Morgunblaðið - 11.05.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Við komum alltaf aftur.
Við lok samræmdu prófanna
Það þurfti við-
horfsbreytingu
SAMAN-hópurinn,sem er samstarfs-hópur ýmissa stofn-
ana og hópa, tók til við að
„vinna í“ málefnum nem-
enda við lok samræmdu
prófanna eftir að ófremd-
arástand skapaðist við
próflok fyrir nokkrum ár-
um. Mikil breyting hefur
fylgt og nú er enn komið að
próflokum. Framkvæmda-
stjóri SAMFOK, sem er
einn fjölmargra hópa Sam-
an-hópsins, er Bergþóra
Valsdóttir og svaraði hún
nokkrum spurningum
Morgunblaðsins.
– Segðu okkur fyrst frá
tildrögum þess að Saman-
hópurinn fór að vinna í
„lokadags“-málunum.
„Samstarfið hófst 1999
eftir undangengin dapur-
leg ár í Reykjavík þar sem
lokum samræmdra prófa virtist
fagnað af hópi nemenda með
áfengisdrykkju, hópamyndunum
og jafnvel skrílslátum í miðborg-
inni. Félagsþjónustan í Reykja-
vík, forvarnardeild lögreglunnar í
Reykjavík og ÍTR hittust til
skrafs og ráðagerða og ákveðið
var að kalla til fleiri aðila til sam-
starfs um að snúa þessari þróun
við.“
– Hver getur verið skýring á
því að þetta vandamál vatt upp á
sig á sínum tíma?
„Á þessum tíma voru önnur við-
horf til unglingadrykkju og úti-
vistartíma en nú eru. Samstarf
foreldra, skóla og félagsmiðstöðva
var of skammt á veg komið. Sam-
ráð og samstarf foreldra á milli
var í mörgum tilfellum lítið.“
– Hverjar voru áherslurnar í
starfi hópsins sem miðuðu að því
að koma böndum á ástandið?
„Öllum var ljóst að það þyrfti að
koma til viðhorfsbreyting í sam-
félaginu, en fyrst og fremst hjá
foreldrum. Við beittum okkur fyr-
ir öflugu samstarfi foreldra, skóla
og félagsmiðstöðva um að bjóða
upp á jákvæðan valmöguleika fyr-
ir unglingana við lok samræmdra
prófa. Við lögðum áherslu á
ábyrgð foreldra á börnum sínum.
Við brýndum fyrir foreldrum,
systkinum, vinum og vandamönn-
um að sýna væntumþykju sína í
verki og kaupa ekki áfengi fyrir
ungmenni undir 20 ára aldri. Við
hvöttum til að foreldrar sýndu
samstöðu og virtu reglur um úti-
vistartíma barna og unglinga.“
– Hvernig hefur til tekist að
þínu mati?
„Frábærlega! Gott samstarf
hefur náðst milli foreldra, skóla
og félagsmiðstöðva um uppbyggi-
lega og jákvæða skemmtun fyrir
unglingana við lok samræmdu
prófanna. Hér í Reykjavík eru
skipulagðar ferðir eða aðrir at-
burðir í nær öllum skólum þar
sem nemendum gefst kostur á að
fagna þessum tímamótum í hópi
samnemenda, kennara, starfs-
manna félagsmiðstöðva og for-
eldra.“
– Er sá árangur sem
náðst hefur til marks
um samtakamáttinn?
„Það er enginn vafi á
því að þessi árangur
hefði ekki náðst nema
með samstilltu átaki
samstarfsaðilanna. Það er sér-
staklega gleðilegt að grasrótin,
frjáls félagasamtök og opinberar
stofnanir skuli hafa náð svona vel
saman í þessu samstarfi og verið
einhuga um áherslurnar í starf-
inu.“
– Er það ekki rétt að aldrei má
slaka á klónni í þessu starfi?
„Þetta er viðvarandi starf sem
þróast og bregst við þeim aðstæð-
um sem upp koma í samfélaginu,
ekki átaksverkefni. Það koma nýir
árgangar nemenda og nýir for-
eldrar. En ég er bjartsýn á að tek-
ist hafi að skapa hefð sem muni
festast í sessi.“
– Hvað gera krakkarnir við
próflok nú til dags í stað þess að
vita ekki hvað þeir eiga af sér að
gera með þekktum afleiðingum?
„Í langflestum skólum í
Reykjavík er boðið upp á ferðir
strax að loknu síðasta samræmda
prófinu. Áhersla er lögð á að ferð-
in sé skemmtileg og bjóði upp á
einhverja ögrun fyrir nememdur.
Oftast gista þau eina nótt. Dýrar,
oft aðkeyptar, skipulagðar ferðir
eru ekki endilega nauðsynlegar.
Aðdragandi ferðarinnar er mjög
mikilvægur og skemmtilegur með
tilheyrandi fundarhöldum og fjár-
öflunum, það verður að gæta þess
að ferðirnar séu ekki svo dýrar að
einhver verði útilokaður frá þátt-
töku. Ég vil leggja á það áherslu
að það er engin ein „rétt“ upp-
skrift á því hvernig skemmtun
eigi að bjóða upp á. Það er mik-
ilvægt að frumkvæði í hverjum
skóla fái að njóta sín.“
– Er ekki notalegt að líta um öxl
og sjá svona góðan árangur af
þrotlausu starfi?
„Það hefur verið
mjög ánægjulegt að
starfa með þessum hópi
og það er frábært þeg-
ar svona vel tekst til.“
– Hvernig er best að
varðveita þann árangur
sem náðst hefur?
„Við eigum að líta fram á veg,
hafa metnað til að sjá til þess að
við lendum ekki aftur í gamla
farinu. Það krefst þess að allir
sem koma að uppeldi og menntun
barna og unglinga axli sína
ábyrgð. Það krefst þess að við
vinnum saman. Við höfum sýnt að
hægt er að breyta viðhorfum.“
Bergþóra Valsdóttir
Bergþóra Valsdóttir er fædd í
Reykjavík. Stúdent frá MS 1978.
Nam landafræði, þjóðhagfræði
og stjórnmálafræði við Háskól-
ann í Ósló 1982–87. Hefur unnið
m.a. sem ritari á Rannsókn-
arstofu landbúnaðarins, á leik-
skóla og við grunnskóla í Noregi
og er nú framkvæmdastjóri
SAMFOK, samband foreldra-
félaga og foreldraráða í grunn-
skólum Reykjavíkur og áheyrn-
arfulltrúi foreldra í Fræðsluráði
Reykjavíkur. Maki er Björn Erl-
ingsson hafeðlisfræðingur og
eru börnin fjögur, 24 til 10 ára,
Valur, Inga Lára, Kristján og
Lóa Björk
…að sjá til
þess að við
lendum ekki
aftur í gamla
farinu.
VÖRÐUVINAFÉLAG Íslands sem
stofnað var í nóvember sl. hefur
hug á að lagfæra allar þær 425
vörður sem standa á Sprengi-
sandsleið, hinni fornu, á
Gnúpverjaafrétti.
„Það eru 60 komnir í þetta fé-
lag. Við ætlum að endurreisa
þessar vörður sem liggja frá
Skriðufelli og inn á Sóleyjarhöfða
sem er í Þjórsárverum,“ sagði
Sigrún Bjarnadóttir bóndi á Foss-
nesi og upphafsmaður félagsins.
Markmiðið hjá félaginu er að
endurreisa vörðurnar þannig að
þær líti út eins og þær gerðu
upphaflega. „Grjótið er allt til
staðar, en þær hafa margar hrun-
ið. Þessar vörður eru ekkert
rosalega vel byggðar og ekkert
sérstaklega fallegar.
En þetta nýtist reiðfólki í dag,
þar sem þetta er gamla Sprengi-
sandsleiðin. Einnig nýtist þetta
göngufólki.“ Sigrún sagði að
stefnt væri á að endurreisa vörð-
urnar fyrir 100 ára afmæli
þeirra, en þær voru hlaðnar árið
1906.
„Við ætlum að vera búin með
þetta á hundrað ára afmælinu.
Við reynum að fá sem flesta til
að koma okkur í gang, svo getum
við bjargað okkur sjálf í fram-
haldinu. Það er öllum heimilt að
fara og hlaða,“ sagði Sigrún sem
þekkir sig vel á svæðinu.
„Ég hef farið á afrétt í mörg ár
að smala á haustin og oft horft á
þessar blessuðu vörður og fundist
algjör synd að láta þær grotna
niður. Því datt mér þetta í hug
og úr varð að ég fékk margt gott
fólk með mér. Það er svo mikill
áhugi fyrir þessu. Það er vakning
víða að halda uppi gömlum minj-
um – halda í þetta gamla,“ sagði
Sigrún.
Hyggjast lagfæra 425 vörður á Sprengisandsleið
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteins
Gera á vörðurnar í Gnúpverjaafrétti jafn sterkar og þær sem standa vestur af Þverárvatni á Jökuldalsheiði.
Endurgerðar í
upphaflegri mynd
KONA varð fyrir bíl er hún
var á gangi við Fjörukrána
við Strandgötu í Hafnarfirði
aðfaranótt laugardags.
Lögreglunni barst tilkynn-
ing kl. 01:18 um að kona væri
föst undir bíl. Bifreiðinni var
lyft upp með handafli og kon-
unni bjargað. Hún var talin
nokkuð slösuð og var flutt á
Landspítalann í Fossvogi.
Þá valt bíll á Hellisheiði um
kl. 20 mínútur í fimm á laug-
ardagsmorgun en hálka var á
heiðinni.
Ökumaður var einn í bílnum
og var hann fluttur á slysa-
deild í Reykjavík en meiðsl
hans voru þó talin minnihátt-
ar. Bíllinn skemmdist talsvert
og var dreginn af vettvangi.
Kona fest-
ist undir
bifreið