Morgunblaðið - 11.05.2003, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 11.05.2003, Blaðsíða 11
innan sinna vébanda betur. „Málefni leið- beinenda hafa ekki komið til tals innan KÍ í vetur. Við erum 15–25% af félagsmönnum KÍ og greiðum fleiri milljónir á ári í fé- lagsgjöld.“ Þeir ætluðu að reyna að ná einhverri sam- stöðu meðal allra þessara leiðbeinenda, en segja ekkert einfalt mál að stofna stétt- arfélag. Aðspurðir hvort ekki sé hægt að ná samstöðu meðal leiðbeinenda innan KÍ, án þess að stofna sérstakt stéttarfélag segja þeir að það ætti vissulega að vera hægt. „Það ætti að vera hlutverk KÍ að sinna því, að hjálpa okkur, félagsmönnum sínum, í réttindabaráttunni.“ Tími sérstakrar aðlögunar er liðinn Aðspurður hvort rætt hafi verið að leið- beinendur í framhaldsskólum gætu öðlast meira atvinnuöryggi, gætu t.d. fengið ráðn- ingu til tveggja ára eftir fjögurra ára starf, eða til þriggja ára eftir sex ára starf, segir Þórir Ólafsson í menntamálaráðuneytinu að hefð hafi skapast í þessum málaflokki. „Tími þeirrar sérstöku aðlögunar, sem kennarar í framhaldsskólum höfðu til að verða sér úti um kennsluréttindi, er í raun liðinn. Starf framhaldsskólakennara er lögverndað, en í fyrstu gerð laganna um þá lögverndun, á áttunda áratugnum, var ákveðinn sveigjan- leiki, sem veitti leiðbeinendum ákveðið svig- rúm til að verða sér úti um kennsluréttindi, með hraðferð yfir réttindanámið, sumarnám- skeiðum og fleira af þeim toga. Þegar lögin voru endurskoðuð síðast var ekkert slíkt ákvæði haft í þeim. Þetta er auðvitað spurn- ing um almenna stefnu í skólamálum og það lagaumhverfi sem við búum við. Og nýjustu breytingar á lögunum gera mörgum leið- beinendum kleift að fá þessi réttindi eftir 15 eininga nám, í stað 30 áður.“ Þórir segir erfitt að taka til greina kröfur um aukið atvinnuöryggi leiðbeinenda, þegar löggjöfin byggist á lögverndun kennara- starfsins. „Eðli lögverndunar á ákveðnu sviði er að öðrum en þeim sem hafa full rétt- indi er gert erfitt fyrir. Margur mætur leið- beinandinn hefur lent í óþægilegri stöðu vegna þessa, en það er óhjákvæmilegur fylgifiskur lögverndunarinnar. Tilvist leið- beinanda sem kennara er háð því að hann sé ráðinn til starfa á eins árs fresti.“ Óöryggið stærsti vandi leiðbeinenda Elna Katrín Jónsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara og varaformaður Kennarasambandsins, segir að leiðbeinendur í framhaldsskólum hafi smám saman aflað sér kennsluréttinda, en fækkun þeirra sé samt hæg. „Fyrir nokkrum árum voru leið- beinendur um 20% af öllum kennurum fram- haldsskóla. Því miður eru ekki til nákvæmar tölur um fjölda leiðbeinenda í framhalds- skólum nú, þar hefur menntamálaráðuneytið ekki staðið eins vel að verki og hvað varðar leiðbeinendur í grunnskólum.“ Elna Katrín segir að þar sem upplýsingar um leiðbeinendur undanfarin ár skorti, sé erfitt að átta sig á hvaða áhrif nýjustu kjara- samningar kennara hafi haft á þróunina. „Menntamálaráðherra skipaði á sínum tíma nefnd, sem mat þörf á kennurum í grunn- skólum fram til ársins 2010, en ekkert slíkt mat á kennaraþörf í framhaldsskólum er til.“ Elna Katrín segir að hvað sem öllum töl- um um fjölda leiðbeinenda líði, þá sé ljóst að skólarnir standi misvel að vígi. „Framhalds- skólar á höfuðborgarsvæðinu eru nánast fullmannaðir kennurum með réttindi og helst að vanti upp á það í einstaka greinum, þar sem ráðnir eru leiðbeinendur, oft aðeins í hlutastörf.