Morgunblaðið - 11.05.2003, Page 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 49
Fyrirtæki til sölu:
Upplýsingar um fyrirtæki aðeins veittar á skrifstofunni.
Vinsamlega pantið tíma. Síminn er 533 4300.
Höfum til sölu nokkrar stórar sérverslanir, heildverslanir og iðnfyrirtæki í
ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100—1000 m. kr.
Pylsvagn í iðnaðarhverfi. Ársvelta 5,5 m. kr. Stuttur opnunartími.
Rótgróin ritfangaverslun í verslunarmiðstöð, góður rekstur og skemmti-
legt tækifæri.
Deild úr fyrirtæki. Mjög þekkt umboð fyrir ferðatöskur. Ársvelta 8 m. kr.
Heildverslun með þekkt merki í matvöru. Ásvelta 40 m. kr.
Veitingahúsið Dinerinn í Ármúla. Velta 1.200 þús. kr. á mánuði. 49 sæti
+ bakkamatur. Stuttur opnunartími.
Flutningaþjónusta á Suðurnesjum. Þægilegt dæmi.
Framköllunarþjónusta í miðbænum. Góð tæki, frábær staðsetning.
Kaffihús á Vesturlandi. Eigið húsnæði. Auðveld kaup.
Stór og mjög vinsæl krá í úthverfi. Ein sú heitasta í borginni.
Stór austurlenskur veitingastaður í miðbænum. Mikil velta, góður hagn-
aður. Eigið húsnæði.
Stórt samkomuhús í nágrenni Reykjavíkur með góðri aðstöðu fyrir
dansleiki, veislur og fundi. Ársvelta 40—50 m. kr. Gott tækifæri fyrir
fagmenn. Rekstrarleiga möguleg.
Lítið sandblástursfyrirtæki með miklum tækjabúnaði. Hentugt fyrir tvo
samhenta menn eða viðbót t.d. fyrir málningarfyrirtæki.
H-búðin Garðatorgi. Rótgróin fataverslun með eigin innflutning.
Skemmtilegt tækifæri fyrir tvær samhentar konur. Lækkað verð.
Deild úr fyrirtæki með útstillingarvörur.
Heildsala/smásala í snyrtivörugeiranum. Miklir vaxtarmöguleikar.
Járnsmíðaverkstæði í Kópavogi. Ársvelta 32 m. kr. Ágæt verkefna-
staða.
Matvöruverslun á uppgangsstað í nágrenni Reykjavíkur. Ársvelta 136
m. kr. Góð afkoma.
Þekkt heildverslun með 100 m. kr. ársveltu og ágæta markaðsstöðu.
Lítil heildverslun/verslun í Hafnarfirði með gjafavörur.
Góð sólbaðsstofa í Breiðholti. Besti tíminn framundan.
Tískuvöruverslun í lítilli verslunarmiðstöð. Eigin innflutningur, góð
merki.
Gott þjónustufyrirtæki í prentiðnaði.
Sólbaðsstofa og naglastofa í góðu bæjarfélagi í stór-Reykjavík. 6 bekk-
ir, þar af 5 nýir. Verð 7,5 m. kr.
Þekkt bónstöð til sölu eða rekstrarleigu fyrir réttan aðila.
Söluturn í atvinnuhverfi í Kópavogi. Verð 11 m. kr. Góð greiðslukjör fyrir
gott fólk.
Lítill iðnrekstur til sölu. Mjög hentugur fyrir verndaðan vinnustað. 4—6
störf.
Þekkt heildverslun með tæki og búnað fyrir byggingaverktaka.
Meðeigandi óskast að góðum veitingastað á Akureyri.
Grensásvideó. Ágætur hagnaður, auðveld kaup. Rekstrarlega mögu-
leg.
Rótgróið og vel arðbært gistihús miðsvæðis í Reykjavík. 30 herbergi og
lítil íbúð fyrir eiganda, ársvelta 40 m. kr.
Rótgróin snyrtistofa í verslunarkjarna. Verð 3 m. kr.
Dagsöluturn við Laugaveg. Fallegur og snyrtilegur staður.
Þekkt barnavöruverslun og heildverslun. Góð umboð. Ársvelta 25 m. kr.
Stór sérhæfð trésmiðja með góðan hagnað. 10 starfsmenn. Gott tæki-
færi fyrir fyrirtæki í svipaðri starfsemi.
Höfum ýmis góð sameiningartækifæri fyrir stærri fyrirtæki.
Fullbúin naglaverksmiðja með nýjum tækjum sem passar í lítið húsnæði
eða jafnvel bílskúr. Hentar vel til flutnings út á land. Verð aðeins 3,5 m. kr.
Sérhæft fyrirtæki sem setur lakkvörn á bíla. Gott einkaumboð, tæki og
lager. Hentugt fyrir tvo menn.
Lítil en þekkt smurbrauðsstofa og veisluþjónusta með góð tæki og
mikla möguleika.
Lítil verslun og verkstæði með reiðtygi og aðrar hestavörur. Gott fyrir
laghentan hestamann.
Skoðið nýja heimasíðu fyrirtækjadeildar
með ítarlegri söluskrá og gagnlegum fróðleik:
www.husid.is
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen)
Sími 533 4300, GSM 820 8658
Píanóskóli
Þorsteins Gauta
Grensásvegi 5
Innritun er hafin
fyrir skólaárið 2003-2004
Kennslugreinar:
Píanó • Tónfræði
Forskóli 6-7 ára börn.
Innritun og upplýsingar í síma 551 6751 og 691 6980.
Sumarnámskeið
í júní og ágúst
Píanó (einkatímar) kr. 15.000.
Tónfræði (hraðferð) kr. 10.000.
Píanó og tónfræði kr. 22.000.
Systkinaafsláttur
DJÚPMENN, hvað menn eru það?
Það eru menn sem fæðst hafa eða
búið vestur í Ísafjarðardjúpi, og
næsta sunnudag ætla brottfluttir
djúpmenn og ættingjar þeirra að
hittast og drekka saman kaffi en
það er árviss venja þeirra. En nú
er nýlega fallinn frá einn skelegg-
asti áhugamaður um málefni og
velferð byggðar við djúp.
Nafn þessa manns er Jóhann
Þórðarson og er nafn hans og
minning kveikjan að þessum hug-
leiðingum. Jóhanni kynntist ég
fyrir 53 árum, þá var hann að læra
til stúdentsprófs og tók námið ut-
anskóla. Jóhann var hamhleypa til
vinnu og sem dæmi þar um var að
á Melgarðseyri var bænahús sem
staðið hafði af sér öll veður um
aldir, en svo gerðist það að bæna-
húsið fauk og ekkert sást af því
nema gaflinn og altaristaflan með
kristslíkneski, það stóð eftir í rok-
inu óstífað með öllu, sem var ótrú-
legra en unnt er að skýra. En þá
koma til sögunnar djúpmenn með
Jóhann í fararbroddi og héldu þeir
fund þar sem samþykkt var að
byggja nýtt bænahús. Það var ekki
beðið með að hefja framkvæmdir,
teikning var fengin og efni keypt,
þessu var komið vestur á Mel-
garðseyri. Þar var timbrið fúavarið
af bændum og konum þeirra, síðan
var bænahúsið reist að mestu af
bændum í Nauteyrarhreppi. Ég
kom vestur síðla sumars og sá þar
þessa nýbyggingu í fyrsta sinn,
grind að heilu guðshúsi. Fyrstu
menn sem ég hitti voru þeir Þórð-
ur Halldórsson frá Laugalandi og
Sigurður Hannesson frá Ármúla,
og þar var eins og kviknaði neisti í
þessum gömlu mönnum og þeim
fyndist að skyndilega hefði send-
ing af himnum komið. Ég var strax
beðinn að klæða húsið að utan, en
ég var að sjálfsögðu allslaus, ekki
með nein verkfæri. Ekki var það
tekið sem afsökun og þó að klukk-
an væri orðin ellefu að kvöldi var
hringt í Jóhann sem þá var búsett-
ur í Reykjavík og hann beðinn um
að fara í geymsluna hjá mér í Álf-
heimunum og taka þar verkfæri og
koma með þau vestur. Ég bjóst við
að Jóhann kæmi síðla næsta dag
og fór því að sofa, en vaknaði um
sexleytið um morguninn við það að
bíll kemur á mikilli ferð og snar-
hemlar á hlaðinu. Þar var þá Jó-
hann komin með verkfærakistuna
mína, hann hafði þá eins og hans
var von og vísa lagt frá sér kaffi-
bollann um ellefuleytið kvöldið áð-
ur, farið inn í Álfheima, hitt þar
fyrir börnin mín sem voru heima,
farið í geymsluna þar sem var nóg
af allskyns verkfærum og allt kom
hann með vestur. Það var eitthvað
minnst á það við hann að þetta
hefði nú ekki tekið langan tíma,
svarið var að þetta hefði nú verið í
leiðinni. Jóhann bjó í Bugðulækn-
um og ég í Álfheimunum svo að
það var rétt. En í þá daga voru all-
ir vegir austan Elliðaánna ómal-
bikaðir og holóttir í meira lagi,
Brattabrekka með öllum sínum
beygjum og brekkum, Svínadalur
og Gilsfjörður þar sem sjór flæddi
upp á veg sumstaðar, síðan var
Þorskafjarðarheiði eins og hún var
þá og allir vissu sem um hana fóru
á þessum árum.
