Morgunblaðið - 13.05.2003, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 43
DAGBÓK
Vesti, bolir, blússur
og toppar
Nóatúni 17• sími 562 4217Gullbrá• Sendum í póstkröfu
Intown
Stuttar og síðar kápur
sumarúlpur, heilsársúlpur,
regnúlpur, ullarjakkar,
hattar og húfur
Opið virka daga frá kl. 9-18
Laugardaga frá kl 10-15
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Hlíðasmári 1-3
Til leigu/sölu
Stórglæsilegt verslunar- og skrifstofuhúsnæði á besta stað í Smáranum í
Kópavogi. Um er að ræða allt að 8.000 fm. Hvort hús um sig ca 4.000 fm.
Möguleiki á að skipta í minni einingar. Næg bílastæði. Frábært útsýni. Sér-
lega vönduð og fullbúin sameign.
Allar nánari uppl. gefur Andres Pétur eða Ellert Bragi á skrifstofu.
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þið eruð frjálslynd, æv-
intýragjörn og lífleg. Gerið
ráð fyrir miklum breyt-
ingum á þessu ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er hætt við deilum um pen-
inga í dag. Það er betra að gefa
þá en lána þá. Þegar vinir
standa ekki í skilum við okkur
missum við ekki einungis pen-
ingana heldur einnig vininn.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Varastu deilur við yfirmenn
þína í dag. Það er mikil við-
kvæmni í loftinu og hætt við
misskilningi. Reyndu að halda
ró þinni og halda þínu striki.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Eitthvað sem tengist útgáfu-
málum, fjölmiðlum, lögfræði eða
fjarlægum löndum veldur þér
áhyggjum. Þú getur ekkert gert
í málinu. Reyndu að einblína á
það sem gengur vel í lífi þínu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það geta komið upp deilur varð-
andi sameiginlegar eignir eða
hvernig eigi að verja ákveðinni
fjárupphæð. Reyndu að forðast
umræðuefnið. Það er ekki þess
virði að gera mál úr því.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er óvenjumikil viðkvæmni í
loftinu í dag og því hætt við deil-
um og sárindum. Dagurinn
hentar því ekki vel til að biðja
yfirmenn eða foreldra um sam-
þykki eða leyfi fyrir einhverju.
Bíddu betri tíma.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Reiði getur leitt til þess að þú
gerir mistök í vinnunni í dag.
Láttu það ekki á þig fá. Þú veist
að þú gerir eins vel og þú getur.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Maki þinn eða börn reyna á þol-
inmæði þína í dag. Líttu á þetta
sem tækifæri til að æfa þig í þol-
inmæði.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Forðastu deilur við fjölskylduna
í dag og þá sérstaklega við
maka þinn. Reyndu að draga úr
spennunni á heimilinu með því
að sýna sveigjanleika.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er mikill hraði á þér í dag
og því er þér óvenju hætt við
óhöppum. Farðu varlega hvort
sem þú ert á gangi eða í umferð-
inni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það kraumir einhver óánægja í
þér. Þú ert ósátt(ur) við eitthvað
en segir þó ekki neitt. Reyndu
að hugsa um eitthvað annað til
að endurheimta sálarró þína.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú hefðir gott af því að hreyfa
þig og losa þannig um uppsafn-
aða spennu. Annars er hætt við
að þú segir eða gerir einhverja
vitleysu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þér finnst þú þurfa að verja
hugmyndir þínar og lífsskoðanir
í dag. Þú ert tilbúin(n) til að
standa og falla með skoðunum
þínum af því þú trúir á þær. Eft-
ir mánuð verður þetta gleymt
og grafið.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÁFANGAR
Liðið er hátt á aðra öld;
enn mun þó reimt á Kili,
þar sem í snjónum bræðra beið
beisklegur aldurtili;
skuggar lyftast og líða um hjarn
líkt eins og mynd á þili;
hleypur svo einn með hærusekk,
hverfur í dimmu gili.
Þverhöggvið gnapir þúfubjarg
þrútið af lamstri veðra;
Ægir greiðir því önnur slög,
ekki er hann mildur héðra;
iðkuð var þar á efstu brún
íþróttin vorra feðra:
Kolbeinn sat hæst á klettasnös,
kvaðst á við hann úr neðra.
- - -
Jón Helgason
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
90 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 13.
maí, er níræður Sigurður
Breiðfjörð Halldórsson,
Akurbraut 11, Innri-
Njarðvík. Sigurður er að
heiman á afmælisdaginn.
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu 2.763 kr. til styrktar
Rauða krossi Íslands. Þær eru Ása Hrund Viðarsdóttir,
Díana Mjöll Stefánsdóttir og Elísa Líf Ingvarsdóttir.