“ Hún segir að töluverður munur sé á rétt- indum framhaldsskólakennara annars vegar og grunnskólakennara hins vegar. „Fram- haldsskólakennarar hafa vart merkjanlegan forgang til starfa í grunnskólum vegna meiri menntunar í kennslugrein sinni en grunn- skólakennarar. Réttindi grunnskólakennara eru innsigluð með leyfisbréfi þeirra. Í fram- haldsskólum þurfa kennarar hins vegar að hafa háskólapróf í kennslugrein sinni, eða lokapróf í starfsmenntagrein. Þar við bætist svo uppeldis- og kennslufræði til kennslu- réttinda. Þegar auglýst er eftir kennara þá þýðir ekkert fyrir menntaðan enskukennara með full kennsluréttindi að sækja um stöðu stærðfræðikennara. Hann á engan rétt þar. Þessu er oft ruglað illilega saman í um- ræðunni, til dæmis þegar rætt er um leið- beinendur. Þá er því oft ranglega haldið fram, að sá sem hafi uppeldis- og kennslu- fræði og hafi þar með hlotið löggildingu sem framhaldsskólakennari, hafi ávallt forgang við mannaráðningar í framhaldsskólum, um- fram þann sem hefur bara háskólapróf í þeirri grein sem auglýst er. Þetta er beinlín- is rangt. Það er engin heimild til að ráða mann með BA próf í ensku og kennslurétt- indi í stöðu stærðfræðikennara. Þar stendur leiðbeinandinn með háskólapróf í stærðfræði betur að vígi.“ Elna Katrín segir að stærsti vandi leið- beinenda sé það óöryggi sem þeir búi við, þar sem þeir séu aðeins ráðnir til eins árs í senn. „Það er engin önnur lausn á þeim vanda en að auðvelda þeim sem fest hafa sig í starfi sem leiðbeinendur að verða sér úti um kennsluréttindin. Það er ekkert sérlega auðvelt núna. Framboð Háskóla Íslands á fjarnámi hefur verið allt of lítið og núna, á því herrans ári 2003, ætlar Háskólinn ekki að bjóða neitt fjarnám til kennsluréttinda. Það er eitthvað bogið við þetta, á sama tíma og framhaldsskólar landsins eru að verða mikil fjarkennslusetur. Kennaraháskólinn sinnir þessu að vísu líka og gerir það vel, en hann getur ekki sinnt öllum og honum var aldrei ætlað að mennta fólk til bóklegrar kennslu í framhaldsskólum. Skólinn er menntunarstofnun fyrir grunnskólakennara, leikskólakennara og þroskaþjálfa og hefur frá gamalli tíð sinnt kennslu- og uppeld- isfræðimenntun fyrir verk- og listgreina- kennara í framhaldsskólum. Hann átti aldrei að taka yfir kennslufræðimenntun sem Há- skóli Íslands hefur boðið.“ Elna Katrín segir að leiðbeinendur eigi ekki rétt á námsleyfi til að öðlast kennslu- réttindi og eigi ekki rétt á styrkjum til að verða sér úti um slík réttindi. „Ef leiðbein- endur fengju sérstaka styrki, þá værum við að mismuna þeim sem ljúka háskólaprófi og verða sér úti um kennsluréttindi. Þá gæti þróunin orðið sú, að fólk reyndi að komast í starf sem leiðbeinendur til að sækja svo um styrki. Slík mismunun gengi ekki.“ Elna Katrín segir ekki hafa komið til tals að leiðbeinendur gætu öðlast stigvaxandi réttindi eftir starfsaldri. Slíkt myndi ganga gegn lögvernduðum réttindum kennara. „Staða leiðbeinenda er bundin af lögum um lögverndun á starfsheiti grunnskólakennara og framhaldsskólakennara. Meginráðningar- form kennara samkvæmt lögum er ótíma- bundin ráðning, sem er fastráðning með þriggja mánaða uppsagnarfresti. Í einstaka tilvikum er heimilt að ráða menn frá ári til árs. Til þess þarf undanþágur, sem má aldr- ei veita til lengri tíma en eins árs í senn hið mesta.