Morgunblaðið - 11.05.2003, Page 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 43
✝ Pétur GuðlaugurJónsson fæddist á
Brunnastöðum á
Vatnsleysuströnd 9.
október 1912. Hann
lést á Dvalarheim-
ilinu Eir 1. maí síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Margrét
Pétursdóttir og Jón
Einarsson og fóstur-
foreldrar þau Guð-
laug Pétursdóttir og
Andrés Pétursson.
Bræður Péturs, Ein-
ar Haukur, Erlingur,
Matthías Hafsteinn,
Guðmundur Björgvin og Jón Dan
Jónsson, eru allir
látnir og fóstur-
bræður hans, Stefán
Georg Elíasson og
Pétur Andrésson,
eru einnig látnir.
Eiginkona Péturs
er Hulda Ingibjörg
Biering, f. 22. júlí
1922. Börn þeirra
eru Viðar Már, f.
1944, Ellen Már, f.
1946, Pétur Andrés,
f. 1952, og Margrét
Guðlaug, f. 1959.
Útför Péturs var
gerð í kyrrþey 8.
maí.
Elsku pabbi.
Ég þakka þér fyrir allar góðu
stundirnar sem við áttum saman. Ég
og fjöldskylda mín erum rík að eiga
allar minningarnar sem aldrei munu
gleymast.
Við kveðjum þig með söknuði.
Margrét (Maggý) og fjölskylda.
PÉTUR GUÐLAUG-
UR JÓNSSON
Kveðja frá sam-
starfsmönnum
Stella Sigurleifsdótt-
ir lést á líknardeild
Landspítalans í Kópa-
vogi, hinn 22. apríl sl. eftir tiltölulega
stutta sjúkdómslegu.
Stella starfaði hjá Kópavogsbæ í
hartnær 25 ár, en hún hætti störfum
fyrir aldurssakir árið 1997. Allan
sinn starfsferil hjá bænum var hún
ritari á aðalskrifstofu ásamt því að
annast móttöku. Sinnti hún sérstak-
lega verkefnum fyrir bæjarstjóra og
bæjarritara, en á ferli sínum starfaði
hún fyrir 4 bæjarstjóra og 5 bæjar-
ritara.
Stella var afar farsæl í starfi og
sinnti þeim verkefnum, sem henni
voru falin af alúð og kostgæfni. Hún
gætti þess að allir hlutir væru á sín-
um stað og verkefni væru unnin vel
og á réttum tíma. Stella var glaðlynd
og þægilegur samstarfsmaður með
ríkt skopskyn, en sagði meiningu
sína umbúðalaust ef því var að skipta
og þá án alls hamagangs.
Það var ákaflega gott að leita til
Stellu ef einhver mál komu upp á,
sem þurfti að leysa fljótt og vel og
ekki síður þægilegt að vita af því að
hún gætti þess vel að engin þau föstu
verkefni, sem yfirmenn hennar
þurftu að sinna gleymdust í amstri
daganna.
Stella var vinsæl meðal samstarfs-
manna sinna enda þægileg í um-
gengni og skemmtilegur félagi, sem
átti auðvelt með að sjá það jákvæða í
lífinu.
Á vel við að segja um hana, að hún
hafi verið drengur góður. Það er
mikil eftirsjá að Stellu Sigurleifs-
dóttur og söknuður meðal þeirra,
sem með henni störfuðu þó svo að
nokkur tími sé liðinn síðan hún
kvaddi vinnustað sinn á bæjarskrif-
stofunum. Það hefur verið hamingja
Kópavogsbæjar að hafa á að skipa
hæfu og góðu starfsfólki og er Stella
Sigurleifsdóttir þar fremst meðal
jafningja. Við sem þekktum Stellu og
unnum með henni kveðjum hana nú
með þökk og virðingu um leið og við
vottum eiginmanni hennar, börnum
og öðrum ættingjum samúð okkar og
hryggð við fráfall hennar.
F.h. starfsfélaga
Sigurður Geirdal bæjarstjóri.
Stella hefur kvatt okkur. Hún var
lík fjöllunum sínum í Arnarfirði,
sviphrein og með skarpa drætti. Það
var aldrei nein hálfvelgja eða drungi
í kringum hana. Hún var stór, bæði
til orðs og æðis.