En nú þegar verkfærin voru
komin og efnið tilbúið var ekki
annað að gera en að safna liði sem
var auðsótt, þar mættu allir sem
áttu heimangengt, áhuginn var
mikill hjá öllum hvort sem menn
voru skírðir eða óskírðir. Og þegar
hér var komið við sögu var bæna-
húsið orðið að kirkju og þar með
þurfti að skipta þessum litla söfn-
uði í tvo hópa, það þótti mörgum
sárt. En ekki fengust lán né önnur
fyrirgreiðsla fyrir bænahús, en
það hafði engin áhrif á fram-
kvæmdirnar og ég hef ekki í annan
tíma unnið með samhentari mönn-
um.
Á Melgarðseyri var alltaf fullt
hús á matar- og kaffitímum og þau
hjón Guðmundur og Kristín, systir
Jóhanns, veittu vel og af mikilli
rausn og sem dæmi um það þá
gáfu þau land fyrir kirkjugarð af
túni sínu. Í fáum orðum var kirkj-
an, veggir og þak klætt þarna á
skömmum tíma og seinna um sum-
arið var kirkjan einnig klædd að
innan. Ég minntist á neista í aug-
um gömlu mannanna þegar til stóð
að byggja kirkju, þetta voru menn
úr sama hópi og Sigvaldi Kalda-
lóns sem var læknir og bjó á Ár-
múla sagði frá í æviminningum
sínum, að hefðu borið inn til sín
flygil og þurft að rífa úr glugga til
að koma honum inn í stofu, en það
gerðu þeir þegar Sigvaldi brá sér
af bæ.
Annar frumkvöðull, Aðalsteinn
Eiríksson, sagði frá að þegar hann
kom vestur í djúp, og sumir segja
að hann hefði synt frá Hafnardal
til Reykjaness, og boðaði djúp-
menn til fundar að þar hafi þeir
allir mætt spariklæddir og sam-
þykkt einum rómi að skóli yrði
byggður í Reykjanesi, það var gert
og þar hafa margir djúpmenn
fengið sína fyrstu menntun. Báðir
þessir menn Sigvaldi og Aðal-
steinn urðu varir við þennan áhug-
aneista sem einkenndi djúpmenn.
Og þar með er spurningunni svar-
að.
Að lokum færum við hjónin
henni Systu og börnum þeirra
okkar innilegustu samúðarkveðjur
og þökkum góða viðkynningu.
INGVAR JÓNSSON
OG KRISTÍN,
Logafold 156, Reykjavík.
Djúpmenn, hvaða
menn eru það?
Frá Ingvari Jónssyni og Kristínu:
FRAMTÍÐ og þróun ferjusiglinga
á Breiðafirði, öruggasta trygging
heilsárssamgangna Vestfirðinga,
heim og heiman.
Aukning og uppbygging ferða-
þjónustu á Vestfjörðum byggist á
að auðvelda fólki ákvarðanatöku
um Vestfirði sem valkost. Ein af
aðalorsökum aukningar ferðafólks á
Vestfjörðum er það val sem er í
boði til að samþætta ferðalag þang-
að við önnur áhugaverð svæði
landsins.
Mörgum vex í augum vegalengd-
in „vestur“ þegar litið er á landa-
kortið, og vissulega er langur akst-
ur til Vestfjarða, ef velja á þá til
helgarskoðunar. Við hér vestra álít-
um reyndar að ekki sé neitt lengra
til okkar en frá. Það er þó önnur
saga.
Skoðum rökrétta möguleika sem
fyrir hendi eru ef þú ætlar vestur.
Snæfellsnes – Vestfirðir samþætt.