“ Hún segir að það óöryggi sem leiðbein- endur búi við sé mjög alvarlegt mál. „Rétt- indaleysi leiðbeinenda getur tekið á sig skelfilegar myndir,“ segir hún og vísar til máls Bárðar R. Jónssonar. „Hann var í raun rekinn á meðan hann var í veikindaleyfi. Til allrar hamingju er mjög fátítt að slík mál komi upp og ég man ekki eftir öðru dæmi jafnslæmu. Bárður fékk að vísu greiðslur úr sjúkrasjóðnum okkar eftir mikið japl, jaml og fuður, enda þurfti nánast að breyta reglum sjóðsins til að gera það kleift. Tíma- bundin ráðning leiðbeinenda stendur ein- faldlega frá 1. ágúst til 31. júlí og rennur þá út, án nokkurra skuldbindinga af hálfu vinnuveitandans.“ KÍ gætir réttinda leiðbeinenda Aðspurð hvort Kennarasambandið sé ekki stundum að sinna andstæðum hagsmunum, með því að hafa bæði leiðbeinendur og kenn- ara með réttindi innan sinna vébanda, segir hún það vissulega rétt. „Við höfum alltaf haft báða hópana innan okkar vébanda og það myndi ekki þjóna hagsmunum neins að hafa annan hátt á. Leiðbeinendur stefna margir að því að öðlast kennsluréttindi, en þótt þeir geri það ekki, þá er erfitt að koma auga á hvaða aðili væri betur til þess fallinn en Kennarasambandið að gæta réttinda þeirra. Leiðbeinendur hafa full réttindi sem félagsmenn í sambandinu og þeim er raðað til launa í samræmi við kjarasamninga kenn- ara, nema hvað þeir eru tveimur launaflokk- um neðar. Þeir eiga fullan rétt í öllum sjóð- um sambandsins og svo mætti lengi telja. Það eina sem við getum ekki tryggt þeim er aukið atvinnuöryggi, því lögin taka af öll tví- mæli um að kennarar með kennsluréttindi hafi þar forgang. Það er rangt að Kenn- arasambandið vinni ekki fyrir leiðbeinendur og ég sé engan annan sem vinnur að þeirra hagsmunum.“ ráðnir til árs í senn rsv@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 11 B OÐIÐ er upp á nám til kennsluréttinda við fjóra háskóla hér á landi, Háskóla Ís- lands, Kennaraháskóla Íslands, Listaháskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Aðsókn að náminu er mikil. 60–70 hefja nám við HÍ Jón Torfi Jónasson, prófessor í uppeldis- og menntunarfræði, segir að Háskóli Íslands hafi tekið inn 60 nemendur á ári, sem taka ýmist 15 eða 30 einingar til kennsluréttinda. „Aðsóknin hefur verið í lægri kantinum undanfarin tvö ár, en við höfum þó fyllt þennan 60 manna kvóta. Umsóknarfresturinn í ár rann út 1. apríl sl. og nú ber svo við að umsóknir eru 150–160 talsins. Við tökum inn 60–70 í ár, svo mörgum verður vísað frá. Þar ræður nokkru hvaða nám fólk hefur að baki. Við höfum fengið færri umsóknir en við vilj- um frá fólki sem er menntað í náttúrufræði- greinum og stærðfræði. Umsóknir frá fólki sem er menntað í félagsvísindum hafa alltaf verið margar og fleiri en við náum að sinna. Við höf- um ekki nógu mörg æfingapláss í kennslu til að taka við þeim fjölda, en á sama tíma eru ekki fullnýtt æfingapláss, t.d. í stærðfræði.“ Jón Torfi segir að umsóknirnar hafi ekki verið flokkaðar eftir því hvort fólk sækir um 15 eða 30 eininga nám. „Hlutur þeirra sem sækja um 15 eininga námið fer þó vaxandi, enda er sá hópur sem lýkur framhaldsnámi á háskólastigi alltaf að stækka.