Morgunblaðið - 13.05.2003, Qupperneq 38
MINNINGAR
38 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Stefanía Jónas-dóttir fæddist á
Smáragrund á Jökul-
dal 11. maí 1939. Hún
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akur-
eyri 5. maí síðastlið-
inn. Foreldrar hennar
voru Jónas Þórðarson,
f. 30. sept 1907 á
Gauksstöðum á Jökul-
dal, d. 7. ágúst 1987,
og Þórunn Sigurbjörg
Sigfúsdóttir, f. 22.
mars 1912 á Brekku í
Hróarstungu. Systkini
Stefaníu eru: Sigfús, f. 1938, Stef-
án, f. 1941, Þórður, f. 1944, Birgir,
f. 1945, Þorbjörg, f. 1947, og Stein-
unn, f. 1955.
Stefanía giftist 17. júní 1961
Sigurði M. Kristjánssyni frá Braut-
arhóli í Svarfaðardal, f. 15. októ-
ber 1914. Börn þeirra eru: 1) Krist-
ján Tryggvi, f. 17. janúar 1962,
sambýliskona Aðalheiður Reynis-
dóttir, börn þeirra: Sigurður Mar-
inó, f. 5. okt. 1991, Martha Malena,
f. 2. feb. 1996, og Draupnir Jarl, f.
13. ág. 2002. 2)
Gunnar Þór, f. 22.
ágúst 1968, sam-
býliskona Sigríður
Arna Sigurðardótt-
ir, barn þeirra:
Þorri Freyr, f. 18.
feb. 2003, barn
hennar Sara Alexía,
f. 23. jan. 1992. 3)
Sólveig Lilja, f. 6.
ágúst 1971, eigin-
maður Friðrik Arn-
arson, barn þeirra
Þorsteinn Örn, f. 23.
ág. 2002. 4) Sigurð-
ur Bjarni, f. 2. apríl 1976.
Stefanía flutti með foreldrum
sínum að Þórðarstöðum í Fnjóska-
dal 1949. Hún lauk gagnfræða-
prófi frá Héraðsskólanum á Laug-
um í Reykjadal og gekk í
húsmæðraskólann á Löngumýri.
Hún starfaði og bjó á Laugum í
tuttugu ár en árið 1981 fluttist hún
að Brautarhóli í Svarfaðardal.
Útför Stefaníu verður gerð frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Mínir vinir fara fjöld
feigðin þessa heimtar köld.
Þannig orti Bólu-Hjálmar. Þetta
fáum við líka oft að reyna, einkum
þegar við eigum mörg ár að baki.
Stefanía Jónasdóttir, mágkona
mín, átti sama afmælisdag og ég, en
hún var 16 árum yngri, svo að ég
bjóst við því, að það yrði hún, sem
stæði yfir moldum mínum en ekki öf-
ugt. Reyndar kom andlát hennar
ekki á óvart. Bölvaldurinn mikli,
krabbameinið, var búinn að leggja
líkama hennar undir sig, svo að bæði
hún sjálf og vandamenn hennar vissu
fyrir nokkru hvert stefndi. Í fyrstu
var okkur þó ekki ljóst, hve langur
fresturinn yrði. Í október, á síðasta
ári, sagði hún við mig í síma, að hún
ætti ekki langt eftir, svo ég noti henn-
ar eigin orð. Mánuði seinna kom hún í
heimsókn til Reykjavíkur þrátt fyrir
sjúkdóm sinn. Ég þóttist þá vita, að
hún væri komin til að kveðja, þó að
hún segði það ekki berum orðum,
enda alltaf mjög orðfá um eigin hag.
En þegar hún sat hjá mér og við
ræddum saman í nokkrar klukku-
stundir, sannfærðist ég um, að sú
hugmynd mín væri rétt. Síðustu vik-
ur og mánuði lagði hún svo stund á að
undirbúa brottför sína sem best og
tók ákvarðanir um þá hluti, sem
snertu andlát hennar og útför.
Ég kynntist Stefaníu fyrst fyrir
næstum hálfum fimmta áratug. Síðan
hafa samskipti okkar verið náin og
góð, þó að við höfum í 39 ár búið hvor
á sínu landshorni. Gagnkvæmar
heimsóknir og mörg símtöl hafa við-
haldið vináttunni. Samband okkar
var líka nánara þar sem hún var gift
bróður mínum.
Stefanía var skarpgreind með góða
námshæfileika. Langtímaskólanám
hefði þannig verið henni leikur einn.