Við vorum samstarfsmenn um
árabil og lengst af deildum við kjör-
um á sömu fermetrunum, unnum
nánast í takt. Hún var einkaritari
minn. Hún var víðlesin og víðreist,
hafði búið árum saman í sunnan-
verðri Evrópu. Hún var bráð-
skemmtileg, hafði skoðanir, var
hreinskiptin, hló dátt og færði ætíð
birtu og líf í bæ. Þoldi hvorki væmni
né orðalengingar. Það gustaði af
henni – líkt og af fjöllunum tignar-
legu í heimabyggð hennar.
Eftir að ég yfirgaf vinnustað okk-
ar fyrir allmörgum árum urðu fundir
okkar eðlilega strjálli. Alltaf var
samt jafn notalegt að hitta hana.
Hún skaut þá að manni hugrenning-
um sínum um þjóðmálin til umþenk-
ingar eða kallaði eftir umræðu. Þá
nefndi hún líka oft lestrarefni sitt.
Hún var leitandi manneskja og vildi
deila geði með fólki. Sérhver óx af
kynnum við hana.
Að leiðarlokum vil ég þakka kynn-
in góð og mannbætandi samstarf.
Á kveðjustund sendi ég Pétri, eig-
STELLA
SIGURLEIFSDÓTTIR
✝ Stella Sigurleifs-dóttir fæddist á
Bíldudal 12. janúar
1928. Hún lést á líkn-
ardeild Landspítal-
ans í Kópavogi 22.
apríl síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá Kópavogs-
kirkju 2. maí.
inmanni hennar, börn-
um og ættingjum öðr-
um, hugheilar samúð-
arkveðjur.
Kristján Guð-
mundsson, fyrrv.
bæjarstjóri.
Stella Sigurleifsdótt-
ir, frænka mín, lést 22.
apríl sl. eftir að hafa
nýlega haldið upp á 75
ára afmæli sitt með
glæsibrag. Sem barn
gisti ég einhverju sinni
með foreldrum mínum
á heimili föðurbróður míns, Vinamóti
á Bíldudal. Þar sá ég rafljós í fyrsta
sinn. Frænkur mínar, Erna og
Stella, kenndu mér að kveikja ljósið.
Síðan hefur ávallt stafað birtu af
minningunni um þær og þeirra nán-
ustu.
Það var einnig bjart yfir síðustu
fundum okkar Stellu, eiginmanns
hennar, dóttur og dótturdóttur þó að
við vissum öll að stundaglasið væri
að renna út. Stella fór með gaman-
mál, rifjaði upp harða keppni okkar í
spilaklúbbnum Bjarti sem var mann-
aður Sigurleifsdætrum og systur
minni Álfheiði auk mín. Stella gaf
mér gjarnan borðleggjandi forhand-
argrand, ég lofaði heilu í staðinn en
stóð sjaldan við það. Það var heið-
ríkja yfir þessum síðustu stundum
með Stellu.
Ég votta fjölskyldu hennar inni-
lega samúð mína.
Einar Gíslason.
Skjótt skipast veður í lofti. Í jan-
úar hélt Stella Sigurleifsdóttir, vin-
kona okkar, upp á 75 ára afmæli sitt
með glæsibrag og hún virtist glöð og
hress, en daginn eftir komu í ljós al-
varleg veikindi hennar. Pétur og fjöl-
skylda hans verða nú fyrir öðru áfall-
inu á tæpu ári.
Leiðir okkar og Stellu og Péturs
lágu fyrst saman fyrir tæpum 50 ár-
um, er við öll vorum við nám og störf
í Kaupmannahöfn og bundumst sér-
stökum vináttuböndum sem hafa
haldist og styrkst alla tíð síðan.
Þótt þau flyttu fljótlega til Strass-
borgar þar sem Pétur tók við störf-
um hjá Evrópuráðinu og hópurinn
dreifðist á háannatíma lífsins, var
alltaf hresst upp á kunningsskapinn
við heimsóknir þeirra til landsins og
eins naut einn undirritaðra ríkulega
gestrisni þeirra hjóna er hann átti
erindi til Strassborgar. Síðan var
þráðurinn tekinn upp og hist jafn-
aðarlega, er þau fluttust alkomin til
landsins 1964 með fjögur börn sín.