“ Jón Torfi telur skýringuna á auknum fjölda umsókna í ár m.a. vera bætt kjör kennara. „Ég finn að fólk lítur öðrum augum á kennarastarfið nú en fyrir nokkrum árum. Svo verður að taka með í reikninginn, að undanfarið hefur töluvert verið rætt um ótryggt atvinnuástand og margir vilja tryggja sig með því að verða sér úti um kennsluréttindi í grein sinni. Skólameistarar, sem vilja gjarnan halda í góða leiðbeinendur, hvetja þá líka til að verða sér úti um kennsluréttindi, svo þeir neyðist ekki til að hafna þeim, sæki kennari með réttindi um stöðu þeirra.“ Í vetur býður Háskóli Íslands ekki upp á fjar- nám til kennsluréttinda, eins og hann gerði um árabil. Jón Torfi segir ástæðuna þá, að til þess skorti fé. 140 við KHÍ „Aðsókn í kennsluréttindanám hefur verið mjög mikil. Við tókum inn stóran hóp í fyrra, 140 manns, en getum ekki tekið jafnmarga inn á næsta skólaári,“ segir Brynhildur Briem, lektor og forstöðumaður kennsluréttindabrautar Kennaraháskóla Íslands. Í boði er bæði 15 og 30 eininga nám, en það fer eftir bakgrunni nemenda hvort þeim nægir að taka 15 einingar. Af þeim sem nú stunda staðbundið nám og fjarnám til kennsluréttinda við KHÍ eru fleiri í 30 eininga námi en 15 eininga. Brynhildur segir að hún vilji gjarnan að allir taki 30 eininga nám, þótt þeir gætu fengið kennsluréttindi eftir 15 eininga nám. „Mér finnst alveg eðlilegt að þeir sem hafa háskólapróf eða iðnmeistarapróf og hafa starfað í fimm ár sem leiðbeinendur taki aðeins 15 einingar. Hins vegar finnst mér út í hött að fólk, sem aldrei hefur stundað kennslu, geti látið 15 einingarnar nægja, á grundvelli þess að það hafi masters-próf í ein- hverju fagi.“ Nemendur í fjarnámi dreifast yfir fjórar heimsálfur. „Við höfum haldið próf erlendis fyrir nemendur í fjarnámi, en við ætlum ekki að gera það aftur. Það reyndist ekki vel, svo hér eftir verða prófin eingöngu hér á landi.“ Brynhildur segir að ekki sé formlegt samstarf milli þeirra háskóla sem bjóða upp á kennslu- réttindanám hér á landi, KHÍ, HÍ, Háskólans á Akureyri og Listaháskóla Íslands, nema að nem- endur Listaháskólans taka nokkur námskeið við KHÍ. Brottfall er ekki mikið í staðbundna náminu, en töluvert meira í fjarnáminu. „Um síðustu ára- mót höfðu tveir hætt í staðbundna náminu frá hausti af 54 nemendum, en af 84 nemendum í fjarnámi höfðu 15 hætt. Þeir sem eru í fjarnámi eru oftast einnig í starfi og eiga því erfiðara með að sinna náminu. Mér finnst þetta brottfall þó mjög slæmt, því við þurftum að vísa 60 um- sækjendum um réttindanám frá á síðasta ári.“ Brynhildur segir vissulega slæmt að þurfa að hafna umsækjendum, en skólinn hefði einfald- lega ekki ráðið við að taka inn fleiri nemendur í réttindanámið en 140. „Við höfum tekið sífellt fleiri inn. Í hitteðfyrra tókum við inn 60 nem- endur og þar áður voru alltaf teknir inn 30 manna hópar. Og ef litið er enn lengra aftur í tímann þá voru teknir inn 30 manna hópar ann- að hvert ár. Við höfum því bætt verulega við. Ég verð hins vegar vör við það núna að margir hafa áhuga á náminu, svo ég reikna ekki með að við getum tekið alla inn sem vilja. Í hópi áhugasamra er að vísu ekki eingöngu fólk sem ætlar að leggja fyrir sig kennslu innan skólakerf- isins, heldur líka fólk sem heldur ýmiss konar námskeið eða vill bæta mannleg samskipti og auka almenna menntun sína. Vissulega vildum við geta sinnt öllum, en við ráðum einfaldlega ekki við það.