Morgunblaðið - 11.05.2003, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HAMPTON Court-höllin ínágrenni Lundúna ertengd Hinriki VIIIEnglandskonungi íhuga margra, þó sögu
hallarinnnar megi rekja allt til ársins
1236. En Hinrik VIII, sem ríkti frá
1509–1547, var flestum forvera sinna
litríkari og er ekki hvað síst minnst
fyrir eiginkonur sínar sex, þótt eyði-
leggingarkrafturinn og sköpunar-
gleðin sem einkenndu stjórnartíð
hans, sem og ómæld matarlist kóngs-
ins, séu ekki síður eftirminnileg. Það
var líka Hinrik VIII sem fór þess á
leit við breska þingið að 62.000 pund-
um yrði veitt í að gera Hampton Co-
urt-höllina upp á 10 árum, en sú upp-
hæð næmi í dag einum 18 milljónum
punda eða um 2,1 milljarði króna. Er
Hinrik lést árið 1547 átti hann rúm-
lega 60 aðsetur og var Hampton Co-
urt fjórði vinsælasti dvalarstaður
kongungs, á eftir höllunum í White-
hall og Greenwich, sem hvorug
stendur enn, og Windsor-kastala.
Þrátt fyrir þetta eyddi Hinrik VIII
aðeins 811 dögum í Hampton Court á
38 ára valdatíð sinni, sem sýnir að
hann kom oft en stoppaði yfirleitt
stutt við.
Hinar sex eiginkonur Hinriks
dvöldu líka allar í nýjum lúxusíbúðum
í Hampton Court og sjálfur lét kon-
ungurinn gera upp sínar vistarverur
að minnsta kosti sex sinnum. Er lokið
var við endurbyggingu hallarinnar
árið 1540 var hún ein nýtískulegasta,
smekklegasta og íburðarmesta höll á
öllu Englandi. Þar mátti finna tenn-
isvelli, flatir fyrir keiluspil, garða, yfir
40 hektara veiðisvæði, yfir 3.300 fer-
metra eldhús, fallega kapellu, stóra
borðstofu og baðherbergi sem gat
rúmað 28 manns samtímis. Um 1540
var þá lagt nýtt vatnleiðslukerfi með
blýrörum að höllinni og flutti það
vatn frá Coombe Hill í Kingston í um
5 km fjarlægð.
Hampton Court fær
á sig núverandi mynd
Íbúðir Hinriks VIII voru eyðilagð-
ar á 17. öld. En í janúar 1698 brann
Whitehall-höll til kaldra kola og
ákvað Vilhjálmur III (1689–1702) þá
að láta gera Hampton Court upp í nú-
verandi mynd. Hann tók sjálfur þátt í
að velja húsgögn í vistarverur kon-
ungsins og lét einnig gera breytingar
á skipulagi nýs einkagarðs. Vilhjálm-
ur lést árið 1702 eftir að hafa dottið af
hestbaki í garðinum í Hampton Co-
urt og náði því ekki að sjá viðgerð-
unum lokið. Mágkona Vilhjálms III
og arftaki að krúnunni, Anna drottn-
ing (1702–1714), dvaldi þó stundum í
íbúðum konungsins þar sem híbýli
drottningar voru ekki tilbúin. Hún lét
gera við kapelluna 1710–1711 og
skreyta stofu drottningar. Með and-
láti Önnu dó Stuart-konungsættin út
og við tók hin þýskættaða Hannover-
ætt. Hinn nýi konungur, Georg I
(1714–1727), var feiminn og lítt
mannblendinn. Hann talaði auk þess
ekki ensku, dvaldi lengst af í fæðing-
arborg sinni Hannover í Þýskalandi
og eiginkona hans kom, svo dæmi séu
tekin, aldrei til Englands. Við af
Georg I tók Georg II (1727–1760),
sem ásamt eiginkonu sinni elskaði
sýndarmennsku og íburð kóngalífs-
ins, en það féll í hans hlut að láta ljúka
framkvæmdum við vistarverur
drottningar á árunum 1715–1718.
31. mars 1986 kviknaði síðan í
stórum hluta íbúða konungs og tók
sex ár að gera við skemmdirnar.