Stella var glæsileg kona, geislaði
af góðvild, ljúf og elskuleg. Hún
hafði einstakt næmi á spaugilegar
hliðar mála, leikhæfileikar og hnytt-
inn frásagnarmáti gæddu hina
hversdagslegustu hluti lífi. Við
skemmtum okkur og hlógum saman.
Stella var mikil heimskona. Þau
Pétur ferðuðust saman bæði vegna
starfa hans og í seinni tíð á gamlar
slóðir með viðkomu hjá börnum sín-
um erlendis. Þau hjónin hafa verið
mjög samrýnd og samtaka í lífinu.
Þau voru höfðingjar heim að sækja.
Boð á fallegt og hlýlegt heimili
þeirra voru einstök og alltaf ánægju-
leg. Seinni ár höfum við farið saman
á veitinghús af ýmsum tilefnum að
ógleymdum öllum góðu gönguferð-
unum um nágrennið, Hellisheiðina
og í Hveragerði. Það er mikils virði
að eiga sameiginlegar minningar og
fá að eldast saman með gömlum vin-
um. Stórt skarð hefur verið höggvið í
vinahópinn. Skarð sem ekki verður
fyllt. Við þökkum samfylgdina og
ótal samverustundir og vottum Pétri
og fjölskyldunni samúð okkar. Bless-
uð sé minning Stellu Sigurleifsdótt-
ur.
Þórunn, Jón, Sigrún, Jón Er-
lingur, Svandís og Eyþór.
Það kom ekki á óvart að Stella
legði í langferð að vori. Þegar sól tók
að hækka á lofti og farfuglarnir und-
irbjuggu ferð í norður flaug hugur
hennar til meginlandsins þar sem
hún hafði svo oft fagnað vori með
fjölskyldu sinni er þau bjuggu er-
lendis um árabil.
Við sem unnum með henni á fjórðu
hæð Bæjarskrifstofu Kópavogs tók-
um þátt í útþrá hennar og ferðagleði
sem varð kveikjan að litlum ferða-
klúbbi kvenna sem kölluðu sig Amst-
urdömur. Bæði var að fyrsta ferðin
var farin til Amsterdam og að við
þurftum að amstra töluvert til að
geta láta drauminn rætast. Bakaðar
voru kökur sem seldar voru á kaffi-
stofunni og sem meðlæti á fundum,
dregið af launum í ferðasjóð og ým-
islegt fleira fundið til. Í öllum und-
irbúningi og áætlanagerð var Stella
sjálfkjörinn leiðtogi, sú sem aflaði
upplýsinga um tilboð og tækifæri,
ferðatilhögun og fjármögnun og
hreif okkur allar með sér með sínum
eðlislæga krafti og kæti. Þegar lagt
var af stað með „Veislu í farangr-
inum“ og hlýjar óskir góðra sam-
starfsmanna sem sáu um störfin á
meðan var vorið komið í hugum okk-
ar þó oftast færum við um miðjan
mars.
Stella var skemmtilegur ferða-
félagi sem naut þess að sitja á úti-
veitingastað með hvítvínsglas eða
kaffibolla og láta sólina verma sig.
Þá flaug hugurinn hátt og umræð-
urnar tóku ýmsar stefnur, hún hafði
einstaka frásagnargáfu, var vel
heima um menn og málefni, var vel
lesin og skarpgreind.
En tíminn flýgur hratt og þó
Stella hætti störfum hélt hún alltaf
góðu sambandi við sitt fyrrverandi
samstarfsfólk. Á sjötíuogfimm ára
afmælinu bauð hún okkur Amstur-
dömum til veislu ásamt vinum og
vandamönnum. Þá var gaman að
gleðjast saman og ákveðið að ferða-
hópurinn hittist fljótlega aftur á veit-
ingahúsi til að finna gömlu stemn-
inguna, staður og stund voru ákveðin
en Stellu auðnaðist ekki að koma
með, tíminn var of naumur. Við biðj-
um henni fararheilla í síðustu ferð-
inni og þökkum fyrir samfylgdina.