“ 24 listamenn í réttindanámi Listaháskóli Íslands býður upp á nám til kennsluréttinda og er yfirstandandi skólaár annað árið sem það er gert. Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, fagstjóri kennaranáms, segir að ein- staka áfangi námsins sé fjarnám, en annars sé námið staðbundið. „Fyrsta skólaárið tókum við inn 10 nemendur, en nú stunda alls 24 nem- endur nám til kennsluréttinda,“ segir Arn- þrúður. „Nemendur okkar eru myndlistarmenn, hönnuðir og leikarar, sem bæta eins árs námi við háskólamenntun sína. Haustið 2004 ætlum við einnig að taka við tónlistarmönnum í kennsluréttindanám.“ Arnþrúður segir að eðlilegt sé að Listahá- skólinn bjóði upp á kennslufræði fyrir listgreinar. „Þessi kennsla á heima innan okkar vébanda og umsóknum hefur fjölgað mjög eftir að námið fluttist hingað. Ári áður en Listaháskólinn hóf þessa kennslu voru 7 umsóknir frá listamönn- um um nám til kennsluréttinda við Kennarahá- skólann eða Háskóla Íslands, en fyrsta árið sem við buðum upp á þetta nám voru umsóknir 26 og í fyrra voru þær 40. Listafólki finnst greini- lega eftirsóknarvert að geta aflað sér kennslu- réttinda með námi innan Listaháskólans.“ Arnþrúður segir að vissulega sé bagalegt að geta ekki sinnt öllum sem sækja um skólavist. „Við ætlum að taka inn 20 nemendur á þessu ári, en ég sé fram á að við þurfum að taka fleiri þegar tónlistarmennirnir bætast við á næsta ári. Þrátt fyrir að við getum ekki annað eft- irspurn, þá er það ekki endilega svo að skortur sé á t.d. myndlistarmenntuðu fólki með kennsluréttindi. Stöður fyrir þennan hóp eru fá- ar. Það virðist þó ekki draga úr áhuga fólks. Hingað er mikið hringt og spurt út í námið.“ 40 hefja nám við HA Háskólinn á Akureyri tekur rúmlega 40 nem- endur inn í nám til kennsluréttinda á komandi hausti og hefur hópurinn aldrei verið stærri. „Í fyrstu tók Háskólinn á Akureyri aðeins inn nem- endur á þessa braut annað hvert ár, en frá hausti 2001 hafa nemendur verið teknir inn ár- lega,“ segir Torfhildur Sigrún Þorgeirsdóttir skrifstofustjóri. „Námið er fjarnám að hluta, en við höfum staðbundnar lotur. Nemendur koma í skólann eina viku að hausti og svo þrjá daga í senn, þrisvar á önn, eða um einu sinni í mánuði. Þetta fyrirkomulag hentar ágætlega fólki sem er í starfi. Í hópi nemenda núna er fólk á Norð- urlandi, en einnig annars staðar af landinu, t.d. Suðurlandi og Reykjavík.“ Haustið 2001 og 2002 voru teknir inn 35 nemendur hvort árið, en á næsta ári verða nemendur rúmlega 40. „Við finnum greinilega aukinn áhuga á þessu námi,“ segir Torfhildur. „Núna ber líka svo við, að margir umsækjenda eru að ljúka háskólaprófi í vor, en ætla beint í kennsluréttindanámið. Hingað til hefur verið al- gengara að námið hafi verið sótt af leiðbein- endum, sem eru að afla sér kennsluréttinda.“ Torfhildur segir að á því skólaári sem nú sé að ljúka hafi ekkert brottfall verið úr náminu. „Okkur finnst líka athyglisvert og ánægjulegt að sjá, að margir kjósa að taka 30 einingar, þótt þeir gætu öðlast kennsluréttindi eftir 15 ein- ingar. Fólk vill bæta við sig meiri menntun en felst í 15 eininga náminu.“ Mikil aðsókn í réttindanám
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.