Morgunblaðið - 11.05.2003, Blaðsíða 36
UMRÆÐAN
36 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LENGI vel var samkeppnis-
hæfni þjóða háð því hversu miklar
náttúruauðlindir þær áttu og erfðu
kynslóð eftir kynslóð. Hefðu þjóðir
að auki ódýrt vinnuafl, lága vexti
og hagstætt gengi voru þær vel
settar samkeppnislega. Núna eru
hins vegar nýir tímar. Heimurinn
er orðinn að einum markaði. Þjóðir
heims þurfa að keppa hver við aðra
á markaði sem nálgast að vera full-
komlega skilvirkur. Upplýsingar,
vörur, þjónusta og fjármagn berast
á skilvirkan hátt um markaðinn og
eru flestum aðgengilegar á svip-
uðum tíma. Í slíku umhverfi er
hagsæld þjóða sköpuð, því hún erf-
ist ekki lengur. Í slíku umhverfi
byggist samkeppnishæfni þjóða á
getu atvinnuvega til nýsköpunar
og framfara. Sú þjóð sem getur
framleitt bestu vöruna/þjónustuna,
hraðast og með minnstum tilkostn-
aði hefur samkeppnisforskotið, þá
stundina. Af þessu leiðir að í þessu
nýja umhverfi er framleiðni eini
raunhæfi mælikvarðinn á sam-
keppnishæfni þjóða.
Í vandaðri fjögurra ára rann-
sókn á 10 leiðandi útflutningsþjóð-
um heims, sem stýrt var af Mich-
ael Porter frá Harvard-háskóla,
kom eftirfarandi í ljós:
– Náttúruauðlindir, ódýrt vinnu-
afl, viðskiptajöfnuður, gengi, og
aðrar klassískar hagfræðistærðir,
hafa lítið með samkeppnishæfni
þjóða að gera. Þýskaland, Japan
og Sviss, með fáar náttúruauðlind-
ir og hátt gengi, hafa stóraukið
samkeppnishæfni sína meðan
Rússland, með miklar náttúruauð-
lindir, situr eftir. Indland og
Mexíkó eru með nægt ódýrt vinnu-
afl, en ekki samkeppnishæfni, öf-
ugt við Þýskaland og Sviss sem
bjóða mjög há laun.
– Þótt stór heimamarkaður sé
kostur er hann engan veginn úr-
slitaatriði um samkeppnishæfni
þjóða. T.d stór heimsmarkaðshlut-
deild Japans á vestrænum ritvél-
um, sem hafa engan heimamarkað
í Japan. Nærtækara dæmi er vel-
gengni Pharmaco á heimsmarkaði,
þrátt fyrir mjög lítinn heimamark-
að. Miklu meira máli skiptir
hversu þróaður og kröfuharður
heimamarkaðurinn er.
– Eftir að þjóðir ná ákveðnu vel-
megunarstigi verður framleiðni-
aukning eina leiðin til að standa
undir hækkandi launum og lífs-
kjörum.
– Samkeppnishæfni þarf ekki
bara að koma frá hátækniiðnaði.
Stórkostlegur árangur getur kom-
ið út úr hefðbundnum atvinnu-
greinum. T.d. árangur flísafram-
leiðslu á Ítalíu á níunda
áratugnum. Þá voru ítölsk fyrir-
tæki leiðandi í heiminum í fram-
leiðslu og útflutningi á flísum. Í
rauninni náðu þessi fyrirtæki þeim
ótrúlega árangri að eiga 30% af
heimsframleiðslunni og 60% af
heimsútflutningi. Þessi einstaki ár-
angur var skapaður í kringum lít-
inn bæ sem heitir Sassuolo í
Emilia-Romagna-héraðinu.
– Mikilvægasta niðurstaðan var
að samkeppnishæfni var langmest
í þeim atvinnugreinum sem störf-
uðu í atvinnugreinaklösum
Það ánægjulegasta við þessar
niðurstöður er að þær eiga allar
einstaklega vel við Ísland. Ísland á
að vísu miklar náttúruauðlindir, en
er með dýrt vinnuafl, oftast nei-
kvæðan viðskiptajöfnuð og óstöð-
ugt gengi. Þá er heimamarkaður
hér á Íslandi einstaklega lítill, en
hann er kröfuharður. Að auki býr
Ísland þegar við mikla velmegun,
sem þýðir að áframhaldandi vel-
megun verður að byggjast á auk-
inni framleiðni og nýsköpun. Að
lokum á Ísland margar hefðbundn-
ar atvinnugreinar með mikla van-
nýtta framleiðniaukningarmögu-
leika.
