Morgunblaðið - 11.05.2003, Page 40
MINNINGAR
40 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Ólafur Þórðarsonfæddist í Laxár-
holti á Mýrum 16.
mars 1915. Hann and-
aðist á Dvalarheimili
aldraðra í Borgarnesi
28. apríl síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Guðrún Ólafsdóttir
og Þórður Ingigeir
Benediktsson. Systk-
ini Ólafs voru Sigur-
björg og Hjörtur Mar-
inó, þau eru bæði
látin.
Ólafur kvæntist 9.
júlí 1943 Ingibjörgu
Jóhannsdóttur frá Ósi, Borgarfirði
eystra. Þau hófu hjúskap í Reykja-
vík, fluttust þaðan í Stykkishólm
og síðan að Ökrum á Mýrum þar
sem þau hófu búskap árið 1952.
Þau hjón tóku að sér
sjö börn, þau eru;
Gunnar Þór, Dag-
mar, Dagný, Þórir
Jökull, Böðvar
Bjarki, Kolbeinn og
Guðný Ása.
Ólafur stundaði
sjómennsku framan
af ævi, mest sem vél-
stjóri á bátum frá
Vestmannaeyjum.
Um nær tveggja ára-
tuga skeið starf-
ræktu Ólafur og
Ingibjörg, ásamt með
hefðbundnum bú-
skap, sumardvalarheimili fyrir
börn að Ökrum. Þessa nutu hundr-
uð barna og unglinga.
Útför Ólafs var gerð frá Borg-
arneskirkju 5. maí.
Öll erum við þess meðvitandi að
sá dagur kemur að við munum
kveðja þennan heim. Í hvert sinn
sem vinur og samferðamaður fellur
frá mætir andlátsfréttin okkur mis-
jafnlega óvænt. Svo var einnig þeg-
ar mér barst fréttin um andlát
mágs mín og vinar, Ólafs Þórðar-
sonar frá Ökrum.
Hann var búinn að eiga við
nokkra vanheilsu að stríða síðustu
árin og dró stöðugt af honum þar til
yfir lauk hinn 28. apríl sl.
Leiðir okkar Ólafs lágu fyrst
saman þegar hann giftist Ingi-
björgu systur minni hinn 9. júlí
1943. Þau hófu sinn búskap í
Reykjavík en fluttu til Stykkis-
hólms 1948, þar sem Ólafur vann
við bifreiðaviðgerðir og útgerð á
áætlunarbílum.
Árið 1952 flyja þau að Ökrum í
Hraunhreppi og reisa þar nýbýlið
Akra III frá grunni, þar sem þau
bjuggu í 33 ár. Ásamt hefðbundum
kúabúskap komu þau sér upp að-
stöðu til þess að reka sumardval-
arheimili fyrir börn og starfræktu
það frá árinu 1960 til ársins 1980.
Ingibjörg og Ólafur eignuðust
ekki börn, en fljótlega eftir að þau
fluttu í Akra tóku þau tvö kjörbörn
og síðar í sambandi við sumardval-
arheimilið tóku þau að sér 5 fóst-
urbörn sem öll voru systkini. Öll
þessi sjö börn nutu umhyggju og
ástríkis þeirra hjóna eins og þau
væru þeirra eigin börn og veittu
þau þeim á móti margs konar gleði
og hamingju. Á þeim 20 árum sem
þau ráku sumardvalarheimilið
dvaldi hjá þeim ótrúlegur fjöldi
barna sem undi hag sínum vel á
Ökrum og nutu þar einstaks ástrík-
is og umhyggju hjónanna og starfs-
stúlknanna sem þar störfuðu og þá
jók það mjög á ánægju barnanna að
geta verið innan um húsdýrin og
notið frelsins úti í náttúrunni og
buslað í sjónum við sandinn þegar
ÓLAFUR
ÞÓRÐARSON
✝ HiminbjörgGuðmundsdótt-
ir Waage, Björg,
eða Imma, eins og
hún var oftast köll-
uð, af skyldfólki og
vinum, fæddist í
Reykjavík 27. mars
1915. Hún lést á St.
Jósefsspítalanum í
Hafnarfirði 29.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru hjónin Guð-
mundur Magnússon
Waage, f. á Skógum
í Arnarfirði, 30.
desember 1894, d. 12. júlí 1977, og
Sigurlaug Jónína Jóhannesdóttir,
f. á Hjaltabakka í Torfalækjar-
hreppi í A.- Húnavatnssýslu, 17.
júní 1891, d. 1. maí 1967. Alls voru
börn þeirra hjóna átta. Látin eru
auk Bjargar; Magnús; Jónína;
Jóna og Jensína. Á lífi eru Jó-
Eyþór Ólafsson, f. 20. janúar 1936.
