Morgunblaðið - 11.05.2003, Side 50
DAGBÓK
50 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Tjaldur og Selfoss
koma í dag, Björgvin
fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Arrow kemur í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Fé-
lagsvist á morgun kl.
14.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Dansleikur
kl. 20–23.30, Caprí-tríó
leikur fyrir dansi.
Skrifstofa félagsins er í
Faxafeni 12, sími
588 2111.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Vorferðin 14.
maí. Lagt af stað kl. 10
og farið um Suðurland.
Sameiginlegur kvöld-
verður kl. 18. Skráning
mánudag í síma
820 8571 eftir kl. 14.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Opið hús
í boði Rótaryklúbbs
Hafnarfjarðar, í
Hraunseli, fimmtudag-
inn 15. maí, fjölbreytt
skemtiatriði og fleira.
Heimsókn í Alþing-
ishúsið og Gerðarsafn
fimmtudaginn 22. maí,
farið frá Hraunseli kl.
13.15. Skráning og allar
upplýsingar í Hraun-
seli, sími 555 0142.
Gerðuberg, félags-
starf. Á morgun kl. 9–
16.30 vinnustofur opn-
ar frá hádegi spilasalur
opinn, dans hjá Sig-
valda fellur niður. Allar
upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í
síma 575 7720.
Kristniboðsfélag
karla. Fundur í
Kristniboðssalnum,
Háaleitisbraut 58–60
mánudagskvöldið 12.
maí kl. 20. Skúli Sveins-
son hefur biblíulestur,
Allir karlmenn vel-
komnir.
Öldungaráð Hauka.
Fundur verður haldinn
miðvikudaginn 14. maí
kl. 20 á Ásvöllum. Síð-
asti skráningardagur
vegna sumarferð-
arinnar.
Kvenfélag Bústaða-
sóknar. Fundur verður
mánudaginn 12. maí kl.
20. Konur úr Kven-
félagi Borgarness
koma í heimsókn. Guð-
rún Ásmundsdóttir
leikkona verður með
fyrirlestur. Sumar-
ferðin í Húnaþing verð-
ur farin 14.–15. júní.
Vinsamlegast athugið
breytta dagsetningu.
Kvenfélag Breiðholts
heldur fund miðviku-
daginn 14. maí kl. 20 í
Breiðholtskirkju. Kon-
ur úr Kvenfélagi Ár-
bæjar og Kvenfélaginu
Heimaey koma í heim-
sókn. Gestur Fund-
arins verður Þorvaldur
Halldórsson söngvari.
Ath. breyttan fund-
artíma.
SVDK, Hraunprýði
verður með kaffi- og
merkjasölu mánudag-
inn 12. maí, kaffisala
verður frá kl. 15–20,
verið er að safna fyrir
endurskinsvestum fyr-
ir leikskólana í Hafn-
arfirði. Tekið verður á
móti kökum í Hjalla-
hrauni 9 allan sunnu-
daginn og til hádegis á
mánudag. Pantanasími
er 555 6070 og
895 1947.
Kvenfélagið Heimaey.
Vestmannaeyingar
munið lokakaffi Kven-
félagsins Heimaeyjar
sunndaginn 11. maí í
Súlnasal Hótels Sögu
kl. 14.
Minningarkort
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði fást í
blómabúðinni Burkna,
hjá Sjöfn, s. 555 0104
og hjá Ernu, s. 565
0152 (gíróþjónusta).
Minningarkort ABC
hjálparstarfs eru af-
greidd á skrifstofu
ABC hjálparstarfs í
Sóltúni 3, Reykjavík í
síma 561-6117. Minn-
ingargjafir greiðast
með gíróseðli eða
greiðslukorti.
Allur ágóði fer til hjálp-
ar nauðstöddum börn-
um.
Minningarkort Barna-
heilla til stuðnings mál-
efnum barna fást af-
greidd á skrifstofu
samtakanna á Lauga-
vegi 7 eða í síma 561-
0545. Gíróþjónusta.
Barnaspítali Hrings-
ins. Upplýsingar um
minningarkort Barna-
spítalasjóðs Hringsins
fást hjá Kvenfélagi
Hringsins í síma 551-
4080. Kortin fást í flest-
um apótekum á höf-
uðborgarsvæðinu.
