Morgunblaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 18
AKUREYRI 18 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ LÖGREGLA á Akureyri stöðvaði för bifreiðar með eftirvagn í mið- bænum en fiskikar með heitu vatni var á vagninum og í því þrír menn að baða sig í mestu makindum. Ökumanni var bent á að slíkur far- þegaflutningur stangaðist á við um- ferðarlög auk þess sem þrifabað með þessum hætti bryti í bága við almennt velsæmi. Ökumaður á leið suður Glerár- götu misst stjórn á bifreið sinni seint á laugardagskvöld með þeim afleiðingum að hún lenti á ljósa- staur vestan götunnar. Við höggið brotnaði staurinn og bifreiðin valt á hliðina. Ökumaður var fluttur á slysadeild en fékk að fara heim að skoðun lokinni. Þá var tilkynnt um þrjá pilta sem voru að vinna skemmdarverk við Síðuskóla. Hafði sést til þeirra brjóta útiljós við skólann, en lög- regla sem fór á staðinn greip þá glóðvolga við iðju sína. Óhapp varð þegar verið var að draga bifreið yfir gatnamót Krossa- nesbrautar og Óseyrar á sunnudag, en bifreið var ekið inn á gatnamótin og á dráttartógið. Hún skemmdist nokkuð. Dráttartógið mældist tæpir 8 metrar að lengd og á því var eng- in veifa, en setja á veifu á miðja dráttartaug ef hún fer yfir 4 metra. Þrifabað í fiskikari BÚSETI á Akureyri afhenti fyrir helgina 100. íbúðina í bænum. Íbúð- in er að Klettaborg 10 og fyrstu íbúarnir eru þau Þorsteinn Þor- steinsson og Margrét Þórhallsson en þau hafa búið í íbúð félagsins í Hafnarstræti 24 frá því í nóvember 1996. Búseti er að byggja 20 íbúðir í Klettaborg og hefur rúmur helm- ingur þeirra þegar verið afhentur. Búseti hefur byggt 20 íbúðir að meðaltali undanfarin þrjú ár og fé- lagið stefnir að því að byggja 20 íbúðir í Naustahverfi, sem ætlunin er að afhenda á næsta ári. Félagið hefur lýst yfir áhuga á svæði fyrir alls 100 íbúðir í Naustahverfi á næstu árum. Það er byggingafyr- irtækið Hyrna sem hefur byggt íbúðir félagsins á Akureyri. Búseti afhenti 100. íbúðina Morgunblaðið/Kristján Heimir Ingimarsson, framkvæmdastjóri Búseta á Akureyri, t.v., með þeim Margréti Þórhallsdóttur og Þorsteini Þorsteinssyni, sem fengu afhenta eitthundruðustu íbúð félagsins. þrjú þeirra undir kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á 113,5 milljónir króna. GV gröfur buðust til að vinna verkið fyrir 96,6 milljónir króna, eða 85,2% af kostnaðaráætlun. Við þetta bætist hönnunarkostnaður, eftirlit og dælustöðvar og er áætl- aður heildarkostnaður við fram- kvæmdina 280–300 milljónir króna. Samtímis þessu útboði var boðin út hugsanleg lagning ljósleiðara og rafstrengs þessa sömu leið. Orkugeta Norðurorku tvöfaldast Franz Árnason forstjóri Norður- orku sagði ráðgert fyrst um sinn að FRAMKVÆMDIR við lagningu hitaveitu frá Hjalteyri til Akureyr- ar hefjast í vikunni. Stjórn Norður- orku samþykkti fyrir helgina að taka tilboði frá GV gröfum ehf., sem áttu lægsta tilboðið í verkið. Aðveituæðin frá Hjalteyri er tæpir 20 km að lengd og skal verkinu lok- ið fyrir lok nóvember nk. Útboð á hitaveiturörunum fór fram á Evrópska efnahagssvæðinu og átti Ísrör ehf. í Hafnarfirði lægsta tilboðið fyrir hönd danska fyrirtækisins Lögstörrör A/S á Jót- landi en það hljóðaði upp á um 125 milljónir króna. Alls bárust fjögur tilboð í lagningu aðveituæðarinnar í útboði hér innanlands og voru flytja 40–60 sekúndulítra af heitu vatni í lögninni frá Hjalteyri til Ak- ureyrar. „Samkvæmt því sem menn best vita, eftir að hafa prófað holuna á Hjalteyri í um 9 mánuði, erum við að fá nánast tvöföldun á orkugetu Norðurorku. Ekki er far- ið að dæla úr holunni en sjálf- rennslið er um 20 sekúndulítrar af 87 gráða heitu vatni.“ Franz sagði að jafnframt væri á áætlun að leggja hitaveitu á alla bæi í Arnarneshreppi í sumar en þar væri um sérframkvæmd að ræða. Örfáir bæir í Arnarneshreppi og Hörgárbyggð verða þó tengdir beint við aðveituæðina frá Hjalt- eyri til Akureyrar, að sögn Franz. Morgunblaðið/Kristján Um helgina var 790 hitaveiturörum skipað upp í Krossanesi af þeim 1.100 sem fara í aðveituæðina frá Hjalteyri til Akureyrar. Rörin eru tæplega 18 metra löng, 300 mm í þvermál, í 500 mm plastkápu. Heildarkostnaðurinn 280–300 milljónir króna Lagning hitaveitu frá Hjalteyri til Akureyrar að hefjast INNRITUN í sumarbúðir KFUM og K að Hólavatni í Eyjafjarðarsveit stendur nú yfir. Í sumar verða fimm dval- arflokkar á Hólavatni, tveir fyrir drengi og tveir fyrir stúlkur frá átta ári aldri en einnig verður unglingaflokkur drengja og stúlkna í júlí. Starfið hefst 9. júní nk. og koma þá stúlkur á staðinn. Á Hólavatni er boðið upp á marga skemmtilega kosti, hressandi bátsferðir, stang- veiði og baðstrandarlíf á heit- um dögum. Kvöldvökur eru fastur liður og ýmsar íþróttir stundaðar. Fagurt umhverfi gefur kost á hollri úitvist og þá fá börnin að heimsækja bóndabæ og kynnnast störfum í sveitinni. Innritun í sumarbúðirnar fer fram í félagsheimili KFUM og K í Sunnuhlíð, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 13-18 í síma 462-6330. Upplýsingar og innritun utan skrifstofutíma er hjá Jóni O. Guðmundssyni í síma 462-4301 og 894-4301. Sumarbúðirnar á Hólavatni Margt í boði fyrir börnin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.