Leiksvið fyrir Hamlet
Borðstofa Hampton Court er
stærsta herbergi hallarinnar, 32
metrar á lengd og 12 metrar á breidd
með 18 metra lofthæð. Borðstofan
var byggð af Hinrik VIII árið 1532 og
gegndi hún tveimur hlutverkum. Í
fyrsta lagi var herbergið borðstofa
fyrir 600 starfsmenn hallarinnar, sem
snæddu þar í tvískiptum hópum
tvisvar á dag og í öðru lagi gegndi
hún hlutverki inngangs fyrir ríkis-
íbúðirnar. Borðstofan er prýdd gull-
fallegu og mikið skreyttu viðarlofti og
flæmsk veggteppi frá 1540–1550, er
sýna sögu Abrahams og voru líklega
pöntuð af Hinrik VIII, prýða vegg-
ina. Hjartarhöfuð, frá 17. og 18. öld,
hanga þá fyrir ofan veggteppin. Stór-
an hluta 18. aldar var borðstofan not-
uð sem leikhús, en 23. september
1718 var Hamlet eftir William Shake-
speare sett þar á svið fyrir Georg I og
viku síðar Hinrik VIII.
Hornaherbergið var upphaflega
byggt sem eins konar biðstofa fyrir
þjónustufólk sem beið þess að setja
mat á borð í aðalsalnum og voru
hornin sett upp eins og þau eru í dag
árið 1993, en mörg þeirra eru frá 17.
öld.
Lífvarðasalurinn var upphaflega
fyrsta herbergið í vistarverum Hin-
riks VIII, en hin herbergin sem til-
heyrðu vistarverunum hafa verið
eyðilögð. Til vinstri er lítið herbergi
sem áður var baðherbergi lífvarð-
anna, en lífvarðasalurinn var einnig
notaður sem borðstofa fyrir háttsetta
hirðmenn. Til hægri við lífvarðasal-
inn liggur riddarasveinasalurinn og
hefur honum verið komið í það horf
er hann var í á árunum 1540–1550,
þegar riddarasveinarnir voru í saln-
um. Eitt af störfum þeirra var að
þjóna aðalsmönnum í lífvarðasalnum.
Afturgöngugangurinn nefnist einn
af göngum hallarinnar og dregur
nafn sitt af afturgöngu Katrínar
Howard, fimmtu eiginkonu Hinriks
VIII. Aðeins 15 mánuðum eftir að
þau gengu í hjónaband árið 1540 var
hin unga drottning sökuð um
framhjáhald og tekin höndum. Áður
en hún sætti fangavist í Tower of
London var henni hins vegar haldið í
stofufangelsi í vistarverum sínum í
Hampton Court og segir sagan að
hún hafi náð að flýja úr stofufangels-
inu og hlaupið eftir ganginum að kap-
elluhurðinni þar sem konungurinn
var við messu. Þegar hún kom að dyr-
unum var hún stöðvuð af lífvörðum
konungs, sem drógu hana til baka að
vistarverum sínum á meðan konung-
ur hélt áfram bænahaldi sínu. Aftur-
ganga Katrínar er sögð hlaupa áfram
um ganginn og kalla nafn Hinriks.
Konunglegu kapellunni, sem er
rúmlega 450 ára gömul, er svo skipt í
tvo hluta. En það var Hinrik VIII
sem lét gera hið gullfallega loft kap-
ellunnar á árunum 1535–36.
1.200 manns í fæði
Árið 1514 lét Wolsey kardináli
stækka Hampton Court og eitt af
fyrstu verkefnunum var að endur-
gera eldhúsin sem urðu að geta fætt
600 manns. Þau eldhús reyndust hins
vegar ekki nógu stór fyrir hirð Hin-
riks VIII, en á þeim tíma urðu eld-
húsin að geta fætt 1.200 manns og því
lét konungurinn stækka eldhúsin árið
1529 og urðu þau eftir stækkunina
einir 3.350 fermetrar að stærð. Eld-
húsunum var skipt í 50 herbergi og
þau notuð allt til ársins 1660 er farið
var að greiða starfsfólki laun í stað
fæðis. Með þeirri breytingu var sum-
Hampton Court-höllin.
Baðherbergi drottningar.
Breiðstiginn í vistarverum konungs.
Séð inn í hluta eldhúsanna.
Svefnherbergi drottningar.
Borðstofa konungs.
Munaðarlíf í
Hampton Court
Hampton Court er ein af höllum bresku krúnunnar og líkt og fleiri aðsetur konunga
einkennist hún af miklum íburði, en allt að 1.200 manns voru til að mynda í fæði í
höllinni á dögum Hinriks VIII. Bergljót Leifsdóttir heimsótti Hampton Court.