Bergmál, líknar- og
vinafélag. Minning-
arkort til stuðnings or-
lofsvikna fyrir krabba-
meinssjúka og
langveika fást í síma
587-5566, alla daga fyr-
ir hádegi.
Minningarkort barna-
deildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525-1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Minningakort Ás-
kirkju eru seld á eft-
irtöldum stöðum:
Kirkjuhúsinu, Lauga-
vegi 31, þjónustu-
íbúðum aldraðra við
Dalbraut, Norðurbrún
1, Apótekinu Glæsibæ
og Áskirkju, Vestur-
brún 30 sími 588-8870.
Í dag er sunnudagur 11. maí,
131. dagur ársins 2003, Mæðra-
dagurinn, Lokadagur. Orð dags-
ins: Berið sama hug til allra,
hreykið yður ekki, en haldið yður
að hinum lítilmótlegu. Ætlið yður
ekki hyggna með sjálfum yður.
(Rómv. 12, 17.)
ÍMorgunpósti VG á Net-inu er spurt hver sé
kostnaður flokkanna við
nýafstaðna kosningabar-
áttu. Þar er gerð að um-
fjöllunarefni könnun, sem
VG gerði og sýndi að
Framsóknarflokkurinn
hefði eytt mestu fé í aug-
lýsingar, en VG einna
minnstu.
Hafa verður í huga aðniðurstöðurnar eiga
aðeins við um kostnað við
birtingu í dagblöðum og
sjónvarpi,“ segir Morg-
unpósturinn. „Það eru
hins vegar ótal aðrir
kostnaðarliðir í barátt-
unni.
Auglýsingar: tímarit,
útvarp, heimasíður, flett-
iskilti, fánar, borðar o.fl.
Áróður: rit, bolir, næl-
ur, plaköt, tölvuleikir,
pennar, blöðrur, póst-
kort, skafmiðar o.fl.
Húsnæði: kosninga-
miðstöðvar og aðrar
skrifstofur.
Innbú og tæki: hús-
gögn, tölvur, sjónvörp,
tengingar, símar, hrein-
lætisvörur o.fl.
Starfsmannahald:
kosningastjórar, mark-
aðsfólk, hönnuðir, fram-
bjóðendur, ritarar, iðn-
aðarmenn, húsverðir og
aðrir starfsmenn.
Ferðir: flugfarseðlar,
bílar, bensín, gistikostn-
aður, risna o.fl.
Skemmtanir og aðrar
uppákomur: húsnæði,
rútur, tónlistamenn,
skemmtikraftar, bíó-
myndir, tæknimenn,
hljóðmenn, ljósamenn,
veitingar o.fl.
Kostnaðurinn við þettaallt saman er gríð-
arlegur. Á meðan flokk-
arnir ferðast um landið,
með landsþekktum lista-
mönnum á sínum vegum,
og hanna tölvuleiki fyrir
unga kjósendur, er ekki
nema von að fólk fari að
margfalda. Að leigja Há-
skólabíó, hljóðkerfi og
listamenn kostar sitt.
Fimm til tuttugu manna
starfsmannahald í nokkra
mánuði kostar líka skild-
inginn. 20–30 milljónirn-
ar, sem fóru bara í aug-
lýsingar í dagblöðum og
sjónvarpi, verða fljótt að
stjarnfræðilegum upp-
hæðum séu þessar uppá-
komur reiknaðar með.“
Morgunpósturinn segirað eina leiðin til að
draga úr tortryggni
gagnvart stjórn-
málaflokkum sé að þeir
opni bókhald sitt fyrir al-
menningi. „VG hefur gert
það og mun gera það
áfram eftir kosningarnar
í vor. Hálfkveðnar vísur
og dylgjur, um að sjávar-
útvegsfyrirtæki þakki
fyrir sig með styrkjum til
„vinveittra“ flokka, halda
áfram að grassera í sam-
félaginu á meðan lög um
fjárreiður stjórnmála-
flokkanna eru jafn lítil-
fjörleg og raun ber vitni.