Þau eiga þrjá syni. 3) Sigurður
Birgir, f. 21. desember 1944, sam-
býliskona hans er Steinunn Óla-
dóttir, f. 11. desember 1945. Þau
búa á Höfn á Hornafirði. Áður var
Birgir í sambúð með Sigrúnu Sig-
urjónsdóttur, f. 28. ágúst 1949,
þau eiga einn son og eitt barna-
barn. 4) Kristrún, f. 20. febrúar
1952, búsett í Kópavogi, hún eign-
aðist þrjá syni, einn af þeim er lát-
inn. Fyrir átti Björg Kolbrúnu
Guðmundsdóttur Devine, f. 7. júní
1936, hún er gift Jack Devine f. 8.
mars 1934, Þau búa í Bandaríkj-
unum. Börn þeirra eru þrjú og
barnabörnin sex. Barnabörn
Bjargar eru 14 og barnabarna-
börnin 19, þar af tvö látin, niðjar
hennar eru 38. Björg og Halldór
bjuggu lengst af við Lindargötuna
í Reykjavík. Þau slitu samvistum.
Björg giftist 30. október 1965
Ara V. Ragnarssyni, f. á Norðfirði,
31. maí 1927. Þáverandi skrif-
stofumanni í Reykjavík, síðar
kennara í Flataskóla í Garðabæ.
Útför Bjargar var gerð frá
Garðakirkju 4. apríl, í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
hanna; Guðbjörg og
Kjartan.
Undir lok fjórða ára-
tugar hóf Björg sam-
búð með Halldóri Kr.
Kristjánssyni frá Hrís-
hóli í Reykhólahreppi í
Austur-Barðastrand-
arsýslu, f. 26. febrúar
1915, d. 25. janúar
1988. Börn þeirra eru:
1) Kristján Eðvald, f.
24. febrúar 1938, kona
hans er Svanhvít
Magnúsdóttir f. 16.
febrúar 1941, þau eiga
tvo syni og búa í
Garðabæ. Áður átti Kristján eina
dóttur. Barnabörnin urðu átta,
þar af eitt látið. 2) Hulda, f. 10.
febrúar 1941, í sambúð með Guð-
mundi Bjarnasyni, f. 18. desember
1938, þau búa í Hafnarfirði og
eiga eina dóttur, barnabörn þeirra
eru fjögur. Fyrri maki Huldu er
Björg Waage var af þeirri kynslóð
sem ólst upp og lifði þær mestu
breytingar, sem orðið hafa í íslensku
samfélagi og kynntist hún þeim
miklu umskiptum sem urðu á kjör-
um fólks og aðbúnaði.
Frá landnámi til þess tíma hafði
að mestu ríkt kyrrstaða, sömu
vinnubrögðin og sami aðbúnaðurinn
hjá fólkinu, í það minnsta til sveita.
Ótrúlegt er að nokkur eigi eftir að
upplifa slíka byltingu, sem kynslóð
síðustu aldar gekk í gegnum.
Björg fluttist með foreldrum sín-
um níu mánaða gömul til Lónseyrar
við Arnarfjörð en þar bjó fjölskyldan
í nokkur ár. Guðmundur, faðir henn-
ar, stundaði sjó á togurum en móðir
hennar sá um heimilið auk smábú-
skapar, nokkrar kindur, hænsni og
garðrækt.
Eftir fermingu Bjargar lá leið fjöl-
skyldunnar aftur til Reykjavíkur.
Fór unga stúlkan fljótt að vinna fyrir
sér á ýmsum stöðum, m.a. starfaði
hún á saumastofu Andrésar Andr-
éssonar í ellefu ár. Sú vinna lét henni
vel enda einstaklega hög í höndum
og listfeng, sem fjölmörg verk á
heimili hennar bera vitni um.
Kynni þeirra Bjargar og Ara voru
báðum mikið hamingjuspor. Þau
hófu búskapinn í Hörgatúni 7 í
Garðabæ en árið 1969 festu þau
kaup á íbúð í Löngufit 38. Þar
bjuggu þau sér fagurt og notalegt
heimili, bæði fyrir tilverknað hagra
handa húsbóndans og þá ekki síður
listilega gerðra hannyrða húsmóður-
innar, sem sannarlega var listakona
á því sviði og ber fjöldi verka því
vitni á heimilinu.
Það var nánast sama hvort hún
prjónaði, heklaði eða saumaði út, allt
varð þetta að listaverkum í höndum
hennar. Ræktun og umönnunn
blóma var henni ákaflega hugleikin
og bera stofublóm hennar því vitni.