Ef þú ert að koma af suðvest-
urhorninu er algengt að skoðaður
sé þessi möguleiki. Hvernig næ ég
hvorutveggja?
Breiðafjarðarferjan spilar þarna
stærsta hlutverkið, s.s. Snæfellsnes
í annarri hvorri leiðinni, vestur eða
að vestan. Þú getur jafnvel farið
hraðferð um helgi, Snæfellsnes,
Breiðafjarðarsigling, Látrabjarg.
Vissulega eru þó lengri ferðir æski-
legri, þ.e. fleiri dagar á Vestfjörð-
um.
Gífurleg aukning ferðafólks til
Vestfjarða undanfarin ár er stað-
reynd. Mjög há prósenta þessa
fólks fer með Breiðafjarðarferjunni
a.m.k. aðra leiðina og samþættir þá
siglingu um Breiðafjörð og skoðun
Snæfellsness í einum pakka. Skip
það sem nú er rætt um að fá á
Breiðafjörð í stað þess sem er í
siglingum nú myndi breyta á bylt-
ingarkenndan hátt þessu dæmi öllu.
Stóraukið flutningsrými, styttri
ferðatími og ekki síst stórbætt að-
staða farþega til að njóta sigling-
arinnar yfir fjörðinn, þar sem stór
og rúmgóður salur með gluggum til
allra átta er hátt staðsettur á skip-
inu, sem er gerbreyting frá því sem
nú er.
Skip þetta sem um ræðir sem
möguleika nú er af þeirri stærð að í
allflestum veðrum veit fólk ekki af
sjólagi, en sjóveiki hefur vissulega
á stundum skekkt myndina í núver-
andi ferju.
Rými til að taka stóra bíla væri
nægt og yrðu þá úr sögunni þær
leiðu uppákomur að geta ekki tekið
þann farkost með sem fylgir hópum
fólks.
Ekjubrú kemur það hátt á þetta
skip að sjávarfallavandamálið er úr
sögunni. Eftir því sem mér skilst er
ekki um háar fjárhæðir hér að
ræða við þessi mögulegu skipa-
skipti á Breiðafirði, heldur hefur sá
undarlegi ótti einstakra aðila vegna
hugsanlegrar seinkunar á lagningu
svokallaðs „heilsársvegar“ innfyrir
Breiðafjörð haft greinileg tregðuá-
hrif á framgang málsins. Hér er að
mínu áliti mjög mikill misskilningur
á ferð. Fjölgun kosta hjá ferðafólki
eykur straum þess og ýtir því á að
vegagerð gangi eðlilega fyrir sig,
ekkert síður innfyrir Breiðafjörð en
á öðrum stöðum.
Öryggi okkar hér á sunnanverð-
um Vestfjörðum, í samgöngum til
„meginlandsins“, byggist alveg á
Breiðafjarðarferju og hefur ávallt
gert, sé til alls ársins litið. Því ber
að styðja eindregið þetta framtak
núverandi rekstraraðila til stór-
kostlegra framfara í ferjumálum.
Ég skora á ráðherra samgöngu-
mála, svo og alla sem geta lagt mál-
inu lið á einhvern hátt, að leggjast
á eitt um að við megum strax í vor
njóta þeirrar framþróunar sem
felst í auknu rými og tilheyrandi
auknum þægindum í ferjuferðalög-
um.
Þótt við búum nú við einstaklega
snjólétta vetur og milda megum við
ekki sofna á verðinum hvað varðar
ferðaöryggi á vetrum. Ég get tekið
heilshugar undir skrif Jóhanns Ás-
mundssonar safnvarðar um nauð-
syn samtengingar Vestfjarða inn-
nbyrðis með opnun vesturleiðar.
Breiðafjarðarferja tapar síst gildi
sínu við þá aðgerð. Eykur bara ör-
yggi ferðafólks, ekki síst í vafasöm-
um veðrum á dimmari árstímum.
Það er ósköp notalegt að stinga
sér um borð í ferju í stað þess að
aka langar óbyggðir.
Því ber bráða nauðsyn til að
hrinda þessum hugsuðu skipaskipt-
um í framkvæmd nú þegar.
RAGNAR GUÐMUNDSSON,
Brjánslæk.
Breiðafjarðarferjan óumdeild líf-
æð ferðaþjónustu á Vestfjörðum
Frá Ragnari Guðmundssyni:
DILBERT
mbl.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
FASTEIGNIR mbl.is