TIL er afbrigði af þvingun
sem Terence Reese kenndi
réttilega við stiklustein
(stepping-stone squeeze).
Þá er varnarspilari neydd-
ur til að þjóna sagnhafa
sem stökkpallur á milli
handa, eða kasta frá sér
slag ella. Þetta er fágætur
eðalsteinn og sérlega
glæsilegur.
Vestur gefur; AV á
hættu.
Norður
♠ 85
♥ Á96
♦ 973
♣ÁKD74
Vestur Austur
♠ 1096 ♠ ÁKD4
♥ 1072 ♥ 84
♦ ÁKG842 ♦ D6
♣9 ♣86532
Suður
♠ G732
♥ KDG53
♦ 105
♣G10
Jónas P. Erlingsson
náði upp stiklusteins-
þvingun á æfingu lands-
liðsins í síðustu viku. Jón-
as og Ragnar Magnússon
voru í NS gegn Jóni Bald-
urssyni og Þorláki Jóns-
syni:
Vestur Norður Austur Suður
Jón Ragnar Þorlákur Jónas
2 tíglar 3 lauf Pass 3 hjörtu
Pass 4 hjörtu Pass Pass
Pass
Fjögur hjörtu er ekki
lánlegur samningur að sjá,
því vörnin getur aug-
ljóslega tekið fjóra fyrstu
slagina. En það sem blasir
við á opnu borði er ekki
alltaf jafn einfalt í reynd.
Jón tók tvo slagi á ÁK í
tígli og lagðist svo undir
feld. Hann gat skipt yfir í
spaða í þeirri von að Þor-
lákur ætti tvo efstu, eða
spilað laufi í þeim tilgangi
að sækja þar stungu ef
makker væri með Kx í
trompi. Jón taldi síðari
kostinn vænlegri og spilaði
laufníu í þriðja slag.
Jónas áttaði sig strax á
stöðunni og féll ekki í þá
freistni að taka tvisvar
tromp og spila svo aftur
laufi. Þess í stað tók hann
öll trompin:
Norður
♠ 8
♥ –
♦ –
♣ÁKD7
Vestur Austur
♠ 1096 ♠ Á
♥ – ♥ –
♦ G8 ♦ –
♣– ♣8653
Suður
♠ G732
♥ –
♦ –
♣G
Þegar hér var komið
sögu hafði Þorlákur hent
drottningu og kóng í
spaða. Jónas tók nú á lauf-
gosann og stiklaði svo yfir
á blindan á spaðaás Þor-
láks!
Glæsilegt.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
Morgunblaðið/Ragnhildur
HLUTAVELTA
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5
a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 b5 6.
Bb3 Bb7 7. d3 Bc5 8. Be3
d6 9. Bxc5 dxc5 10. c3 0-0
11. De2 Dd6 12. Rbd2 Had8
13. Bc2 Bc8 14. Hfe1 Re7
15. a4 Rg6 16. g3 Rh5 17.
De3 Bg4 18. Dg5 De6 19. h3
Bxf3 20. Rxf3 Rf6 21. Kh2
Rd7 22. De3 Re7 23. Rd2
Kh8 24. De2 Hb8 25. h4
Rc8 26. Rf3 Rd6 27. axb5
axb5 28. Ha6 h6 29. Kg1
Ha8 30. Hea1 Hxa6 31.
Hxa6 Hb8 32. Dd1 De8 33.
Ha7 Hb7 34. Hxb7
Rxb7 35. Da1 Rd6
36. Da6 Rb6 37. Kg2
g6 38. Da3 Rd7 39.
Bb3 c4 40. dxc4 Rxc4
41. Bxc4 bxc4 42.
Da5 c5 43. Rd2 De6
44. Da4 f5 45. Rxc4
f4 46. Da8+ Kg7 47.
Dd5 De7 48. g4 Kf8
49. Kh3 Kg7 50. f3
Kf6 51. Kg2 Kg7 52.
Kf1 Kf8 53. Ke2 Ke8
54. Rd6+ Kd8 55.
Da8+ Kc7 56. Rb5+
Kb6 57. c4 Rf6 58.
Db8+ Ka5
Staðan kom upp á Sigem-
an-mótinu sem lauk fyrir
skömmu í Málmey í Svíþjóð.
Sigurvegari mótsins, Vass-
ily Ivansjúk (2.704), hafði
hvítt gegn Jonny Hector
(2.553). 59. Rd4! og svartur
gafst upp enda verður hann
mát eftir 59... cxd4 60. Db5#.