Eftir að þau Björg og Ari hófu
sambúð hætti hún að vinna utan
heimilis en lagði þess í stað krafta
sína og metnað í að sinna heimili
þeirra sem best.
Björg var ljóðelsk og sjálf hag-
mælt, þótt hún flíkaði því lítt. Í ljóð-
um hennar má greina lífsviðhorf
hennar og skoðanir. Þar er sérstak-
lega áberandi hin mikla samúð henn-
ar með þeim minni máttar og sem
standa höllum fæti, eins og eftirfar-
andi erindi úr einu ljóða hennar
„Börn götunnar“ bera með sér:
Blessað barnið vegavillta
veit ei, hvað skal hafast að,
að engum á sínu höfði að halla.
Hugsum okkur bölið það.
Óþekkt barn, sem áfram reikar,
endalaust um stræti og torg,
leitar hlýju í skúmaskotum.
Skömm er fyrir þjóð og borg.
Kynni okkar Bjargar, fyrrverandi
tengdamóður minnar, hófust sumar-
ið 1967, þegar hún ásamt Ara manni
sínum flutti okkur bræðrum ráðs-
konu í bæinn, sem var Hulda dóttir
hennar. Hún átti síðar eftir að verða
eiginkona mín í 20 ár. Þessi kynni við
Björgu og Ara áttu eftir að vaxa og
dafna og þar bar aldrei skugga á.
Björg og Ari nutu þess að ferðast
og fara á vit náttúrunnar, þau ferð-
uðust um landið allmörg sumur, þeg-
ar heilsa hennar leyfði. Nokkur síð-
ustu árin lá leið þeirra í orlofshús
Kennarasambands Íslands hjá Flúð-
um og nutu þau fegurðar og frið-
sældar þess staðar ríkulega. Björg
var fríð kona og fínleg, og viðmótið
glaðlegt. Skapföst var hún og hrein-
skiptin við alla. Hún bar með sér
HIMINBJÖRG
G. WAAGE
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
JÓNA KARITAS EGGERTSDÓTTIR,
andaðist á hjúkrunardeild Hrafnistu miðviku-
daginn 7. maí
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 16. maí kl. 15.00.
Ívar Guðmundsson, Rafn Guðmundsson,
Svanberg Guðmundsson, Eygló Benediktsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Móðir mín, amma og langamma,
KRISTÍN ALEXANDERS
frá Dynjanda,
Tangagötu 23,
Ísafirði,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði fimmtudaginn 8. maí.
Matthías H. Ragnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir,
tengdafaðir og afi,
BERNHARÐ ADOLF ANDRÉSSON
fyrrum bóndi,
Norðurfirði, Strandasýslu,
Rofabæ 43,
Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn 3. maí sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum hlýhug og samúð og sérstakar þakkir til Heimahlynningar
Krabbameinsfélags Íslands.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Heimahlynningu Krabbameins-
félags Íslands.
Áslaug Guðmundsdóttir,
Arinbjörn Bernharðsson, Sigríður Birna Magnúsdóttir,
Steinunn Sigurðardóttir,
Arnar Arinbjarnarson,
Bernharð Arinbjarnarson,
Tinna Arinbjarnardóttir,
Máni Steinunnarson.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlý-
hug og vináttu við fráfall
ÍVARS GRÉTARS EGILSSONAR.
Ásdís Hjörleifsdóttir,
Sigrún Hjördís Grétarsdóttir, Ómar Smári Ármannsson,
Kári Grétarsson, Anna Þórðardóttir,
Smári Grétarsson, Hazel Grétarsson,
Ásdís, Svandís, Þórður,
Grétar, Ívar og Bjarki.
Okkar ástkæri,
STEFÁN BRYNGEIR EINARSSON,
Keilusíðu 12c,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudag-
inn 16. maí kl. 13:30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðmunda M. Jóhannsdóttir,
Einar J. Stefánsson, Guðbjörg Haraldsdóttir,
Áslaug Ó. Stefánsdóttir, Oddgeir Sigurjónsson,
Ingibjörg H. Stefánsdóttir, Bergur V. Stefánsson,
barnabörn, barnabarnabarn
og systkini hins látna.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
BIRGIR KARLSSON
flugþjónn,
Reynilundi 11,
Garðabæ,
andaðist á Landspítala Fossvogi miðviku-
daginn 7. maí.
Svava A. Ólafsdóttir,
Georg Birgisson, Laufey B. Friðjónsdóttir,
Ólafur Birgisson, Robyn Redman,
Kári Georgsson,
Haukur Georgsson.