Sigrún.
Það var fyrir meir en hálfri öld
sem vegir okkar Stellu lágu saman,
var það í frönskutíma í Berlitz-skóla
Halldórs Dungal. Stella var þar með
vinkonum sínum en ég kom ein, en
um leið var hún búin að koma mér í
sinn hóp. Þar var ekki eineltinu fyrir
að fara. Þetta var undirbúningur að
Parísardvöl, en þó fór svo að við vor-
um þar ekki samtímis þar sem hún
var farin þegar ég kom þangað.
Þó slitnaði sambandið ekki og er
heim kom kynntist ég fjölskyldu
hennar og öllum þeim fjölmörgu sem
hún þekkti. Vinnustaður hennar þá
var hjá Borgardómara Reykjavíkur
og þar kom hún mér einnig í sam-
band við alla, háa sem lága, það ynd-
islega fólk sem þar var og þaðan á ég
margar góðar vinkonur.
Stella var afskaplega gefandi per-
sónuleiki og laðaði hún fólk að sér.
Hún var svo skemmtileg að þegar
við vorum með henni urðum við bara
öll skemmtileg líka. Hún var fé-
lagslynd, velviljuð og trygglynd.
Vinátta okkar hefur varað í öll þessi
ár og ekkert breyst þó löng utan-
landsdvöl hafi verið í millum.
Nú er hún farin og mikið verður
þá lífið fátæklegra en það var mér
gæfa að kynnast henni.
Ég kveð hana með miklum sökn-
uði og þakka samfylgdina.
Farðu vel, kæra vinkona,
Kristín Guðjohnsen.
Þegar ég vaknaði sunnudaginn 12.
janúar í vetur var fyrsta hugsun mín
að hún Stella væri 75 ára í dag, og að
ég yrði að fara til hennar á afmæl-
isdaginn. Við ákváðum því að fara
með fluginu frá Bíldudal um miðjan
daginn, fórum í afmælið til Stellu
sem var mjög ánægjulegt. Þegar ég
hringdi heim til hennar til að þakka
fyrir mig frétti ég að Stella hefði
veikst og verið flutt á spítala daginn
eftir afmælið og væri sennilega með
krabbamein, sem reyndist rétt vera.
Þessi sjúkdómur hefir nú riðið henni
að fullu og lést hún 22. apríl síðastlið-
inn.
Ég hef þekkt Stellu síðan við vor-
um smábörn. Foreldrar Stellu, Sig-
urleifur og Viktoría, og foreldrar
mínir, María og Júlíus, voru mikið
vinafólk, og áttu þau meðal annars
bæði kýr og kindur sem var heyjað
fyrir í sameiningu. Þegar Stella er
um það bil sjö ára veikjast foreldrar
hennar og verða að koma börnum
sínum fyrir, en eru sjálf flutt á
sjúkrahús í Reykjavík. Þá kom
Stella á heimili okkar, ég man enn er
ég sá pabba koma berandi Stellu
heim til okkar á Grænabakka. Þá
hafði hún veikst af botnlangabólgu,
var hún fárveik framan af, en hún
komst á fætur og mun hún hafa verið
um sex vikur að ná sér. Þorbjörn
læknir annaðist hana af natni, en
ekki voru önnur lyf en ópíum sem
hún fékk við verkjum. Þegar hún var
orðin hress liðu árin við alls konar
leiki sumar og vetur. Mér fannst
ákaflega gott að fá stelpu á mínu reki
inn á heimilið, því ég átti bara eldri
systkini, sem voru 13 og 15 árum
eldri en ég. Okkur Stellu féll mjög
vel og man ég ekki eftir neinu ósam-
komulagi okkar á milli.
Stella var hjá okkur fram yfir
fermingu, en þá voru foreldrar henn-
ar komnir til sæmilegrar heilsu og
flutti hún til þeirra. Eftir það áttu
þær systur Erna, Stella og Rakel
heima í Reykjavík og fóru þar í sína
skólagöngu. Einn bróður átti Stella,
hann hét Ríkharður, en hann
drukknaði á Arnarfirði árið 1936.