Þangað til að bókhaldið
verður opnað munu tölur
eins og 50–200 milljóna
króna kosningabarátta
svífa yfir vötnunum – og
hver ætlar að halda því
fram að þær séu ekki
réttar?“
STAKSTEINAR
Hvað kostaði
kosningabaráttan?
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI kann mjög vel sig innií mjólkurkælum íslenskra versl-
ana. Það var þó ekki alltaf svo. Það
var ekki fyrr en hann hafði búið í ár í
Noregi að hann komst að því að úr-
val íslenskra mjólkurvara er hreint
með ólíkindum. Ekki er nóg með að
tegundirnar séu mismunandi heldur
er breiddin í bragðtegundum næsta
ótrúleg.
x x x
EN ÞAÐ verður þó að viðurkenn-ast að eitt fer svakalega í taug-
arnar á Víkverja í tengslum við
mjólkurmat á Íslandi. Það eru bless-
aðar umbúðirnar. Nú skolar Víkverji
samviskusamlega allar fernur, hvort
sem þær eru undan jógúrt, súrmjólk
eða mjólk. Fernurnar fer hann síðan
með í gám og telur sig vera nokkuð
umhverfisvænan með þessu enda
mæla borgaryfirvöld, með því að
setja upp fernugáma, með þessari
endurvinnslu. En allar plastdósirnar
sem Víkverji safnar á örskotsstundu
er ekki hægt að endurvinna. Vík-
verja finnst það hreint ótrúlegt því
hann hafði jafnvel talið að þær væri
hægt að endurnota sem er mun um-
hverfisvænna en endurvinnsla. Vík-
verji vonar að þeir sem framleiða all-
ar þessar æðislegu mjólkurafurðir
komi bráðlega með einhverja lausn,
sem dragi úr samviskubiti Víkverja
er hann hendir (með lokuð augun)
litlum jógúrtdósum í ruslið. Er
kannski til ráða að setja meng-
unargjald á umbúðir sem þessar?
x x x
EN AFTUR að Norðmönnum. Vík-verja, sem er alinn upp við úrval-
ið í mjólkurkælinum hér heima,
fannst frekar fúlt að búa meðal
frænda sinna í Noregi þar sem að-
eins var hægt að velja um tvær teg-
undir af jógúrt (eða svona hér um
bil). Víkverji var því feginn að kom-
ast aftur heim í Hagkaup og Fjarð-
arkaup, þar sem honum finnst
skemmtilegast að versla. En eitt er
það sem Víkverji saknar frá Noregi.
Og það eru hinar gómsætu Sör-
lands-chips, eða Suðurlands-
kartöfluflögur. Þær eru steiktar upp
úr hnetuolíu og kartaflan skorin í
þykkar sneiðar með hýðinu á! Al-
gjört lostæti. Ekkert snakk kemst
með tærnar þar sem Suðurlands-
flögurnar hafa hælana og Víkverji
hvetur einhvern röggsaman innflytj-
anda matvæla til að færa Íslend-
ingum þessar góðu flögur. Það
skemmtilegasta við flögurnar er
skemmtileg saga sem liggur að baki
framleiðslunni. Norðmaður einn fór
til Kanada og hélt ekki vatni yfir
flögum sem hann smakkaði þar. Er
hann kom til baka sagði hann félaga
sínum frá þessu og gaf honum að
smakka. Félaginn heillaðist sam-
stundis og þeir tóku til við að djúp-
steikja flögur í bílskúrnum (vonandi
með heilbrigðisvottun!). En allir
elskuðu hinar gómsætu Sörlands-
chips, eins og þær voru nefndar og
innan skamms voru þær orðnar vin-
sælustu flögur í Noregi.
Morgunblaðið/Kristinn
Sjáið úrvalið! En hvað verður um
allar plastdósirnar?
Morgunútvarpið –
Val?
ÉG er ein af þeim sem
kjósa frekar að hlusta á
tónlist á morgnana en
spjallþátt og vil því taka
undir með þeim, sem taka
þáttinn hans Vilhelms G.
Kristinssonar fram yfir
Morgunvaktina.