Samkeppnisforskot Íslands mun
því verða til í atvinnugreinaklösum
í þekkingariðnaði. Slíkir klasar
verða til þegar hópur af fyrirtækj-
um í sömu atvinnugrein, á afmörk-
uðu svæði, studdur af skyldum
Um samkeppnishæfni
þjóða og Ísland
Eftir Jón Daða
Ólafsson
„Samkeppn-
isforskot Ís-
lands mun
því verða til í
atvinnu-
greinaklösum í þekking-
ariðnaði.“
MIKLAR deilur hafa staðið um
svonefnd vökulög, þ.e. lög sem sett
voru árið 1995 um aksturs- og hvíld-
artíma ökumanna o.fl. í innanlands-
flutningum og við flutning innan
Evrópska efnahagssvæðisins með
breytingum 1998 og 2000.
Þar er okkur sendibílstjórum gert
að fara eftir reglum EES sem gerðar
eru fyrir langflutningabíla sem
keyra um allt Evrópska efnahags-
svæðið.
Þótt við séum í snatti hér innan-
bæjar verðum við að fara að ströng-
um reglum t.d. heildaraksturstími
yfir tveggja vikna tímabil má ekki
fara yfir 90 klst.
Á hverjum sólarhring skal öku-
maður fá minnst 11 klst. samfellda
hvíld, þ.e.a.s. ef bílstjóri er í lítilli
vinnu allan daginn þá verður hann
samt að skila 11 tíma samfelldri
hvíld. Eftir sex dagleg aksturstíma-
bil ber ökumanni að jafnaði að taka
45 klukkustunda samhangandi hvíld.
Hvað er verið að gera okkur? Er
ekki hægt að breyta þessu, t.d. að
miða við ákveðinn km radíus frá
starfsstöð viðkomandi?
Við flytjum yfirhöfuð dauða hluti
þ.e.a.s. vörur og eru okkur settar
strangar kröfur með akstur og vöku-
tíma en t.d. leigubílstjórar sem flytja
fólk geta ekið allan sólarhringinn og
ekkert eftirlit er með því, eða jafnvel
strætóbílstjórar sem keyra leigubíla
eða sendibíla á milli vakta hjá
strætó.
Mér finnst réttlát krafa að endur-
skoða þessi lög með tilliti til sendibíl-
stjóra og það fyrr en seinna ef ekki á
að ganga af þessari stétt dauðri, já
steindauðri, sendibílstjórar hafa ver-
ið í mikilli niðursveiflu undanfarin
ár, fækkað um helming á 12 árum
en hafa þjónað landanum í rúm 50
ár. Það er heilmikið bil á milli sendi-
bílstjóra og langflutningabílstjóra og
er ég þeirrar skoðunar að breyta
þurfi þessum reglum með tilliti til
okkar sendibílstjóra.
Þessi ESS-samningur, sem er að
vissu leyti mjög neikvæður fyrir ís-
lenskar aðstæður, þar sem sendibíla-
útgerð á Íslandi er séríslenskt fyr-
irbæri, þar sem allir eru sjálfstæðir
atvinnurekendur og hefur verið
höggvið stórt skarð í okkar raðir,
sem dæmi vitna ég í sjónvarpsvið-
tal við Davíð Oddsson í byrjun apríl
þar sem hann sagði orðrétt um þenn-
an EES-samning, að vökulögin hjá
sendibílstjórum væru „algjör þvætt-
Sendibílstjórar –
vökulög og fleira
Eftir Sigurð Inga
Svavarsson
„Mér finnst
réttlát krafa
að endur-
skoða þessi
lög með til-
liti til sendibílstjóra og
það fyrr en seinna.“
OPIÐ HÚS – Njálsgata 7
Heimilisfang: Njálsgata 7
Stærð eignar: 68 fm
Brunabótamat: 7 millj.
Byggingarár: 1918
Áhvílandi: 5 millj.
Verð: 9,7 millj.