Stella giftist svo Pétri Guðfinns-
syni og fluttist með honum utan og
síðast áttu þau heima í Strassborg í
mörg ár, þar sem Pétur vann við
Evrópuráðið. Þau fluttu svo heim
þegar Ríkissjónvarpið var stofnað og
gerðist hann framkvæmdastjóri þar.
Eftir að þau fluttu utan varð lengra á
milli þess að við hittumst, en það var
bara ennþá meira gaman að hittast.
En eftir þau fluttu heim hittumst við
oftar.
Börnin þeirra voru Ólöf, Áslaug,
Pétur og Elín. Þau urðu fyrir þeirri
miklu sorg að missa Áslaugu, næst-
elstu dóttur sína, úr krabbameini á
síðasta sumri, en ég er ekki í neinum
vafa um að Stella hefur hlakkað til
endurfundanna við hana þegar yfir
lyki.
Ég hef hugsað svo mikið til æsku-
áranna undanfarið, og þess sem við
Stella tókum okkur fyrir hendur, og
þær minningar mun ég geyma um
þessa stúlku sem ég finn að mér hef-
ur þótt óskaplega vænt um og var
alltaf svo ljúf og hlý. Mér er svo
minnisstætt hvað Stella kunni mikið
af bænum, sem hún fór með á hverju
kvöldi og bað Guð að gefa foreldrum
sínum heilsuna á ný, á meðan þau
voru veik, og hún endaði alltaf bænir
sínar á þessu versi:
Hveitikorn þekktu þitt
þá upp rís holdið mitt.
Í bindini barna þinna
blessun láttu mig finna.
(H.P.)
Elsku Pétur og fjölskylda, Rakel
og fjölskylda.
Við Friðrik og fjölskyldur okkar
sendum ykkur innilegar samúðar-
kveðjur.
Elsku Stella, þakka þér fyrir allt.
Guð blessi þig.
Nanna Þrúður Júlíusdóttir.
Háteigskirkja. Eldri borgarar. Félagsvist á
morgun í Setrinu kl. 13.
Árbæjarkirkja. Æskulýðsfélagið Lúkas
með fund í safnaðarheimilinu kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Mánudagur: Kl. 13–
15.30 opið hús fyrir fullorðna í safnaðar-
heimili kirkjunnar. Spilað, fræðst, kaffi og
spjall. Bænastund kl. 15.15 í kirkjunni.
Fyrirbænaefnum má koma til djákna í
síma 557 3280. Þeir sem óska eftir akstri
láti vita í sama síma fyrir hádegi á mánu-
dögum. Stúlknastarf fyrir 11–12 ára kl.
17–18. Æskulýðsstarf fyrir 8.–10. bekk á
mánudagskvöldum kl. 20.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tek-
ið er við bænarefnum alla virka daga frá kl.
9–17 í síma 587 9070.
Seljakirkja. Mánudagur: KFUK-fundur fyrir
stelpur 9–12 ára kl. 17.15 í kirkjunni. Fjöl-
breytt fundarefni. Allar stelpur velkomnar.
Lágafellskirkja. Sunnudagaskólinn kl. 13
í safnaðarheimili kirkjunnar í Þverholti 3,
3. hæð. Allir velkomnir. Mánudagur: Al-
Anon fundur í kirkjunni kl. 21. Bænahópur
á mánudagskvöldum í Lágafellskirkju kl.
20.
Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld sunnudag
kl. 19.30.
Krossinn. Almenn samkoma í Hlíðasmára
5 kl. 16.30. Allir velkomnir.
Fríkirkjan KEFAS, Vatnsendabletti 601.
Samkoma kl. 14. Ræðumaður Bryndís
Svavarsdóttir. Lofgjörð og fyrirbænir. Tví-
skipt barnastarf fyrir 1–5 ára og 6–12 ára
börn á sama tíma. Kaffi og samfélag eftir
samkomu. Allir hjartanlega velkomnir.
Safnaðarstarf
Morgunblaðið/Arnaldur Halldórsson
Fella - og Hólakirkja.