Ég man ekki betur en að
það hafi þótt mikil framför,
á sínum tíma, þegar Rás 2
tók til starfa, að þá hefðu
landsmenn val um það,
hvað þeir vildu hlusta á
hverju sinni. Með því að
hafa Morgunvaktina á dag-
skrá á báðum rásum á
sama tíma, er augljóst að
þetta val hefur verið tekið
af okkur eigendum út-
varpsins.
Ég er því í hópi þeirra
sem óska eftir að dag-
skránni verði breytt til
fyrra horfs, þannig að Vil-
helm verði með sína ljúfu
tónlist á Rás 1 frá 6:30 til
9. Þeir sem vilja frekar
heyra í Morgunvaktinni
geta þá stillt á Rás 2 frá
7:30 til 8:30.
Guðrún Eggerts.
Skammtað
síbyljukjaftæði
VIÐ tökum heilshugar
undir þær óánægjuraddir
sem vilja fá „gömlu guf-
una“ aftur ómengaða á
morgnana.
Sjáum ekki alveg hvað
sparast með samtengingu
rásanna þennan klukku-
tíma milli 7.30 og 8.30.
Eina hagræðið gæti verið
að þá þurfa þeir lötu ekki
að skipta um rás á tækj-
unum sínum.
Það er óþolandi að vera
skammtað þetta síbylju-
kjaftæði um fjármála-
brask, pólitík og ófrið allan
liðlangan daginn og lág-
marks mannréttindi að
þeir sem það vilja fái að
vakna við rólega og nota-
lega tónlist á Rás 1. Við
greiðum jú líka afnotagjöld
af RÚV.
Með kveðju,
Hjónakorn.
Ótækt að
sameina rásir
MIG langar að taka undir
með þeim sem hafa sent
Velvakanda bréf að und-
anförnu, varðandi morgun-
þátt Rásar 1 hjá Ríkisút-
varpinu.
Ég er innilega sammála
því að það sé ótækt að
sameina rásir 1 og 2 á
morgnana. Rás 1 er eina
útvarpsstöðin sem ég hef
hlustað á fyrir kl. 9 á
morgnana, og nú kveiki ég
ekki á útvarpinu fyrr en kl.
8.30, þegar sameiginlegri
útsendingu lýkur.
Rósa.
Hver tók
upp þáttinn?
ER einhver sem tók upp
heimildarmyndina um taí-
lensku konurnar sem eru
giftar Íslendingum? Vin-
samlega hafið samband í
síma 698 9910.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
BJÖRG hafði samband
við Velvakanda og hefur
hún áhuga á að finna út
hverjir eru á þessum
myndum. Myndin af börn-
unum gæti verið úr Dala-
sýslu eða af fólki af
Ormsætt. Myndin af hjón-
unum með börnin er tek-
in á Seyðisfirði en ekki er
vitað hvar myndin af kon-
unni og stúlkunni er tek-
in. Þeir sem gætu gefið
Björgu upplýsingar eru
beðnir að hafa samband í
síma 557 4302 eða
866 6101.
Hver þekkir fólkið?
LÁRÉTT
1 einboðið , 8 spilið, 9
sorg, 10 máttur, 11 gróði,
13 skyldmennin, 15 karl-
dýrs, 18 alda, 21 eldivið-
ur, 22 ljóður, 23 sárum,
24 getgátu.
LÓÐRÉTT
: 2 viðurkennt, 3 þreytt-
ar, 4 kalda, 5 svara, 6
flandra, 7 vinna að fram-
förum, 12 blóm, 14 léttir,
15 blýkúla, 16 landflótta,
17 birtu, 18 réðu fram úr,
19 gunga, 20 sárt.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 ásaka, 4 hregg, 7 ámóta, 8 ólmur, 9 ref, 11
tusk, 13 frúr, 14 ærsli, 15 kurr, 17 mont, 20 bak, 22 polli,
23 lynda, 24 renna, 25 remma.
Lóðrétt: 1 áfátt, 2 atóms, 3 agar, 4 hróf, 5 ermar, 6 gær-
ur, 10 elska, 12 kær, 13 fim, 15 kopar, 16 rolan, 18 ofn-
um, 19 trana, 20 biða, 21 klár.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16