Morgunblaðið - 13.05.2003, Side 21
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 21
VERSLUNIN Bónus var langoftast
með lægsta verð á grænmeti og
ávöxtum, eða í 40 tilvikum af þeim
43 vörum sem skoðaðar voru í verð-
könnun ASÍ á ávöxtum og græn-
meti. Verslunin 10-11 var með
hæsta verð í 27 tilvikum og 11-11 í
25 tilvikum. Munur á hæsta og
lægsta verði var meiri en 100% í
tæplega helmingi tilvika, meiri en
200% í sex tilvikum og fór hæst í
305% á hvítkáli. Minnsti munur á
hæsta og lægsta verði var 28% á
sveppum í öskju, að því er fram
kemur í frétt frá ASÍ.
Verðlagseftirlit ASÍ framkvæmdi
könnun á verði grænmetis og ávaxta
í tíu verslunum á höfuðborgarsvæð-
inu hinn 2. maí síðastliðinn. Kannað
var verð í Bónus í Faxafeni, 10-11 í
Firði, Hagkaupum í Skeifunni,
Krónunni í Skeifunni, Nóatúni í
Smáralind, 11-11 við Skúlagötu,
Nettó í Mjódd, Samkaupum Mið-
vangi, Fjarðarkaupum í Hafnarfirði,
og Europris í Skútuvogi.
Í töflu ASÍ er birt verð á þeim
vörum sem voru til í átta verslunum
eða fleiri, en það voru alls 43 vöru-
tegundir.
Klukkubúðirnar oftast
með hæsta verð
„Bónus var með lægsta verðið í
40 tilvikum af 41 þar sem varan var
til í versluninni. Klukkubúðirnar
svonefndu voru áberandi oftast með
hæsta verð, 10-11 í 27 tilvikum og
11-11 í 25 tilvikum.
Munur á hæsta og lægsta verði er
meiri en 100% í 19 tilvikum af 43,
þar af í sex tilvikum meiri en 200%.
Þessi mikli verðmunur sýnir að
neytendur geta sparað töluverðar
upphæðir ef þeir versla þar sem
hagstæðast er,“ segir ASÍ.
Eðlilegt er að verð á vöru á borð
við ávexti og grænmeti sveiflist milli
árstíða og er neytendum bent á að
fylgjast vel með stöðunni hverju
sinni. Í könnuninni er aðeins um
verðsamanburð að ræða en ekki var
lagt mat á gæði eða þjónustu versl-
ananna.
Bónus ódýrast-
ur í 40 tilvikum
Morgunblaðið/Jim Smart
Verðmunur getur numið hundruðum prósenta milli verslana.
' 49?
!
66%!+
$
"+5!+
$
8+6%
$
'+
$
C6+!
$
C6!
$
C6+3
$
C6/00<
$
4>
$
G%+!+
$
?"%5!+
$
%5!+!+
$
?2%+2*
$
?2%++!
$
?2%++3
$
+ +2%+
$
'*2%+
$
@+$!+
$
H9%++."5"+$/
G6+$+3
$
G6+$!
$
G6+$+!
$
G6+$0+%
$
' !$!+
$
F!$!+
$
-! !$!+
$
(#"!$!+6$$
'5$*
$
(#"$*
$
7$"
$
4$*
$
F29"
".$$
6%+$*
$
8!+51!+
$
8!+3"!+#%/!"
$
4@+2"!+
$
"%%/
".$$
#%66+
$
#%66+$/
%%+
$
'7$!+$+"71!+
$
4+"71!+!!$
4+"71!++! +$
!
"
"$
"
#
"
$
&
"
()
*
$
!
+
"
"
"
&
,
"
%-
.
!
"
(
/
0
!
1
)!
2
"
"
(
*
"$
1
!
&
3
1
*
*
*
1
"
"
*
%
%
%
%
%
%
%
%
%
%
%
%
%
%
%
%
%
,
,
,
,
ASÍ kannar verð á 43 tegundum ávaxta og grænmetis í tíu matvöruverslunum
VIÐTÖKUR hafa verið mjög góðar og þótt
það sé svolítil klisja að taka þannig til orða
hafa þær farið fram úr væntingum okkar,“
segir Ragnhildur Anna Jónsdóttir, annar
aðaleigandi verslunarinnar Next, sem opn-
uð var í Kringlunni 10. apríl síðastliðinn.
Segir hún að sala í versluninni sé 20%
meiri en búist hafi verið við fyrstu vik-
urnar.