Nýuppgerð 2ja herbergja íbúð á
jarðhæð í virðulegu húsi. Eldhús
með ljósri innréttingu og borðkrók.
Rúmgott svefnherbergi með flottum
skápum. Baðherbergi flísalagt með
baðkari. Stór stofa. Sameiginlegt
þvottahús. Eign í mjög góðu
ástandi.
Linda sölufulltrúi Re/max tekur á
móti gestum milli kl. 16-17
Linda Björk Stefánsdóttir
sími 862 8683
Linda@remax.is Ragnar Thorarensen lögg. fasteignasali
Elísabet Agnarsdóttir - símar 520 9306/861 3361
elisabet@remax.is - Hrafnhildur Bridde lögg. fastsali
Heimilisfang: Ásholt 2
Stærð eignar: 107,9 fm
Bílskýli: 26,8 fm
Byggingarár: 1990
Brunabótamat: 15,3 millj.
Verð: 18,9 millj.
GLÆSILEG 4RA HERBERGJA ÚTSÝNISÍBÚÐ
Í VANDAÐRI LYFTU-BLOKK MIÐSVÆÐIS
Í REYKJAVÍK.
Elísabet fasteignamiðlari RE/MAX sýnir
eigninaMILLI KL 15 OG 17
OPIÐ HÚS - ÁSHOLT 2
Hrafnhildur Bridde - sími 899 1806
hrafnhildur@remax.is Hrafnhildur Bridde lögg. fastsali
Heimilisfang: KÓRSALIR
Stærð eignar: 111 fm
Byggingarár: 2001
Brunabótamat: 13,8 millj.
Áhvílandi: 11,5 millj.
Verð: 15,5 millj.
Glæsileg 2ja-3ja herb. íbúð á jarð-
hæð, (gengið beint inn), í nýlegri
lyftublokk í Salahverfi. Suður-
verönd og mikið útsýni. Mjög
rúmgóð stofa. Þvottaherb. í íbúð.
Hrafnhildur Bridde, löggiltur
fasteignasali RE/MAX, sýnir
eignina.
2JA HERB. - 200 KÓPAVOGI
Hans Gústafsson - s. 590 9516/865 2475 Hans@remax.is
Sigurbjörn Skarphéðinsson lögg. fastsali
Heimilisfang: Grundarstígur 24
Stærð eignar: 166 fm
Byggingarár: 1918
Brunabótamat: 17 millj.
Áhvílandi: 6,2 millj.
Verð: 19,8 millj.
Sérstök og mjög skemmtileg íb. í stein-
húsi. Íb. er 5 herb. 166 fm. Fyrsta hæð er
baka til en kjallari frá Grundarstíg. Gólf í
íb. eru með fallegum og vönduðum flís-
um, tvö svefnherb. með parketi og eru
skápar í öllum 3 herb. Stórt flísalagt bað-
herbergi með hornbaðkari. Aðalrými í íb.
er stór stofa, samliggjandi borðstofa og
eldh. Úr stofunni er gengið inn í fallega
sólstofu. Innrétt í íb. eru sérsmíðaðar og
mjög vandaðar.
Hans Gústafsson, fasteignamiðlari
RE/MAX, tekur á móti gestum á milli
kl. 15.00 og 17.00
OPIÐ HÚS - Grundarstígur 24
Skólavörðustíg 13
Sími 510 3800
Fax 510 3801
husavik@husavik.net
Reynir Björnsson
lögg. fasteignasali
Háteigsvegur - Neðri sérhæð
www.husavik.net
Stórglæsileg 202,2 fm neðri sérhæð, ásamt 26,5 fm bílskúr, í þessu glæsilega
steinhúsi. Um er að ræða óvenju vandaða eign, sem búið er að endurnýja
mjög mikið. Gegnheilt parket og náttúrusteinn á gólfum. Þrjár glæsilegar
stofur (arinn) og tvö svefnherbergi, góð lofthæð og falleg gluggasetning.
Rúmgott eldhús með fallegri upprunalegri innréttingu og stórt þvottahús innaf
eldhúsi. Lóðin er öll ný standsett. Þetta er eign í algjörum sérflokki.
Upplýsingar gefur Elías, sölumaður, sími 898 2007.
Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
Föt fyrir
allar konur
Alltaf á þriðjudögum