukkið í sig áðurgreinda alþýðutón- list ásamt mjólkinni og er afar áhugasamur um þau fræði og varð- veislu þeirrar menningar. Enda seg- ir hann plötuna nýju í raun standa utan við ballmarkmið sveitarinnar, í grunninn sé þetta verkefni sem miði að því að þessar tónsmíðar glatist ekki. Eins sé með aðrar útgáfur sveitarinnar. „Ég sjálfur er búinn að starfa í hinum og þessum hljómsveitum á Austurlandi síðan 1972,“ segir Frið- jón, aðspurður um tildrög sveitar- innar. „Fram að þessari hafði ég verið með hljómsveitina Bergmál í tíu ár. En eins og nafn þessarar sveitar gefur til kynna leikum við fyrst og fremst dansmúsík – við er- um ekki að spila neina tímamóta- músík. Við leikum bara venjulega ís- lenska tónlist. Markaðurinn er sannarlega til staðar, þorrablót og árshátíðir og slíkt. Við höfum lent í því að leika á menntaskólaballi á laugardagskvöldi og svo á þorrablóti eldri borgara á sunnudagskvöldi (hlær).“ Hljómsveitin á nokkra sögu að baki. Hún var stofnuð árið 1995 og strax árið eftir kom út fyrsta útgáfa Austfirskra staksteina. Árið eftir það kom svo út platan Við tónanna klið sem hefur að geyma lagasmíðar Fáskrúðsfirðingsins Óðins G. Þórar- inssonar. „Þessi varðveisluhugsjón er okkur ofarlega í huga. Því þetta efni týnist annars. Sum þessara laga eru meira en fimmtíu ára gömul og nánast ekk- ert af þeim hefur verið hljóðritað áð- ur. Við reynum að flytja þetta snyrtilega og á heiðarlegan hátt.“ Það þótti sæta nokkrum tíðindum að fyrsti Staksteinadiskurinn seldist vel á landsvísu er hann kom út. Upp- runalega bjuggust Friðjón og fé- lagar við því að sala yrði til muna staðbundnari. „Við fengum alveg ótrúlega mikil viðbrögð við þessu,“ segir Friðjón þegar hann er inntur skýringa á þessu. „Svona þegar ég pæli í þessu þá er lítið um að svona tónlist sé gef- in út. Þetta fær enga spilun í útvarpi t.d. og kannski þykir hún hallæris- leg. Ef við lítum t.d. til textagerð- arinnar þá er hún vissulega alveg sér á báti í þessari íslensku sveita- rómantík. Þetta er líka í ætt við þessa skandinavísku dægurlaga- sveiflu og Íslendingar þekkja ekkert hallærislegra en skandinavíska tón- list (hlær).“ Friðjón segir að lokum að nóg sé af efni á fleiri plötur en þeir ætli að bíða og sjá hvort kostur sé á því að gera meira. „En á meðan höldum við bara áfram að spila okkar einföldu en fjöl- breyttu danstónlist. Venjulega tón- list fyrir venjulegt fólk.“ Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar gefur út sína þriðju plötu Markmiðin ekki flókin Hvað er það sem hinn „venjulegi“ Íslendingur vill heyra þegar hann ætlar að gera sér glaðan dag? Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við Friðjón Jóhannsson um varðveislu íslenskrar al- þýðutónlistar og hina dægilegu dansmúsík. Austfirskir staksteinar II er komin út en um dreifingu sjá 12 tónar. arnart@mbl.is ÞAÐ ríkti mikil gleði á lokaballi vetrarins fyrir fatlaða í fé- lagsmiðstöðinni Árseli sem haldið var um síðustu helgi. Hljómsveitin Spútnik með Kristjáni Gíslasyni í fararbroddi lék fyrir dansi og fékk góðar undirtektir viðstaddra sem stigu trylltan dans. Unglingar, sem sækja fé- lagsmiðstöðina reglulega, sjá um að afgreiða í sjoppunni sívinsælu á þessum böllum fötluðu vina sinna, og að sjálfsögðu standast þau ekki mátið að blanda sér einnig í gleð- skapinn. Í Árseli eru haldin böll fyrir fatl- aða í hverjum mánuði frá október og fram í maí. Miðað við þá frábæru stemningu sem var á laugardags- kvöldið eru eflaust margir farnir að hlakka til að hittast í Árseli næsta haust. Dansinn dunaði dátt á lokaballinu. Lokaball fyrir fatlaða í Árseli Kristján Gíslason og hljómsveitin Spútnik fékk góðar viðtökur á ballinu. FRÉTTIR mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.