Ragnhildur Anna er aðaleigandi Nordex,
sem á Next, í félagi við mann sinn, Sverri
Berg Steinarsson, og viðurkennir að sér
hafi þótt áætlanir hans fyrir fyrsta mán-
uðinn nokkuð bjartsýnislegar og tölulegir
útreikningar talsvert háir á sínum tíma.
„Sterk staða verslunarinnar og þessa
merkis strax í byrjun kemur manni óneit-
anlega dálítið í opna skjöldu. Kannski er
ástæðan fyrir miklum áhuga sú að margir
þekkja Next frá öðrum löndum. Íslend-
ingar sem búið hafa í Bretlandi virðast til
að mynda fegnir að sjá þessa verslun hér
og hafa orð á því,“ segir hún.
Next er 700 fermetrar að stærð og útbú-
in teljara og segir Ragnhildur að 80.000
manns hafi komið í búðina frá því hún var
opnuð fyrir mánuði. „Þótt verslunin sé
þetta stór undrast maður samt sem áður
að jafngildi tæplega þriðjungs þjóðarinnar
skuli nú þegar hafa skoðað hana.“
Hún segir ennfremur að tekist hafi að
halda álagningu í skefjum, svo verðið sé
nálægt því sem gerist hjá Next í Bretlandi,
sem einnig hafi „komið fólki þægilega á
óvart“ eins og hún tekur til orða.
Rifið af slánum
Daginn sem verslunin tók til starfa má
segja að flíkur hafi nánast verið rifnar af
slánum og segir Ragnhildur að kvenfatn-
aðurinn hafi notið sérstakrar hylli. „Galla-
buxur og bolir eru sérstaklega vinsælir og
eiginlega má segja að fötin mokist út. Við
fáum sendingu þrisvar í viku en náum
samt sem áður ekki almennilega að anna
eftirspurn, eins ótrúlegt og það hljómar,“
segir hún.
Einnig eru barnafötin vinsæl, þá að-
allega fyrir 3–10 ára, og dragtir og skyrt-
ur fyrir eldri konur, að hennar sögn.
„Okkur hefur tekist að ná til mjög breiðs
hóps kvenna, frá tvítugu til fertugs. Herra-
deildin hefur hins vegar farið hægar af
stað en mjakast upp á við hægt og bítandi,
sem gaman er að fylgjast með.“
Hátt í 400 manns sóttu um starf hjá Next
áður en búðin var opnuð og segir Ragn-
hildur það óneitanlega líka hafa styrkt
starfsemina að geta valið úr umsækjendum
fólk með góða þekkingu og langa starfs-
reynslu í verslun.
Viðtökur Next á Íslandi hafa vakið at-
hygli í Bretlandi, þar sem keðjan er upp-
runnin, og segir Ragnhildur Anna það
einkum stafa af því að Next á Íslandi hafi
verið söluhæsta verslunin fyrir utan Bret-
land á hverjum einasta degi frá því hún
var opnuð.
„Við höfum verið beðin um tölulegar
upplýsingar héðan þar sem gengi versl-
unarinnar hefur verið umræðuefni á fund-
um og einnig þykir fyndið að við skulum
hafa selt meira af sólgleraugum en Next í
Kúveit!“ segir hún.
Verslanir Next dreifast víða um heim og
eru meðal annars í Asíu og Miðaustur-
löndum. Ragnhildur segir uppbyggingu
Next ekki enn lokið í Bretlandi, en versl-
unin í Kringlunni er sú fyrsta í Norður-
Evrópu, að hennar sögn.
Ragnhildur og Sverrir eru jafnframt
eigendur kvenfataverslunarinnar Noa Noa
og kveðst hún hafa tengst verslunarrekstri
um langt skeið þar sem foreldrar hennar
ráku Buxnaklaufina og Pop-húsið fyrir
margt löngu.
„Ég vann hjá þeim alla tíð og þótt ég
hafi farið í bókmenntafræði á sínum tíma
ætlaði ég kannski alltaf að verða búð-
arkona, eins og ég var gjörn á að segja við
fólk þegar ég var yngri. Kannski börnin
endi í verslunarrekstri líka, í það minnsta
er dóttir mín, sem er 14 ára, þegar byrjuð
að taka til hendinni á lagernum í Next,“
segir Ragnhildur Anna Jónsdóttir að síð-
ustu.
Selja fleiri sólgler-
augu en Next í Kúveit
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hátt í 80.000 manns hafa komið í verslunina Next frá því að hún var opnuð fyrir mánuði síðan,
segir Ragnhildur Anna Jónsdóttir, sem er annar aðaleigandi verslunarinnar.