Lokastaða mótsins varð
þessi: 1. Vassily Ivansjúk 7 v.
af 9 mögulegum 2. Peter
Heine Nielsen 6 v. 3. Luke
McShane 5½ v. 4.–7. Curt
Hansen, Tiger Hillarp Pers-
son, Sune Berg Hansen og
Emil Sutovsky 4½ v. 8.–9.
Jonny Hector og Jan Timm-
an 4 v. 10. Bengt Lindberg ½
v.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
FRÉTTIR
UM helgina voru 11
ökumenn grunaðir um
ölvun við akstur en 17
um of hraðan akstur.
Þá var tilkynnt til lög-
reglu um 31 umferðaróhapp. Klukk-
an 13 á sunnudag var veitt aðstoð við
hópreið hestamanna til messu í
Seljakirkju. Þarna voru á ferðinni
um 70 hestamenn og heldur fleiri
hross.
Eftir hádegi á föstudag var hringt
og kvartað undan hávaða frá sam-
komu sem Samfylkingin stóð fyrir á
Ingólfstorgi. Mikill hávaði var á
svæðinu og 5 hljómsveitir að spila en
leyfi var fyrir samkomunni.
Tilkynnt var um innbrot í sum-
arbústað í Mosfellsbæ. Þar var brot-
in rúða, farið inn og stolið mynd-
bands- og sjónvarpstæki.
Aðfaranótt laugardags var ölvun
miðlungi mikil í miðborginni, ástand
gott og lítið af unglingum. Fremur
fátt fólk var þar þrátt fyrir að veður
væri gott. Eitt fíkniefnamál kom
upp, hvítt efni ætlað kókaín.
Rétt fyrir miðnætti var ítrekað
kvartað yfir hávaða og skemmdar-
verkum sem stöfuðu frá unglinga-
samkvæmi í Ásahverfi. Höfðu tré
verið rifin upp og brotin. Nokkru
síðar var kvartað yfir unglingasam-
kvæmi í Seljahverfi. Lögreglumenn
ræddu við húsráðanda og aðstoðuðu
við að rýma íbúðina.
Golfkúlum skotið í Perluna
Aðfaranótt laugardags voru lög-
reglumenn að aka vestur Laugaveg
er þeir sáu mann vera að sprauta
með úðabrúsa á glugga í verslun.
Maðurinn var handtekinn og færður
á lögreglustöðina við Hverfisgötu.
Sá handtekni kvaðst hafa fengið
hugdettu og ætlað að mótmæla
barnaþrælkun fyrirtækis sem fram-
leiðir vöru sem seld er í versluninni.
Var honum sleppt eftir viðræður við
varðstjóra og lofaði hann að þrífa
gluggann. Var hann að því þegar ek-
ið var framhjá stuttu síðar.
Óskað var aðstoðar vegna manna
sem voru að skjóta golfkúlum í Perl-
una í Öskjuhlíð. Skemmdir urðu á
klæðningu og fata full af golfkúlum
fannst á vettvangi. Ekki er vitað
hver eða hverjir þarna voru að verki.
Á laugardagsmorgun var tilkynnt
um innbrot í fyrirtæki við Fiskislóð.
Þar hafði hurðarkarmur verið
spenntur upp og þjófarnir höfðu
einnig spennt upp tvær hurðir á ann-
arri hæð í húsinu en þar eru skrif-
stofur þriggja fyrirtækja. Var tals-
verðum verðmætum stolið frá einu.
Ung börn ráfandi í miðborginni
Rétt fyrir hádegi á laugardag
voru tvö börn, 3 og 5 ára, ráfandi um
miðborgina eftirlitslaus. Virtist sem
þau rötuðu ekki heim. Börnin voru
flutt á lögreglustöð en þangað kom
fulltrúi frá Barnavernd sem fór
ásamt börnunum og lögreglumönn-
um og kom börnunum í hendur móð-
ur þeirra.
Tilkynnt var um 5–6 ára stúlku
sitjandi á umferðareyju á milli ak-
brautanna á Vesturlandsvegi í Ár-
túnsbrekku. Telpunni var komið til
móður sinnar sem var á Bíldshöfða.
Nokkru eftir miðnætti var tilkynnt
um mann að lemja konu á Njálsgötu.
Þarna var par á gangi þegar mað-
urinn lamdi konuna með krepptum
hnefa í andlitið og hótaði að slá hana
með flösku. Hann var handtekinn og
færður í fangamóttöku en sleppt að
loknum viðræðum við varðstjóra.
Konan gekk sína leið.
Talsverður erill var hjá lögreglu
þessa nótt vegna ölvaðra manna sem
voru til vandræða víða um borgina.
Úr dagbók lögreglunnar 9.–12. maí
Mótmælti með hárúða