En á uppvaxtarárum hennar var sú
leið nær útilokuð fyrir bóndadóttur,
STEFANÍA
JÓNASDÓTTIR
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
STEFÁN JÓHANN ÞORBJÖRNSSON
skipstjóri,
áður Vitastíg 4,
Hafnarfirði,
sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn
10. maí, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju
föstudaginn 16. maí kl. 15.00.
Pálmi Stefánsson, Svanhildur Guðmundsdóttir,
Kristján Stefánsson, Soffía Arinbjarnar,
Ingibjörg Stefánsdóttir, Massimo Scagliotti,
Þorbjörn Stefánsson, Inga Káradóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug
og vináttu vegna fráfalls ástkærs eiginmanns
míns, sonar, föður, tengdaföður, afa, bróður,
mágs og frænda,
SNORRA ÞÓRS JÓHANNESSONAR
kennara og fyrrv. yfirkennara við
Héraðsskólann í Reykholti,
Daltúni 32,
Kópavogi.
Minningar um Snorra í myndum má finna á veffanginu:
www.hi.is/~palmi/snorri.html
Sigríður Bjarnadóttir,
Aðalheiður M. Snorradóttir,
Jóhannes Snorrason, Sigrún Jónsdóttir,
Bjarni Snorrason, Bente Tønnesen,
Aron Snorri Bjarnason, Theódór Elmar Bjarnason,
Brynjar Orri Bjarnason, Thelma Theódórsdóttir,
Sigrún Jóhannesdóttir, Jón Sigurðsson,
Pálmi Jóhannesson, Soffía Kjaran,
Sigurður Jóhannesson, Halla H. Guðmundsdóttir
og fjölskyldur.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug, sem okkur var sýndur, við andlát og útför
ástkæru eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
GUÐNÝJAR HÖLLU JÓNSDÓTTUR
ljósmóðir,
Fjólugötu 3,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks lyfjadeildar FSA fyrir einstaka umönnun
og hlýju.
Gudmund Knutsen,
Jón Guðmund Knutsen, Jóna Birna Óskarsdóttir,
Gunnar Sverre Knutsen, Brynja Viðarsdóttir
og ömmubörn.
Þökkum öllum þeim fjölmörgu ættingjum og
vinum sem auðsýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför elskulegs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GRÉTARS ÁRNASONAR,
Neðstaleiti 6,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir sendum við Birni Einarssyni
öldrunarlækni svo og öllu því frábæra starfsfólki
á deild 4L á Landspítalanum Landakoti sem kom að umönnun hans.
Séra Gunnari R. Matthíassyni sendum við einnig hlýjar kveðjur.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Sigurðardóttir,
Sigurður Viggó Grétarsson, Erna Björnsdóttir,
Árni Grétarsson, Lene Salling,
Bjarni Grétarsson,
Gróa Ingibjörg Grétarsdóttir, Kristján Egill Halldórsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐLAUGAR GUÐLAUGSDÓTTUR,
Holti.
Gísli H. Líndal,
Kristberg Finnbogason, Jórunn Sigurmundsdóttir,
Stefán H. Finnbogason, Hulda C. Guðmundsdóttir,
Finnbogi G.H. Finnbogason, Sigrún Gunnarsdóttir,
Sævar Þ. Finnbogason, Eyrún Jónsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓHANNES GARÐAR JÓHANNESSON
harmonikuleikari,
Sogavegi 182,
Reykjavík,
sem lést mánudaginn 5. maí, verður jarðsung-
inn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 15. maí
kl. 13.30.
Ingveldur Sigurðardóttir,
Áslaug Jóhannesdóttir, Þorfinnur Þórarinsson,
Thelma Jóhannesdóttir, Ólafur Guðnason,
Ásrún Jóhannesdóttir, Böðvar Þorsteinsson,
Ingveldur B. Jóhannesdóttir, Ingi Þórðarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Erfidrykkjur
Heimalöguð kaffihlaðborð
Grand Hótel Reykjavík
Sími 514 8000
Lundi V/Nýbýlaveg
564 4566 • www.solsteinar.is
Ástkær eiginkona mín,
ELÍN GUÐJÓNSDÓTTIR,
Laugarásvegi 16,
Reykjavík,
lést á kvennadeild Landspítalans laugardaginn
10. maí,
Fyrir hönd aðstandenda,
Emil Hjartarson.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
ELSA GEORGSDÓTTIR,
Hátúni 12,
Reykjavík,
andaðist að morgni mánudagsins 12. maí.
Útförin fer fram frá Laugarneskirkju föstu-
daginn 16. maí kl. 15.00.
Ólafur Jón Hansson,
Sveinbjörg Fjóla Pálmadóttir, Jón Helgi Óskarsson,
Guðfinnur Georg Pálmason, Jóhanna Sigríður Emilsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning